Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 57
SIGFÚS Sigurðsson lék fyrri hálfleikinn gegn Dön-
um og gerði það heldur betur af krafti, skoraði 5
mörk og fékk á sig þrjár brottvísanir, þannig að
hann kom ekki meira við sögu. Hann sagði við
Morgunblaðið að hann kenndi sér einskis meins í
bakinu. „Ég er bara góður, fann ekki fyrir neinu. Ég
var kannski svolítið æstur, var fúll yfir því að hafa
setið og horft á alla leikina gegn Sviss, og það fóru
að koma göt í vörnina þegar leið á hálfleikinn þar
sem ég fór fullmikið út á móti skyttunum, en þetta
var rosalega gaman. Það var harkalegt að fá þriðju
brottvísunina í lok hálfleiksins, við Boldsen rákum
höfuðin saman og hann steinlá. En maður verður að
vera grimmur og taka á, það er ekki hægt annað.
Ég komst í góðan takt við leikinn, greip vel á lín-
unni, en viðurkenni að ég var orðinn þreyttur undir
lok hálfleiksins, svo þetta var kannski hæfilegur
skammtur fyrir mig að sinni. Fyrsti leikur er alltaf
erfiður eftir svona hlé, en ég verð afslappaðri gegn
Svíum á morgun og þá verður þetta öðruvísi,“ sagði
Sigfús Sigurðsson.
Sigfús kennir sér
einskis meins
LJÓST er að Danir og Svíar
munu ekki sýna hvorir öðrum
allar sínar bestu hliðar á morg-
un þegar þjóðirnar mætast í
lokaumferð LK-bikarsins í Far-
um-höllinni í Kaupmannahöfn.
„Það er öruggt að bæði liðin
koma til með að geyma sín
helstu tromp í þessum leik,
vegna þess að það eru líkur á að
þau mætist í milliriðlinum í Slóv-
eníu,“ sagði Torben Winther,
landsliðsþjálfari Dana, við BT í
gær. Viðureign Dana og Svía er
lokaleikur mótsins, á eftir leik
Íslendinga og Egypta á sama
stað.
Íslendingar þurfa ekki að hafa
áhyggjur af slíkum feluleik í
mótinu því þeir geta hvorki
mætt Svíum né Dönum, komist
þeir í milliriðil á EM. Önnur
hvor þjóðanna gæti aðeins orðið
andstæðingur Íslands í leikjum
um sæti í lok mótsins og þá
hefðu þjálfarar liðanna ekkert
að fela lengur eftir að hafa spil-
að sex til sjö leiki fram að því í
keppninni.
Svíar eru í A-riðli í Slóveníu
með Rússum, Úkraínumönnum
og Svisslendingum en Danir eru
í B-riðli með Spánverjum, Portú-
gölum og Króötum. Þrjár efstu
þjóðirnar í hvorum riðli fara
saman í milliriðil og taka inn-
byrðis úrslitin með sér. Mikið er
í húfi fyrir bæði Dani og Svía í
Slóveníu þar sem hvorug þjóðin
hefur tryggt sér sæti á Ólympíu-
leikunum í Aþenu, en eitt sæti
þar er í boði í Slóveníu.
Danir og Svíar verða
með feluleik í Farum
Scanpix Nordfoto
Daninn Christian Hjermind skorar eftir að hafa
leikið á Guðjón Val Sigurðsson.
Íslenska liðið var með undirtökinfyrstu 20 mínúturnar í Farum og
náði mest fjögurra marka forskoti,
10:6. Þá hafði liðið
skorað úr tíu sóknum
af 13, spilað ágætan
varnarleik og nýtt öll
sín hraðaupphlaup.
Ólafur Stefánsson og
Sigfús Sigurðsson voru allt í öllu í
sóknarleik Íslands í fyrri hálfleikn-
um, Sigfús skoraði fimm mörk og
Ólafur lagði upp sjö, auk þess að
skora fjögur sjálfur. Oft sáust lagleg
tilþrif í sóknarleiknum en varnarleik-
urinn, þar sem ágætlega var komið út
á móti dönsku skyttunum framan af,
fór að láta á sjá þegar á leið hálfleik-
inn. Sigfús tók leikinn heldur geyst,
ákafur í að spila, og fékk þrjár brott-
vísanir á síðustu sjö mínútunum, svo
þátttöku hans lauk um leið og fyrri
hálfleiknum. Þá gekk hann hart út á
móti Joachim Boldsen sem kom Dön-
um í 18:17 um leið og hálfleiksflautið
gall en steinlá eftir áreksturinn við
Sigfús. Danir náðu einmitt foryst-
unni í fyrsta sinn, 13:12, strax eftir
fyrstu brottvísun Sigfúsar og eftir
það var jafnt á öllum tölum út hálf-
leikinn.
Síðari hálfleikur byrjaði rólega og
fátt benti til einhverrar flugeldasýn-
ingar á fyrstu mínútunum. Þegar sjö
mínútur voru liðnar og staðan 20:20
kom Patrekur Jóhannesson til leiks í
fyrsta sinn, leysti Jaliesky Garcia af
hólmi í skyttustöðunni vinstra megin,
og við það small sóknarleikur Íslands
saman svo um munaði. Ísland skoraði
10 mörk gegn tveimur næstu 13 mín-
úturnar, staðan var orðin 30:22 og
ekki stóð steinn yfir steini í danska
liðinu. Íslenska liðið nýtti 13 af fyrstu
15 sóknum sínum í síðari hálfleik, þar
af tíu í röð, spilaði frábæran varn-
arleik og Reynir Þór Reynisson, sem
kom í stað Guðmundar Hrafnkels-
sonar eftir hlé, varði virkilega vel.
Það var vart slegin feilnóta fyrr en í
blálokin þegar hálfgert kæruleysi í
síðustu sóknunum varð til þess að
munurinn varð einungis fimm mörk.
Það hefur löngum vakið ugg þegar
íslenska handknattleikslandsliðið
tekur upp á því að brillera á lokadög-
unum fyrir stórmót. Vissulega var
reynslan á árum áður oft sú að það
þótti ekki góður fyrirboði. Og við
sjáum ekki fyrr en á hólminn kemur í
Slóveníu hvort hræðslan við góðu æf-
ingaleikina er ástæðulaus eða ekki.
En sú framþróun sem kom fram í
seinni tveimur leikjunum við Sviss
hélt áfram í Farum í gærkvöld og
sjálfstraust liðsins fer augljóslega
vaxandi um leið. Það var ánægjulegt
að sjá Sigfús á ferðinni á ný og sam-
vinna hans og Ólafs í fyrri hálfleikn-
um minnti á framgöngu þeirra í Sví-
þjóð fyrir tveimur árum. Ólafur lék
frábærlega í leiknum í heild, nítján af
mörkunum 33 voru fyrir hans til-
stuðlan. Snorri Steinn Guðjónsson er
tilbúinn í slaginn á EM, Guðjón Valur
Sigurðsson er á sínu venjulega róli og
Einar Örn Jónsson, sem fékk að spila
allan leikinn í hægra horninu, sýndi
skref í rétta átt. Innkoma Patreks í
síðari hálfleik var góð, og Róbert
Gunnarsson komst ágætlega frá sínu
á línunni þegar hann leysti Sigfús af.
Það er ekki að sjá að markvarslan,
sem margir hafa haft áhyggjur af,
eigi að verða einhver Akkilesarhæll
ef Guðmundur og Reynir halda sínu
striki.
Sem sagt, heilsteypt og góð
frammistaða í Farum, en sem fyrr
með þeim formerkjum að þetta er
bara æfing fyrir stóru stundina sem
rennur upp í Slóveníu næsta fimmtu-
dag. Dönum má segja til málsbóta að
þeir hafa verið í afar þungu pró-
grammi þessa vikuna og þeir voru
hreinlega á hælunum í seinni hálfleik.
Íslenska liðið mætir sjálfum Svíum í
Malmö í kvöld og þá kemur staða
þess enn betur í ljós en miðað við
sjálfstraustið sem geislaði af öllum í
Farum hljóta þeir líka að vera tilbún-
ir í þau átök.
Íslendingar með flug-
eldasýningu í Farum
ÞAÐ er alltaf sætt að sigra Dani
í handboltalandsleik, ekki síst á
þeirra eigin heimavelli. Hvað þá
þegar það er gert á jafn afger-
andi hátt og raunin varð í Farum
í gærkvöld þegar þjóðirnar
mættust þar í fyrstu umferð al-
þjóðlega handknattleiksmóts-
ins. Eftir hreint stórkostlegan
síðari hálfleik voru lokatölurnar
33:28, Íslandi í vil, en Danir
höfðu haft forystu í hálfleik,
18:17. Sigurinn var mun örugg-
ari en lokatölurnar gefa til
kynna því 10 mínútum fyrir
leikslok voru úrslitin ráðin, Ís-
land komið með átta marka for-
skot, og það var enn til staðar
þegar þrjár mínútur voru eftir,
33:25. Danir skoruðu þrjú síð-
ustu mörk leiksins og náðu með
því breiða aðeins yfir það hve
gjörsigraðir þeir voru.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
frá Farum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Reynir Þór Reynisson, markvörður íslenska landsliðsins, stóð sig mjög vel í markinu í síðari hálf-
leik í gær eins og hann gerði gegn Sviss um síðustu helgi.
ÍSLENSKA landsliðið í handknatt-
leik dvelur í Farum í útjaðri Kaup-
mannahafnar á meðan alþjóðlega
mótið stendur yfir, og spilar tvo af
þremur leikjum sínum þar. Auk
þess æfir það af krafti í Farum-
höllinni.
„Þetta er fín aðstaða, við höfum
verið hér áður og kunnum vel við
okkur hér í Farum,“ sagði Einar
Þorvarðarson, aðstoðarþjálfari
landsliðsins og framkvæmdastjóri
HSÍ, við Morgunblaðið í Kaup-
mannahöfn í gær.
Íslenska liðið kom til Farum á
miðvikudag og æfði þar þá um
kvöldið og aftur fyrri partinn í gær.
Í dag verður æfing í Farum áður en
haldið verður yfir Eyrarsunds-
brúna og spilað gegn Svíum í
Malmö klukkan 18 að íslenskum
tíma. Einar reiknaði með því að
leikurinn við Egypta yrði látinn
duga á morgun og síðan fengju
leikmennirnir tækifæri til að hvíl-
ast á sunnudag. Á mánudag verður
æfing og síðan æfingaleikur gegn
svokölluðu deildalandsliði Dana,
úrvalsliði úr dönsku úrvalsdeild-
inni. Á þriðjudag verður síðan flog-
ið til Vínarborgar og þaðan áfram
til Ljubljana í Slóveníu þar sem
Evrópukeppnin hefst á fimmtudag
en þá mæta Íslendingar liði heima-
manna í fyrsta leik sínum í riðla-
keppninni.
Íslenska liðið æfir af krafti í Farum
ÍSLENDINGAR fögnuðu sínum
fyrsta sigri í landsleik í handknatt-
leik á Dönum í Danmörku í gær-
kvöldi – eftir sigurleikinn fræga 1.
desember 1996, er Íslendingar
tryggðu sér farseðilinn á HM í Japan
með frækilegum sigri í Álaborg,
24:22. Robert Julian Duranona fór
þá á kostum á lokaspretti leiksins,
sem var æsispennandi og eftirminni-
legur. Síðan fögnuðu Danir þremur
sigrum í röð – 28:24 í Farum 2002,
29:21 í Árósum 2002 og síðast fyrir
ári í Helsinge, 32:23.
KLAVS Bruun Jörgensen hefur
verið gerður að leikstjórnanda
danska landsliðsins. Hann tók við
þeirri stöðu á mótinu í Moskvu og á
að stýra sóknarleik Dana í Slóveníu.
Jörgensen hefur til þessa verið
þekktari sem örvhent stórskytta en
segir að þetta sé fínt tækifæri til að
sýna hversu klókur handboltamaður
hann sé í raun og veru.
JÖRGENSEN segir að nú geti
hann sest á varamannabekkinn á
meðan Joachim Boldsen leysi hann
af í vörninni og skipulagt næstu
sóknaraðgerðir með þjálfurum
danska liðsins. „Nú fáið þið að sjá
enn virkari Klavs Bruun en áður,“
sagði Jörgensen við Ekstra Bladet.
JÖRGENSEN segir að EM í Slóv-
eníu verði sitt seinasta stórmót með
danska landsliðinu, nema því takist
að vinna sér sæti á Ólympíuleikunum
í Aþenu. Hann leikur með GOG og
verður jafnframt aðstoðarþjálfari
liðsins frá og með næsta tímabili.
DANIR tefldu í gærkvöld fram
þeim 16 leikmönnum sem valdir voru
fyrir EM í Slóveníu. Í þeim hópi eru
fjórir frá Flensburg, toppliði þýsku
1. deildarinnar, „danska liðinu“ í
þýska handboltanum. Það eru þeir
Lars Christiansen, Joachim Bold-
sen, Sören Stryger og Lars Krogh
Jeppesen.
AÐEINS einn leikmaður danska
landsliðsins í viðbót spilar í Þýska-
landi, Morten Bjerre, sem leikur
með Hamburg. Þrír þeirra spila á
Spáni, markvörðurinn Kasper Hvidt
með Ademar Leon og þeir Lars
Jörgensen og Claus Möller Jakob-
sen með Altea. Hinir átta leika með
dönskum liðum.
TÍU af þeim sextán sem léku með
íslenska liðinu í gærkvöld spila í
Þýskalandi, tveir á Spáni, einn í
Danmörku og einn í Frakklandi, en
aðeins þeir Ásgeir Örn Hallgríms-
son og Reynir Þór Reynisson heima
á Íslandi.
RÓBERT Gunnarsson er greini-
lega í miklum metum hjá dönskum
íþróttafréttamönnum sem fylgdust
með honum af áhuga. Róbert hefur
enda verið einn besti leikmaður
dönsku úrvalsdeildarinnar í vetur og
á síðasta tímabili, með Århus GF.
FÓLK
HANDKNATTLEIKUR