Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 30

Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 30
LISTIR 30 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ TÓNLISTARFÉLAG Hveragerðis og Ölfuss efnir til styrktartónleika kl. 17 á laugardag og rennur ágóðinn í flygilkaupasjóð félagsins. Fram koma Jón Hólm Stefánsson tenór, Jörg Sondermann, píanó/org- elleikari og fiðluleikararnir Gréta Salome Stefánsdóttir og Hulda Jónsdóttir. Aðgangseyrir er kr. 1800. Fyrir félagsmenn í Tónlistarfélaginu og eldri borgara kr. 1500 og frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Styrktartón- leikar í Hvera- gerðiskirkju „HÚN varð að spinna ævintýri til þess að geta lifað. Ekki aðeins til að vinna fyrir lifibrauði sínu, heldur einnig til að komast undan því að deyja. Eins og hetja hennar og fyr- irmynd, hin slynga Sjerasade. Ef þú erfir land, verður þú að nýta það til búskapar. Ef þú erfir sögur, verður þú að segja þær. Og Gréta Swart hafði tekið í arf nóg af sögum til að halda lífinu í þúsund og eina nótt“ (97). Svo er aðalsöguhetju skáldsög- unnar Engilsins hennar Grétu lýst en hún leitar stöðugt á náðir ævintýr- anna til að þreyja raunveruleikann. Gréta vinnur við að safna og skrá æv- intýri hjá litlu bókaforlagi og býr um stundarsakir í sóðalegri íbúð vinkonu sinnar. Hún er nýlega fráskilin þegar sagan hefst og er að ganga í gegnum tilfinningar sem því fylgja, s.s. sökn- uð, sektarkennd, reiði og sorg. Sál- fræðingurinn hennar ráðleggur henni að skrifa sig frá skilnaðinum og er skáldsagan afrakstur þess; skemmti- leg samsuða úr dagbókarfærslum, draumum, bréfum og símtölum frá kaldhæðinni vinkonu í Lundúnum, sögum af forfeðrum, lýsingum á eigin hjónabandi og samböndum vinkvenn- anna, samskiptum við sálfræðing, vini og vandamenn og hugleiðingum um kynferði, kynþætti, stöðu kynjanna, kynlíf o.fl. Bókinni er skipt í þrjá hluta sem eru táknrænir fyrir líðan Grétu á þessu erfiða tímabili; fyrst koma Hryllingssögur, svo Gátur og loks Ævintýri. Hver hluti saman- stendur af níu köflum og heiti þeirra vísa öll í ævintýri og sögur. Textinn sjálfur morar af táknum og skírskot- unum (eplum, drekum o.fl.) ásamt endalausum vísunum í örlög ýmissa kvenpersóna heimsbókmenntanna, s.s. Júlíu, Ófelíu og Önnu Karenínu. Tónninn í sögunni er kvenlægur, m.a. er þeirri spurningu varpað fram af hverju ævintýrið um Hans og Grétu heiti ekki Gréta og Hans þar sem hún er aðalpersóna sögunnar. Sagan gerist í Suður-Afríku þar sem konur eru enn pyntaðar og brenndar á báli fyrir að vera nornir. Gréta glímir við nornina í sjálfri sér sem trúir að penninn sé máttugri en penisinn (21) en eiginmaðurinn er engill í hennar huga, a.m.k. þangað til Adam birtist á dyraþrepinu, ungur, stæltur og firnagóður elskhugi sem vekur Grétu til lífsins líkt og ævin- týraprinsarnir forðum. „Rómantík er fyrir fólk sem fyllist sektarkennd vegna kynlífs“ (154) segir hann þegar þau hafa notið ásta á rykugu stofu- gólfinu undir rússneskri ljósaperu með sjónvarpið í botni. Gréta hefur síðan nýtt líf og horfist í augu við að gömlu ævintýrin eru aðeins leið til að koma þeim boðskap til skila að ástin „endi“ með hjónabandi. Hún áttar sig á því að nýr heimur þarfnast nýrra ævintýra. Um það leyti sem frelsis- hetjan Nelson Mandela losnar úr haldi öðlast hún sjálf frelsi. Hún skrif- ar söguna um veiðimennina tólf þar sem ævintýrið sjálft er dregið sundur og saman í háði og boðskapur þess er að prinsessa sem vill giftast karl- rembuprinsi á ekkert betra skilið (280). Engillinn hennar Grétu er mögnuð saga og stórskemmtileg; um konur eftir konu, sambönd og samskipti kvenna við karla, skilnað við þá og um kvenlegan reynsluheim, frelsi og sjálfstæði, höft og sektarkennd. Boð- skapur sögunnar er kaldhæðinn og mótsagnakenndur: „Karlmenn njóta þess að bjarga konum úr vandræð- um … og halda þakklátum konum ævilangt í ánauð. María átti ekki svo auðvelt með að fara frá Jósep, eða hvað? Alveg eins og Mjallhvít gat ekki yfirgefið prinsinn sinn. Þú getur ekki farið frá manni sem hefur bjargað þér úr lífshættu. Það voru Gréturnar í heiminum sem unnu í því að halda samböndum gangandi, stúlkurnar sem ýttu galdranorninni inn í ofninn og björguðu bræðrum sínum. Það voru þær sem gerðu vansæla eigin- menn sína getulausa. Ef þær eignuð- ust þá nokkurn tímann mann. Ef þær vildu nokkuð eignast mann“ (289). Þrátt fyrir hæðnistóninn og slagorðin um kvenfrelsið er það karl/engill sem hristir upp í Grétu og nýtt ástaræv- intýri virðist vera í vændum þegar sögunni lýkur. Bókarkápan er bæði falleg og táknræn, hana prýðir eng- ilfríður karlmaður, snoðklipptur með geislabaug og loðna bringu en í bak- grunninum grillir í fangelsisgirðingu sem minnir okkur á að við erum fang- ar hlutverkaskipunar gömlu ævintýr- anna. Gréta hans Hans Steinunn Inga Óttarsdóttir BÆKUR Skáldsaga eftir Maritu van der Vyver. Rannveig Jónsdóttir þýddi, varla úr afríkönsku en sennilega úr ensku. 293 bls. Salka 2003. ENGILLINN HENNAR GRÉTU SÝNINGAR á Græna landinu, eftir Ólaf Hauk Símonarson, hefjast í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Leikritið var frumsýnt í Keflavík og sýnt þar tólf sinnum fyrir fullu húsi. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs- son. Leikritið er samið fyrir þau Gunn- ar Eyjólfsson og Kristbjörgu Kjeld en auk þeirra leikur Björn Thors í sýningunni. Hús sem teygðu sig allt upp til skýjanna Verkið fjallar um hlutskipti þeirra sem glata minningunum löngu áður en lífið hverfur þeim. Kári Sólmund- arson byggingarmeistari reisti á sinni tíð hús sem teygðu sig allt upp til skýjanna. Nú situr hann einn eft- ir, hans nánustu eru horfnir honum, hver á sinn hátt, og jafnvel minning- arnar eru að hverfa. Nema þær sár- ustu, þær sitja lengst eftir. Heim- ilishjálpin Lilja, hressileg kona á besta aldri, reynist óvæntur banda- maður og vinur. Er einhver von til að öðlast fyrirgefningu áður en allt hverfur? Tónlist samdi Gunnar Þórðarson, lýsingu hannaði Ásmundur Karls- son, höfundur leikmyndar er Gretar Reynisson og leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Græna landið tekið til sýninga í Þjóðleikhúsinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg Kjeld í hlutverkum sínum í Græna land- inu eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikritið er samið fyrir leikarana. SÝNING á verkum Kjartans Guð- jónssonar listmálara verður opnuð í Galleríi Vegg, í húsakynnum Staf- rænu prentstofunnar Leturprents, Síðumúla 22, á morgun. Þar gefur að líta nokkur olíuverk, unnin á árunum 1994–2003. Sýninguna nefnir Kjart- an Smáskot. Kjartan Guðjónsson er á 83. ald- ursári og gengur enn að verki hvern dag. Hann varð stúdent frá MR 1942, settist sama ár í Handíðaskól- ann og var þar veturinn 1942–3. Þar næst tók hann sér far með Goðafossi til Bandaríkjanna og nam tvö ár í Art institute of Chicago. Hann kom heim 1945 og gerðist kennari við Hand- íðaskólann, seinna Myndlista- og handíðaskólann. Hann var einn af fyrstu þátttakendum í Septemsýn- ingunni og fyrstu sýningu Norræna listabandalagsins í Kaupmannahöfn 1947. Fyrsta einkasýning hans var í Listamannaskálanum og aðrar sýn- ingar, tvær á Kjarvalsstöðum, tvær í Hafnarborg auk þátttöku í sýningum utan lands og innan. Sýning Kjartans stendur til 20. mars. Kjartan Guðjónsson listmálari. Kjartan Guð- jónsson sýnir ný olíuverk FÆREYSKI Drengjakórinn undir Brúnni er staddur hér á landi og heldur tónleika í Langholtskikju kl. 17 á laugardag. Kórinn er skipaður 16–18 söngvurum á aldrinum 6–13 ára. Stjórnendur eru Eli Smith og Brita á Váli Smith. Á tónleikunum verður Gradualekór Langholts- kirkju, undir stjórn Jóns Stefáns- sonar, gestur kórsins. Drengirnir syngja líka á Smára- torgi kl. 14.30 á laugardag. Kórinn hefur sungið í fjögur ár og hefur vakið eftirtekt fyrir góðan söng. Þetta er fyrsta utanlandsferð kórs- ins. Gunnar Guttesen leikur með á píanó. Söngur drengjanna er ætlaður til að styrkja vinskap eyþjóðanna tveggja, Færeyja og Íslands. Færeyskur drengjakór í Langholtskirkju BLÁSARAKVINETT Reykjavíkur, með þá Einar Jóhannesson, Haf- stein Guðmundsson, Jósef Ogni- bene, Daða Kolbeinsson og Bern- harð Wilkinson innanborðs, hefur kynnt og flutt tónlist fyrir börn í grunnskólum Kópavogs undanfarið. Verkefnið er liður í Tónlist fyrir alla og héldu þeir alls tólf tónleika. „Við fluttum Myndir á sýningu eftir Modest Mussorgskíj,“ segir Einar, „en það er mjög þakklátt að leika og kynna þetta verk, ekki síst vegna þess að það er svo myndrænt. Þegar við gengum inn í salinn tók á móti okkur dúndrandi rokktónlist. Okkur leist ekki meira en svo á blik- una að fara að kynna klassíska tón- list í þessi rokkeyru. En við vorum ekki lengi að fanga athygli þeirra og virtust þau harla ánægð með fram- takið. Krakkarnir voru vel með á nótunum og verkefnið þeim kunn- ugt. Það er ljóst að Tónlist fyrir alla er nauðsynlegur liður í tónlistarupp- eldi grunnskólabarna. Kópavogur hefur töluvert forskot á aðra skóla og er það ekki síst að þakka Jónasi Ingimundarsyni sem reið á vaðið með þetta verkefni á sínum tíma. Hann hefur lagt góðan tónlistar- legan grunn í sínu bæjarfélagi. Nú hefur umsjón með verkefninu Þór- unn Björnsdóttir, stjórnandi Skóla- kóra Kársnesskóla.“ Mussorgskíj kynntur Morgunblaðið/Árni Torfason Blásarakvintett Reykjavíkur kynnir verk Mussorgskíj í Lindaskóla. Siðfræði lífs og dauða eftir Vil- hjálm Árnason prófessor er kom- in út í nýrri og endurbættri út- gáfu. Höfundur fjallar um öll helstu sið- ferðileg álitamál í heilbrigðisþjónustu. Hann greinir ým- is lykilhugtök mannlegs siðferðis og leitast við að jarðtengja þau með um- fjöllun um einstök vandamál sem upp koma við umönnun sjúkra og deyjandi, og við mótun heilbrigðis- stefnu. Rætt er um mál á borð við þagnarskyldu, réttindi sjúklinga, rannsóknir á fólki, fósturgreiningu, fóstureyðingar, líffæraflutninga, líkn- ardráp og réttláta heilbrigðisþjón- ustu. Í þessari nýju útgáfu tekst höf- undur jafnframt á við nokkrar þeirra spurninga sem erfðarannsóknir hafa vakið á undanförnum árum. Rauði þráðurinn í málflutningi Vilhjálms er krafan um að virða sjúklinginn sem manneskju. Bókin var tilnefnd til Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna 1993 og sama ár hlaut höfundur við- urkenningu Hagþenkis fyrir bókina. Vilhjálmur Árnason er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands og formaður stjórnar Siðfræðistofnunar. Útgefandi er Siðfræðistofnun og Háskólaútgáfan. Bókin er 379 bls., kilja og innbundin. Verð á kilju: 3.790 kr. en innbundin kostar hún 4.490 kr. Siðfræði Í RÁÐSTEFNUSAL Norræna hússins verður haldið stutt námskeið um styrkumsóknir miðvikudaginn 21. janúar kl. 10–14. Það er Norden i fokus sem skipuleggur námskeiðið sem er einkum ætlað meðlim- um félaga og samtaka á menn- ingarsviðinu. Farið verður yfir helstu grundvallaratriði. Nám- skeiðið er ætlað byrjendum og skiptist í fjóra þætti: Að hverju þarf að huga áður en sótt er um styrk? Hvað þarf að koma fram í umsókn? Hvernig er umsókn metin? Hvað þarf að hafa í huga þegar styrkur hefur fengist? Leiðbeinandi er Guðrún Dís Jónatansdóttir, upplýsinga- og verkefnafulltrúi Norræna hússins og umsjónarmaður verkefnisins Norden i fokus. Síðasti skráningardagur er 20. janúar. Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðunni nord- ice.is. Að sækja um styrk ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.