Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 39
myndirnar byrja að streyma fram; já
meira að segja minningar um lykt þar
sem hann var svo mikið náttúrubarn
að skógarilmurinn kemur fram þó svo
að hann blessaður hafi nú ekki haft
mikið lyktarskyn sjálfur.
Við minnumst föðurlegrar um-
hyggju sem streymdi frá honum.
„Ýsan hjá ykkur er betri en ýsan
hjá mömmu, megum við ekki borða
hér?“ Kannski var það eitthvað annað
en fiskurinn á borðum sem dró okkur
til þeirra. Maður á bögglahjóli á leið í
vinnuna með son sinn ungan á stöng-
inni, en þá gat nú stundum verið erfitt
að halda jafnvægi.
Samvinnumaðurinn sem átti frum-
kvæðið ásamt öðrum að byggingu
heils fjölbýlishúss þar sem allir stóðu
jafnir gagnvart hver öðrum.
Gleðimaðurinn og gleðigjafinn sem
allir sóttust eftir að vera nálægt.
Vinur og ráðunautur hvenær sem
við þurftum til hans að leita og skáldið
og hagyrðingurinn sem eftir liggja
perlur fyrir okkur hin sem hans sárt
sakna.
Fallegt var að sitja með honum
uppi á Miðdalsfjalli og líta yfir allt
sköpunarverkið sem við blasti, heyra
rjúpu ropa og taka leiðbeiningum um
verustað hennar. Eða ganga um
skóginn og hlusta á sinfóníu náttúr-
unnar og drekka í sig sögur liðinna
tíma. Við urðum eitt spurningarmerki
þegar hann sagði okkur að það væri
eins gott að við kynnum ekki fuglamál
á vorin þegar þrestirnir og aðrir smá-
fuglar voru að para sig.
Við vorum svo lánsamir að vera í
mikilli nálægð við hann og hans fjöl-
skyldu, bæði þar sem við bjuggum og
svo í bestu sveit í heimi. Og nálægðin
var svo mikil að fjölskyldur okkar
bjuggu í sama húsi þar sem allar dyr
stóðu okkur opnar og í sveitinni deild-
um við saman húsi.
Hann var æðrulaus. Vissi hvað var í
nánd en hélt samt gleðinni og húm-
ornum. Þegar við heimsóttum hann
fyrir jólin þar sem hann vart gat
gengið og röddin var rétt sem hvísl þá
gerði hann að gamni sínu. Sagðist
hafa safnað skeggi til að hylja andlit
sitt.
Hann endurtók kveðjur til allra,
vissi að það var hans hinsta kveðja, og
bað um sérstakar kveðjur til
barnanna. Hann kvaddi okkur hlæj-
andi eins og alltaf.
Við kveðjum heiðursmann sem var
okkur kær. Við vitum að bræður og
systur taka vel á móti honum. Megi
hann hvíla í friði.
Fjölskyldu hans vottum við okkar
dýpstu samúð.
Páll, Gaukur og
Stefán Eyjólfssynir.
Viljum svo sem verðugt er,
víst af öllum huga,
vináttuna þakka þér
þriggja áratuga.
Haltu þinni léttu lund,
ljósi og yl í hjarta.
Eigðu fram á efstu stund
æskuþokkann bjarta.
(Hilmar og Svava.)
Þessa vísu sendu þau hjónin mér
þegar ég varð sextug.
Árið 1955 byggðu 16 manns blokk í
Laugarnesi og var Hilmar einn af
þeim, ásamt Einari eiginmanni mín-
um. Fluttum við inn árið 1957 og varð
snemma góð vinátta með okkur og
þeim Hilmari og Svövu.
Þetta voru bestu ár barna okkar í
uppvextinum og allir voru eins og ein
stór fjölskylda. Minnisstæð eru gaml-
árskvöld þar sem allir heilsuðu öllum
og mættu flestir hjá Svövu og Hilmari
í stórt kökuboð snemma á nýársdags-
morgun. Svava kenndi mér einnig
sláturgerð sem ég þekkti ekki frá
mínu heimalandi.
Þegar við fluttum eftir 15 ár héld-
um við alltaf sambandi og þegar kom
að nýársdegi ár hvert, var fyrsta sím-
talið frá Svövu og Hilmari, með góðar
óskir.
Við hjónin þökkum Hilmari sam-
verustundirnar og vottum Svövu og
fjölskyldu samúð okkar.
Inger og Einar Arnórsson.
Kvæðamannafélagið Iðunn missti
mikið, þegar Hilmar Pálsson frá
Hjálmsstöðum í Laugardal var allur
hinn tólfta í nýliðnum jólum. Hilmar
var, eins og ég þekkti hann, hógvær
og prúður í umgengni en eftirminni-
legur maður, beinvaxinn og grannur,
ljós yfirlitum og léttur í hreyfingum
með blik í augum og næmleik þess,
sem finnur lífsgleðina hvar sem er.
Hann var svo skemmtilegur hagyrð-
ingur að af bar, óþrjótandi uppspretta
gleði fyrir samferðamennina. Vísurn-
ar hans eru ortar undir mismunandi
bragarháttum, þar eru einnig limrur,
forníslenskur kveðskaparháttur, sem
gleymdur var um skeið, þótt sumir
kalli þær nú írska uppfinningu. Þar
eru þulur og kvæði gamansöm eða al-
vöruþrungin. Oftast var þó stutt í
gamansemina. Þegar hann flutti ljóð
þögnuðu aðrir við. Í nóvemberlok árið
1993 gekk Hilmar í Kvæðamanna-
félagið Iðunni rúmlega sjötugur að
aldri og tók strax virkan þátt í starf-
inu. Tvær fastanefndir starfa í félag-
inu, kvæðalaganefnd og vísnanefnd.
Kvæðalag og vísa eru systkin; hvor-
ugt má af hinu missa. Ég átti því láni
að fagna, að mega í meira en tíu ár
starfa í vísnanefndinni með þeim
snillingunum Hilmari og Jóa í Stapa
og kynntist Hilmari vel á þeim tíma.
Hilmar var bóngóður.
Fyrir fáum árum stóð ég með öðr-
um í baráttu um síðasta vígi fjárkláð-
ans á Íslandi. Norðurland allt frá
Hrútafirði að Hólabyrðu iðaði af
kláðamaur.
Fjárkláðinn hafði staðist allar at-
lögur til útrýmingar í meira en 150 ár
og var enn að breiðast út. Mér kom í
hug að fá Hilmar til að yrkja þulu um
fjárkláðann frá sjónarhóli þolandans,
kindarinnar, til þess að hafa yfir á
fundum. Með því mætti e.t.v. stilla
saman betur en áður hafði tekist hugi
og átök þeirra, sem að baráttunni
þurftu að koma: bænda, ráðunauta,
dýralækna og stjórnvalda. Ekki stóð
á því að Hilmar brygðist vel við beiðni
minni og ef þessi barátta tekst núna
loksins, sem við leyfum okkur að
vona, má þakka Hilmari framlagið til
þess. Fyrri hluti þulunnar er svona:
Ég er geld og golsótt ær
gnaga mig stöðugt lýs og flær,
flytja mér ama og angur þær,
sem er þó létt hjá hinu,
heita helvítinu.
Kláðamaur í milljónum
mínum þjaka útlimum,
baki, síðum, bógunum,
bringukolli, lærunum,
augum bæði og eyrum.
Ég ætla nú vilji enginn frekar heyra’um.
Af sjálfri mér lítið eftir er,
engu lambi ég framar ber,
því jafnvel hrútnum hryllir við mér,
sem held ég sé að vonum,
því enga hef ég blíðu að bjóða honum.
Þessar nauðir náttúruna lamar,
notið get ég lífsins ekki framar …
Ég kom oft á heimili þeirra Hilm-
ars og Svövu. Samband þeirra var
kærleiksríkt og eins sambandið við
börn og barnabörn. Hilmar hélt því
fram, að hann væri lítt trúaður, en
svona yrkir hann til barnabarns:
Hann afi, sem gerist nú gneypur og lúinn,
hann gleðst við að horfa í augun þín blá.
Hann vonar að endist þér svipurinn sami
sem nú þér ljómar svo fallega á brá.
Hann gleðst af að vita þig vaxa og dafna
og vaknandi gáfur í augunum sér.
Já, kannske hann öðlist nú tapaða trúna,
því talsvert af guði hann finnur hjá þér.
og til Svövu konu sinnar yrkir hann
eftir 50 ára sambúð 1997:
Varstu mér á vegi lífsins
vörn og skjól í argi kífsins
þoldum við saman þetta og hitt.
Ég var í heiminn sagður sólginn
og sönn var gæfa þar í fólgin,
að mitt varð þitt og þitt varð mitt.
Það er gleðilegt að áhuginn og hag-
mælskan er enn til staðar hjá afkom-
endunum. Við Iðunnarfélagar þökk-
um Hilmari samfylgdina og óskum
blessunar Svövu konu hans, börnum
þeirra og barnabörnum, sem sjá nú á
bak yndislegum og hlýjum eigin-
manni, föður og afa. Við samhryggj-
umst ykkur, ættingjum, vinum og
ykkur öllum sem kynntust Hilmari
Pálssyni.
Sigurður Sigurðarson,
dýralæknir á Keldum.
✝ Auðbjörg ÁsaGunnlaugsdóttir
fæddist á Kolugili í
Víðidal í V-Hún. 26.
mars 1924. Hún lést
á dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi
10. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Sesselja Sig-
rún Jónsdóttir, f. 13.
október 1887, d. 3.
júní 1953, og Gunn-
laugur Daníelsson
bóndi, f. 12. janúar
1874, d. 28. apríl
1935. Alsystkini Ásu
voru Agnar, f. 10. des. 1915, og
Yngvar, f. 16. júní 1917. Sam-
feðra hálfsystkini voru Ingibjörg,
f. 1902, Kristín, f. 1903, Björn Ax-
el, f. 1904, Sigríður, f. 1905, Har-
aldur, f. 1908, og Daníel sem dó
ungur, öll eru þau látin.
Ása giftist 25. júlí 1946 Ragnari
Guðmundsyni, f. í Sporðshúsum í
Helgi Svan Arnar, f. 29. ágúst
1972. Auk þess ólust upp hjá Ásu
og Ragnari 1) Pétur Gunnar Sig-
urðsson frá 5 ára aldri, f. 29. des.
1962, kona hans Steingerður Her-
mannsdóttir, f. 2. sept. 1962, börn
þeirra eru Ása, f. 18. jan. 1984,
Erla, f. 7. apríl 1988, og fyrir áttu
Pétur og Ragna Björnsdóttir
Björn Ingvar, f. 9. mars 1981, sem
lést af slysförum 20. jan. 1998,
þau búa í Keflavík. 2) Hinrik Lín-
dal Hinriksson, f. 22. jan. 1945,
hann var af til á Kolugili frá
þriggja ára aldri, kona hans Júl-
íana Karvelsdóttir, f. 8. júlí 1947,
börn þeirra eru Karvel, Ása og
Olga. 3) Marteinn Óli Reimars-
son, f. 22.des. 1952, hann var
einnig til nokkurra ára á Kolugili,
kona hans er Erna Snorradóttir,
f. 18. okt. 1955, synir þeirra eru
Reimar og Snorri.
Ása og Ragnar bjuggu fé-
lagsbúi ásamt Yngvari bróður
hennar á Syðra-Kolugili og
seinna meir fluttu þau á Akranes.
Ása var einn vetur á Húsmæðra-
skólanum á Blönduósi.
Útför Ásu verður gerð frá
Akraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
V-Hún. 7. apríl 1913.
Foreldrar hans voru
Guðmundur Friðrik
Jónasson, f. 26. mars
1868, d. 22. júní 1939,
og Ingibjörg Árna-
dóttir, f. 14. júní
1873, d. 23. ágúst
1955. Dóttir Ásu og
Ragnars er Sigrún
Guðlaug, f. 19. nóv.
1951, eiginmaður
Kristinn Helgi Gunn-
arsson, f. 11. nóv.
1948. Foreldrar hans
eru Gunnar Júl-
íusson, f. 16. janúar
1922, og Unnur Guðmundsdóttir,
f. 3. maí 1925. Börn þeirra eru
Ragnar Víðir, f. 9. júní 1977, unn-
usta Svava Halldórsdóttir, f. 19.
júní 1984, Ásgeir Freyr, f. 22.
mars 1980, unnusta Hildur Jón-
asdóttir, f. 28. maí 1983, Gunnar
Hilmar og Unnur Aldís, tvíburar,
f. 3. mars 1984. Fyrir á Kristinn
Elsku besta amma mín.
Nú er komið að leiðarlokum, þó
að mér þyki leitt að svo sé þá vit-
um við að aðeins betra tekur við
með Guði og megi hann varðveita
þig. Mín minnig um hana ömmu er
sú að þegar við vorum í sveitinni í
heimsókn var ég alltaf send út til
að reka kýrnar heim, það fannst
mér voða áhugavert þar sem að
kýrnar voru ekki nema tíföld
stærð mín á þeim tíma. Ég hafði
alltaf gaman af að taka myndir en
þegar átti að taka mynd af ömmu
var hún ekki fyrr búin að sjá þig
nema að höndin var komin á loft
og enga mynd að fá.
Amma var duglegasta mann-
eskja sem ég þekki, það var ekkert
handtak sem að hún gat ekki gert.
Hugtakið karlmannsverk var ekki
til í hennar orðaforða, nema
kannski þegar kom að því að keyra
dráttarvél.
Ég mun ávallt vera þakklát fyrir
að eiga hana Ásu sem ömmu og
geymi ég minningu hennar ávallt í
mínu hjarta. Þín
Unnur Aldís.
Elsku amma.
Nú ertu farin frá mér og varst
þú alveg yndisleg kona. Þegar afi
veiktist og gat eftir það ekki sinnt
þeim störfum sem komu nærri
heyskap þá þurfti amma að taka á
þeim ásamt bróður sínum Ingvari.
Í gegnum árin hefur nánast alltaf
verið fenginn vinnumaður úr borg-
inni og fylltum ég og Ragnar,
bróðir minn, það starf nokkur
sumur. Ein ástæðan fyrir því að
vinnumann vantaði var vegna þess
að einhvern þurfti til að keyra
traktorinn en amma kom ekki ná-
lægt þeim. Það var engin spurning
að þeir sem sóttu eitt eða fleiri
sumur hjá ömmu komu reynslunni
ríkari heim og heyrst hefur af ein-
um sem sagði „ég lærði að vinna
hjá Ásu“. Ég get svo sannarlega
sagt að ég lærði heilmikið þegar
ég var í sveit hjá ömmu og hefði
ekki viljað vera án í dag.
Minnisstæðustu stundir mínar
með ömmu voru samt helst þegar
við vorum tvö í fjósinu og spjöll-
uðum saman um kýrnar, heyskap-
inn og allt sem upp í hugann kom.
Amma hafði gaman af því að fara í
réttir og fannst mér svo gaman að
sjá hana í miðri réttinni, dragandi
rollur hingað og þangað, kallandi
nöfn sveitabæja og gefandi manni
karamellur. Í dag er maður hálf
tómur eftir að amma og afi fóru úr
sveitinni, alltaf þegar ég keyri
framhjá Víðidalnum hugsa ég til
þeirra tíma þegar ég og amma tók-
umst á við heyskap og fleira sem
aðeins gerist í sveitinni. Í dag er
sveitin bara í huganum og mun ég
varðveita þær minningar að eilífu.
Ég mun alltaf muna eftir ömmu
sem sterkri manneskju sem dreif
alla áfram ef eitthvað bjátaði á.
Amma tókst á við öll verk og tók
hún á þeim 150%, alltaf var hún
hress. Blessuð sé minning hennar.
Þinn
Ásgeir Freyr.
Kjarnakonan hún Ása er fallin
frá.
Ég var svo lánsamur sem strák-
ur að fá að vera í sveit á Kolugili
hjá Ásu og Ragnari sem bjuggu
þar í sambýli við Ingvar, bróður
Ásu.
Dugnaður og heiðarleiki kemur
fyrst upp í hugann þegar ég hugsa
til baka og minnist Ásu, hún var
kraftmikil og ósérhlífin. Mikill
myndarskapur var við allt heim-
ilishald, alltaf var allt hreint og
snyrtilegt og hlaðið borð góðgætis.
Þessi ótrúlegi kraftur var mér
óskiljanlegur, auk myndarlegs
heimilis gekk Ása í öll útiverk
hvort sem var að grafa skurði eða
reka niður girðingarstaura. Ég
fylgdist með af aðdáun þegar hún
beitti járnkarlinum en hann fór
niður hvernig sem jarðvegurinn
var undir.
Við sem nutum þessara forrétt-
inda að vera í sveit á Kolugili lít-
um til baka með hlýhug og virð-
ingu fyrir því að fá að kynnast
fólki sem var svona duglegt og
heiðarlegt en því var Ása gædd í
miklum mæli og hefur það án efa
átt þátt í að móta það unga fólk
sem dvaldi að Kolugili. Umhyggja
fyrir dýrum og næmi hennar á líð-
an þeirra var ríkt í Ásu.
Ferðir á hestum í t.d. veiðiferðir
eru einkar minnisstæðar en þá
geislaði Ása af orku og fjöri svo
ekki sé minnst á göngur og rétt-
arferðir en þá komu jafnan ætt-
ingjar og vinir til að gleðjast sam-
an.
Já, dalurinn heillar og bar Ása
alltaf miklar tilfinningar til sinnar
sveitar en síðustu árin var Ása bú-
sett á Akranesi. Ása var lánsöm í
einkalífinu en Ragnar var henni
stoð og stytta alla tíð, afar yfirveg-
aður og laginn til allra verka. Nú
er hún frænka mín komin aftur í
dalinn sinn.
Ragnar, Guðlaug og fjölskylda,
minningarnar um Ásu eru hlýjar
og kærar.
Guð blessi minningu hennar.
Jón Albert
Sigurbjörnsson.
ÁSA
GUNNLAUGSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar um
Hilmar Pálsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUNNAR GUÐLAUGSSON,
Hnaukum,
Álftafirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn
12. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Djúpavogskirkju
laugardaginn 17. janúar kl. 14.00.
Anna Ingólfsdóttir,
Reynir Gunnarsson, Helga Stefánsdóttir,
Stefán Gunnarsson, Nína Jónsdóttir,
Guðlaug Gunnarsdóttir, Jóhann Gunnarsson,
Gunnar Rúnar Gunnarsson,
Snjólfur Gunnarsson, María Dögg Línberg,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RÓSA INGIBJÖRG JAFETSDÓTTIR,
Erluhrauni 6,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 13. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristján Þ.G. Jónsson, Sigríður G. Jónsdóttir,
Brynhildur R. Jónsdóttir, Guðmundur S. Halldórsson,
Kristín Jónsdóttir, Heimir Ólafsson,
Steinunn G. Jónsdóttir, Björgvin J. Guðbjörnsson,
Sigurður Jónsson, Brynhildur Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.