Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 29

Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 29 Ég ólst upp við það að vita af eiginraun hvað það er að búa í landi semer stjórnað af hervaldi,“ segir JanaVýborná-Turunen sem sýnir sex textílskúlptúr, ljósmyndir og texta í anddyri Norræna hússins. Skúlptúrarnir birta á óvæntan hátt tilfinningar Jönu til hins stríðs- hrjáða heims. Þeir eru persónuleg friðaryf- irlýsing og hugsaðir sem andsvar við her- klæðum. Jana stundaði nám við Háskólann í Prag og útskrifaðist árið 1993 með MA-gráðu í heim- speki, með fullorðinsfræðslu sem sérsvið. Þá flutti hún ásamt eiginmanni sínum til Finn- lands þar sem hún lagði stund á tískuhönnun, fyrst við Norður-Karelia-tækniháskólann í Joensuu og síðan við Lista- og hönnunaraka- demíuna í Helsinki þaðan sem hún lauk nýver- ið MA-prófi og voru skúlptúrarnir sex, sem sýndir eru í Norræna húsinu, lokaverkefni hennar. Jana er fædd og uppalin í Tékkóslóv- akíu þar sem faðir hennar var liðsforingi í sov- éska hernum og síðar hjá NATO. Vegna starfa föðurins flutti fjölskyldan oft um set. Jana seg- ist þó eiga góðar minningar frá þessum tíma. Styrjaldaræfingar „Börn eru alls staðar eins, alltaf að finna sér eitthvað að gera.“ Var þetta þá algerlega áhyggjulaust líf? „Nei, ekki get ég nú sagt það. Fyrir okkur krökkunum endurspeglaðist valdið í kenn- urum okkar. Það voru engin frávik leyfð frá reglunum, án þess að því fylgdu refsingar. Við urðum okkur mjög meðvitandi um hið refsandi vald strax á unga aldri. Við vorum hrædd við kennarana okkar, rétt eins og fólk var hrætt við yfirmenn sína, og svo koll af kolli. Það voru allir hræddir við eitthvað. Í skólanum var okkuð úthlutað gasgrímum og við æfðum reglulega hvernig skyldi bregð- ast við ef á okkur yrði ráðist. Viðvör- unarbjallan hringdi, við þustum öll á fætur, settum á okkur gasgrímurnar og hröðuðum okkur fyrirfram ákveðna leið í byrgin okkar. En fyrir okkur var þetta eðlilegt ástand og það var ekki fyrr en eftir að ég flutti til Finnlands sem ég áttaði mig á því að heimurinn gæti ver- ið öðruvísi. Krakkar eru svo miklu frjálsari í lýðræðisþjóðfélagi og það er á allan hátt ólíkt því sem ég ólst upp við.“ Eru verkin þín á einhvern hátt minningar? „Já, það fer ekki hjá því. Í einu verkinu er til dæmis rússneski fáninn og það hafa margir spurt mig hvers vegna ég sé með hann. Í mín- um huga er hann táknrænn fyrir það sem ég er að andæfa, erlendan her sem ræðst á sjálf- stæða þjóð og tekur þar öll völd. Þegar ég var að alast upp þurftum við Tékkar að stilla bæði tékkneska og sovéska fánanun út í glugga 1. maí ár hvert, hvort sem okkur líkaði betur eða verr.“ Í verkum sínum notar Jana handgerðan pappír sem búinn er til úr bómullarundirfötum tékkneskra hermanna og öðrum efnum. Einn- ig notar hún efni úr rússneskri fallhlíf sem fannst í Tékklandi 1968, nútíma fallhlífarefni, sárabindi, grófan baðmullardúk skreyttan málmi, grænt efni úr hermannaskyrtu og þannig mætti lengi telja. Á sýningunni eru jafnframt ljósmyndir þar sem módel klæðist flíkunum og litlar sögur sem eru á vissan hátt hið skapandi upphaf skúlptúranna. En hvað eiga þessi verk skylt við tískuhönnun? „Þegar ég fór að velta fyrir mér lokaverk- efni var eitt alveg ljóst: Ég ætlaði aldrei að vinna sem tískufatahönnuður. Ég er með bak- grunn í heimspeki og hef mikinn áhuga á list- um og vildi því nýta námið til annars en að teikna föt. Ég vil segja eitthvað með verkum mínum og þess vegna ákvað ég á endanum að gera fataskúlptúra. Ástandið er þannig í heim- inum að það er alls staðar ofbeldi, stríð og eitt- hvað neikvætt að gerast og þar sem ég er frið- arsinni vildi ég nota þann fatnað sem notaður er í stríði til þess að mótmæla þessu ástandi. Ég vildi skapa fagurfræðilegan og fallegan samhljóm sem er í andstöðu við þann ljóta, hrottalega og sjúka hugmyndaheim sem klæð- in standa fyrir. Þetta eru einkennisbúningar sem menn klæðast til að drepa. Ég vildi búa til úr þeim eitthvað sem ekki gengi upp í þeim að- stæðum sem þeir eru hannaðir fyrir. Ef her- menn klæddust þessum fatnaði eins og hann lítur út á sýningunni minni gætu þeir ekki drepið neinn. Af symbólískum ástæðum vildi ég nota efni sem notuð eru í raunverulegum hernaði í stað þess að búa til eftirlíkingar af þeim. Handgerði pappírinn er til dæmis unninn úr nærfötunum sem tilheyrðu einkennisbúningi föður míns sem var háttsettur hermaður.“ Verk Jönu hafa vakið mikla athygli í Finn- landi. Þau hafa þegar verið sýnd í Hyvinkää- listasafninu og í Profounders Gallery í Hels- inki. Þegar hún fer frá Íslandi verður enn ein sýning á þeim í Finnlandi og síðan í Prag undir vorið. Þegar Jana er spurð hvert sé markmið hennar með verkunum segir hún: „Ég vildi sýna fram á að það er hægt að breyta svörtu í hvítt; við getum umbreytt ljótleikanum og skapað úr honum fegurð. Allt sem til þarf er viljinn til þess.“ Ég vil umbreyta ljótleikanum Tékknesk-finnska listakonan Jana Výborná- Turunen með fataskúlptúra sína. Í Norræna húsinu sýnir tékknesk-finnska listakonan Jana Výborná-Turunen fataskúlptúra sem eru andóf gegn stríði. Súsanna Svavarsdóttir ræddi við Jönu um tilurð verkanna, minningar og tilgang. Morgunblaðið/Árni Torfason HVAÐ felur góð lögfræðileg rannsókn á fiskveiðireglum Íslands og Evrópusambandsins í sér? Eitt er víst að slík rannsókn felur ekki í sér svar við spurningunni um hvort fiskveiðireglur íslenska ríkisins eða ESB séu góðar eða slæmar, hvort þessar reglur fullnægi eða geti und- ir einhverjum kringumstæðum full- nægt íslenskum hagsmunum; hvað þá hvort Íslendingum sé rétt að ganga í ESB og gangast undir fisk- veiðistefnu sambandsins með ein- hverjum hætti. Lögfræðilegar rann- sóknir, ásamt öðrum vísindum, eru hins vegar ein af forsendum fyrir því að þessum spurningum sé svar- að af skynsemi. Því miður hefur pólitísk umræða hér á landi um málefni ESB allt of oft einkennst af skorti á upplýsingum um stað- reyndir málsins. Þetta á ekki síst við um fiskveiðistefnu sambandsins sem oft ber á góma í tengslum við samskipti Íslands við ESB. Að því er fiskveiðistefnuna varðar eiga þó stjórnmálamenn, og aðrir þeir sem viðrað hafa skoðanir sínar á hugs- anlegri aðild Íslands að ESB, sér þær málsbætur að mjög hefur skort lögfræðilega umfjöllun um efnið. Af þessum sökum er það fagnaðarefni að út skuli vera komið rit þar sem fjallað er ítarlega um fiskveiðiregl- ur Íslands og Evrópusambandsins og þróun og stöðu Íslands gerð skil í því samhengi. Ritið skiptist í þrjá meginþætti. Í fyrsta þætti er fjallað um hina sam- eiginlegu fiskveiðistefnu EB; í öðr- um þætti um íslenska fiskveiði- stjórn og í þeim þriðja um aðildarsamning Noregs frá 1994 sem aldrei tók þó gildi eins og kunnugt er. Fyrsti þáttur ritsins er sá ítarlegasti og má segja að hann marki kjarna ritsins. Um þetta efni hefur áður verið fjallað í riti R.R. Churchills, EEC Fisheries Law, frá 1987 sem er orðið mjög úrelt í mörgum atriðum, en önnur rit sem mér er kunnugt um hafa fremur fjallað um sameiginlegu fiskveiði- stefnuna frá öðrum sjónarhóli en lögfræðilegum. Í fyrsta þætti rits- ins er því í raun að finna lagalegar grunnrannsóknir á ýmsum efnum sameiginlegu fiskveiðistefnunnar, t.d. ýmsum dómum Evrópudóm- stólsins frá síðari árum. Fyrir ís- lenska lesendur eru það líklega annars vegar stjórnskipuleg atriði sameiginlegu fiskveiðistefnunnar (2. kafli) og hins vegar reglur um að- gang að fiskveiðiauðlindum (4. kafli) sem vekja mestan áhuga. Að því er varðar fyrrnefnda efnið kunna sum- ar niðurstöður höfunda að koma á óvart, t.d. það hversu víðtækar valdheimildir stofnanir EB hafa um setningu ýmissa reglna um fiskveið- ar (þótt sú heimild sé ekki endilega nýtt í dag) og enn fremur það að reglan um nálægð eða viðstuðning (e. subsidiarity) á ekki við um fisk- veiðar. Að því er varðar síðar- greinda atriðið vekur kaflinn um „kvótahopp“ sérstaka athygli, en með kvótahoppi er átt við að út- gerðarmenn í tilteknu aðildarríki skrái fiskiskip sín í öðru ríki í þeim tilgangi að ná til sín hlutdeild af landskvóta þess ríkis. Í kaflanum er fjallað ítarlega um hvort og hvernig aðildarríkin geti komið í veg fyrir kvótahopp eða tryggt með öðrum hætti að afli, sem veiddur er í lög- sögu þeirra, sé landað í höfnum rík- isins. Samkvæmt niðurstöðum höf- unda er t.d. ekki hægt að gera þá kröfu til útgerðarmanna að þeir noti eigin hafnir við löndun afla og lítið rúm er fyrir lagasetningu sem bindur skráningu fiskiskipa við til- tekna heimilisfesti eða þjóðerni. Í öðrum þætti ritsins er að finna yfirlit yfir reglur um íslenska fisk- veiðistjórn en um þetta efni hefur að mestu verið ítarlega fjallað af ís- lenskum lögfræðingum áður, eink- um í tímaritsgreinum (t.d. af Sig- urði Líndal, Skúla Magnússyni og Þorgeiri Örlygssyni). Hins vegar gefur þessi þáttur stutt en samfellt yfirlit yfir íslenskar réttarreglur um fiskveiðar sem ekki er að finna í öðrum heimildum. Umfjöllunin um aðildarsamning Norðmanna árið 1994 í þriðja þætti ritsins er sett fram með það fyrir augum að samningurinn geti veitt vísbend- ingu um hversu langt ESB er tilbú- ið að ganga í undanþágum og frá- vikum frá sameiginlegu fiskveiðistefnunni. Einnig er vísað til nýgerðra aðildarsamninga ESB frá síðastliðnu ári, þ.á m. við Möltu, sem gefa frekari vísbendingar í þessa átt, en þessir samningar voru þó ekki fullfrágengnir við útgáfu ritsins. Í bókinni kemur því eðlilega ekki fram að aðildarviðræðum Möltu lyktaði þannig að ríkinu tókst að fá varanlegar undanþágur frá banninu um mismunun á grund- velli þjóðernis innan 12 sjómílna lögsögu þótt aðeins væri um að ræða tilteknar fiskveiðar. Af hálfu höfunda er varast að draga of mikl- ar ályktanir af undangengnum að- ildarsamningum fyrir hugsanlegar aðildarviðræður Íslands, enda er staða Íslands um margt sérstæð. Niðurstöður höfunda í fjórða þætti ritsins eru settar fram á stuttan og hnitmiðaðan hátt og ættu þær að vera skyldulesning allra þeirra sem tjá sig um stöðu Íslands með hlið- sjón af sameiginlegu fiskveiðistefn- unni. Sumum kann e.t.v. að þykja furðulegt að Íslendingar vinni að grunnrannsóknum á reglum ESB um fiskveiðar. Sannast e.t.v. hér að Íslendingum er ekkert óviðkomandi ef það snertir fisk og fiskveiðar! Ritið hefur því að stórum hluta skírskotun út fyrir Ísland og væri æskilegt að þýða bókina svo að gera mætti rannsóknir þeirra Ótt- ars og Stefáns Más aðgengilegar erlendum fræðimönnum. Hvort sem það tekst eða ekki er það gleðiefni að vönduð fræðileg umfjöllun um þetta efni, sem reglulega ber á góma í íslenskri þjóðmálaumræðu, skuli nú liggja fyrir. Verður það vonandi til að gera þá umræðu upp- lýstari og málefnalegri. BÆKUR Lögfræði Höfundar: Óttar Pálsson hdl. og Stefán Már Stefánsson prófessor Lengd: 296 bls. Útgefandi: Bókaútgáfa Orators FISKVEIÐIREGLUR ÍSLANDS OG EVRÓPUSAMBANDSINS ÞRÓUN, SAMANBURÐUR OG STAÐA ÍSLANDS Gagnlegur samanburður Skúli Magnússon ÍSLENSKA listakonan Hulda Leifs- dóttir sýndi nú í lok síðasta árs ull- arverk sín í Salt galleríinu á Álandseyjum og fékk sýningin m.a. umfjöllun í dagblöðunum Nya Åland og Åland. Í verkunum sínum beitir Hulda tækni sem hún lærði í Finnlandi, en myndefnið er gjarnan íslenskt, m.a. úr íslenskum þjóðsögum, og má nefna sem dæmi kvendrauginn Möngu, sem gefur kaffið í kvæðinu eftir Þórberg Þórðarson. Í verkum Huldu hefur Manga, sem vakti athygli fjölmiðla á staðn- um, vaknað til lífsins á ný og birtist sífellt í nýjum aðstæðum og út- gáfum. Hulda Leifsdóttir við nokkur verka sinna á sýningunni á Álandseyjum. Íslensk ullarlist á sýningu á Álandseyjum JÓHANNES Dagsson opnar mynd- listarsýningu kl. 14 á sunnudag í Teits galleríi, verslunarmiðstöðinni Engihjalla 8, Kópavogi. Sýninguna nefnir hann Mold, himinn, gras, og gefur þar að líta málverk og verk unnin með blandaðri tækni á pappír. Verkin eiga það sameiginlegt að rekja „rætur“ sínar til moldarinnar, himinsins og grassins. Innihald verkanna er skorið og skeytt saman aftur með það í huga að mynda nýtt samhengi. Verkunum er ætlað að falla á milli myndrænnar og merkingarfræðilegrar framsetning- ar. Það sem við blasir er yfirleitt ekki það sem það er, heldur framsetning á því. Opið til skiptis mánudaga til föstu- daga kl. 14–18 aðra vikuna, en hina kl. 18–20 sömu daga. Sýningunni lýk- ur 12. febrúar. Aðgangur er ókeypis. Nýtt sam- hengi í Teits galleríi Verk eftir Jóhannes Dagsson á sýningunni í Teits galleríi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.