Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 24
SUÐURNES 24 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Fást í verslunum um land allt H. Blöndal ehf. Sími 517 2121 www.hblondal.com Purga-T sjálfvirku slökkvitækin fyrir sjónvörp • Alltaf á vakt • Slekkur eldinn strax • Fullkomlega öruggt Keflavík | Hestamenn á Suð- urnesjum vinna að undirbúningi Ís- landsmóts í hestaíþróttum sem haldið verður á félagssvæði Mána, Mánagrund norðan Keflavíkur, í júlí í sumar. Meðal annars er verið að endurbæta aðstöðu við keppn- isvöllinn. Verður félagið þá í stakk búið til að taka við stórmótum og er stefnt að einu stórmóti á hverju ári. Á áttunda áratugnum voru hald- in fjölmenn mót á Mánagrund, kappreiðar eins og þá voru vinsæl- ar. Þegar áherslan færðist af kapp- reiðum yfir í hestaíþróttir var einu sinni haldið Íslandsmót á Suð- urnesjum, það var árið 1982. Síðan hafa ekki verið haldin stór mót á Mánagrund. Sigurður V. Ragn- arsson, formaður framkvæmda- nefndar Íslandsmótsins í sumar, segir að aðstaðan hafi ekki boðið upp á það fram til þessa. Hann segir að á árinu 2000 hafi þáverandi stjórn Mána talið tíma- bært að huga aftur að mótahaldi. Það hafi leitt til þess að sótt var um að halda Íslandsmót í hestaíþrótt- um 2004 og Íslandsmót í hesta- íþróttum barna og unglinga 2005 og hafnar framkvæmdir við keppn- isvöll. Nýr keppnisvöllur var byggður á árinu 2001 og segir Sigurður að fé- lagsmenn hafi unnið mikið að þeirri framkvæmd í sjálfboðavinnu en notið stuðnings Reykjanesbæjar. Hann segir félagsskapinn öflugan og það komi vel í ljós við fram- kvæmdir eins og þessar. Betri aðstaða fyrir keppendur og gesti Vel á annað hundrað keppendur verða á Íslandsmótinu í sumar og tvö þúsund gestir, ef miðað er við síðasta Íslandsmót. Til að halda slíkt mót með sóma sem og Íslandsmót barna og ung- linga á næsta ári þurfti að sögn Sigurðar að ráðast í frekari fram- kvæmdir og eru þær komnar nokk- uð áleiðis. Byggja þarf nýtt dómhús og setja það niður við keppnisvöll- inn, lengja og tyrfa áhorf- endabrekkuna við völlinn, leggja upphitunarbraut við hlið keppn- isvallarins, kappreiðabraut og út- búa bílastæði fyrir gesti. Auk þess verður kostað kapps um að fegra og snyrta allt hesthúsa- og keppn- issvæðið á Mánagrund. Sigurður segir að Reykjanesbær styðji myndarlega við þessar fram- kvæmdir. Stefnt er að því að þeim verði að fullu lokið í byrjun júní. „Við stefnum að því að halda glæsilegt Íslandsmót sem verði fé- laginu, Reykjanesbæ og öllum Suð- urnesjamönnum til sóma,“ segir Sigurður. Hann segir að með þeirri aðstöðu sem tilbúin verði fyrir Íslandsmótið í sumar geti Máni á ný gert sig gild- andi sem mótshaldari á landsvísu. Félagsmenn verði hér eftir veit- endur en ekki aðeins þiggjendur á þessu sviði. Stefnt sé að því að nýta aðstöðuna vel og halda eitt stórmót á hverju einasta ári. Reiðvegur lagður út í Garð Áhugi á hestamennsku hefur verið að aukast á Suðurnesjum, að sögn Sigurðar. Kemur það meðal annars fram í því að félagsmönnum í Mána fjölgar ár frá ári en þeir eru nú um 350. Þetta kemur meðal ann- ars til af því að hestamennskan er orðin að fjölskylduíþrótt. Þá er æskulýðsstarf Mána öflugt, að sögn Sigurðar, og hefur félagið fengið viðurkenningar fyrir það. Síðast fékk Máni, fyrst hestamannafélaga, gæðaviðurkenningu ÍSÍ sem fyr- irmyndarfélag. Auk þess að vinna að bættri að- stöðu fyrir keppnisfólkið hefur stjórn Mána unnið að gerð reiðvega fyrir almenna félagsmenn. Lagðir voru fjórir kílómetrar á síðasta ári og í sumar verður lagður var- anlegur reiðvegur frá Mánagrund og út í Garð, um 7,5 km leið. Bætt keppnisaðstaða á Mánagrund fyrir Íslandsmótið sem þar verður í sumar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Undirbýr stórmót: Sigurður V. Ragnarsson er formaður framkvæmdanefndar næsta Íslandsmóts í hestaíþróttum. Fyrsta stóra mótið í tvo áratugi Grindavík | Mikið hefur verið að gera í Blómarósinni, blómabúðinni í Grindavík, frá því hún var opnuð í desember enda hófst starfsemin í miklum verslunarmánuði. Það eru þau Rósa Williamsdóttir og Sigurður Erlendsson sem reka búðina en nokkuð er um liðið síðan blómabúð var í Grindavík. Búðin er í versluninni Bárunni á Hafnargötu 6. Rósa er þriðji ættliðurinn í blómasölu. Foreldrar hennar reka blómabúðina Runna-Stúdíóblóm við Hverafold í Reykjavík og amma hennar rak blómabúðina Runna við Hrísateig. „Þetta byrjar bara vel hjá okkur enda desember hörkumánuður í þessum rekstri. Hér fæst flest sem er í blómabúðum, bara biðja um það. Þetta er í raun blóma- og gjafavöruverslun þar sem boðið er upp á afskorin blóm, kransa, tæki- færisgjafir og margt fleira,“ segir Rósa. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Blómarósin: Rósa Williamsdóttir og Sigurður Erlendsson reka blóma- búð í Grindavík. Þriðji ætt- liðurinn í blómasölu AUSTURLAND Egilsstaðir | Í gær héldu Samtök sveitarfélaga á Austurlandi og um- hverfisráðherra, Siv Friðleifsdótt- ir, opinn kynningarfund um drög að náttúruverndaráætlun sem tek- ur til fimm ára. Til skoðunar vegna áætlunarinn- ar voru 75 svæði um allt land og valdi Umhverfisstofnun, eftir ítar- lega og faglega athugun, 14 svæði á forgangslista til verndunar. Mun umhverfisráðherra um næstu mán- aðamót leggja fram þingsályktun- artillögu um að á næstu fimm ár- um skuli unnið að friðlýsingu þessara fjórtán svæða sem og stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Borgarfjarðar- hreppur inni Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir að eitt svæði á Austurlandi verði verndað, en það er svæðið frá Njarðvík til Loðmundarfjarðar, eða allur Borgarfjarðarhreppur, samtals um 468 ferkílómetrar að stærð. Talið er mikilvægt að vernda svæðið á grundvelli gróð- urfars, fjölda sjaldgæfra tegunda plantna, vegna jarðfræði þess og gildis fyrir útivist og ferðaþjón- ustu. Fjölmargir eigendur eru að svæðinu og felst landnýting þess í landbúnaði, ferðaþjónustu, fisk- veiðum og útivist. Alls voru 18 svæði á Austurlandi könnuð m.t.t. náttúruverndaráætl- unar. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra kynnti á fundinum það ferli sem val svæða fór í gegnum og sagði vatnafar, líffræðilega fjöl- breytni, landslag, víðerni, og menningar- og söguminjar ráða mestu um forgangsröðun. Svæðin skoðaði hún skipulega síðastliðið sumar og má finna dagbók frá þeim ferðum á vef hennar, siv.is. Friðunarflokkar eru nokkrir, en Siv sagði afar misjafnt hvað fælist í verndun. „Það er erfitt að svara því vegna þess að merkingin liggur ekki ljós fyrir,“ sagði Siv. „Þó má segja að ákvörðun um verndun sé yfirlýsing um að svæði sé einstakt og muni hafa ákveðna landnotkun sem við setjum í skilmála, sem búnir eru til sérstaklega fyrir hvert svæði. Um þá þarf að sam- einast og hafa um eins mikla sátt og unnt er. Að öðrum kosti er lítill tilgangur í vernduninni. Friðuð svæði hafa geysilegt útivistar- og fræðslugildi, gildi fyrir vitund íbú- anna og sveitarfélagsins og gagn- vart náttúruvernd til framtíðar.“ Ekki utanaðkomandi ásælni Siv sagði tillöguna um verndun svæðanna fjórtán ekki vera yfirlýs- ingu um utanaðkomandi ásælni af neinu tagi heldur beiðni um sam- starf til að vernda merkilegustu svæði Íslands. Hún nefndi sem dæmi að Ísafjarðarbær sjái um allt eftirlit með Hornstrandafriðlandi og slík aðkoma heimamanna sé far- sæl. „Við erum að fikra okkur nær og nær því að heimamenn annist sjálfir þessi svæði og ég held að stórt stökk verði tekið í því á næstu árum.“ Verði þingsályktunartillagan samþykkt í vor, eins og ráðherra vonast til, verður unnið eftir nátt- úruverndaráætluninni, þeirri fyrstu sinnar tegundar hérlendis, næstu fimm árin. „Það þýðir ekki að þar með sé búið að vernda eða friða þessi 14 svæði,“ sagði Siv. „Þetta er einvörðungu forgangs- röðun á okkar vinnu til næstu fimm ára, sem og áframhaldandi vinna að stofnun Vatnajökulsþjóð- garðs.“ Svæðin sem út af standa, 61 tals- ins, verða áfram til skoðunar og teljast öll þess virði að vernda þau. Svæðið frá Njarðvík í Loðmundarfjörð á náttúruverndaráætlun Borgarfjarð- arhreppur undir vernd Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæj- arstjóri Austur-Héraðs, á kynningarfundi um náttúruverndaráætlun. Fjarðabyggð | Áætlað er að halda íbúaþing í Fjarðabyggð í mars næstkomandi og er nú unnið að undirbúningi þess. Kynningarnefnd sveitarfélagsins fundaði með lykilfólki í skólakerf- inu og aðal- og varamönnum allra nefnda í gær, þar sem leitað var eftir hugmyndum að áherslu- atriðum í þinghaldinu. Ef vel tekst til gætu niðurstöður þingsins orðið efniviður í stefnumótun sveitarfé- lagsins á breiðum vettvangi, en eitt meginmarkmið þinga af þessu tagi er að fá fram hugmyndir og hugs- anir íbúa um sitt heimasvæði. Ráðgjafarfyrirtækið Alta mun undirbúa þingið og aðstoða við að móta markmið þess og fyr- irkomulag fyrir hönd Fjarðabyggð- ar. Íbúaþing undirbúið í Fjarða- byggð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.