Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 45

Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 45 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, HULDA EMILÍA JÓNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 19. janúar kl. 13.30. Gunnar Rafn Einarsson, Fanney Kristbjarnardóttir, Eygló Sævarsdóttir, Sveinþór Eiríksson, Jón Þór Sævarsson, Guðrún Ásta Björgvinsdóttir og barnabörn. Systir okkar, SIGRÚN ÁRNADÓTTIR, Mýrarási 2, áður Laugarnesvegi 76, andaðist fimmtudaginn 15. janúar. Systkini og aðrir vandamenn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vinarhug, samúð og hlýju við and- lát og útför elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu, langömmu, langalangömmu og langalangalangömmu, SIGURLAUGAR JÓHANNSDÓTTUR, til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík. Kærar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun síðastliðin ár. Jóhann Jóhannsson, Friðbjörg Ragnarsdóttir, Sigurður Jóhannsson, Svava Ingimundardóttir, Magnús Jóhannsson, Margrét Jóhannsdóttir, Jón Halldórsson, Svana Jóhannsdóttir, Sumarliði Bárðarson, Lilja Jóhannsdóttir, John Vincent, Önundur Jóhannsson, Sigurveig Guðmundsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir, Ralph Weller, öll ömmubörnin og aðrir aðstandendur. Elskulegur faðir okkar, bróðir og vinur, INGIMUNDUR KRISTJÁNSSON, Yrsufelli 5, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 9. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jakob Birtingur Ingimundarson, Gunnar Hafberg Ingimundarson, Sigurður Guðjón Jónsson, Magnús Kristjánsson, Halldóra Jónsdóttir. Eiginmaður minn og faðir okkar, ÞÓRARINN MAGNÚSSON frá Hátúnum, lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum miðvikudaginn 14. janúar. Þuríður Sigurðardóttir og dætur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR, Skúlagötu 40, áður til heimilis í Barmahlíð 54, Reykjavík. andaðist á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 14. janúar. Margrét Guðlaugsdóttir, Friðgeir Björnsson, Sigrún Guðlaugsdóttir, Gunnlaugur Gunnarsson, Guðmunda Hr. Guðlaugsdóttir, Hulda Margrét Erlingsdóttir, Kristín Friðgeirsdóttir, Björgvin Skúli Sigurðsson, Guðlaug Friðgeirsdóttir, Morten Findstrøm. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, ÞORSTEINN SVEINSSON, Jakaseli 26, Reykjavík, lést miðvikudaginn 14. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Helga Björg Helgadóttir, Kolbrún Björg Þorsteinsdóttir, Hildur Inga Þorsteinsdóttir, Helgi Már Þorsteinsson. Áður en ég settist niður til að skrifa þessa minningargrein þá leit ég í Handbók um ritun og frágang til að vita hvernig ég ætti að skrifa minningargrein. Það er eitt af því sem afi minn kenndi mér, að vera skipulagður og undirbúa mig vel. Við afi erum alnafnar og gerðum mikið grín af því saman. Nafnið fengum við frá einhverju látnu vina- fólki langömmu og langafa sem birt- ist í draumum þeirra og skipuðu þeim að skíra barnið sitt Axel Wil- helm, eins og einn vinurinn Carlquist hafði heitið. Annars hlyti það verra af. Við vorum montnir af „dobb- elvjúvinu“ í Wilhelm og hann varð stundum pirraður á því þegar póst- urinn til hans var með einföldu V-i. Fyrstu minningar mínar af honum eru þannig að hann er krúttlegur gamall afi sem rekur gervitennurnar sínar út úr sér þannig að ég verð skíthræddur. Alltaf var hann með brjóstsykur, ópal eða harðfisk á sér eins og göml- um manni sæmir og bauð manni óspart. Fótbolti, box, snóker og póli- tík voru áhugamál hans. Hann sat alltaf í sama sætinu fyrir framan sjónvarpið og lék sér með tommu- stokk (eitthvert dútl sem hann erfði frá föður sínum) eða las blöðin, staf fyrir staf. Einnig var hann hrifinn af íslensku máli og þá sérstaklega að smita aðra af þessum áhuga. Hann gaf sér margoft tíma til að ferðast um landið með mér og segja mér sögur af hinum og þessum stöðum. Bankaði uppá bæi og sýndi mér sveitalífið. Ég lærði að keyra í þess- um ferðum og fékk lúmskan áhuga á íslenskri menningu og máli (nú verð ég að notast við ferðahandbókina). Eitt sumar kom hann mér fyrir í sveit og var svaka ánægður með sig en svekktist svo yfir því þegar ég ákvað að fara snemma síðsumars og missa af slætti. Fyrir samræmdu prófin í grunn- skóla kenndi hann mér íslensku og sýndi mikla þolinmæði því ég hafði tossast alla ævi og alist upp erlendis þannig að hann varð að kenna mér allt frá grunni. Það ævintýri endaði með 8 í einkunn og tileinka ég honum algerlega þá einkunn. Hann var þarna að kenna hálfgerðum áhuga- leysingja sem fékk áhuga á faginu og hafði gaman af þrátt fyrir nokkur rifrildi þegar þann yngri vantaði út- rás (þe. mig). Við áttum eftir að kíkja saman á viðskiptablaðið til að ég gæti verið eins og aðrir menn, en ég verð þá bara að bjarga mér sjálfur. Það var alltaf stutt í stríðnina hjá honum nafna mínum og gat hann verið grófur stundum og sömuleiðis ég á móti þar sem að við erum líkir að eðlisfari. Í ferðum okkar um land- ið þá samhæfðum við mikið og töl- uðum um bresti okkar, það var að- AXEL WILHELM EINARSSON ✝ Axel WilhelmEinarsson fædd- ist í Reykjavík 5. des- ember 1923. Hann lést á heimili sínu 25. desember síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Laugarnes- kirkju 9. janúar. allega hann samt en ég samhæfði mig með og þroskaðist að ég held nokkuð við það. Þegar ég var á krossgötum í lífi mínu útaf fíkniefna- rugli þá tók hann mig á rólegt eintal og reyndi að hjálpa, ekkert að skipa fyrir, bara rólegt maður á mann. Ein- hvern tíman þá fórum við á slóðir Skarðsætt- arinnar sem hann var svo stoltur af og stríddi mér svo mikið að þegar við komum til baka með sinnhvorn ættarfánann þá fleygði ég honum í klósettið og mátaði páfann með honum. Svona var samband okkar persónulegt og fyndið. Það hefði verið hægt að gera bíómynd um okkur saman. Tveir nafnar að láta eins og fífl. Kímnina vantaði ekki í hann og byrj- uðu bréfin og samræður okkar oft á „Sæll skíthæll!“ Hann var eldhress langt fram eftir aldri og eftir sjötugt þá var hann ekki bara í pottunum að kjafta um heimsmálin heldur líka að taka armbeygjur einhversstaðar í laugunum og lyfta lóðum. Svo spennti hann vöðvana montinn og lét mann finna árangurinn „Finndu upphandlegginn“. Seinna komu veikindin og hann dó alsæll að ég held í svefni aðfaranótt jóladags. Hann hvatti mann til að lesa Þórberg og Laxness því sjálfur var hann allt- af rauður í pólitíkinni eins og hann kallaði það sjálfur. Hann saknaði gömlu tímanna þegar blöðin voru flokksbundin og allir rifust þvers og kruss. Sjálfur átti hann að hafa skrif- að í blöðin og ef hann getur lesið þetta einhvers staðar frá þá vil ég segja við hann „Ef það eru einhverj- ar málfræðivillur hér þá bíddu bara og við skulum svoleiðis þræta um það hinum megin þegar ég kem“. Nafni. Jóladagur var einstaklega fallegur dagur, veður kyrrt og nýfallinn snjór yfir öllu. Jólakyrrðin var skyndilega rofin þegar síminn hringdi og móðir mín tjáði mér að Axel mágur sinn hefði látist á jólanótt. Ég man í raun ekki eftir mér öðruvísi en að Axel hafi verið hluti af lífi mínu en hann hafði þá þegar verið giftur Eddu móðursystur minni í nokkur ár þeg- ar ég fæddist. Axel var meðalmaður á hæð, með hátt greindarlegt enni, grannvaxinn, kvikur í hreyfingum, með glettinn svip, stríðnisglampa í augum og hlát- ur á vör. Axel var hógvær maður en engu að síður léttur og kátur og virt- ist ætíð eiga auðvelt með að koma auga á spaugilegu hliðarnar, sem er mikil náðargáfa, að mínu mati. Hann reyndist öllum vel sem til hans leit- uðu og er mér ofarlega í huga öll sú námsaðstoð sem hann veitti ung- mennum í fjölskyldunni, því oft á tíð- um sat hann með unga fólkinu og kenndi því íslensku, eða hvaðeina sem þörf var fyrir. Hann var góðum gáfum gæddur og átti því auðvelt með að veita leiðsögn í ýmsum náms- greinum. Ég var svo lánsöm að fá að búa hjá Axel og Eddu í þrjú ár þegar ég var í menntaskóla og er ég þeim ævinlega þakklát fyrir að hýsa mig. Ég hitti Axel síðast í áttræðisaf- mæli hans þann 5. desember og veitti því sérstaka athygli hve skýr hann var í hugsun og það má með sanni segja að Axel hafi haldið and- legri reisn allt til síðasta dags. Í þetta síðasta sinn var hann sem endranær umhyggjusamur um mína hagi og míns fólks og leitaði frétta af öllum. Axel lífgaði upp á samkvæmið líkt og hann gerði í lífi sínu öllu. Ég votta Eddu frænku minni og allri fjölskyldu hennar samúð mína og bið Guð um að blessa þau. Guðlaug Kjartansdóttir. Axel W. Einarsson, vinur minn er látinn. Hann lést á jólanótt áttræður að aldri. Leiðir okkar Axels lágu fyrst saman á björtum haustdegi norður í Vatnsdal árið 1937. Vorum við báðir á leið til Reykjavíkur með rútunni til að setjast á skólabekk. Er mér það minnisstætt þegar Axel kom inn í rútuna og fékk sér sæti hjá mér. Spjall okkar á leiðinni varð upphaf vináttu okkar sem hélst alla ævi. Í Reykjavík hittumst við af og til eftir þetta og æskuárin liðu fljótt. Ekki var annað hægt en laðast að Axel sem var mikið ljúfmenni í allri framkomu. Hann var ákaflega jafn- lyndur maður og virtist laus við allar áhyggjur. Hann hafði víða farið og hitt áhugavert fólk á lífsleiðinni. Sagði hann skemmtilega frá kynnum sínum af því svo að eftirminnilegt var. Axel var kvæntur Guðrúnu Ernu Jónsdóttur eða Eddu eins og hún er ávallt kölluð. Varð það mikið gæfu- spor því Edda er mikil mannkosta- kona og bjó Axel og börnum þeirra, þeim Guðrúnu Þórdísi, Jóni Sturlu og Einari Rúnari afar gott heimili. Við Axel réðumst í byggingu á íbúðum á Rauðalæk 14 fyrr á árum og bjó ég þar um 16 ára skeið en þau Axel og Edda hafa búið þar alla tíð. Ég heimsótti Axel á áttræðisafmæli hans þann 5. desember síðastliðinn og áttum við þar ánægjulega sam- verustund, þar sem við rifjuðum upp gömul kynni. Var rætt um að hittast á ný fljótlega. En enginn má sköpum renna og þremur vikum síðar var Axel allur. Við Hjördís sendum Eddu, börnum þeirra og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Gunnlaugur Briem. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minning- argreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.