Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 28
LISTIR
28 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„HVÍ er ég Arinbjarnarson, en
ekki Kúld eða Smith …“
Að vilja vera einhver annar, er
inntak sýningar skosk-norska
listamannsins Victors Boullet, sem
sýnir verk sín í i8 á Klapparstíg
um þessar mundir. Verk hans eru
ljósmyndir, – myndaraðir af fólki
í sérkennilegum aðstæðum; að-
stæðum sem það kemur sér í af
löngun sinni til að falla í kramið,
öðlast viðurkenningu, verða elsk-
að og vinsælt. Aðspurður kveðst
listamaðurinn undrandi, þegar
blaðamaður spyr hvort hann sé
einhvers konar sagnaþulur, en
margræðar myndir hans gefa
áhorfandanum tilefni til að lesa
úr þeim sögur, – sumar kannski
þær sem hann ætlaði að segja, en
líka aðrar sögur. „Þú spyrð hvort
ég sé sagnaþulur. Ég hef satt að
segja aldrei velt því fyrir mér, en
það getur meir en vel verið. Þó
ekki í eiginlegri merkinu, – þetta
eru kannski séðar sögur þótt þær
séu ekki sagðar,“ segir Victor
Boullet. „Ég er ekki hrifinn af því
að þurfa að útskýra verkin mín
um of. Mér finnst að áhorfandinn
eigi að fá sitt tækifæri til að lesa
úr þeim það sem hann sér. Ef
hann fylgir myndröðunum eftir,
þá skilur hann samhengi þeirra.
Hann á ekki að þurfa á minni
túlkun að halda, – hver og einn
þarf að gera upp eigin hug.“
Nakinn maður sem heldur á
fiðluboga, einkennilegur í háttum,
baðar sig í hvítu dufti, sem reyn-
ist vera aska látins bróður hans.
Hvers vegna? Hvar var þessi
bróðir, hver var hann? Er það
maðurinn sem við sjáum á næstu
mynd, hálffalinn bak við ljósa-
staur, við hliðina á neflausum öld-
ungi? Því vill Japaninn verða Kín-
verji, og hvers vegna vill einhver
endilega vera gyðingur, en ekki
það sem hann er. Tilvitnunin hér
efst, er einmitt fengin úr lagi
Spilverks þjóðanna, um snáðann
Arinbjarnarson, sem spurði þrá-
faldlega: „Hví er ég, ég en ekki
þú …“
„Okkur langar öll til að vera
einhver annar. Við viljum að sam-
félaginu í kringum okkur líki við
okkur, og gerum hvað sem er til
að vera metin. Við erum alin upp
við þetta, – foreldrar okkar kepp-
ast við að gera eitthvað úr okkur.
Enginn segir: Til andskotans með
þetta, – mér stendur á sama um
hvað öðrum finnst um mig. Við
getum ekki orðið annað en við er-
um, – við búum ekki til okkar eig-
in vinsældir, við verðum ekki gyð-
ingar, eða Kínverjar, ef við erum
eitthvað annað.“ Sýningin heitir
Félagslegur hræsnari, og sumar
myndir Boullets segja sannar sög-
ur, aðrar skáldaðar.
Hann gefur ekki mikið fyrir út-
skýringar, en þeir sem skoða
myndirnar grannt sjá á veggnum
texta Birgis Andréssonar, kollega
Boullets, sem kviknaði við að
skoða myndir listamannsins
skosk-norska. Og sá texti kom
Victor Boullet á óvart. „Ég sendi
Birgi myndirnar og sagði ekkert
um þær. Mér fannst það eiga að
vera alveg undir honum komið
hvaða hughrif kviknuðu hjá hon-
um. Eftir dálítinn tíma spurði ég
hann og þá sagðist hann ekki
vera búinn, – en þetta kæmi. Svo
kom þessi frábæri texti frá hon-
um til baka. Ég var mjög ánægð-
ur, og sá um leið sjálfur nýja fleti
á túlkun myndanna.“
„Ég er allt annað
en hrifinn“
Meistara hræsnaranna má sjá á
myndbandi Boullets. Það er golf-
leikari sem myndlistarmaðurinn
tók tali, lék með og gerði mynd-
band um. Hann gortar óspart af
hæfileikum sínum á golfvellinum,
– en einkennilegt nokk, – við
sjáum hann aldrei slá golfkúluna,
og það er gjörningur listamanns-
ins. „Ég klippti út hvert einasta
skipti sem hann slær kúluna, en
golf snýst auðvitað um það. Þetta
er því 105 mínútna mynd um
mann sem er að reyna að telja
okkur trú um að hann sé besti
golfari í heimi. Þessi maður var
ókurteis, andstyggilegur og sama
um allt og alla.“ Við myndbandið
er tölvupóstur frá golfspilaranum:
„Ég er allt annað en hrifinn,
þetta er ekki sú mynd sem þú
ræddir um við mig. Hvers vegna
klipptirðu út hverja einustu
sveiflu hjá mér. Farðu til fjand-
ans. Paul.““
Victor Boullet verður tíðrætt
um hræsnina; það augnablik þeg-
ar gyðingurinn felur óhreina kjöt-
ið undir kornflexpakkanum, ef
ske kynni að hann rækist á ná-
grannann í búðinni, þessi augna-
blik hjá okkur öllum, þegar við
erum eitthvað allt annað en við
vildum vera. Sjálfur er hann að
hluta norskur og að hluta enskur
og skoskur, en er kvæntur konu
sem er gyðingur. „Myndirnar
mínar eru mín túlkun á þessari
hræsni sem við erum öll föst í og
göngum í gegnum. En það er góð
tilfinning að átta sig á henni, –
það er kannski fyrsta skrefið út
úr henni, fyrsta skrefið til að
verða það sem maður raunveru-
lega er.“
Sýning Victors Boullets í i8
stendur út febrúarmánuð og er
opin fimmtudaga og föstudaga frá
11–18 og laugardaga frá 13–18,
eða eftir samkomulagi.
Morgunblaðið/Þorkell
Victor Boullet með myndir af Félagslegum hræsnurum í i8
Hví er ég, ég en ekki þú
TÓNLISTARSJÓÐUR verður
stofnaður ef lagafrumvarp mennta-
málaráðherra, Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur, nær fram að ganga.
Verið er að leggja drög að frum-
varpinu í ráðuneytinu, og hyggst
ráðherra leggja það fram nú á vor-
þingi. Þorgerður Katrín sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að tón-
listarsjóður gæti „stutt við bakið á
nýsköpun, jafnt sem útrás á öllum
sviðum tónlistar og örvað þannig
enn frekar þá stórkostlegu þróun er
átt hefur sér stað í íslensku tónlist-
arlífi“.
Björn Th. Árnason formaður Fé-
lags íslenskra hljómlistarmanna
segir sína félagsmenn alltaf mjög
hamingjusama þegar menn búa til
nýja sjóði, en tónlistarmenn hafi
barist fyrir slíkum sjóði í fjöldamörg
ár. „Að sjálfsögðu lýsi ég yfir
ánægju með hugmynd að nýjum
tónlistarsjóði, og þakka nýskipuðum
menntamálaráðherra fyrir fram-
takið. Aftur á móti veit ég lítið enn
hvert stefnt er með sjóðnum og
vona að hér sé um að ræða þann ný-
sköpunarsjóð sem tónlistarmenn
hafa reynt að fá ráðamenn til að
stofna. Hve mikið fjármagn á að
koma í sjóðinn? Hvert verður hlut-
verk hans? Um leið undirstrika ég
það sem ráðherra sagði í ræðustóli,
að haft verði náið samstarf við hags-
munaaðila um framhaldið. Við tón-
listarmenn lítum á þetta sem mikla
viðurkenningu á því starfi sem unn-
ið hefur verið undanfarin ár.“ Björn
segir það hafa sýnt sig, að þegar
menn hafi tekið höndum saman, og
stutt við bakið á þessari listgrein, þá
hafi það skilað sér margfalt til baka.
„Ég nefni bara til dæmis Reykjavík
– Loftbrú. Þetta samvinnuverkefni
Reykjavíkurborgar, Icelandair,
FÍH og STEFs er að hefja sitt
fyrsta starfsár, og virðist nú þegar
vera að skila umtalsverðum ár-
angri.“
Björn segir að innan síns félags
hafi margoft verið ræddar hug-
myndir að ýmsum sjóðum með ólík
hlutverk. „Loftbrúin er útrás-
arverkefni, en að sjálfsögðu þarf
líka að styðja við bakið á þeim sem
starfa hér heima. Það má ekki
gleyma því að ef við yrkjum ekki
garðinn hér heimafyrir, gerist lítið á
erlendum vettvangi. Því þarf að
horfa á þetta í heild sinni, en það er
engin tilviljun hvað tónlistarlíf Ís-
lendinga er öflugt í dag. Tónlist-
arfólk hefur unnið mjög vel, hver í
sínum ranni. Þess vegna er það mik-
ilvægt þegar farið er af stað með
slíkan sjóð, að það verði gert í góðri
samvinnu við hagsmunaaðila. Það er
líka mikilvægt að góð sátt ríki um
sjóðinn. Við viljum framgang tón-
listarinnar sem allra mestan, og það
veitir ekki af
stuðningi. Hann
verður alltaf til
gagns.“
Margrét Bóas-
dóttir formaður
Félags íslenskra
tónlistarmanna
segist ekki sjá
betur en að hér
sé um að ræða
sama sjóð og
fyrrverandi menntamálaráðherra,
Tómas Ingi Olrich, lofaði fyrir réttu
ári. „Ég vona bara að hlutverk þessa
sjóðs verði skilgreint í faglegu sam-
ráði við tónlistarmenn, þannig að út
úr þessu komi það sem menn þurfa
virkilega á að halda. Miðað við það
hvað nýi menntamálaráðherrann
hefur talað jákvætt um málefni tón-
listarinnar, vonum við að við þetta
samráð verði staðið, þannig að sjóð-
urinn geti orðið öllum til gagns og
gleði. En ég lofa auðvitað þessi tíð-
indi. Þau eru ákveðið svar við því
sem tónlistin hefur unnið fyrir og
hefur sýnt fram á að hún þarf á að
halda. Þetta á ekki að vera nein ölm-
usa, heldur stuðningur til þess að
okkar verkefni geti malað gull.“
Magnús Kjartansson hljómborðs-
leikari er formaður Félags tón-
skálda og textahöfunda. „Ég er bú-
inn að heyra þessa frétt svo oft, að
ég er alveg ónæmur. Ég verð alltaf
jafn glaður þegar ég heyri hana, en
ég er bara búinn að verða svo oft
glaður yfir henni, en jafnoft hef ég
orðið sorgmæddur. Ég verð nú samt
að segja, að ég bind miklar vonir við
að þau kynslóðaskipti sem nú eru að
eiga sér stað í menntamálaráðu-
neytinu muni leiða til þess að kerfið
og þjóðin slái samræmdari takt. Ég
bið þess í bænum mínum að Þor-
gerði Katrínu megi lukkast að verða
menntamálaráðherra þess samtíma
sem er og ekki verður komist hjá.“
Magnús kveðst margoft hafa lesið
frumvörp frá ráðherrum um stofnun
sjóðs sem þessa, rætt við ráðherra
og setið á fundum, fagnað, glaðst og
grátið. „Það eina sem ekki hefur
tekist er að málið hafi farið í gegn.
Ég er þeirrar skoðunar að þar hafi
gamla Ísland verið að neita því að
horfast í augu við nútímann, og inn í
heiminn eins og hann er.“
Alltaf jafn
gaman að heyra
þessa frétt
Magnús
Kjartansson
Margrét
Bóasdóttir
Björn Th.
Árnason
MYNDLISTASKÓLINN í Reykja-
vík, Hringbraut 121, verður með
opið hús á laugardag kl. 14–18. All-
ar kennslustofur og verkstæði skól-
ans verða opin og nemendur að
vinna á keramikverkstæði og skúlp-
túrverkstæði. Verkefni frá fornáms-
deild skólans verða til sýnis og
kennarar verða á staðnum og veita
upplýsingar. Einnig verða frammi
verkefni eftir alla nemendur í
barna- og unglingadeild og sýnis-
horn af vinnu nemenda í fullorð-
insfræðslu.
Skráning á vorönn stendur yfir,
en kennsla hefst 26. janúar.
Opið hús í myndlistaskóla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nemendur við störf í Myndlistaskólanum í Reykjavík.