Morgunblaðið - 16.01.2004, Side 26
einu myndast ákveðin stefna.“
Fyrstu skyrtuna keypti hann í
Þýskalandi og nokkrar hefur hann
fengið í verslunum hér heima og í
Kolaportinu. Öllu erfiðara hefur ver-
ið að nálgast myndir af Marilyn og
eru flestar þær stærri keyptar er-
lendis.
Servíettur, hattar og slifsi
„Ég hef aldrei talið mig vera safn-
ara,“ segir Hrafnhildur Sigurð-
ardóttir myndlistamaður, sem sýnir
servéttusafn, hatta og slifsi. „Og þeg-
ar haft var samband við mig og ég
beðin um að sýna, kannaðist ég í
fyrstu ekki við að vera safnari. En þá
mundi ég eftir servíettunum sem
mamma hafði geymt fyrir mig, sem
var það fyrsta sem ég fór að safna
og þá var ég sjö ára. Ég
fór að safna vegna þess að
hinar stelpurnar í hverf-
inu voru að safna servíett-
um. Svo mundi ég eftir að
hafa safnað höttum á
tímabili. Sú söfnun hófst
með því að ég keypti
einn hatt og svo annan
og þegar ég var komin
með þrjá, var farið að
tala um að ég safnaði
höttum. Þá fór fólk að
gefa mér hatta og nú á ég
um 60 hatta. Sama var með
slifsin, fyrst fékk ég gömlu
bindin hans pabba og ætlaði að
nota þau í bútasaum en síðan fór
fólk að gefa mér gömlu bindin.“
Nú safnar Hrafnhildur að auki
bjór- og gostöppum, jólakortum,
merkisspjöldum og jólapappír, sem
hún ætlar að nota í myndverk.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
sd
ís
Hattar: Hrafnhildur
Sigurðardóttir á um
60 slíka.
Ellefu safnarar á öllum aldriopna sýningu á broti af ger-semum sínum í Gerðubergi,
á morgun laugardag. Sýnendur eru
flestir smágripasafnarar, sem sjald-
an sýna gripi sína og er sýningunni
ætlað að gefa sem fjölbreyttustu
myndina af söfnum, bæði hefð-
bundnum og óhefðbundnum.
Væntumþykja
Á sýningunni er að finna styttur úr
safni frú Vigdísar Finnbogadóttur
fyrrum forseta af foreldrum með af-
kvæmi sín og nær safnið til alls í líf-
ríkinu. „Stytturnar sýna vænt-
umþykju foreldranna,“ segir Vigdís
en eftir að hún fékk fyrstu styttuna
eftir Þórdísi Tryggvadóttur af móður
og dóttur í þjóðbúningi tóku vinir og
kunningjar að gefa henni styttur á
tyllidögum. Þannig varð safnið Móð-
ir-barn til en safnið telur um 50 muni.
Ryðgaðir naglar
Birgir Örn Thoroddsen mynd-
listamaður segist snemma hafa verið
haldinn söfnunaráráttu og meðal
annars safnað ryðguðum nöglum sem
barn. „Ég hef alltaf verið safnari,“
segir Birgir. „Myndirnar af Marilyn
Monroe er fyrsta alvöru safnið.
Helstu söfnin þar fyrir utan eru
Hawaii-skyrturnar, sem ég byrjaði
að safna 1995. Þá hafði ég mikinn
áhuga á brimbrettatónlist og keypti
nokkrar Hawaii-skyrtur af því tilefni
og nú á ég 31 skyrtu en síðan hafa
bæst við skyrtur með austurlensku
mynstri og eins áprentaðar en ég
safna líka ýmsu öðru til dæmis gít-
urum. Þetta byrjar þannig að maður
fer að safna ýmsu drasli en svo allt í
SÝNING|Gostappar, servíettur, jólapappír, styttur, hattar, spiladósir, slifsi, danslagatextar, rakvélablöð, vettlingar,
Safna öllu milli
himins og jarðar
Morgunblaðið/Jim Smart
Leikaramyndir: Birgir Örn Thoroddsen faðmar Marilyn Monroe.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigríður Þórðardóttir: Hefur safnað spila-
dósum í yfir 50 ár.
Morgunblaðið/Ásdís
Rakvélablöð: Baldvin Halldórsson á stórt safn af þeim.
Textar: Gamlir danslaga-
textar úr safni Baldvins.
Flaska:
Fyrsta
spiladós
Sigríðar.
DAGLEGT LÍF
26 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Bjóðum mötuneyti Sjálfsbjargar
velkomið í hóp viðskiptavina
okkar. Þeir hugsa vel um sitt fólk.
Hvað hentar þér:
fyrir þá sem hugsa
um heilsuna
Fæst í heilsubúðum
www.xylitol.is
Hollt
Ekki fi tandi
Verndar tennur
Allir geta notað
í stað sykurs
Xylitol
Gula línan veitir upplýsingar um þessi fyrirtæki í síma 1444 • gulalinan.is
ÚTSALAN
ER HAFIN
Allt að
50%
afsláttur
Fálkahúsinu, Suðurlandsbraut 8