Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 61
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813
ELDFJÖRUGT HARMONIKUBALL
í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima í Reykjavík
laugardagskvöld 17. janúar 2004 frá kl. 22.00.
• Margar hljómsveitir • Fjölbreytt danslög
• Gott ball fyrir dansáhugafólk
Aðgangseyrir kr. 1.200.
GOTT gengi Eivarar Pálsdóttur á Íslensku
tónlistarverðlaununum hefur snert streng í
gervallri færeysku þjóð-
inni. Sagt er frá gengi
hennar á tónlistarsíðunni
www.pop.fo, í tveimur
stærstu blöðunum,
Dimmalætingu og Sosial-
inum og þá sagði færeyska
ríkisútvarpið einnig frá
sigrum hennar. Hún fékk
tvær „virðislönir“ eins og
það er orðað og „gjördist
besti kvinnuligi sangarin og tann av öllum,
sum dugdi best at framföra sín tónleik í 2003“.
Móttaka í Götu
Marentza Poulsen veitingakona er Fær-
eyingur og búsett hérlendis. Hún staðfesti við
blaðamann að mikil gleði ríkti nú í Færeyjum
og þjóðin væri hreinlega að springa úr ham-
ingju.
„Það er mikið húllumhæ. Það verður mót-
taka fyrir Eivöru í Götu sem er heimabærinn
hennar og það er ekki talað um annað þarna
úti.“
Marentza getur ekki leynt því að hún er
hrærð yfir þessu.
„Það er einfaldlega gaman að finna að við,
þessi litla þjóð, hefur eitthvað fram að færa.
„Litli bróðir“ stimpillinn virðist hverfa í smá-
stund. Þetta er mjög mikils virði fyrir Fær-
eyinga.“
Hún segir ennfremur að þjóðin sé mjög
stolt af Eivöru, hún sé alvöru listamaður með
mikla útgeislun og hún iðki list sína af heil-
indum.
„Hún vinnur ennfremur mikið með fær-
eysku tónlistarhefðina, sem er einkar fallegt,“
segir Marentza að lokum.
Eivöru fagnað gríðarlega við heimkomu
Þjóðhetja í Færeyjum
Eivör Pálsdóttir tekur hér við seinni verðlaununum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Eivör hefur slegið í gegn; bæði í heimalandi sínu og hérlendis.
www.pop.fo
www.dimma.fo
www.sosialurin.fo
www.uf.fo
Marentza Poulsen