Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 54
DAGBÓK
54 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Sunna kemur í dag.
Richmond Park og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Pétur Jónsson og Pol-
ar Amaroq fóru í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 14 bingó. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag í
mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
vefnaður og frjálst að
spila í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, myndlist
o.fl., kl. 9.30 gönguhóp-
ur, kl. 14 spilað.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 opið hús,
spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Ullarþæfing
kl. 13.30.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsfundur verður í
félagsheimilinu Gjá-
bakka, laugardaginn
17. janúar kl.14. Rætt
verður um starf félags-
ins og samskipti við
bæjaryfirvöld. Bæj-
arstjóri Kópavogs og
félagsmálastjóri mæta
á fundinn.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9. Brids kl 13, bilj-
ard kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Leikfélagið
Snúður og Snælda æf-
ing kl. 10.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10 gönguferð, frá há-
degi spilasalur opinn,
kl. 13.30 kóræfing S.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin virka daga frá 9–
17.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
11 spurt og spjallað, kl.
14 bingó. Föstudaginn
23. janúar verður
þorrablót kl. 18. Húsið
opnar kl. 17.30. Dans
og söngur. Gamanmál.
Minni karla. Lukku-
vinningur. Skráning í
síma: 587 2888 eða á
skrifstofu.
Hvassaleiti 58–60.
Fótaaðgerðir virka
daga, hársnyrting
þriðju- til föstudags.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl.10–11
kántrýdans. Föstudag-
inn kl.13.30 sungið við
flygilinn við undirleik
Sigurbjargar, kl.14.30
dansað í kaffitímanum
við lagaval Sigvalda,
rjómaterta með
kaffinu.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12.30 leir, kl. 13.30
bingó.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 10–14.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin virka daga frá 9–
17.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl. 21
í Konnakoti Hverf-
isgötu 105, Nýir félagar
velkomnir. Heitt á
könnunni. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Messa í dag kl.
14. Prestur sr. Ólafur
Jóhannsson.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í s. 588 7555 og
588 7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Í dag er föstudagur 16. janúar,
16. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Drottinn mun frelsa mig frá
öllu illu og mig hólpinn leiða inn í
sitt himneska ríki. Honum sé
dýrð um aldir alda! Amen.
(Tím. 4, 18.)
Haukur Þór Haukssonritar pistil á frelsi.is,
heimasíðu Heimdallar,
undir fyrirsögninni
Hringavitleysa og fjöl-
miðlar. Hann beinir spjót-
um sínum að hugmyndum
um lagasetningu gegn
hringamyndun í atvinnu-
lífinu og um eignarhald
fjölmiðlafyrirtækja, en
þær hafa verið áberandi
að undanförnu.
Haukur segir: „Nú eruppi umræða þess
efnis að setja þurfi sér-
stök lög annars vegar
gegn svokallaðri hringa-
myndun fyrirtækja og
hins vegar um það hverjir
megi eiga í fjölmiðlafyr-
irtækjum.
Að mínu mati eru lögum fyrrnefnd atriði
ekki réttlát. Það verður
að huga að því að Ísland
er fámennt land og því
ekkert óeðlilegt að fá fyr-
irtæki séu starfandi í
ákveðnum markaðs-
geirum.
Frjáls markaður snýstum það að þeir sem
eru á honum sitji við
sama borð. Ef aðili á
markaði nýtur lagalegrar
verndar gegn samkeppni,
þá fyrst skapast veruleg
hætta á einokun.
Slík hætta skapast einn-ig ef aðili á markaði
fær fjármuni skattgreið-
enda til að spila úr í sam-
keppni við hina aðilana
sem ekkert skattfé fá. Við
slík skilyrði getur að-
gengi að markaði verið
sama sem ekkert.
Einkareknu fjölmiðlarn-ir á Íslandi búa við
æði bjagaða samkeppni
og í raun merkilegt að
þeir skuli hafa haldið lífi
allt frá „hruni fjölmiðla-
múrsins“ 1986.
Afnotagjöld RÚV geraþað að verkum að
margir þeirra sem það
greiða hafa ekki efni á að
eyða meiru í fjölmiðla og
láta þar við sitja. En RÚV
lætur ekki þar við sitja
heldur herjar einnig
grimmt á auglýs-
ingamarkaðinn.
Ágætt er að hugsa sérað álíka aðstæður
væru á markaði fyrir
bakkelsi. Ég er ansi
hræddur um að ekki yrði
tekið vel í það að áður en
maður mætti kaupa sér
bakkelsi í uppáhalds-
bakaríinu sínu yrði mað-
ur fyrst að versla við Rík-
isbakaríið fyrir tiltekna
fjárhæð, óháð því hvort
manni þætti bakkelsið
þar gott eða vont, dýrt
eða ódýrt.
Besta aðferðin til aðauka samkeppni og
þar með lækka verð á
vöru og þjónustu er að
lækka álögur á fyrirtæki,
hafa lagarammann skýr-
an og einfaldan og lág-
marka skriffinnsku.“
STAKSTEINAR
Hringamyndun,
fjölmiðlar og
frjáls markaður
Víkverji skrifar...
Síðastliðinn þriðjudag birtist á for-síðu Morgunblaðsins lítil frétt
um úrslit sjöundu árlegu keppn-
innar um fáránlega viðvörunarmiða,
sem haldin var í Michigan í Banda-
ríkjunum. Í fjórða sæti lenti m.a við-
vörunarmiðinn „hættulegt að
gleypa“, sem var límdur á spún með
þremur önglum. Víkverja áskotn-
aðist um daginn kerti með viðvör-
unarmiða, sem hefði átt fullt erindi í
þessa samkeppni og verður kannski
þýddur og sendur í keppnina á
næsta ári. Viðvaranir á miðanum eru
svohljóðandi:
„Fjarlægið umbúðirnar áður en
kveikt er á kertinu.
Klippið af kveiknum í hvert sinn
sem kveikt er. Hann á að vera 7 mm
langur.
Þegar vaxpollurinn nær að brún-
um kertisins, slökkvið á kertinu, lát-
ið kólna, ath. kveikinn og kveikið aft-
ur.
Látið brenna hámark 2–3 klst. í
einu.
Farið aldrei frá logandi kerti.
Haldið frá börnum og dýrum.“
Já, það er víst aldrei of varlega
farið. Víkverji hefði reyndar haldið
að sá, sem á annað borð hefur
menntun og þroska til að komast
fram úr svona viðvörunartexta, ætti
að geta sagt sér þetta flest sjálfur –
nema kannski að kveikurinn eigi að
vera sjö millimetrar. Víkverji verður
að muna eftir málbandinu, næst
þegar hann kveikir á kertinu.
x x x
Allir vita að heimabrugg er vont.Jafnvel þótt það heiti ein-
hverjum fínum nöfnum, hráefnið sé
selt í snyrtilegri búð og með fylgi
vandaðar leiðbeiningar verður vín,
sem fólk er að bauka við að brugga í
kjallaranum heima hjá sér, aldrei
jafngott og vín, sem framleitt er af
atvinnumönnum samkvæmt alda-
gömlum hefðum í rótgrónum vín-
ræktarlöndum. Samt drekkur stór
hluti þjóðarinnar heimabrugg. Jafn-
vel vaxandi hluti. Greint var frá því í
fréttum fyrr í vikunni að rétt tæp-
lega fjórðungur þjóðarinnar hefði
drukkið heimabruggað vín síðast-
liðna tólf mánuði, samkvæmt könn-
un sem IBM ráðgjöf gerði fyrir
Samtök verzlunarinnar. Fyrir tæp-
um fjórum árum birtist könnun,
gerð af Gallup fyrir ÁTVR, þar sem
svipuð niðurstaða - raunar aðeins
lægra hlutfall - kom fram.
Af hverju lætur fólk sig hafa það
að drekka sitt eigið samsull? Svarið
er auðvitað að það langar til að geta
fengið sér léttvínsglas heima hjá sér,
með matnum eða bara eitt og sér,
eins og fólk í öðrum Evrópulöndum,
en það hefur ekki efni á því að kaupa
vönduð vín í Ríkinu. Fjármálaráðu-
neytið leggur á léttvín hæsta áfeng-
isgjald í heimi og ýtir fólki þar með
út í hina vafasömu heimaframleiðslu,
sem í bezta falli stuðlar að verri vín-
menningu og í versta falli að því að
fólk fái í magann. Er ekki mál að
linni? spyr Víkverji.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spilling í fjármálum
ATHUGUNARVERÐAR
greinar birtast nú í nýjasta
blaði Business Week, og
fjalla þ.á m. um bestu og
verstu forstjóra stórfyrir-
tækja 2003, aðallega í
Bandaríkjunum en einnig í
Þýskalandi, Japan, Ítalíu,
svo nokkur dæmi séu
nefnd. Ísland virðist ekki
vera þar á meðal, enda
kannski lítið í sniðum og al-
saklaust.
Flestir hafa fylgst með
fréttum af alls kyns
hneykslismálum stórfyrir-
tækja, t.d. Enron, World
Com, Tyco-International og
nú nýjasta dæminu, Parma-
lat á Ítalíu, sem sennilega
verður þeirra stærst.
Ótrúlegustu tölur eru
birtar, svo milljörðum doll-
ara nemur, sem margfald-
ast síðan með 70 ísl. kr. plús
eða mínus, eftir gengi hvers
fyrirtækis. Margir af hinum
kunnustu forstjórum stór-
fyrirtækja, sem borist hafa
mikið á í heimspressunni
undanfarin ár, sitja nú bak
við lás og slá í fangelsum,
eða standa í réttarsölum,
ákærðir fyrir meint stór-
felld brot í starfi og eiga yfir
höfði sér stórar fésektir og
upp í 30 ár í fangelsi.
Árið 1999 var skipaður í
New York nýr „Attorney
General“, æðsti lögfræði-
legur embættismaður ríkis,
sem flytur mál fyrir þess
hönd, og er stjórnum til
ráðuneytis í lögfræðilegum
efnum, Eliot Spitzer að
nafni aðeins 42 ára.
Sá hefur mannaforráð
upp á 1.800 manns, þar af
500 lögfræðinga. Hann hef-
ur ýtt heldur betur við ýms-
um fjármálastofnunum og
fjárfestingafélögum. Til
dæmis má nefna að 10 aðal-
fjárfestar á Wall Street
hlutu 1,4 milljarða dollara
sektir fyrir ólögleg samsæri
og athæfi. Spitzer getur
hvorutveggja stefnt fyrir
rétt og lögsótt.
Nú sem stendur eru 33
fjárfestinga- og fjármála-
fyrirtæki í rannsókn, og
hafa 15 lögfræðingar verið
sérstaklega ráðnir til þeirra
starfa. 32 forstjórar hafa
þegar tekið pokann sinn og
látið af störfum. Margs er
að gæta.
Virðingarfyllst,
Svanur Jóhannsson.
Tapað/fundið
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust á
Bárugötunni. Upplýsingar
í síma 551 5935 og
696 1833.
Bakpoki
í óskilum
BAKPOKI, grár og svartur
með KR hálstrefli í, fannst
austarlega á Nýbýlavegi í
Kópavogi þriðjudaginn 13.
janúar. Upplýsingar í síma
564 5133 e. kl. 19.00.
Dýrahald
Páfagaukur í óskilum
BLÁR og hvítur páfagauk-
ur flaug inn um glugga á
Bárugötunni sl. laugardag.
Upplýsingar í síma
824 0679.
Páfagaukur í óskilum
PÁFAGAUKUR fannst í
Miðhúsum í Grafarvogi sl.
föstudag. Upplýsingar í
síma 897 0357.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 fróðlegt, 8 kirtill, 9 nið-
urgangurinn, 10 veið-
arfæri, 11 karlfugls, 13
reiður, 15 rass, 18 veg-
urinn, 21 sjór, 22 líkams-
hlutarnir, 23 æsir, 24
gleðskapinn.
LÓÐRÉTT
2 stórfljót, 3 kvista niður,
4 nam, 5 lítilfjörlega per-
sónu, 6 slöpp, 7 þvingar,
12 blóm, 14 fugl, 15 rúms,
16 dimmviðris, 17 kven-
dýrið, 18 auðfarin, 19
hljóðfærið, 20 gefa að
borða.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 nepja, 4 bátur, 7 letja, 8 refil, 9 rím, 11 sorg, 13
bana, 14 æruna, 15 kyns, 17 klár, 20 hak, 22 gjóta, 23
rifum, 24 neita, 25 forna.
Lóðrétt: 1 nálús, 2 pútur, 3 afar, 4 barm, 5 tefja, 6 rolla,
10 ímuna, 12 gæs, 13 bak, 15 kúgun, 16 njóli, 18 lifir, 19
rimma, 20 hala, 21 kref.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16