Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 44

Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 44
MINNINGAR 44 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Halldór Sigur-geirsson fæddist í Reykjavík 28. mars 1927. Hann lést á dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Grund 8. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurgeir Halldórs- son sjómaður og Þor- björg Halldóra Guð- jónsdóttir húsfreyja. Halldór var fjórði í röð sjö systkina. Hin eru: Eyþór Óskar (lát- inn), Aðalheiður (lát- in), Guðbjörg (látin), Oddrún, Guðjóna Klara og Sigríð- ur (látin). Halldór kvæntist hinn 21. mars 1953 Jónínu Þóreyju Björnsdóttur, f. 8. júlí 1930, d. 8. október 1998. Hún var dóttir Björns Guðmundar Björnssonar, organista og smiðs, og Sigrúnar Ragnheiðar Jónsdóttur húsfreyju. Halldór og Jónína Þórey bjuggu öll sín hjúskaparár í Reykjavík fyrir utan eitt ár í Kópavogi. Þau eign- uðust þrjú börn. Þau eru: 1) Björn, f. 5. apríl 1954, hjúkrunarfræðing- ur, var kvæntur Sigrúnu Þóris- dóttur, þau skildu og eiga saman þrjú börn. 2) Sigurgeir, f. 15. apríl 1955, fisktæknir, d. 9. apríl 2001. Hann var kvæntur Valgerði Krist- jánsdóttur, þau skildu og eignuðust saman fimm syni. 3) Áslaug, f. 16. mars 1962, verslunareig- andi, var gift Sigurði Sverrissyni, þau skildu og eiga saman tvö börn. Núverandi maki Áslaugar er Valdimar Aðalsteins- son og eiga þau sam- an tvo syni. Halldór gekk í Austurbæjarskólann í Reykjavík, fór svo í Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi 1948. Síðan lá leiðin í lagadeild Há- skóla Íslands og lauk hann þaðan lögfræðiprófi 1954. Vann hann við lögfræðistörf þar til hann hætti að vinna sökum aldurs. Halldór var í Ármanni á sínum yngri árum, aðallega í handbolta og frjálsum íþróttum. Hann hafði alla tíð áhuga á tónlist og söng með Stúdentakórnum, Smárakvartett- inum í Reykjavík, Karlakór Reykjavíkur og einnig á seinni ár- um með eldri félögum Karlakórs Reykjavíkur. Útför Halldórs fer fram frá Grensáskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Elsku afi. Nú ertu laus úr viðjum sjúkralegunnar. Þetta er búinn að vera erfiður tími fyrir þig og loks- ins ertu frjáls. Fyrir stuttu sátum ég, mamma og Erna Þórey frænka við rúmið hjá þér og margar skemmtilegar sögur rifjuðust upp, eins og þegar ég var lítil og bað þig að sippa með mér. Þú í gæsku þinni ákvaðst að láta verða af því og það kostaði þig mánuð á spítala vegna þess að þú sleist hásin í fætinum. Eitt bar líka á góma hjá okkur, og það eru sterku mynturnar sem þú varst alltaf að gefa okkur barna- börnunum. Mömmu var alltaf svo illa við þær, því hún hélt að þær gætu skemmt í okkur hálsinn eða magann. Síðustu vikurnar hafa verið þér sérstaklega erfiðar vegna þess að þú varst farinn að glata því sem var þér kærast; röddin, þú hafðir unun af því að syngja og söngst svo oft fyrir mig þegar ég var yngri. Ég hafði svo gaman af því að heyra þig syngja, þú hafðir líka alveg dásam- lega rödd og nú eru eflaust engl- arnir að hlýða á þinn fagra söng. Ég get ekki annað en brosað þeg- ar ég hugsa til þín núna, og ég sam- gleðst þér. Þú áttir gott líf í 76 ár, en nú er nýr áfangi hafinn hjá þér og þú ert kominn aftur til ömmu og Sigurgeirs frænda. Ég mun alltaf geyma minningar um þig í hjarta mínu og hafa þig þannig hjá mér um ókomna tíð. Þakka þér, elsku afi minn, fyrir liðna tíma; góðar og skemmtilegar stundir. Þín Sonja Berg. Svo skrítin tilfinning, sem um mig fer, nú farinn ert frá mér, nýjan veg, hann tekur á móti þér, þér við hlið. Í annan heim, hann fylgir þér, á vængum tveim, vísar þér. Það eitt mun ylja mér, að vita af þér, fylgir mér hvert sem er, í hjarta mér. Láttu mig vita ef, ég get hjálpað þér, boðin þá sendu mér, hvar sem er. Í annan heim, hann fylgir þér, á vængjum tveim, vísar þér. (Birgitta Haukdal.) Elsku afi minn. Þá ertu kominn til ömmu Ninníar og Sigurgeirs frænda. Ég veit að þau munu taka glöð á móti þér. Það áttu líka skilið, því að þú varst heimsins besti afi. Þú áttir alltaf afamola handa okkur afakrökkunum. Ég mun alltaf hugsa til þín þegar ég fæ mér afa- mola. Ég mun hugsa til þín og kveikja ljós hjá myndinni af þér og ömmu. Og það ljós er fyrir ykkur. Við munum aldrei gleyma þér og þín er sárt saknað af okkur öllum. Guð geymi þig og verndi. Sofðu rótt. Ég elska þig. Þín afastelpa, Ásrún Þóra. HALLDÓR SIGURGEIRSSON ✝ SteingrímurArason fæddist á Grýtubakka í Höfða- hverfi 7. nóvember 1927. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 7. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Ari Bjarna- son bóndi á Grýtu- bakka og Sigríður Árnadóttir. Ari var sonur hjónanna Bjarna Arasonar bónda á Grýtubakka og Snjólaugar Sig- fúsdóttur. Sigríður var dóttir hjónanna Árna Davíðssonar bónda á Gunnarsstöðum í Þist- ilfirði og Arnbjargar Jóhannes- dóttur. Börn Ara og Sigríðar voru sjö. Auk Steingríms, Elín, húsfreyja á Brún í Reykjadal, látin, maki Teitur Björnsson, látinn; Bjarni, ráðunautur í Borgarnesi, maki Kristín Haraldsdóttir; Árni, bóndi á Helluvaði á Rangárvöll- um, látinn, maki Árný Oddsdótt- ir; Arnbjörg, húsfreyja á Grýtu- bakka, látin, maki Baldur Jónsson, látinn; Snjólaug, húsfreyja í Nesi í Höfðahverfi, nú búsett á Akur- eyri, maki Jón Lax- dal; Guðmundur, verkfræðingur í Kópavogi, maki Sig- rún Sigurðardóttir. Steingrímur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1949 og prófi í bygginga- verkfræði frá Poly- teknisk Læreanstalt í Kaupmannahöfn 1955. Hann starfaði hjá Almenna byggingafélaginu 1955–1957, stofnaði ásamt skólabræðrum sínum verkfræðistofuna Traust hf. og vann þar 1956–1964. Hann vann hjá Vegagerð ríkisins 1964– 1966 og 1970–1974, hjá fram- kvæmdanefnd byggingaráætlun- ar 1966–1970 og hjá Hafnamála- stofnun ríkisins 1976–1992. Hann var ókvæntur og barn- laus. Útför Steingríms verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Mágur minn og vinur hefur nú kvatt eftir nokkuð erfið veikindi til margra ára. Hann lifði lífinu á sinn hljóðláta hátt og var ekki maður margmennis né mikilla mannfagn- aða. Hann tók ekki þátt lífsgæða- kapphlaupinu, fann ekki gleðina í eyðslu og óhófi og þurfti ótrúlega lít- ið til daglegra þarfa. Þegar hann var í Menntaskólan- um á Akureyri veiktist hann af löm- unarveikinni sem þá gekk og var stundum kölluð Akureyrarveikin. Steingrímur taldi sig hafa verið lengi að ná sér á eftir og sagði að besta þjálfunin hefði verið að hlaupa eftir þýfðri mýrinni fyrir neðan túnið á Grýtubakka. Þar fann hann máttinn aukast og kraftinn koma að nýju. Þegar ég kynntist Steingrími fyrst var hann ungur verkfræðingur sem rak eigið fyrirtæki ásamt félögum sínum. Þá var hann nýbúinn að eign- ast íbúðina sína í Austurbrún 2 sem hann átti alla sína starfsævi. Á þess- um árum átti hann oft erindi út á land vegna starfa sinna enda var hann margfróður um landið, minn- ugur á nöfn og örnefni og áhugamað- ur um hreyfingu og útivist. Það var honum því þungbær raun að grein- ast með Parkinsonveiki rétt eftir miðjan aldur. Af þeim sökum varð hann að láta af störfum miklu fyrr en hann hefði óskað sér. Hann bar þó ekki erfiðleika sína á torg og kvart- aði aldrei. Honum fannst gaman að frétta af unga fólkinu í fjölskyldunni og sam- gladdist ef vel gekk. Þannig var það einnig í upphafi okkar kynna, á með- an búskapur okkar Guðmundar stóð enn á brauðfótum, þá fylgdist hann vel með okkur. Að öðru leyti var hann fáskiptinn og sóttist ekki mikið eftir félagsskap. Hann undi sér vel í þjónustuíbúðinni sinni í Gjábakka og naut þar góðrar umönnunar Félags- málaþjónustu Kópavogs og að lokum frábærrar umhyggju starfsfólks hjúkrunarheimilisins í Sunnuhlíð eftir að hann flutti þangað. Fyrir það allt þökkum við af heilum hug. Farðu vel, Steingrímur minn. Sigrún. Þótt fráfall Steingríms móður- bróður míns kæmi ekki á óvart eftir baráttu við erfiða sjúkdóma, setur vini hans hljóða og þeir líta yfir far- inn veg. Leiðir okkar Steingríms hafa legið saman af og til síðustu 55 ár. Kynnin hófust þegar hann kom sem sumar- maður til foreldra minna í Saltvík. Hann var dulur og fáskiptinn, trú- lega arfur frá móðurmissi á ung- lingsárum, en jafnframt traustur og áræðinn og einstök atvik eru mér í barnsminni svo sem bleikjuveiðar sem hann stundaði frá Saltvíkur- fjöru á örlitlum gúmíbát sem oft þurfti að bæta. Myndavél átti hann og framkallaði sjálfur myndir og þannig geymast heimildir um þeirr- ar tíðar búhætti. Leiðir okkar lágu aftur saman á sjöunda áratugnum þegar ég dvaldi hjá honum í tengslum við sjúkrahús- vist í Reykjavík. Ekki var mikill íburður við heimilishald í Austur- brúninni en af hjartahlýju og nær- gætni því meira. Næst lágu leiðir okkar saman þeg- ar við hjónin byggðum íbúðarhús okkar að Hrísum. Hringdi ég þá í Steingrím til að bera undir hann verkfræðileg viðfangsefni. Frændi sagði fátt en dreif sig norður og leysti á staðnum öll tæknileg vanda- mál. Eftir þetta var ekki byggt né breytt á Brún eða Hrísum án þess að Steingrímur legði þar á ráð og kæmi að verki. Fjölgaði ferðum Stein- gríms norður og þegar hann lét af störfum flutti hann í Brún, þá með skerta starfsorku af völdum hrörn- unarsjúkdóms. Á Brún undi hann sér vel og átti þar nokkur góð ár, dundaði við minni háttar búverk, lagfærði margt og smíðaði ýmsa hluti, las og greip í spil. Við fráfall föður míns 1998 og versnandi heilsu þeirra systkina lauk dvöl hans fyrir norðan og hann flutti til Árna bróður síns og Árnýjar konu hans að Hellu- vaði á Rangárvöllum og síðast á hjúkrunarheimili í Kópavogi. Þótt Steingrímur kvæntist ekki né eignaðist börn gildir um hann það sem sagt var forðum „Öllum kom hann til nokkurs þroska“. Hann var þolinmóður við börn og unglinga og fús að rökræða og leiðbeina. Mér veitti hann styrk á erfiðum tímum Reykjavíkurdvalar, Bjarna son konu minnar sannfærði hann um að verk- fræði væri skemmtilegra viðfangs- efni en að grúska í andlausum tölvu- fræðum og Magnús son okkar hjóna sannfærði hann einnig um ágæti verkfræðinnar. Þótt Steingrímur frændi hefði hvorki hátt né færi mikinn standa verk hans bæði í vegum og höfnum landsins en einnig í hugsun sam- ferðamanna. Blessuð sé minning hans. Ari Teitsson. Frændi minn, Steingrímur Ara- son, er genginn. Ég man fyrst eftir Steingrími þegar ég dvaldi ungur að árum hjá afa og ömmu á Brún á sumrin. Það var árviss atburður að Steingrímur kæmi í heimsókn og dveldi í nokkrar vikur hjá systur sinni og mági. Við krakkarnir fögn- uðum komu Steingríms, því okkur þótti hann skemmtilegur þó svo hann ætti til að vera fáskiptinn. Hann var líka frekar dularfullur, við vissum ósköp lítið um hann, enda var honum ógjarnt að tala um sjálfan sig; verkfræðingur, sem við kunnum heldur ekki endilega full skil á. Árin liðu, ég tók út einhvern þroska og eftir að Steingrímur fór á eftirlaun bjó hann í mörg ár á Brún. Kynntumst við Steingrímur þá bet- ur. Lærðist mér þá að meta hina leiftrandi greind, hógværa gaman- semina, hagleik og framsýni Stein- gríms. Þegar ég kom á vorin og sá eitthvert nývirkið, hvort sem var í stóru en oftar en ekki í einhverju smáu, var viðkvæðið að þetta væri eitthvað sem Steingrímur hefði ann- að hvort gert eða dottið í hug. Seinna fór ég bara að gera ráð fyrir að Steingrímur stæði á bak við hinar og þessar endurbæturnar og viðgerð- irnar. Fékk Steingrímur einnig tit- ilinn staðarverkfræðingur hjá iðnað- armönnum sem þangað komu til verka. Held ég að bæði honum og Brúnarbænum hafi fullur sómi verið sýndur með því titlatogi. Enn liðu tímar og þar kom að hvorki Steingrímur né amma mín höfðu heilsu í frekari veru hans á Brún. Sjálfur var ég einnig orðinn svo forframaður að ég var hættur að eyða sumrum mínum í sveitasæl- unni. Flutti Steingrímur þá í þjón- ustuíbúð í Kópavoginum þar sem Guðmundur bróðir hans og fjöl- skylda tóku hann upp á sína arma og hlynntu vel að honum. Þó svo að stutt væri orðið á milli okkar frænda í Kópvoginum, þá urðu fundir okkar strjálli. Þegar ég heimsótti hann nú fyrir jólin var hann svo illa farinn af parkinsonveiki sinni að erfitt gat reynst að skilja hann þá við ræddum íslenskar virkj- unarframkvæmdir á Grænlandi, en engin dauðamörk sáust þó á honum. Ekki veit ég gjörla hversu mikil áhrif Steingríms voru til þess að mörg okkar barnabarnanna á Brún lögðu leið sína í verkfræðina. En hann var fyrstur verkfræðinga í okk- ar ættum og maður sem við litum sannarlega upp til. Haukur Eggertsson. Öðlingurinn Steingrímur Arason verkfræðingur féll frá hinn 7. janúar sl. eftir langvarandi veikindi. Steingrímur starfaði hjá Vita- og hafnamálaskrifstofunni, síðar Sigl- ingastofnun, frá 1974–1992 við margvísleg verkfræðistörf. Steingrímur var afburða náms- maður og tók á sínum tíma með hæstu prófum í verkfræði við Tækniháskólann í Kaupmannahöfn. Við sem störfuðum með honum hjá gömlu Vita- og hafnamálum nutum mikillar þekkingar hans á flestum sviðum verkfræðinnar, enda er hafn- argerð mjög flókin og þar naut skörp hugsun og fagmennska Steingríms sín vel. Við nutum ekki aðeins þekkingar og fagmennsku Steingríms við verk- fræðileg úrlausnarverkefni heldur einnig mikilla mannkosta hans. Hann var hvers manns hugljúfi, en hann var mjög kröfuharður til sjálfs sín og til annarra þegar leysa þurfti erfið verkefni. Hann kenndi okkur að takast á við vandamálin og leysa þau, þó svo það krefðist mikillar rannsóknarvinnu. Illa unnin verk voru eitur í hans beinum. Við, gömlu starfsfélagarnir hjá Vita- og hafnamálum, síðar Siglinga- stofnun, bárum djúpa virðingu fyrir Steingrími og þegar litið er til baka þá sjáum við enn betur hve hann hafði bætandi áhrif á okkur. Það er von okkar, sem nú minnumst Stein- gríms í dag, að mannkostir hans, þekking og fagmennska svífi hér áfram yfir vötnum. Blessuð sé minn- ing hans. Fyrir hönd fyrrum starfsfélaga, Gísli Viggósson. Steingrímur Arason stundaði nám í MA frá 1944 og lauk þar stúdents- prófi úr stærðfræðideild 1949. Síðan í HÍ frá 1949 og lauk þar prófi í fyrri hluta verkfræði 1953. Þaðan lá leiðin til Kaupmannahafnar, þar sem hann lauk prófi í byggingarverkfræði frá DTH 1955. Steingrímur var afburðanáms- maður, alltaf efstur í bekknum (stærðfræði- og máladeild) og virtist ekki þurfa að hafa mikið fyrir því. Hann var reglumaður og eljusamur, en lá ekki eingöngu yfir bókum. Hann var til dæmis öðrum fremri í blaki, en það var skólaíþrótt í MA, og átti mestan þátt í því að okkar bekkj- arlið vann skólamótið tvö ár í röð. Steingrímur var einstaklega dag- farsprúður maður, einlægur, hlé- drægur og hægur. Hann safnaði ekki fólki í kringum sig og tók ekki mikinn þátt í félagslífi, en hann var góður félagi og bæði hjálpsamur og nærgætinn. Á góðra vina fundi gat hann verið hrókur alls fagnaðar og hagmæltur ef hann vildi það við hafa. Árið 1992 lét Steingrímur af störf- um vegna heilsubrests. Hann dvaldi hjá systur sinni, Elínu bónda á Brún í Reykjadal frá 1992 þangað til hún hætti búskap 1996. Framan af gat hann aðstoðað eitthvað við bústörfin, en getan til þess minnkaði með hverju ári. Síðan var hann um tíma hjá bróð- ur sínum Árna á Helluvaði á Rang- árvöllum. Hann flutti þaðan til Guðmundar bróður síns í Kópavogi. Árið 1999 flutti hann í verndaða íbúð Sunnuhlíðarsamtakanna í Kópavogi, þar sem hann bjó í tvö ár. Eftir það dvaldi Steingrímur á hjúkrunarheimili samtakanna, þar sem hann lést. Blessuð sé minning hans. Bekkjarbræður. STEINGRÍMUR ARASON Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.