Morgunblaðið - 16.01.2004, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 55
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert áreiðanleg/ur og ábyrg/
ur og leitar lífsfyllingar í
vinnunni. Styrkur þinn felst í
því að þú þekkir takmörk þín.
Það verða miklar breytingar í
lífi þínu á árinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert óvenju tilfinninganæm/
ur í dag. Þú gætir jafnvel fundið
til öfundar í garð einhvers og
það valdið þér hugarangri.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Beindu athygli þinni að nánustu
samböndum þínum í dag. Ef þú
lendir í deilum munu þær senni-
lega taka óvenjumikið á þig. Þú
ættir því að reyna að forðast
átök.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt njóta þess að sinna
handavinnu og gæludýrum í
dag. Einbeittu þér að því að
skipuleggja og þrífa heimilið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ástarsamband þitt gæti öðlast
aukna dýpt í dag. Tilfinningar
þínar til barna þinna eru einnig
sérlega hlýjar. Hlúðu að þessum
jákvæðu tilfinningum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur þörf fyrir að vera ein/n
með sjálfri/sjálfum þér í dag. Þú
þarft tíma til að endurmeta af-
stöðu þína til lífsins. Þú gætir
jafnvel komið auga á úrelta
ávana í leiðinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér finnst þú standa og falla
með skoðunum þínum í dag. Það
er hætt við að þetta geri þig ein-
strengingslega/n og skeyting-
arlausa/n um skoðanir annarra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Umhverfi þitt skiptir þig alltaf
miklu máli og nú finnst þér gott
að hafa kunnuglega hluti í kring
um þig. Þú lætur þér óvenju
annt um veraldlega hluti í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tunglið er í merkinu þínu og
það gerir þig óvenju sjálf-
hverfa/n. Það er ekki endilega
neikvætt að láta sína eigin hags-
muni ganga fyrir þörfum ann-
arra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú munt njóta þess að vera
ein/n með sjálfum/sjálfri þér í
dag. Best væri ef þú gætir farið
ein/n út í náttúruna. Þú kannt
illa við að vera lokuð/lokaður
inni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú munt eiga uppörvandi sam-
tal við vinkonu þína í dag. Það
getur verið að hún staðfesti það
sem þú veist nú þegar en það
verður eftir sem áður gott að
heyra það.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú munt á einhvern hátt verða í
sviðsljósinu í dag. Gættu að
framkomu þinni því aðrir gætu
tekið sér hana til eftirbreytni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þig langar til að flýja raunveru-
leikann í dag. Mundu að nei-
kvæðni skilar engum árangri.
Þú getur annað hvort reynt að
breyta hlutunum eða sætt þig
við þá eins og þeir eru.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FLJÚGANDI BLÓM
Vel sé yður, ó, vængjaða blómskrúð drottins,
vinir himins og jarðar, sem einhverju sinni,
löngu áður en ártöl og sögur hófust,
uxuð til skínandi flugs upp af jörðinni minni.
Því fögnuður yðar fann sér ei lengur rætur
í faðmi hennar, og þó hafði jörðin borið
að sínu leyti umhyggju fyrir yður
engu minni en jafnvel sólin og vorið.
En þökk sé yður, að hversu hátt sem þér leitið
mót himni og sól, þá komið þér ávallt til baka
að syngja fyrir þau blómin, sem urðu eftir
og enn hafa hvorki lært að fljúga né kvaka.
– – –
Tómas Guðmundsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
SVÍINN Eric Jannersten
skrifaði fyrir margt löngu
ágæta bók um baráttu sagn-
hafa í vondri stöðu: „Enda
chansen“ heitir bókin á
frummálinu, sem við skulum
bara þýða sem „Síðasta
hálmstráið“. Þetta spil úr
Reykjavíkurmótinu hefði
átt heima í riti Jannerstens:
Norður
♠ÁG87
♥Á5
♦ÁKG
♣Á763
Suður
♠K106
♥KD10862
♦2
♣G52
Suður verður sagnhafi í
sex hjörtum án afskipta AV
af sögnum. Vestur kemur út
með tígul, sem tekinn er í
borði með ás og hjartaás
lagður niður. Og þá hendir
austur tígli! Hver er „eini
möguleikinn“?
Vestur hefur sem sagt
hafið lífsbaráttuna með
G97xx í hjarta. Sem gefur
honum tvo slagi, nema í því
eina tilfelli að hægt sé að
berhátta hann til hliðar og
endaspila svo í trompi. Til að
þetta sé hægt verður vestur
að vera með skiptinguna 4-
5-3-1. Ekkert annað dugir:
Norður
♠ÁG87
♥Á5
♦ÁKG
♣Á763
Vestur Austur
♠D954 ♠32
♥G9743 ♥--
♦1085 ♦D97643
♣K ♣D10984
Suður
♠K106
♥KD10862
♦2
♣G52
Sagnhafi hendir laufi í tíg-
ulkóng og trompar tígul.
Spilar svo spaðatíu með því
hugarfari að svína, því
drottningin er líklegri með
fjórum spilum en tveimur.
Ef vestur leggur drottn-
inguna á, drepur sagnhafi,
spilar spaða á kóng og
svínar fyrir níuna. Hendir
laufi í fjórða spaðann, spilar
laufás og laufi og trompar
smátt. Og vestur er dæmdur
maður.
Svona hefði spilið litið út í
bók Jannerstens, en í reynd
átti vestur skiptinguna 2-5-
4-2 og slemman fór alls stað-
ar 2-3 niður.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3
Bb4+ 4. Bd2 Bxd2+ 5.
Dxd2 d5 6. g3 O-O 7. Bg2
Rbd7 8. Dc2 c6 9. O-O De7
10. cxd5 exd5 11. Rc3 Re4
12. Hfe1 Rdf6 13. e3 h6 14.
Re5 Bf5 15. f3 Rd6 16. Db3
Hab8 17. Had1 Rd7
18. Db4 Rxe5 19.
dxe5 Rc8 20. Df4
Be6 21. g4 Rb6 22.
Dg3 f6 23. b3 Rd7
24. exf6 Dxf6 25. Re2
Hfe8 26. h4 g5 27.
hxg5 hxg5 28. f4 He7
29. Rd4 Hg7 30. f5
Bf7 31. Kf2 He8 32.
Hh1 Rf8 33. Hh3 c5
34. Rb5 d4 35. e4
Hh7 36. Hxh7 Rxh7
37. Rd6 He7 38. Hh1
b6
Staðan kom upp í
C-flokki Corus
skákhátíðarinnar sem
stendur nú yfir sem hæst í
Wijk aan Zee í Hollandi.
Tea Lanchava-Bosboom
(2323) hafði hvítt gegn
Maarten Etmans (2225). 39.
e5! Hxe5 40. Rxf7 He3
svartur myndi tapa manni
eftir 40... Kxf7 41. Hxh7+.
41. Dc7 Rf8 42. Hh8+ og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 13. júlí 2003 í Hall-
grímskirkju af sr. Sigurði
Pálssyni þau Bergþóra
Ragnarsdóttir og Jón
Bjarnason. Heimili þeirra
er í Reykjavík.
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 28. desember sl. í
Dómkirkjunni í Reykjavík
af séra Petrínu Mjöll Jó-
hannesdóttur þau Helen
Garðarsdóttir og Kristján
Guðmundsson. Heimili
þeirra er í Bandaríkjunum.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 2.818 kr. til styrktar
Rauða krossi Íslands. Þær eru Helga Katrín Jónsdóttir og
Ester Rós Brynjarsdóttir.
HLUTAVELTA
Hallgrímskirkja. Eldri borgara starf kl.
13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja, eldir borgara starf. Brids-
aðstoð kl. 13. Kaffi kl. 15.
Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kaffi og spjall.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri
deildarstarf Lindakirkju og KFUM&K í
húsinu á Sléttunni, Uppsölum 3. Krakkar
á aldrinum 8–12 ára velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Laugar-
dagur: Kl. 15 Litlir lærisveinar, aukaæf-
ing hjá yngri hóp. Kl. 15.30 Litlir læri-
sveinar, aukaæfing hjá eldri hóp.
Kórstjóri Joanna Wlasczcyk og umsjón-
armaður Kristín Halldórsdóttir.
Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar.
Kirkjukrakkar í Lágafellsskóla kl. 13.20–
14.30.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Kirkjuskólinn hef-
ur göngu sína að nýju eftir jólaleyfi nk.
laugardag, 17. janúar, í Víkurskóla kl.
11.15–12. Nýjar bækur og myndir. Rebbi
refur heldur áfram námi í kristindómi í
brúðuleikhúsinu. Biblíusögur, söngur og
listastund. Hittumst hress og kát á nýja
árinu. Veirð dugleg að mæta og munið að
bjóða vinum ykkar með. Sóknarprestur
og starfsfólk kirkjuskólans.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11:00. Bæna-
stund alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíu-
fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun FM 105,5. Allir velkomnir.
Fríkirkjan Kefas. 10–12 ára starf kl.
19.30. Samvera, fræðsla og fjör. Allir
10–12 ára velkomnir. Nánari upplýsingar
á www.kefas.is
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.30
barnagospel fyrir krakka 4–12 ára. Kl.
10–18 okkar vinsæli flóamarkaður op-
inn.
Safnaðarstarf
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Á fyrsta spilakvöldi félagsins eft-
ir áramót var spilaður eins kvölds
Mitchel-tvímenningur með þátttöku
20 para. Veitt voru verðlaun fyrir
hæstu skorina í hvora átt. Keppni
var hörð um efstu sætin eins og úr-
slitin bera með sér. Hæsta skor í
NS, meðalskor 216:
Jón V. Jónmundss. – Unnar Atli Guðm. 247
Gísli Tryggvason – Leifur Kristjánsson 241
Ólafur A. Jónss. – Raghildur Gunnarsd.234
Hæsta skor í AV:
Jón Guðm. Jónss. – Friðjón Margeirss. 268
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 266
Jens Jensson – Jón Steinar Ingólfsson 222
Næsta keppni félagsins, 12. jan-
úar, er aftur eins kvölds tvímenn-
ingur með verðlaunum fyrir hæsta
skor. Þann 19. janúar fer fram fé-
lagakeppni við Bridsfélag Hafnar-
fjarðar og eru félagsmenn hvattir
til þess að fjölmenna í Hafnarfjörð-
inn.
Sveit Gylfa leiðir
eftir tvær umferðir
í Akureyrarmótinu
Þriðjudagskvöldið 13. janúar fóru
fram tvær fyrstu umferðirnar í Ak-
ureyrarmótinu í sveitakeppni hjá
Bridsfélagi Akureyrar. Átta sveitir
taka þátt.
Staðan eftir tvær umferðir er:
Gylfa Pálssonar 45
Stefáns Vilhjálmssonar 41
Unu Sveinsdóttur 38
Sparisjóðs Norðlendinga 35
Sunnudagskvöldið 11. janúar fór
fram einskvölds tvímenningur. Ell-
efu pör tóku þátt.
Úrslit voru:
Kolbrún Guðveigsd. – Ragnheiður Har. 28
Gissur Jónasson – Hjalti Bergmann 22
Pétur Örn Ragnarss. – Stefán Ragnarss.
13
Sveinbjörn Sigurðss. – Frímann Stefánss.
7
Spilað er á sunnudags- og þriðju-
dagskvöldum í Félagsheimilinu
Hamri og byrjar spilamennskan
klukkan 19.30. Á þriðjudagskvöld-
um eru forgefin spil og keppnis-
stjóri er á staðnum.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
PENNAVINIR
HIDEKAZU, sem er 33 ára
japanskur maður, óskar eftir
að skrifast á við íslenskar
konur. Hann hefur mikinn
áhuga á landi og þjóð.
Hidekazu Midurikana
2269-2 Hikakawa Chú,
Miduriku Chiba City,
Chibaken,
Japan.
LUCIANO óskar eftir að
komast í samband við ís-
lenska safnara. Hann safnar
m.a. peningum og ýmsu er
tengist fótbolta, t.d. miðum,
árbókum, prógrömmum
o.s.frv.
Luciano Zinelli,
Via Mercadante, 18
42100 Reggio Emilia,
Italia.
JESSICA, sem er 15 ára
frá Bandaríkjunum, óskar
eftir íslenskum pennavinum.
Hún hefur áhuga á Íslandi.
Jessica Ziegler,
3040 South Queen St.,
Dallastown P.A. 17313,
USA
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Útsala
25-80%
afsláttur