Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 38
MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ó lafur Þ. Harðarson, prófessor við fé- lagsvísindadeild Háskóla Íslands, hefur komist að þeirri niðurstöðu að kjósendur hér á landi séu ekki fífl. Þetta eru mikil tíðindi og ánægjuleg. Ólafur kunngjörði þessa nið- urstöðu sína á málþingi sem Samfylkingin efndi til í Reykja- vík á dögunum. Þar var m.a. til umræðu svonefndur „kjörþokki“ stjórnmálaforingja, áhrif pen- inga og auglýsingafólks í ís- lenskum stjórnmálum og flokks- hollusta kjósenda á Íslandi. „Kjósendur á Íslandi eru ekki fífl. Pólitík snýst ekki bara um peninga eða um auglýs- ingastofur; pólitík snýst raun- verulega um málefni,“ hafði Morgunblaðið eftir Ólafi. Hann bætti við að mönnum hætti til að vanmeta gáfnafar kjósenda á Íslandi. „Kjósendur eru klókari en menn oft halda og reyndar oft klókari en stjórnmálamenn.“ Víst er að kjósendur allra flokka á Íslandi munu taka þessum tíðindum fagnandi. Stuðningsmenn Samfylking- arinnar í síðustu kosningum geta nú tekið gleði sína á ný. Það er ekki til marks um fíflsku að kjósa flokk sem er bæði með og á móti þegar helstu deilumál samtímans eru til umræðu. Kjósendur Framsóknarflokks- ins eru ekki heldur fífl. Það er beinlínis gáfulegt að bregðast við brosi Halldórs Ásgrímssonar í sjónvarpi með því að rjúka á kjörfund og kjósa hann. Þeir sem kusu Frjálslynda flokkinn hafa skyndilega fengið öflugt vopn í hendur. Komið hefur á daginn að þeir sem haldið hafa því fram að einungis réttnefndir hálfvitar styðji þann flokk hafa rangt fyrir sér. Stuðningsfólk Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs getur nú horft með bjartsýni til framtíðarinnar. Það að hata eig- in samtíma er ekki til marks um að viðkomandi sé idjót. Þvert á móti er það rökrétt og skyn- samleg afstaða. Einna mest hlýtur þó gleði stuðningsmanna Sjálfstæð- isflokksins að vera. Þar sem flokkurinn hefur nú verið í stjórn á Íslandi í 13 ár hljóta þær tugþúsundir manna sem greitt hafa því fyrirtæki at- kvæði sitt á undanliðnum árum að fagna þeim upplýsingum að þeir séu ekki fífl.  Það er rökrétt að þeir sem telja að ríkið sé óhóflega um- fangsmikið á Íslandi kjósi Sjálf- stæðisflokkinn. Flokkurinn hef- ur á stefnuskrá sinni að draga úr ríkisumsvifum. Sú staðreynd að ríkisumsvif hafa aldrei verið meiri í sögu lýðveldisins breytir engu í því efni. Einungis fífl getur hrapað að slíkri nið- urstöðu.  Það er skilgreiningaratriði um mannlega skynsemi að þeir sem vilja að dregið verði úr skattheimtu kjósi Sjálfstæð- isflokkinn. Sjálfstæðismenn hafa á stefnuskrá sinni að skattar verði lækkaðir á Íslandi. Sú staðreynd að skattheimta hefur aldrei verið meiri breytir engu þar um. Málefnin ráða og ein- ungis fánar og apatrýni kjósa án tillits til málefnanna.  Það er gáfumerki að styðja Sjálfstæðisflokkinn. Fífl kjósa ekki flokk sem berst fyrir skattalækkunum en hækkar síð- an skattana að kosningum lokn- um. Slíkt er þvert á móti til marks um mannvit og þroska.  Það er til vitnis um tak- markaleysi mannsandans að þeir sem vilja að dregið verði úr opinberum framlögum til rík- ismenningar kjósi Sjálfstæð- isflokkinn. Á þeim 13 árum sem flokkurinn hefur stjórnað Ís- landi hafa framlög til rík- ismenningar aldrei verið meiri. Ný ráðskona menntamála boðar þá breytingu eina að enn beri að auka framlög skattborgara til ríkismenningar. Slíkan stjórnmálamann styðja engin fífl.  Órofa, vitsmunaleg tengsl eru á milli þess að efast um að auk- in forsjárhyggja og reglugerða- fíkn séu fallin til að bæta lífið á Íslandi og þess að styðja Sjálf- stæðisflokkinn. Einungis fífl gætu komist að annarri nið- urstöðu. Sjálfur formaður flokksins og forsætisráðherra Íslands hefur lýst yfir því í blaðaviðtali að hann sé andvígur reglugerðarhyggju og ríkisrek- inni forsjárfíkn. Að vísu vita all- ir þeir sem á Íslandi búa að for- sjárhyggjan hefur náð þvílíkum tökum á íslenska „fóstru- samfélaginu“ að leita þarf alla leið til Noregs til að finna við- líka ástand. Þetta fólk kýs vit- anlega Sjálfstæðisflokkinn. Ein- ungis algjört idjót, daufingi og gagl myndi verja atkvæði sínu með öðrum hætti. „Kjósendur eru ekki fífl.“ Stjórnmálaflokkar á Íslandi eiga að sameinast um að taka upp þetta slagorð í sameiginlegum auglýsingum. Slíkt yrði fallið til að draga úr þeim miklu flokka- dráttum sem einkenna sam- félagið nú um stundir. Auglýs- ingaherferð af því tagi er ástæðulaust að binda við kosn- ingar. Mun heppilegra er að hún sé viðvarandi og móti „stjórnmál dagsins“ eins og þeir segja í sjónvarpinu. Hugsa mætti sér að komið yrði upp auglýsingaskiltum við helstu samgönguæðar í Reykja- vík og á landsbyggðinni með myndum af íslenskum stjórn- málaforingjum. Undir þeim myndum mætti síðan birta eft- irfarandi yfirlýsingu: „Við erum ekki fífl og það eruð þið ekki heldur.“ Einhver auglýs- ingastofan er vafalaust fáanleg til að sjá um þetta „átak“ sem væri bæði jákvætt og „þver- pólitískt“. -------------------------------------- Eftirfarandi kosta Viðhorfs- dálka Ásgeirs Sverrissonar: Stigaleigan.is – Náðu lengra Útflutningsstofa ríkismenn- ingar – Ljós úr norðri Ásgeir Sverrisson notar ein- göngu gúmmískó frá skóversl- uninni Akkiles. Fíflin búa ekki hér Kjósendur allra stjórnmálaflokka á Ís- landi hljóta að taka þeim tíðindum fagnandi að þeir séu ekki fífl. VIÐHORF Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is ✝ Hilmar Pálssonfæddist á Hjálms- stöðum í Laugardal 8. maí 1922. Hann lést á Hrafnistu mánudag- inn 5. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Páll Guðmunds- son, bóndi og hagyrð- ingur á Hjálmsstöð- um, og Rósa Eyjólfs- dóttir frá Snorra- stöðum. Þau áttu sjö börn en áður eignað- ist Páll átta börn með fyrri konu sinni, Þór- dísi Grímsdóttur. Eft- irlifandi systkini Hilmars eru Þór- dís og Ásgeir. Hilmar giftist eftirlifandi eigin- konu sinni, Svövu Björnsdóttur, 20. desember 1947. Foreldrar hennar voru Björn Jónsson, bóndi á Reykj- um í Mjóafirði, og Sigurborg Gísla- dóttir. Þau eignuðust átján börn og eru enn á lífi þær Svava og Sigríð- ur. Börn Hilmars og Svövu eru: 1) Rósa, f. 13. júlí 1947, maki Örn Karlsson. Börn þeirra eru Svafa, eiginmaður hennar er Björgvin Ploder og eiga þau synina Fróða og Sindra. Hilmar Karl, sambýliskona hans er Sara Bland- on. 2) Árný Birna, f. 10. mars 1954. Hún á dæturnar Rósu og Freyju með fyrrver- andi maka, Halldóri Kjartanssyni. 3) Páll Hjálmur, f. 6. apríl 1958, maki Þóra Ár- sælsdóttir. Börn þeirra eru Ársæll Freyr og Brynja. Sambýliskona Ár- sæls er Ásta Dögg Sigurðardóttir og eiga þau soninn Hreiðar Pál. Hilmar ólst upp á Hjálmsstöðum og átti þar alla tíð djúpar rætur. Hann fluttist ungur maður á möl- ina og fór í Samvinnuskólann í Flensborg og lauk þar námi 1946. Eftir það stundaði hann verslunar- og skrifstofustörf á ýmsum stöðum allan sinn starfsferil. Hilmar og Svava bjuggu lengst af á Laugar- nesvegi 94. Útför Hilmars fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. „Og hverra manna ert þú, stúlka mín?“ var með því fyrsta sem verð- andi tengdafaðir spurði. Mig rak í vörðurnar, ég vissi nafn afa og ömmu og hvaðan þau voru en varla meira en það. Þetta fór betur en ég þorði að vona. Ættfræðitalið færði unga kær- ustuparið nær hvort öðru, nær en það grunaði, nefnilega austur til Mjóa- fjarðar af öllum stöðum en þangað á Svava tengdamóðir mín ættir að rekja sem og Þorsteinn afi minn. Mér var sannarlega tekið opnum örmum á Laugarnesveginum. Frændgarðurinn var stór þar sem þau Hilmar og Svava áttu hvort um sig stóran systkinahóp. Ótalin eru öll systkinabörnin, ansi margir Pálar og nokkrar Rósur. Sumarið 1978 fór ég í fyrsta sinn að Hjálmsstöðum og í bústaðinn þar sem ég átti eftir að kynnast Hjálmsstaða- fólkinu enn betur. Þarna var sælureit- ur Hilmars þar sem hann gat sinnt sérlegu áhugamáli sínu; skógrækt. Við Hjálmur bjuggum í fjögur á hjá Hilmari og Svövu á Laugarnesvegin- um. Þar ólst Ársæll sonur okkar upp frá tveggja ára aldri við margafalda ást foreldra, afa og ömmu. Afi hans tók hann í sitt eigið uppeldi, baðaði hann í íslensku máli, trimmaði hann fram og aftur. Hann las fyrir hann, sagði sögur, kvað vísur, kenndi hon- um nýjar, hlýddi honum yfir og bætti alltaf við. Í dag myndi þetta kallast markviss málörvun. Hilmar hafði sérstakt dálæti á börnum og bar mikla virðingu fyrir þeim. Hann umvafði þau hlýju og hrósi, dáðist að hverju því sem þau tóku sér fyrir hendur og hvatti þau áfram. Hann stjanaði við þau og pass- aði sig á að eiga alltaf til ís eða eitt- hvað gott í gogginn. Það er ekki hægt að hugsa sér jákvæðari uppeldisað- ferðir en hann Hilmar notaði. Aldrei heyrði ég hann skamma börn og Hjálmur minnist þess ekki að hann hafi nokkurn tíma skammað sig. Hilmar var alla tíð áhugasamur um það sem afkomendur hans og vensla- fólk var að fást við. Hann hafði áhrif á efnisval og hjálpaði mér við ritgerða- smíð þegar ég var í Kennaraháskóla Íslands. Öll börn hans eru uppeldis- menntuð svo og elsta barnabarnið. Það hefur því verið mikið rætt um börn og kennslu í fjölskyldunni í gegnum árin. Hilmar var hógvær maður og lít- illátur sem barst ekki mikið á en þarna var á ferðinni gáfaður maður , réttsýnn, með góða kímnigáfu og af- burða góður íslenskumaður. Það varð honum til ómældrar ánægju þegar Svafa, elsta barnabarnið, fór í ís- lensku í Háskóla Íslands og hann fékk að fylgjast með og ræða við hana um hin mismunandi viðfangsefni. Þótt fólkið frá Hjálmsstöðum til- heyri auðvitað mörgum starfsstéttum er þetta ákaflega listrænt fólk. Þar má nefna myndlistarmenn, tónlistar- menn, hagyrðinga og sögumenn. Síð- astliðið sumar útskrifaðist Rósa barnabarn Hilmars frá listhönnunar- skólanum í Kolding í Danmörku og hlaut þá sérstök verðlaun fyrir frá- bæran árangur í sínu fagi. Þessu gladdist Hilmar yfir. Hilmar var hag- yrðingur góður og væri hann ungur maður í dag kallaðist hann skáld. Eftirfarandi ljóð, sem hann kallaði Elliraus, orti hann á Hrafnistu þegar heilsan var orðin léleg. Þjakar mig ellin ör, allt er bilað mitt fjör, merki þess ber ég því yfirleitt er ég óttalegt andskotans hör. Þegar er þrotinn minn rómur þornar tunga og gómur þanki minn þver og því er nú ver að hausinn er hér um bil tómur. Það var sérsök ánægja að Hilmar og Svava skyldu treysta sér til að koma til okkar á aðfangadagskvöld þar sem þau höfðu verið veik til skipt- is dagana á undan. Hann tók hraust- lega til matar síns, lofaði skosku rjúp- una og þáði aukaskammt af sósu sem hann borðaði með skeið enda mikill sósumaður. Ég þarf vart að taka fram hrósið sem ég fékk og þakklætið. Hann náði að vera samvistum við nánustu afkomendur um jólin og taka þátt í jólagleðinni. Hilmar lést að kvöldi 5. janúar. Ég færi starfsfólki Hrafnistu sér- stakar þakkir fyrir umönnunina og ekki síður stuðninginn sem tengda- móðir mín nýtur. Sérstakt þakklæti fær þó Rósa mágkona mín sem reyndist Hilmari ómetanleg í veikind- unum. Blessuð sé minning Hilmars Páls- sonar. Þóra Ársælsdóttir. Afi minn var yndislegur og ég elsk- aði hann mjög mikið. Á afmælinu mínu samdi hann alltaf ljóð um mig. Ég ætla að kveðja hann með einu ljóði sem hann orti til mín þegar ég kom í heimsókn og þakka honum fyrir að vera svona yndislegur við mig: Brynja er góður gestur hér, geislum fyllist stofan, með fasi sínu boðskap ber beint af himnum ofan. Lipurtáin leikur sér létt og djörf í spori. Brosið hennar alveg er eins og sól á vori. Brynja. Nú er hann afi minn farinn eftir erfiða baráttu við krabbamein. Þó að það sé sárt að kveðja hann veit ég að honum líður betur núna. Minningarnar okkar lifa samt áfram, þar er erum við enn saman og minningabankinn er stór. Ég naut þeirrar gæfu að búa hjá afa og ömmu á Laugarnesveginum þegar ég var lítill. Þá söng afi mig svo oft í svefn og nú tæpum tuttugu árum seinna syng ég þessi sömu lög fyrir strákinn minn á kvöldin. Þau eru óteljandi skiptin sem ég fór með afa og ömmu austur og alltaf var það jafn gaman. Við gerðum svo margt, plöntuðum þúsundum trjáa, tíndum ber og fjallagrös sem við borðuðum út á graut og svo kenndi afi mér að keyra á túninu. Ég man alltaf eftir honum sem stóra sterka afa sem allt gat. Ég þakka fyrir allar stundirnar okkar. Ársæll Freyr. Hilmar Pálsson, föðurbróðir minn, er látinn. Sé litið um öxl minnist ég Hilmars ætíð fyrir austan, í landi Hjálmsstaða í Árnessýslu: í brúnum buxum, hvít-röndóttri skyrtu og með axlabönd, að taka upp kartöflur í reitnum sem stóð skammt ofan við efra hlið. Ég minnist hans einnig sitj- andi við eldhúsborðið í „Skottinu“ að reykja pípu. Þessar tvær myndir af Hilmari hafa, einhverra hluta vegna, brennst inn í vitund mína. Í viðtali sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 8. nóvember 1998 við Andrés, bróður Hilmars, komst hann svo að orði um Hjálmsstaði: „Þegar menn hafa lifað á sömu jörðinni alla ævi þá er hún orðin hluti af þeim.“ Ég ímynda mér að Hilmar hefði að líkindum tekið í svipaðan streng, og í raun einnig bræður hans sem ég þekkti til. Land- ið var þeim meira virði en hér verður greint frá með góðu móti. Þessi land- skiki var þeirra ginnhelgu vé og auk þess að njóta náttúrufegurðar, birt- unnar, lyktar og fjallasýnar held ég að umhverfið hafi sagt þeim hverjir þeir voru. Orðið aristókrat (í allra jákvæðasta skilningi þess) finnst mér hæfa föð- urbróður mínum vel. Öll framkoma hans og viðmót einkenndist af hóg- værð og stillingu og tal hans var al- gjörlega laust við ákafa og tilgerð. Um sjálfan sig talaði hann sjaldan. Þegar Hilmar innti mig eftir fyrirætl- unum og áformum mínum var aug- ljóst að ekki var spurt af vélrænni kurteisi sem staðfestingu á nærveru minni, heldur af einlægni og áhuga. Þessi samtöl voru uppörvun og geð- bót enda Hilmar maður af því kalíberi að að þeim loknum leið manni betur. „Bernskan, þessi dýrlegi konunglegi auður, þessi fjársjóður minninganna,“ svo vitnað sé í orð skáldsins Rainers Maria Rilkes, held ég að hafi meira vægi í lífi okkar en við erum oft tilbúin að játa. Sumardögum bernsku minn- ar eyddi ég að miklu leyti fyrir aust- an. Og þótt ég hafi sjálfsagt sjaldan lagt orð í belg í samræðum, sem nú eru löngu gleymdar, rennur upp fyrir mér hve sterk návist frændfólks míns var, ekki síst Hilmars. Gildi þess opin- berast mér nú, að óvörum, seint og um síðir. Enginn vinnur sitt dauðastríð, og reynist meinvætturinn krabbamein á lokastigi er baráttan því miður fyr- irfram töpuð. Ég hitti Hilmar ekki oft eftir að meins hans varð vart en þeim tíðindum fannst mér hann taka af miklu æðruleysi. Pabbi tilkynnti mér lát Hilmars í síma 6. janúar sl. Hann hafði sagt nokkru fyrr að við þeim fregnum gæti ég búist á hverri stundu. Andlát nákomins ættingja er nokkuð sem ókleift er að búa sig und- ir. Og nú er föðurbróðir minn, Hilmar Pálsson, fallinn frá. Eitt af því fáa sem hægt er að gera á slíkum stundum er að láta hugann reika og gefa sig á vald minningunum þar sem jafnvel þær allra smæstu, einar sér, geta reynst mörgum okkar paradísar-ígildi. Svövu og öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Jón P. Ásgeirsson. Það er merkilegt hvað dánarfregn getur haft mikil áhrif á mann. Þó svo að dauðinn geti verið mikil líkn og komi engum á óvart er dánartilkynn- ingin sjálf eins og högg, maður fær kökk í hálsinn og má vart mæla. Þannig varð okkur bræðrunum við þegar fregnin um andlát Hilmars föð- urbróður okkar barst, þó svo að við værum við henni búnir. Og minningarnar, hughrifin og HILMAR PÁLSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.