Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 34

Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 34
S njóflóðið sem féll úr gili fjallsins Bakkahyrnu í Ólafsfirði á þriðjudag, að því er talið er, tók íbúðar- húsið að Bakka af grunn- inum og stendur ekkert eftir nema suðurgafl hússins. Rann flóðið um 100 metra niður fyrir húsið að fjár- húsunum með tæplega 200 kindum. Jón Konráðsson, lögregluvarð- stjóri á Ólafsfirði, stjórnaði björgun- araðgerðum við bæinn í fyrrinótt og sagði snjóflóðið mjög stórt. Rann það um 700–800 metra niður fjallið áður en það stöðvaðist fyrir neðan íbúðar- húsið. Jón sagði snjóflóð hafa fallið á þessum sama stað fyrir um 7 árum og þá hafi það stöðvast við íbúðar- húsið. Ekki mun hafa orðið mann- skaði vegna snjóflóða í Ólafsfirði síð- an um miðja 19. öld. Húsið að Bakka var 10 ára gamalt timburhús og stóð fyrir neðan gil, sem nefnt hefur verið Bæjargil, í brattri fjallshlíð Bakkahyrnu. „Flóð- ið kom niður gilið og var gríðarstórt, um 250 til 350 metra breitt og allt að þrír metrar á dýpt. Aðkoman var hræðileg,“ sagði Jón við Morgun- blaðið. Á annað hundrað björg- unarsveitamanna á vettvangi Eftir að björgunarsveitamenn komu á staðinn með leitarhunda, tókst fljótlega að finna bóndann, Kára Ástvaldsson, snemma í gær- morgun. Var hann úrskurðaður lát- inn. Síðast hafði Kári samband á þriðjudagskvöld og varaði hann lög- regluna við snjóflóðahættu. Þegar ekki náðist samband við hann á mið- vikudagskvöld var farið að grennsl- ast fyrir um hann. Fóru tveir björg- unarsveitamenn á vélsleðum ásamt lögreglumanni frá Ólafsfirði og komu að Bakka klukkan 22. Kom þá í ljós að snjóflóð hafði fallið á bæinn. Kall- aðar voru út björgunarsveitir Slysa- varnafélagsins Landsbjargar frá Ólafsfirði, Akureyri, Árskógsströnd, Dalvík, Skagafirði og Húnavatns- sýslum. Mjög erfiðlega gekk að komast á staðinn vegna veðurs og ófærðar Björgunarsveitamenn frá Skagafirði komust ekki yfir Lágheiðina vegna veðurs og ófærðar. Þá hugðist Björgunarsveitin á Dalvík fara sjóleiðina til Ólafsfjarðar með leitarhund, en hætti við þau áform vegna sjólags. Brá sveitin á það ráð að keyra gamla Múlaveginn, sem var hættuferð hin mesta. Um klukkan 23 á miðvikudags- kvöld fóru tveir björgunarmenn á tveim snjótroðurum af stað frá Ólafs- firði ásamt fleiri sérútbúnum öku- tækum. Tók ferðin um fjóra klukku- tíma og lentu menn í blindöskubyl á leiðinni í gríðarlegu fannfergi. Snjó- troðararnir komust ekki yfir brú framarlega í Ólafsfirði skammt frá Kvíabekk, og sökk annar troðarinn niður í krapaða ána. Alls tóku 117 björgunarsveitamenn með fjóra leit- arhunda tóku þátt í aðgerðum við Bakka. Þak og þrír veggir tugi metra frá bæjarstæðinu „Það var brjálað veður í [fyrri]nótt og ferðin inn að Bakka gekk mjög hægt. Snjórinn var mikill á leiðinni, allt upp í rúma fjóra metra,“ sagði Jón. „Leitin gekk ótrúl hefði getað orðið mikil stóru flóði, ef húsið hefði úr stað.“ Kristján Kristjánsson Mannskaði varð þegar stórt snjóflóð úr Bakkahy „Aðkoman va Snjó Við Ólafsfjarðará varð óhapp þegar snjótroðari lenti í ánni á lei tók drjúgan hluta nætur. 117 björgunarsveitamenn með fjóra h Ljósmynd/Ólafur Ólafsson Björgunarsveitamenn komust að Bakka eftir erfiða ferð og hófu strax leit. 34 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SALAN Á ÚA Sú ákvörðun Eimskipafélags Ís-lands hf. að selja ÚtgerðarfélagAkureyringa fjárfestum, sem reka fyrirtæki í Reykjavík og á Rifi á Snæfellsnesi, hefur vakið hörð við- brögð nyrðra. Eimskip og Lands- bankinn, ráðandi hluthafi í félaginu, hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir það hvernig haldið hafi verið á málum. Þannig sagði Kristján Júlíusson, bæj- arstjóri á Akureyri, í Morgunblaðinu í gær að kaupverðið, níu milljarðar króna, væri of hátt og rekstur fyrir- tækisins þyldi ekki það verð. „Það þarf að gera einhverjar tilfæringar þarna inni og það er umhugsunarefni hvað og yfirleitt hvort Landsbanki Ís- lands er eitthvað að hugsa í því sam- bandi. Það virðist ekki vera, þannig að að öllu óbreyttu eru skilaboð Lands- bankans til starfsmanna ÚA og bæj- arbúa að honum er nokkuð sama hvað um þennan atvinnurekstur verður. Bankinn er bara að tryggja sitt fé,“ sagði Kristján Þór. Bæjarstjórinn á Akureyri benti jafnframt á að bankinn myndi með sölu á fyrirtækjum sínum á Akureyri, Akranesi og Skagaströnd leysa til sín um þrjá milljarða í beinan hagnað „og mun uppspretta þessa hagnaðar njóta þessara fjármuna í eflingu atvinnulífs á svæðinu? Það er ekkert sem bendir til að svo verði og veldur vissulega áhyggjum. Og þá spyr maður sig: Er löngunin í þessa fjármuni slík að menn skirrast ekkert við að taka til sín þennan arð sem þarna verður til og flytja hann burt af svæðinu? Því miður virðist margt benda til að svo sé og fólk hefur af þessu miklar áhyggj- ur,“ segir Kristján Þór Júlíusson. Frá Kaupfélagi Eyfirðinga, KEA, hafa einnig komið hörð viðbrögð, en fyrirtækið sleit áratugalöngum við- skiptum sínum við Landsbankann í gær. Í Morgunblaðinu í gær birtist yf- irlýsing KEA, þar sem samskipti fé- lagsins við Landsbankann um hugs- anleg kaup á ÚA eru rakin, en þar kemur m.a. fram að KEA hafi með bréfi til bankans á mánudag lýst yfir vilja til viðræðna um kaup á ÚA, lýst hugmyndum sínum um rekstur félags- ins og kaupverð. Hins vegar hafi verið farið í viðræður við annan aðila og á miðvikudagsmorgun tilkynnt í Kaup- höll að búið væri að selja ÚA. „Félagið var því selt í skjóli nætur án þess að heimamönnum gæfist nokkurt tæki- færi til að ræða við seljandann um málið,“ segir í yfirlýsingu KEA. Ástæðurnar fyrir hörðum viðbrögð- um Akureyringa eru fyrst og fremst tvær. Annars vegar höfðu forsvars- menn Landsbankans og Eimskipa- félagsins lýst yfir vilja til að vinna með heimamönnum. Þannig var t.d. haft eftir Magnúsi Gunnarssyni, stjórnarformanni Eimskips, hér í blaðinu 13. desember sl. að „það sé vilji Eimskipafélagsins að vinna að þessum málum með heimamönnum og að fyrirtækin verði seld þeim, náist um það samkomulag.“ Forsvarsmenn Landsbankans hafa svarað þessari gagnrýni og segja í yfirlýsingu í Morgunblaðinu í dag að hugmyndir KEA um rekstur fyrirtækisins hafi verið lakari en annarra. KEA hlýtur að eiga fullan rétt á að spyrja á móti hvernig Landsbankinn hafi verið dómbær á það án eiginlegra viðræðna við félagið. Hins vegar óttast heimamenn á Ak- ureyri að nýir eigendur kunni að vilja færa veiðiheimildir og atvinnu frá Eyjafjarðarsvæðinu. Nýju eigendurn- ir hafa lýst því yfir að þeir hafi engin áform um slíkt og hyggist reka ÚA með svipuðum hætti og verið hafi; ekki sé ætlunin að flytja höfuðstöðv- arnar frá Akureyri eða selja fyrirtæki í eigu félagsins. Nú er út af fyrir sig engin ástæða til að draga þessar fyr- irætlanir nýju eigendanna í efa. Hins vegar er ljóst að áður hafa verið gefn- ar yfirlýsingar af hálfu stórra útgerð- arfyrirtækja, sem kaupa fyrirtæki á öðrum stöðum, um að áfram verði haldið uppi öflugum rekstri í heima- byggð en það hefur síðan ekki gengið eftir. Þekktasta dæmið er líklega þeg- ar Samherji gaf skýrar yfirlýsingar við kaupin á Hrönn á Ísafirði á sínum tíma um að togari félagsins, Guð- björg, yrði áfram gerður út frá Ísa- firði. Hann var seldur til Þýzkalands. Jafnframt muna margir eftir yfirlýs- ingum stjórnenda Þorbjarnar í Grindavík um áframhaldandi rekstur í Bolungarvík og Hnífsdal eftir samein- ingu við Bakka hf. Það gekk ekki eftir heldur – kvótinn fór til Grindavíkur. Akureyringum er því vorkunn að hafa áhyggjur af því að fjöregg atvinnulífs- ins í bænum geti verið í hættu. Enginn getur bannað stórum fyr- irtækjum að kaupa eða selja önnur fyrirtæki og gera við þau það sem þeim sýnist. Hitt verða stjórnendur stórfyrirtækja að hafa í huga, hvort sem þeir eru bankastjórar eða útgerð- armenn, að þeir eiga mikið undir trún- aðarsambandi sínu við fólkið í land- inu. Ef yfirlýsingar um samvinnu við heimamenn eða áframhaldandi at- vinnurekstur á stöðum úti um land eru sviknar og þeir, sem bera áfram- haldandi öflugan atvinnurekstur í sinni heimabyggð fyrir brjósti, ekki einu sinni virtir svars, er ekki við því að búast að það samband eflist og dafni. ÞJÓÐRÆKNI OG SÉRSTAÐA Færeyska söngkonan Eivör Páls-dóttir hefur unnið hug og hjarta Íslendinga á skömmum tíma. Það mátti m.a. sjá við afhendingu Íslenzku tónlistarverðlaunanna í fyrrakvöld en þar var hún heiðruð tvisvar sinnum, sem söngkona árs- ins og flytjandi ársins ásamt hljóm- sveit sinni, Krákunni. Ekki skal dregið í efa að heillandi persónuleiki söngkonunnar og tón- listarflutningur eigi hér mikinn hlut að máli. En fleira kemur til. Eivör Pálsdóttir gengst við upp- runa sínum í list sinni. Hún syngur á færeysku. Hún heldur í heiðri fær- eyskar hefðir. Hún heldur fram fær- eysku þjóðerni sínu. Hún er einhver bezti fulltrúi færeysku þjóðarinnar, sem lengi hefur komið fram á sjón- arsviðið. Hún rækir tengslin við land og þjóð í list sinni og er ekki feimin við það. Í þessu er sérstaða hennar fólgin. Þjóðrækni. Þess vegna ekki sízt hrífumst við Íslendingar af þessari færeysku stúlku og fágaðri list hennar. For- dæmi hennar er til eftirbreytni. DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra ákvað í gær að skipa sér- staka nefnd til að rannsaka or- sakir og afleiðingar snjóflóðsins á Bakka. Nefndin er skipuð í samræmi við lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Formaður nefndarinnar er Björn Friðfinnsson ráðuneytis- stjóri en ásamt honum eiga sæti í nefndinni Arnar Guð- mundsson, skólastjóri Lög- regluskóla Íslands, og Smári Þorvaldsson, deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu. Forsætisráð- herra skipar rannsóknar- nefnd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.