Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 22
AKUREYRI
22 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glucosamine (870 mg
Glucosamine í hverjum belg)
ásamt engifer og turmeric
Fyrir vöðva og liðamót
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
FASTEIGNASALA
AKUREYRI
Franz Jezorski, lögfr. og löggiltur fasteignasali
Vilhelm Jónsson,
sími 461 2010,
Gsm 891 8363
hollak@simnet.is
Sjá einnig Fasteignablað
Morgunblaðsins
Dvergagil 11
Mjög glæsilegt einbýlishús á einni hæð með
sambyggðum bílskúr, 161 fm. Húsið er glæsi-
lega innréttað og allt frágengið að utan, verönd
og stéttir. Verð 23,0 millj.
Ásabyggð 4
Glæsileg hæð í tvíbýli, 154 fm. 4-5 svefnherb.
Parket á gólfum. Gott eldhús og nýtt glæsilegt
baðherbergi. Verð 16,2 millj.
Tískuverslunin FACTORY
við Skipagötu til sölu
Verslunin er í leiguhúsnæði. Góð merki. Fyrir
dugmikla.
Heiðarlundur 1D
Raðhús á tveimur hæðum með stakstæðum bíl-
skúr, 177 fm. Parket á neðri hæð. Góð stað-
setning. Verð 18,5. millj.
NÝIR eigendur Útgerðarfélags
Akureyringa héldu fund með
starfsfólki í hádeginu í gær og fóru
yfir stöðu mála,
en feðgarnir
Kristján Guð-
mundsson, Guð-
mundur Krist-
jánsson og
Hjálmar Krist-
jánsson, sem
eiga útgerðarfyr-
irtækið Tjald í
Reykjavík og
KG-fiskverkun á
Rifi á Snæfells-
nesi, keyptu ÚA
í fyrradag fyrir 9
milljarða króna.
„Það læddist
að mér nokkur
uggur þegar
fréttirnar bárust
fyrst, en hann er
horfinn nú. Þeir
fóru yfir málin
og kynntu sig á
fundinum og mér
líst alls ekki illa á,“ sagði Birgir
Tryggvason, vigtarmaður í mót-
töku, en hann hefur starfað hjá ÚA
í 10 ár.
Hann sagði að starfsfólk hefði lít-
ið sem ekkert þekkt til hinna nýju
eigenda, „vissum þeir væru í út-
gerð á Rifi, en ekki mikið meira,“
sagði hann. Þeir hefðu svo hitt
starfsfólk í gær og haldið ágætis
fund að sögn Birgis. „Ég var mjög
ánægður eftir hann, þetta eru
traustir menn sýnist mér, þaulvanir
útgerð og fiskvinnslu og vita alveg
hvað þeir eru að gera, þannig að ég
er bara alveg þokkalega bjartsýnn
á framtíðina,“ sagði Birgir.
Fólk er bara rólegt yfir þessu
Petra Jósepsdóttir byrjaði að
vinna hjá ÚA árið 1998 og var hún
að störfum við innmötun í gærdag.
„Ég fann ekki fyrir því að starfs-
fólkið væri neitt hrætt um sína
stöðu þegar fréttir bárust af eig-
endaskiptum fyrirtækisins, mér
fannst fólk bara rólegt yfir þessu
og fann ekki að það hefði áhyggur,“
sagði Petra. Hún sagði að sér litist
vel á nýja eigendur fyrirtækisins
og hún hefði ekki heyrt annað en
fólk væri jákvætt. „En auðvitað
heyrir maður að margir hefðu held-
ur viljað að heimamenn ættu fyr-
irtækið, en það er sjálfsagt að þess-
ir menn fái tækifæri,“ sagði Petra.
Best að láta verkin tala
„Mér hefur líkað ágætlega að
vinna hjá ÚA,“ sagði Jónína Jó-
hannsdóttir sem hefur unnið í 10 ár
hjá félaginu. „Við finnum lítið fyrir
því þó verði breytingar á eignar-
haldi, það er frekar fólkið á efri
hæðinni sem finnur það,“ sagði
Jónína. Hún sagði að sér litist
ágætlega á nýju eigendurna. „Er
ekki best að láta verkin tala,“ sagði
kona sem vinnur á móti henni við
færibandið og Jónína samsinnti því.
Hún sagði að vissulega hefðu eig-
endaskiptin komið fólkið á óvart,
nánast eins og þruma úr heiðskíru
lofti. „En það voru allir að bíða eft-
ir að eitthvað gerðist, það lá í loft-
inu.“ Jónína sagðist ekki hafa heyrt
annað, „en þeir væru góðir dreng-
ir,“ eins og hún
komst að orði.
„Og ég held að
starfsemin verði
á svipuðum nót-
um og áður
þannig að menn
eru ekkert
hræddir um
sitt,“ sagði hún.
Ingvar Pálsson
í pökkuninni hef-
ur unnið hjá ÚA
í 5 ár. „Það
spruttu upp
spurningar fyrst
og menn hafa
verið að hamast
við að svara
þeim,“ sagði
hann. „Auðvitað
héldum við að
heimamenn
myndu kaupa,
þess vegna vor-
um við dálítið hissa þegar þetta
kom upp. Flestir höfðu ekki hug-
mynd um hvaða menn þetta voru,
en í heildina voru menn bara róleg-
ir yfir tíðindunum,“ sagði Ingvar.
Hann sagði að málin hefðu skýrst
eftir fundinn í gær en þá hefðu eig-
endur kynnt sig og fyrir hvað þeir
stæðu. „Ég sé ekki annað en allt sé
í góðu, þetta eru duglegir menn og
nú höldum við bara áfram okkar
starfi, sýnum þeim að hér er gott
starfsfólk,“ sagði Ingvar.
Nýir eigendur ÚA kynntu sig á fundi með starfsfólki í gær
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Einn nýju eigendanna, Hjálmar Kristjánsson, skoðar sig um í vinnslusal ÚA í gær. Hjálmar er lengst til vinstri, til
hægri er Gunnar Vigfússon verkstjóri og í miðjunni Gunnar Larsen, framkvæmdastjóri ÚA.
Starfsfólki líst vel á
Birgir
Tryggvason
Petra
Jósepsdóttir
Jónína
Jóhannsdóttir
Ingvar
Pálsson
STJÓRN Auðhumlu, félags mjólk-
urframleiðenda í Eyjafirði og Þing-
eyjarsýslu, hefur lýst yfir áhuga á
að félagið eignist meirihluta í Norð-
urmjólk, með kaupum á 12% hlut
Osta- og smjörsölunnar næsta
haust. Auðhumla á nú 40% hlut í
Norðurmjólk en aðrir hluthafar eru
Mjólkursamsalan með 16% eignar-
hlut eins og Mjólkurbú Flóamanna,
Kaupfélag Eyfirðinga á 13% í félag-
inu, Osta- og smjörsalan 12% og
Kaupfélag Skagfirðinga 3%.
Stefán Magnússon, formaður
stjórnar Auðhumlu, sagði það fé-
lagsmanna að ákveða hvort af
væntanlegum kaupum yrði, auk
þess sem eftir væri að ganga frá
fjármögnun. Hann sagði að stefnt
væri að því að boða til félagsfundar
vegna málsins í næsta mánuði. Auð-
humla keypti 67% hlut Kaldbaks í
Norðurmjólk sumarið 2002 og
greiddi ári síðar 550 milljónir króna
fyrir hlutinn. Fyrir átti Auðhumla
þriðjungs hlut í Norðurmjólk. Fé-
lagið seldi svo áðurnefndum sam-
starfsaðilum í mjólkuriðnaði 60%
hlut í Norðurmjólk. Stefán sagði að
ljóst hefði verið frá upphafi að
Osta- og smjörsalan ætlaði ekki
eiga sinn hlut í félaginu til lang-
frama.
Fyrirhugaðar breytingar kalla
á sameiningu í iðnaðinum
Opinberri verðlagningu á heild-
söluverði mjólkur verður hætt þann
1. júlí í sumar og verðið gefið
frjálst. Stefán sagði að afurðastöðv-
arnar mættu ekki hafa með sér
samráð eftir þann tíma og að það
gæti haft ýmsar afleiðingar í för
með sér. „Það er mikil samvinna á
milli afurðastöðvanna en ég sé ekki
annað en að þessar breytingar kalli
á sameiningu allra afurðastöðva í
mjólkuriðnaði í eitt fyrirtæki. Það
eru ýmis álitamál í gangi varðandi
fyrirhugaðar breytingar, m.a. hvort
það verða samkeppnislög eða bú-
vörulög sem gilda í þessum geira í
framhaldinu. Ef við missum stjórn-
unina á iðnaðinum þá hrynur heild-
arframleiðslan í landinu, því þá
munu menn ekki lengur framleiða
vöru sem ekki hefur þokkalega
framlegð. Og það mun ekki bitna á
öðrum en bændum.“
Stefán sagði að sameining allra
fyrirtækja í mjólkuriðnaði myndi
kalla á aukinn þrýsting á innflutn-
ing. Á móti yrði hægt að hagræða
mikið í greininni, bjóða lægra verð
og þannig standa betur að vígi
gagnvart innflutningi.
Auðhumla stefnir á meiri-
hlutaeign í Norðurmjólk
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ er á
fullu þessa dagana að æfa söng-
leikinn Ronju ræningjadóttur í
leikstjórn Odds Bjarna Þorkels-
sonar. Þetta er merkilegur áfangi
í sögu leiklistar í Eyjafjarðarsveit,
því í fyrsta sinn setur Freyvangs-
leikhúsið upp barna- og fjölskyldu-
leikrit og byrjar svo sannarlega
ekki á neinu smástykki, segir í
frétt frá Freyvangsleikhúsinu.
Leikendur í Ronju eru um 30
talsins auk þriggja manna hljóm-
sveitar undir stjórn Hjálmars Stef-
áns Brynjólfssonar og síðan eru
aðrir starfsmenn sýningarinnar
um 30 manns, svo að rúmlega 60
manns vinna nú hörðum höndum
að því að gæða Ronju ræn-
ingjadóttur lífi í Freyvangi. Það
gekk ótrúlega vel að fá leikara í
Ronju, meira en 30 manns komu á
fyrsta samlestur og fleiri komu
næstu daga og allir vildu vera
með.
Áætlað er að frumsýna seinni-
hluta febrúarmánaðar.
Ronja í
Freyvangi
Tvær milljónir á dag | Í veðurfari
eins og verið hefur á Akureyri síð-
ustu daga má gera ráð fyrir að
snjómokstur kosti bæjarfélagið upp
undir tvær milljónir króna á dag,
að því er fram kemur á vef bæj-
arins. Að sögn Guðmundar Guð-
laugssonar, deildarstjóra fram-
kvæmdadeildar bæjarins, er
heildarfjöldi tækja sem notaður er
um 30 og heildarfjöldi starfsmanna
um 35. Hafist er handa klukkan
fimm á morgnana og unnið fram
eftir kvöldi.
Lögð er áhersla á að stræt-
isvagnaleiðir og aðalgötur verði
færar svo fljótt sem verða má en
íbúðargötur opnaðar þar á eftir.
SVEITARSTJÓRN Grýtubakka-
hrepps hefur ákveðið að greiða á
árinu 2004 þeim framhaldsskólanem-
endum sem fá dreifbýlisstyrk frá rík-
inu, styrk að upphæð kr. 20.000 á
nemanda. „Sveitarstjórn álítur að
þessi styrkur komi sér vel ef hægt
verður að greiða hann sem fyrst.
Sveitarstjórn þarf að meta hverja og
eina umsókn fyrir sig. Hugsanlegt er,
að ef um vafaatriði verður að ræða, að
sveitarstjórn þurfi að draga styrk-
veitinguna til einstakra nemenda.
Þeir umsækjendur sem fá styrkveit-
ingu eru skuldbundnir til að afhenda
staðfestingu um dreifbýlisstyrk frá
ríki um leið og sá styrkur er greiddur
út,“ segir á vef Grýtubakkahrepps.
Einnig kemur þar fram að umsókn-
areyðublöð verði borin út með póst-
inum á hvert heimili í hreppnum en
einnig er hægt að nálgast þau á skrif-
stofu Grýtubakkahrepps.
Styrkja
framhalds-
skólanema
KRISTJÁN Uni Óskarsson skíða-
maður hefur verið kjörinn íþrótta-
maður Ólafsfjarðar árið 2003. Kjör-
inu var lýst í athöfn í húsi UÍÓ í
vikunni, en íþróttamaðurinn gat ekki
verið viðstaddur þá athöfn. For-
eldrar hans, Soffía og Óskar, tóku
við verðlaununum fyrir hans hönd.
Aðrar tilnefningar voru:
Golfklúbbur Ólafsfjarðar: Sig-
urbjörn Þorgeirsson, Íþróttafélagið
Leiftur: Heiðar Gunnólfsson, Skot-
félag Ólafsfjarðar: Anton Konnr-
áðsson, Hestamannfélagið Gnýfari:
Iðunn Ósk Óskarsdóttir og svo var
Krisján Uni tilnefndur af Skíðafélagi
Ólafsfjarðar. Á vefnum má einnig
lesa að Sigurbjörn Þorgeirsson hafi
verið valinn kylfingur ársins 2003
hjá Goflklúbbi Ólafsfjarðar og Anton
Konráðsson var valinn íþróttamaður
ársins hjá Skotfélagi Ólafsfjarðar.
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Uni Óskarsson er íþrótta-
maður Ólafsfjarðar 2003.
Kristján
íþróttamaður
Ólafsfjarðar