Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 47 litla húsinu sem þau Ásgeir og Ingi- björg byggðu sér til ellinnar var svo einstaklega full af hlýju og gestrisni. Ég sé hann ljóslifandi í anda horfa að- eins til hliðar, rifja upp atburði frá framboðsfundum og kosningabaráttu sem hann háði af festu og drenglyndi á farsælum þingferli. Annars voru mál líðandi stundar stöðugt hugleik- in. Hann hafði heilsteypta sýn og útfrá henni lagði hann mat á hlutina og gaf öðrum ráð. Ásgeir gæti hafa gert orð Hann- esar Hafstein að sínum: Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið boðorðið hvar sem þér í fylking standið hvernig sem stríðið þá og þá er blandið það er: Að elska, byggja og treysta á landið. Seint í október sl. stóð ég upp frá kaffiborðinu í Ásgarði, endurnærður af gestrisni og hlýju þeirra Ásgeirs og Ingibjargar og ætlaði að kveðja inni í stofu. Þá stóð Ásgeir í Ásgarði á fæt- ur og mælti af reisn og festu íslenska bóndans: „ég fylgi þér til dyra“. Nú fylgjum við honum til dyra og þökk- um hlýjar minningar um góðan vin og drengskaparmann sem bæði leiddi og miðlaði samferðafólkinu ríkulega af hugsjónum og baráttuþreki. Blessuð sé minning Ásgeirs Bjarnasonar í Ásgarði. Ingibjörg Kolka og Jón Bjarnason. Fátt er stjórnmálamönnum mikil- vægara en að eiga sterka bakvarð- arsveit heima í héraði. Eiga vini sem hvetja, efla og byggja upp og veita skjól í nöprum vindum. Þannig vinur var Ásgeir Bjarnason mér frá fyrstu kynnum. Að koma í Ásgarð var eins og að koma í föðurgarð. Húsbóndinn beið í hlaðvarpanum með útbreiddan faðminn. Eftir hóflegt kelerí og þegar búið var að dást að fegurðinni í Hvammssveit var gengið til stofu. Þar var húsmóðirin búin að dekka veisluborð af sinni alkunnu gestrisni og myndarskap. Hversu oft fékk ég ekki að njóta þessara ómetanlegu gæða og hversu dýrmætar eru þessar minningar mér. Hlýjan sem streymdi frá þessum góðu hjónum fékk mann til að gleyma stund og stað. Það var gott að halla sér í sófann í stofunni í Ásgarði, hlusta á atburði löngu lið- inna tíma í Dölum, sögur frá Alþingi og baráttu manna fyrr á árum fyrir hlutum sem okkur þykja svo sjálf- sagðir í dag. Ásgeir hafði ungur menntað sig bæði hérlendis og erlendis til að taka við stóru búi föður síns í Ásgarði, og víst var að á búskap hafði hann alltaf áhuga. En þessi ungi sveitarhöfðingi var hvattur af samferðamönnum árið 1949 til að taka sæti á Alþingi. Er skemmst frá því að segja að árin urðu 29 sem hann gegndi þingmannsstörf- um, fyrst fyrir Dalamenn og síðar fyrir Vestlendinga. Með komu hans á þing hófst mikið framfaraskeið í Döl- um. Þannig lýsir sveitungi Ásgeirs því í bók sem kom út nú fyrir jólin, að með komu hans á þing hafi birt yfir Dölum, hann hafi bókstaflega dregið Dalamenn út úr steinöldinni, eins og hann orðar það, enda átti Ásgeir að- dáun og virðingu samferðamanna sinna sem hlóðu á hann trúnaðar- störfum langt umfram þingmennsku. Þegar ég kynntist Ásgeiri fyrst var hann orðinn fullorðinn maður og stjórnmálavafstur að baki, en hann varð þó aldrei gamall maður þótt árin yrðu mörg. Brennandi áhugi hans á líðandi stund gerði hann síkvikan í hugsun og athöfnum. Ásgeir var höfð- ingi í þess orðs bestu merkingu, nægjusamur fyrir sjálfan sig og hreykti sér ekki af fornri frægð, þurfti þess aldrei með, því hann var stór af sjálfum sér. Hann hafði ríka réttlætiskennd og djúpa samúð með þeim sem höllum fæti standa. Allt fram á síðustu stundu leituðu menn ráða hjá honum um stórt og smátt. Það var oft viðkvæðið hjá Dalamönn- um þegar mikið bar til tíðinda „hvað skyldi Ásgeir nú segja um þetta“. Þau fáu skipti sem hann fór á mannamót nú hin síðari ár þyrptust menn að honum og úr þeirri þyrpingu bárust jafnan háar hlátursrokur. Síðast þeg- ar við töluðum saman í síma var óvenju margt sem bar á góma sem kitlaði hláturtaugar okkar beggja. Eitthvað var þó sem sagði mér þegar við kvöddumst að líklega skemmtum við okkur ekki meira saman í þessum heimi. Áður en nýja árið heilsaði kvaddi Ásgeir. Hann skilur eftir sig það veganesti sem hverjum manni er dýr- mætast, góðan orðstír. Nöfnu minni í Ásgarði sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur, einnig sonum hans og fjölskyldu allri. Dalamenn kveðja einn af sínum bestu sonum. Með þakklæti í huga kveð ég hann og óska honum fararheilla. Ingibjörg Pálmadóttir. Þegar Ásgeir Bjarnason fv. alþing- isforseti er allur, fer mér sem fleirum að sakna vinar í stað. Við Ásgeir kynntumst fyrir nærfellt hálfum fimmta áratug, þegar ég tók sæti á Alþingi við hlið hans í þingflokki framsóknarmanna. Aldursmunur okkar var nokkur, en lífsreynslumun- ur sýnu meiri en aldursmun nam, því að hann hafði m.a. lifað blóðuga inn- rás Þjóðverja í Noreg þar sem hann var við nám og störf, sloppið til Sví- þjóðar með nokkurri áhættu um slíka ferð. Síðar heppnaðist honum að komast til Íslands á hátíma heims- styrjaldarinnar um Bretlandseyjar og tók þá við búi í Ásgarði að föður sínum nýlátnum. Ásgeir hafði lifað og reynt ástvinamissi á besta aldri. Þar skildi líka reynsluheima okkar, því að ég hafði aldrei þolað neinn söknuð eft- ir nákomið fólk. Þar að auki vorum við komnir úr sinni áttinni hvor. Þrátt fyrir allan mun lífsreynslu og upp- runa fór svo að við urðum brátt góðir kunningjar og fyrr en varði trúnaðar- vinir, ef svo djarft má til orða taka. Við treystum hvor öðrum. Ég geri enga tilraun til þess að skýra frá þróun kunningsskapar okk- ar á Alþingi (1960–1978) sem reyndin varð og allt til hinsta dags. Ég get varla ímyndað mér að ég hafi getað lagt honum sitthvað nytsamlegt til, en hitt er víst að Ásgeir byggði mig upp af víðtækri reynslu sinni af þjóðmál- um og þingstörfum, fræðslu um menn og málefni í hagnýtum skilningi, svo mér mátti að gagni verða. Það reyndi ég af áratuga kynnum af Ásgeiri í Ásgarði að hann var ekki ,,allra vinur“ og þurfti því ekki að leggja það á sig að vera hvers manns viðhlæjandi með skjalli og smjaðri. En háttvísi hans var óbrigðul. Hann komst vel af við alla. Hann naut trausts og virðingar fram yfir flesta þá sem velkjast í pólitík. Vitaskuld veit ég ekkert. Þó grunar mig, að með Ásgeiri Bjarnasyni sé fallinn síðasti bændahöfðingi á Íslandi. Með þessum fáu orðum kveð ég ágætan vin minn, aldraðan mann, sem ég hlýt þó að sakna að eiga ekki lengur orðastað við, enda vitsmunir hans óskertir til dauðadags. – Eftirlif- andi eiginkonu hans og sonum og öðru venslafólki flyt ég einlæga sam- úðarkveðju, Vinarkveðja, að hætti Hórazar: Vinur minn valinn vopnum beitir ekki. Fólskuna firrist, forðast tál og hrekki. Kastar ei, svo verði eitrið manni að meini, fláræðis fleini. Ingvar Gíslason. Aldinn héraðshöfðingi er til foldar hniginn eftir dáðríkan dag, þar sem drengskapurinn réð ævinlega ríkjum. Kær voru kynni mín af Ásgeiri Bjarnasyni Dalagoða um áraskeið og fyrir þau ber að þakka. Við áttum samleið á þingi um átta ára skeið og af varð góð vinátta við ráðhollan og einlægan atgervismann sem hvergi fór með gný og látum en rækti starf sitt afar vel, heillyndur, glettinn vel og kunni þá ljúfu list að laða menn til sátta. Sem forseti Efri deildar og síð- ar Sameinaðs Alþingis var hann virt- ur vel, réttsýnn, fastur fyrir en sann- gjarn. Ásgeir var ekki einn þeirra sem oftast kvöddu sér hljóðs á Al- þingi, en hann setti mál sitt fram með ljósum hætti og rökstuddi mál sitt mjög vel, skýr var framsetningin og ævinlega alveg víst að hugur fylgdi máli. Í nefndastörfum sínum kynnti hann sér mál vandlega, hlýddi af gaumgæfni á mál manna og mælti svo fram tillögu að nefndaráliti sem allir gátu sætt sig vel við. Nákvæmni og vandvirkni einkenndi öll hans vinnu- brögð. Það kom eðlilega af sjálfu sér að Ásgeiri væri falinn margs konar trúnaður, einkum fyrir bændastétt- ina, enda var hann stoltur af starfs- sviði sínu og hafði mikinn metnað fyr- ir stéttarinnar hönd, trúði á mátt gróðurmoldarinnar og verðugt hlut- verk þeirra sem hana erja fyrir ís- lenzkt samfélag. Sjálfum er mér þessi góði drengur minnisstæðastur fyrir sína hóglátu hlýju og gefandi ein- lægni, sem gamansemin góð kryddaði svo eftirminnilega. Og ein mynd framar annarri kemur í muna fram. Í Handarhaldinu svokallaða heima á Reyðarfirði óttaðist ég, að dagar hans og föruneytis væru taldir, er ég kom þar að sem bifreið þeirra hafði farið út af og steypzt niður í stórgrýtta fjöruna, en blessunarlega sá ég alla koma út, allhart leikna að vísu og lemstraða en yfirvegaða vel miðað við aðstæður. Þá hugsaði Ásgeir fyrst og síðast um hversu kona hans og annað samferðafólk hefði það, þó sennilega hefði hann orðið hvað harðast úti. Og heima í stofu hjá okkur Hönnu gjörði hann að gamni sínu og gat enginn fengið séð að hann hefði skömmu áð- ur verið við dauðans dyr. Þakklæt- isgjöfin þeirra hjóna til okkar gleym- ist aldrei og sá hugur sem greinilegur var að baki orðanna. Mikil er mín þökk við leiðarlok að hafa fengið að kynnast svo vel slíkum afbragðsdreng sem Ásgeiri Bjarna- syni. Við Hanna sendum Ingibjörgu og öðru hans fólki einlægar samúðar- kveðjur. Það merlar skært á minn- ingu Ásgeirs Bjarnasonar. Blessuð sé minning hans. Helgi Seljan. Það er merkilegt hvað einstakar myndir frá æskuárum geta geymst ljósar í huganum þó að árin líði og yfir flest annað fenni. Vorið 1936 komu Hólasveinar í verknámi að Reykjum í Hrútafirði og unnu að framræslu. Sex ára snáða, sem vildi fylgjast með öllu, þótti mikið til þessarar rösklegu sveitar ungra manna koma. En í huga hans festist mynd og nöfn tveggja og aðeins tveggja úr hópnum. Báðir voru þeir dökkir yfirlitum, hávaxnir og hefðu fallið að lýsingu hvort sem var úr Laxdælu eða Njálu. Nöfn þeirra geymdust og ég vissi hvaðan þeir komu. Jón Egilsson frá Selalæk var kominn af slóðum Njálu, en Ásgeir Bjarnason frá Ásgarði í Dölum bar með sér svipmótið sem féll að Lax- dælu. Ekki hef ég þekkt þessar sögur þá en sagnamyndin kom síðar þegar ég hafði kynnst báðum þessum Hóla- sveinum sem gildum bændum, hvor- um í sínu héraði, og báðum sem virt- um fulltrúum héraða sinna á Búnaðarþingi. Næst er mér Ásgeir minnisstæður frá framboðsfundi fyrir Alþingiskosn- ingar 1959 að Brún í Bæjarsveit, sam- eiginlegum fyrir flokkana og þótti mér, þá nýlega komnum í héraðið, forvitnilegt að sjá og heyra forystu- sveit Vestlendinga. Vel leist mér á framkomu og málflutning Ásgeirs. Þótti hann gjörvilegur, prúður í fram- göngu, glöggur og skýr í máli og rök- fastur. Þó að aðrir væru orðfleiri og e.t.v. málliprari þótti mér sem í Ás- geiri ættu bændur verðugan fulltrúa og líklegan til að halda hvarvetna vel á málum þeirra. Hann hafði þá þegar verið kosinn til fjölda trúnaðarstarfa og auk þeirra starfa, sem honum höfðu verið falin í sveit sinni og hér- aði, hafði hann mætt á Stéttarsam- bandsfundum, setið á Búnaðarþingi og átt sæti á Alþingi fyrir Dalamenn í fullan áratug. Ég átti síðan því láni að fagna að vinna með Ásgeiri á mörgum sviðum, nánar og lengur en flestum öðrum. Aldrei bar skugga á þau samskipti, því réð prúðmennska Ásgeirs öðru fremur. Ásgeir Bjarnason lét sér Búnaðarfélag Íslands alla tíð mjög miklu varða; hann var búnaðarþings- fulltrúi í meira en aldarþriðjung og stjórnarmaður í tvo áratugi, lengst af sem formaður. Hann fylgdist vel með störfum félagsins í heild og með ár- angri einstakra starfsmanna hvers á sínu sviði, kom gjarnan við á skrif- stofum starfsfólksins þegar tóm gafst til fyrir eða eftir fundi og blandaði geði við fólkið á sinn vinsamlega og gamansama hátt. Hann lét sig orð- spor félagsins og starfseminnar miklu varða og þá fannst vel að þykknaði í Ásgeiri þegar honum fannst ómak- lega að því eða bændastéttinni vegið. Þennan góða hug Ásgeirs til Bún- aðarfélags Íslands, og síðar Bænda- samtaka Íslands, fundum við vel hve- nær sem fundum bar saman eftir að beinum afskiptum hans hér var lokið. Þá spurði hann jafnt frétta af mönn- um og málefnum hjá Búnaðarfélag- inu. Ásgeir var maður hógvær í mál- flutningi og var sjaldan fyrstur til að taka til máls á fundum. En þegar að því kom fundu menn fljótt að afstaða hans markaðist af skynsemi og skarpskyggni og tillögur hans voru þá mikils metnar. Ásgeir var frábær fundarstjóri, en það varð um svipað leyti að hann var kjörinn forseti Efri deildar Alþingis og hann varð formaður Búnaðar- félags Íslands og þar með forseti Búnaðarþings. Ekki þarf að því að spyrja hvort þingsköp væru ekki vel virt á báðum stöðum, en á Búnaðar- þingi fundu menn fyrir lipurð, að- gætni og réttsýni Ásgeirs, og enn gátu búnaðarþingsmenn metnast af því þegar Ásgeir var orðinn forseti sameinaðs Alþingis og „þriðjungur af þjóðhöfðingja“ þegar svo bar undir. En Ásgeir var alltaf sami látlausi og ljúfi bóndinn í Ásgarði. Fyrir fáum árum fór starfsfólk Bændasamtaka Íslands í kynnisför um Snæfellsnes og Dali. Að sjálf- sögðu var ekki ekið hjá garði í Ás- garði. Þar tóku eldri og yngri Ás- garðshjón á móti öllum hópnum og það af ferðafólkinu, sem hafði ekki áð- ur kynnst eða heyrt af landsfrægri rausn og gestrisni Ásgarðsheimilis- ins, fékk nú að reyna hana. Sú heim- sókn varð okkur öllum eftirminnileg. Við hjónin munum lengi minnast góðra stunda, ótalmargra, með þeim Ingibjörgu og Ásgeiri, hvort sem var hér í Reykjavík á lausum stundum, oft á milli strangra funda, eða í Ás- garði í gamla húsinu reisulega eða því nýja og hlýlega, þar sem þau áttu sér skjól síðari áratugina. Fyrir þessar stundir þökkum við af heilum hug. Við sendum Ingibjörgu og Ásgarðs- fólkinu öllu okkar innilegustu kveðjur með þakklæti fyrir góð kynni. Mikill er sjónarsviptirinn þegar slíkur höld- ur fellur í valinn sem Ásgeir í Ásgarði var. Jónas Jónsson. Ég kynntist Ásgeiri í Ásgarði um Jónsmessuna fyrir 25 árum, sama sumar og hann lét af þingmennsku. Hann var þá enn á góðum aldri. Þannig vildi til, að ég var kallaður í bráðavitjun inn að Ásgarði. Þegar þangað kom duldist engum að við- komandi var látinn og staðfesti ég andlátið. Bóndinn, sem ég þekkti auð- vitað af myndum úr fjölmiðlum, stóð við hlið mér og spurði fyrir kurteis- issakir, hvað væri næst á dagskrá hjá lækninum. Að hafa samband við hreppstjórann lögum samkvæmt, sagði ég. Hann stendur við hlið þér, sagði þá þessi fyrrum alþingismaður, forseti Alþingis, forustumaður bænda, oddviti sveitar sinnar og trún- aðarvinur og hjálparhella margra sveitunga sinna. Það var engin tilviljun, að Ásgeir í Ásgarði var í fremstu röð, hvar sem hann fór. Þar fór saman gjörvileiki, glæsimennska, góðar gáfur og for- ustuhæfileikar svo og gæfa, sem þeir einir öðlast, sem gera annarra þarfir að sínum og berjast fyrir þeim. Ás- geir átti ekki langt að sækja þessa eiginleika og má segja, að hann hafi sopið þá með móðurmjólkinni. Hann ólst upp á stóru heimili í Ásgarði. Þar var mikill gestagangur og orðlögð stórmannleg gestrisni. Faðir Ásgeirs, Bjarni Jensson, var höfðingi og nutu þess bæði háir sem lágir. Sérstaklega var þeim sinnt, sem þurfandi voru, sjúklingum og seinfærum. Það er al- kunna, að þegar Ásgeir tók við búi föður síns ásamt Jens, bróður sínum, voru þar sex vandalausir og var ekki um það að ræða að nein breyting yrði á við húsbóndaskiptin. Þannig voru félagsmálastofnanir þeirra tíma. Ásgeir naut virðingar Dalamanna. Þeir voru honum auðvitað ekki allir sammála í pólitík, en hann átti sér fáa óvildarmenn og ef einhverjir voru, þá fóru þeir vel með það. Ásgeir var hóf- samur í allri framkomu og óáleitinn með skoðanir sínar. Við ræddum oft menn og málefni líðandi stundar og vorum saman um margt, þó við vær- um ekki samferða í flokki, ég til hægri við Ásgeir. Eins og allir vita gat póli- tíkin oft verið hörð hér fyrr á árum og stappaði nærri trúarbrögðum. Fram- sóknarstefnan átti djúpar rætur í hjörtum margra Dalamanna og hafa alþýðleg framkoma Ásgeirs og vin- sældir hans eflaust átt sinn þátt í að tryggja fylgi flokksins á þessum slóð- um. Eitt sinn vitjaði ég Lárusar heit- ins Alexanderssonar í Fagradal að hausti. Hann var þá kominn á tíræð- isaldur. Hann var dyggur framsókn- armaður. Þegar við ræddum heilsu hans, sagði hann mér, að hann ætlaði sér að tóra a.m.k. til vors til að geta kosið gegn helv…. íhaldinu. Steinólf- ur sonur hans fer hlýlegum orðum um Ásgeir í nýútkomnum einræðum sínum. Þar þakkar hann þátt Ásgeirs í margvíslegum framfaramálum í Dölum á síðari hluta 20. aldarinnar. Það var sérstakt happ fyrir mig og konu mína, þegar Ásgeir og Ingibjörg buðu okkur í fyrsta sinn til veislu á gamlársdag á níunda áratugnum. Þá hafði verið til siðs um nokkurra ára skeið, að starfsfólk sýsluskrifstofunn- ar í Búðardal með Pétur Þorsteinsson sýslumann í broddi fylkingar færi í í Ásgarð. Flæktumst við Elín Ásta með í þetta skipti af ástæðum, sem mér eru gleymdar. Var það upphafið að árvissum viðburði fyrir okkur og til- hlökkunarefni. Ásgeir var hafsjór af sögum af samferðamönnum heima og heiman og fór létt með vísur. Hann var veitull, fór eins og ávallt fremstur í gleðinni og var hrókur alls fagnaðar. Ekki sparaði sýslumaðurinn sig held- ur og verða þessir vinafundir ógleym- anlegir okkur öllum, sem þar voru. Það var lengi símstöð í Ásgarði. Pétur sýslumaður sagði frá því, að hann hafi hitt Ásgeir fyrst við afar sérstæðar aðstæður. Hörmulegt flug- slys hafði orðið á Svínadal og mann- skaði. Þegar lögreglu og sjúkralið bar að var maður uppi í staur að gera við símalínurnar, sem farið höfðu í sund- ur í slysinu. Þetta var Ásgeir í Ás- garði, forseti sameinaðs Alþingis, í fullkomnu æðruleysi að vinna verk, sem ekki varð undan vikist. Honum verður ekki betur lýst þessum ágæta sómamanni, sem nú er fallinn frá. Við Elín Ásta sendum hlýjar sam- úðarkveðjur heim að Ásgarði og stöndum í þakkarskuld við hjónin Ingibjörgu Sigurðardóttur og Ásgeir Bjarnason. Sigurbjörn Sveinsson. Við göngum út frá því að allt líf á sér upphaf og endi. En þó er það svo að fæstir eru kallinu viðbúnir. Mér var því brugðið er ég fregnaði um andlát vinar míns Ásgeirs Bjarnason- ar í Ásgarði enda aðdragandinn skammur og lítill tími til að kveðja. Kynni mín við Ásgeir Bjarnason urðu ekki löng en eru mér afar dýr- mæt. Fljótlega eftir að ég kom í Dal- ina varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast þeim hjónum sem frá fyrsta degi, tóku mér eins og eigin dóttur og voru höfðingjar heim að sækja. Heimili þeirra stóð mér ávallt opið í blíðu og stríðu og voru þau hjónin alveg samstillt í því. Slíkt er ekki gefið og verð ég þeim ævinlega þakklát fyrir allt og allt. Ásgeir var mjög hlýr og traustur vinur sem oftar en ekki miðlaði til mín úr reynslubrunni sínum. Sem fyrr- verandi þingmaður Dalamanna og síðar Vestlendinga, bjó hann yfir mik- illi reynslu og þekkingu og bar einatt hag Dalamanna fyrir brjósti. Hann var ákveðinn og stórbrotinn persónu- leiki og fylgdi sínum skoðunum fast eftir en gerði öllum jafnt undir höfði. Þegar þingstörfum lauk og aldurinn færðist yfir virtist mér hann draga sig í hlé frá amstri stjórnmálamanns- ins en fylgdist grannt með þjóðmál- um og málefnum heimamanna úr fjarlægð og þreyttist aldrei á því að gefa góð ráð Dalamönnum til heilla. Ásgeir var trúlega ekki allra en þeim sem hann tengdist vinarbönd- um, sýndi hann ómetanlega tryggð og hollustu. Slík vinátta er fátíð og verð- mæt þeim sem njóta. Í mínum huga var Ásgeir sem bjarg sem bifaðist ekki og hafa Dalamenn misst hljóm- mikla rödd í víðum skilningi. Dala- SJÁ SÍÐU 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.