Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 20

Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 20 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ landair og STEF/FÍH í maí á síð- asta ári og skuldbundu stofnaðilar sig til að starfrækja sjóðinn í að minnsta kosti þrjú ár. Sjóðurinn er vistaður hjá Höfuðborgarstofu. Sjóðnum er ætlað að styðja fram- sækið tónlistarfólk við að hasla sér völl erlendis. STEF og FÍH leggja sjóðnum til þrjár milljónir og Reykjavíkurborg tvær og hálfa milljón króna auk þess að sjá um framkvæmd og umsýslu vegna Reykjavík | Þórólfur Árnason borg- arstjóri afhenti hljómsveitinni Mín- us útrásarverðlaun Reykjavíkur Loftbrúar í Þjóðleikhúsinu í fyrra- kvöld, en þá voru íslensku tónlist- arverðlaunin afhent. Að sögn Þór- ólfs hefur Mínus náð mjög athyglisverðum árangri erlendis undanfarið og plata hljómsveit- arinnar, Halldór Laxness, var ein- mitt valin besta íslenska platan á Ís- lensku tónlistarverðlaununum. Þegar hafa tæplega tvö hundruð tónlistarmenn og tónskáld farið ut- an með aðstoð Reykjavíkur Loftbrúar. Samtals er um að ræða um þrjátíu hljómsveitir og tónlist- arhópa vegna fjörutíu verkefna í níu löndum beggja vegna Atlantshafs- ins. Reykjavík Loftbrú er með viða- mestu útflutningsverkum á sviði framsækinnar íslenskrar tónlistar. Að sögn Þórólfs Árnasonar borg- arstjóra er mikil ánægja meðal tón- listarfólks með Loftbrúna. „Það er ótrúlegt hvað hægt er að fá „mikið fyrir lítið“ þegar borgin, einkaaðilar og hagsmunasamtök leggja saman krafta sína. Átthagafjötrarnir eru horfnir hvað varðar nýsköpun í tón- list,“ segir Þórólfur. Hann segir ennfremur að flugmiðinn og flug- tengingin við útlönd sé oft erfiðasti hjallinn fyrir listamenn og setji þá oft fyrir aftan rásmarkið í kapp- hlaupinu. „Með þessu er líka hvatt til meiri festu og undirbúnings áður en menn hella sér í verkefnið. Þessi fjárfesting gefur mikla möguleika til útrásar og atvinnutækifæra fyrir tónlistarmennina og ekki síður mik- illar og jákvæðrar kynningar fyrir Reykjavíkurborg og Ísland. Ég held að við getum fullyrt það að þetta sé eitt af þessum góðu málum sem enginn virðist sjá ambögur á,“ segir Þórólfur. Styður við framsækið tónlistarfólk Mikill fjölbreytni er innan þeirrar tónlistar sem nýtur stuðnings Reykjavíkur Loftbrúar og er Mínus dæmi um rokk í þyngri kantinum. Næsta föstudag fer hins vegar Mar- grét Bóasdóttir, formaður Félags ís- lenskra tónlistarmanna og stjórn- arformaður Íslensku tónlistarverðlaunanna vestur um haf með organista til að kynna ís- lenska kirkjutónlist. Sjóðurinn Reykjavík Loftbrú var stofnaður af Reykjavíkurborg, Ice- Loftbrúar. Icelandair leggur sjóðn- um til afslátt á farmiðum og yfirvigt sem metið er á fimm og hálfa millj- ón króna. Reykjavík Loftbrú hefur því árlega til ráðstöfunar 11 millj- ónir króna. Framsækin verkefni skilyrði Skilyrði fyrir styrkhæfi er að um- sækjendur hafi komið fram á tón- listarhátíðinni Iceland Airwaves eða geti lagt fram gögn um framsækin verkefni á erlendri grundu sem talin eru líkleg til að geta styrkt ímynd Íslands og Reykjavíkur. Jafnframt þurfa umsækjendur að geta lagt fram staðfest gögn frá tónleikahald- ara, framleiðanda eða hljómplötu- fyrirtæki sem sýna fram á fyr- irhugað tónleikahald, aðra framkomu á erlendum vettvangi, og/eða raunhæfa möguleika á út- gáfu- eða dreifingarsamningi sem styrkveiting geti stuðlað að. Mínus hlýtur útrásarverðlaun Morgunblaðið/Árni Torfason Landkynningarjöfrar: Drengirnir í Mínus hafa verið ötulir í að fá útrás, bæði á sviði og í flutningi framsækinnar íslenskrar tónlistar. Þykja þeir hafa unnið landi og þjóð mikinn sóma undanfarið ár. Reykjavík | Vega- gerðin, Reykjanes- umdæmi og Um- hverfis- og tæknisvið Reykja- víkurborgar (UTR) hafa auglýst með útboði eftir ráðgjöf- um í að vinna frum- drög hönnunar og mat á umhverfis- áhrifum fram- kvæmda við gatna- mót Kringlumýrarbraut- ar og Miklubrautar ásamt gatnamótum Kringlumýrarbraut- ar og Listabrautar. Þetta kemur fram á fréttavef um- hverfis- og tæknisviðs Reykjavík- urborgar. Fyrst og fremst er beint sjónum að annars vegar plangatnamótum og hins vegar þriggja hæða mis- lægum gatnamótum á mótum Kringlumýrarbrautar/Miklubraut- ar. Einnig verður gerð grein fyrir öðrum kostum í mati á umhverfis- áhrifum, s.s. þeim sem gildandi að- alskipulag Reykjavíkur gerir ráð fyrir. Frumdrögum hönnunar og mats- skýrslu skal lokið fyrir 13. desem- ber 2004. Samkvæmt frétt UTR er þessi vinna nauðsynlegur undanfari ákvörðunar um útfærslu gatnamót- anna og undanfari verkhönnunar og framkvæmda. Stærstur hluti kostnaðar mun koma af fjárveit- ingum til vegáætlunar þar sem um þjóðveg er að ræða. Gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar hafa mikið verið í umræðunni undanfarið vegna hárr- ar slysatíðni og gríðarlegs umferð- arþunga sem þar er á álagstímum. Frítt flæði í báðum umferðaræðum Stefán Agnar Finnsson, yfirverk- fræðingur hjá Umhverfis- og tæknisviði Reykjavíkur segir að áfangaskýrsla hafi verið gerð fyrir gatnamótin um mitt síðasta ár þar sem lagðir voru upp ýmsir mögu- leikar. „Áfangaskýrslan varð að frumdrögum, sem nú er meiningin að ljúka. Það er verið að útfæra þessi þriggja hæða gatnamót þar sem gert er ráð fyrir að Kringlu- mýrarbrautin verði í fríu flæði við Listabraut og Miklubraut,“ segir Stefán og bætir við að í hugmynd- inni sé áætlað að Kringlumýrar- brautin verði grafin niður um eina tíu metra. „Miklabrautin yrði líka grafin niður, en hún yrði ofan við Kringlumýrarbraut. Síðan var hug- myndin að byggja hringtorg efst þar sem þeir sem eru að taka hægri og vinstri beygjur færu. Sú hæð myndi rísa um sirka tvo metra upp af landi. Þarna er verið að gera mislæg gatnamót þar sem beinu straumarnir skerast ekki lengur. Þarna er verið að útfæra þetta svo það hafi sem minnst áhrif í um- hverfinu, sjónræn og annars konar áhrif. Síðan er á aðalskipulagi að Miklabrautin fari í stokk í fram- haldi af Hringbrautinni frá Eski- hlíð að Reykjahlíð,“ segir Stefán. Frumhönnunarvinnunni á að vera lokið í október, en þá verða drögin tilbúin til að fara í gegnum umhverfismatsferlið. „Matsskýrsl- an á að vera tilbúin í desember í ár og verður þá auglýst og send um- sagnaraðilum,“ segir Stefán, sem tekur þó fram að umferðarþunginn leysist ekki algerlega við þetta, því umferðin færist í raun frá gatna- mótunum sjálfum. „Gatnamótin geta haft áhrif út frá sér. Það má búast við að það verði lengri raðir í Lönguhlíð og Háaleitisbraut á morgnana.“ Stefán segir að með útfærslunni sé reynt að hafa gatnamótin sem umfangsminnst. „Með því að út- færa þau svona þá verða þau ekki mjög umfangsmikil og minni sjón- ræn truflun af þeim,“ segir Stefán að lokum. Mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut Nýstárlegt hringtorg: Fyrirhuguð mislæg gatnamót eru talin geta fækkað slysum um allt að 80%. Frumdrög í bígerð Hlíðar | Þótt veturinn skelli á sitja garðyrkjumenn ekki með hendur í skauti. Veturinn er einmitt tími margra mikilvægra viðhaldsverka og þá er búið í haginn fyrir kom- andi vor og sumar. Þegar kalt er í veðri liggja tré og runnar í vetrardvala og einangra sig frá kuldanum. Þegar þannig er ástatt er kjörið að snyrta og klippa, því þá verður skaðinn minnstur á gróðrinum og heilbrigði hans tryggt á komandi vori. Það er mik- ilvægt að hlúa vel að gróðrinum og snyrta hann vandlega til að halda við fallegu yfirbragði hans og góðri heilsu. Þessi laghenti garð- yrkjumaður var að snyrta runna- gróður í björtu og blíðu veðri á Eskitorgi þegar ljósmyndari átti leið hjá. Þótt notaðir væru hlífð- arvettlingar var ekki að sjá að starfsmaðurinn tæki á gróðrinum neinum vettlingatökum. Morgunblaðið/Þorkell Snyrt og snurfusað Kópavogur | Bæjarfulltrúar Sam- fylkingar í Kópavogi lögðu áherslu á það á bæjarstjórnarfundi síðasta þriðjudag að sveitarfélög stæðu saman gegn síauknum hlut sveitar- félaganna í endurgreiðslu húsaleigu- bóta. Í tilkynningu Samfylkingar- manna segir m.a. „Þetta er samstarfsverkefni sveitarfélaga og ríkis og á þessu ári stefnir í að sveit- arfélögin greiði um 60% en ríkið um 40%. Fyrir 5 árum var þetta á hinn veginn þ.e. ríkið greiddi um 60% og sveitarfélögin um 40%. Þetta mál ræddum við og bentum m.a. á að þeir sem bæru ábyrgð á ríkisfjármálum væru jú einmitt Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur sem hefðu markað þessa stefnu gagnvart sveit- arfélögunum, þeir sömu og væru við völd hér í bæ. Við tókum undir að nauðsynlegt er að sveitarfélögin standi saman gegn þeirri tilhneig- ingu ríkisins að velta fjármögnun sem þessari æ meir yfir á sveitar- félögin.“ Niðurskurði mótmælt harðlega Ennfremur kemur fram í tilkynn- ingu samfylkingarmanna að á fé- lagsfundi Samfylkingarinnar í Kópa- vogi sem haldinn var á dögunum hafi verið mótmælt harðlega niðurskurði til heilsugæslumála í Kópavogi sem m.a. felur í sér fækkun lækna sem veita bæjarbúum nauðsynlega þjón- ustu. Í tilkynningunni segir m.a. „Á fimmta þúsund einstaklingar hjá heilsugæslunni í Kópavogi eru án heimilislæknis og auk þess hefur fjöldi Kópavogsbúa ekki verið skráð- ur. Niðurskurður til heilsugæslu- mála eykur enn á þenna vanda.“ Ennfremur segir: „Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og stuðningsmenn hennar á þingi og í bæjarstjórn Kópavogs bera fulla ábyrgð á hvernig málum er komið. Fundurinn hvetur bæjarfulltrúa og alþingismenn flokksins til að berj- ast fyrir réttlátum og nauðsynlegum fjárveitingum til heilsugæslumála í Kópavogi.“ Taka samfylkingarmenn í bæjarstjórn einnig undir bréf læknaráðs Heilsugæslunnar í Kópa- vogi til heilbrigðisráðherra þar sem mótmælt er skammtímalausnum á fjárhagshalla heilsugæslunnar. Samfylkingin ályktar um húsaleigubætur og heilbrigðismál Mótmæla vaxandi hlut bæjar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.