Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 63

Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 63 Sýnd Kl. 6. Með ensku tali og íslenskum texta. www.laugarasbio.is „Besta mynd ársins.“ SV MBL Yfir 73.000 gestir Sýnd kl. 4. Með íslensku tali.  Kvikmyndir.com „ATH! SÝND MEÐ ÍSLENS KU OG ENSKU TALI“ Sýnd kl. 5, 8 og 9. B.i. 12 ára.  EPÓ kvikmyndir.com „Besta ævintýramynd allra tíma. “ Frumsýning Stórskemmtileg gamanmynd með Britt- any Murphy (8 Mile og Just Married) sem fer að passa ríka litla stelpu eftir að hún stendur uppi peningalaus. Með hinni frábæru Dakotu Fanning.VG. DV HJ MBL  ÞÞ FBL „VÁ. Stórfengleg mynd.“ Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 6.30 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 10 ára. Skonrokk FM909  ÞÞ FBL HJ MBL HK DV  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10. B.i. 16. www .regnboginn.is  EPÓ kvikmyndir.com „Besta ævintýramynd allra tíma.“ HJ MBL  ÞÞ FBL „VÁ. Stórfengleg mynd.“ „Besta mynd ársins.“ SV MBL Yfir 73.000 gestir VG. DV Frábær rómantísk gamanmynd með ótrúlegum leikkonum Besta myndin Besti aðalleikari Russell Crowe Besti leikstjóri Peter Weir3 Tilnefningar til Golden Globe verðlauna KVIKMYNDIN Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson hefur verið valin til þátttöku á Kvikmyndahátíðinni í Berlín. Þar verður hún sýnd í Pano- rama-flokki en mikill heiður þykir að komast á þessa hátíð. Ennfremur verður Kaldaljós opnunarmynd Kvikmyndahátíðarinnar í Gauta- borg, eins og áður hefur verið greint frá. „Þetta er meira en hið besta mál. Það sem er svo frábært er að þetta byrjar svo vel. Myndin er búin að vera í sýningum í tvær vikur. Eftir viku er hún að opna í Gautaborg og í byrjun febrúar erum við að fara að sýna hana í Panorama í Berlín. Þetta er besta start sem ég hef nokkurn tímann upplifað,“ segir Hilmar Oddsson leikstjóri. „Það sem er svo frábært við þetta er tímasetningin. Það er svo gott að fá vind í seglin í upphafi. Það upp- örvar mann svo mikið,“ segir hann ánægður. „Þetta er mikil viðurkenning því þeir geta valið myndir hvaðanæva að úr heiminum. Þeir þurfa ekki að þóknast neinum heldur velja bara það sem þeim líkar,“ segir hann. Fágætt er að íslenskar myndir hafi komist á hátíðina. „Það hafa örfáar myndir komist í Panorama áður. Ég held að Hrafninn flýgur hafi verið fyrstur og ég held að hann hafi brotið ísinn þar og ég veit það gerði mikið fyrir Hrafn á sínum tíma,“ segir hann. Panorama stend- ur utan aðalkeppninnar á hátíðinni. „Í Panorama er ekki verið að keppa um verðlaun heldur eru verðlaunin sú kynning sem maður fær og heið- urinn,“ segir Hilmar. Keðjuverkandi áhrif Hann segir líklegt að þetta hafi áhrif á gengi Kaldaljóss. „Það gerir það alltaf eitthvað. Þetta hátíðaferli er keðjuverkandi því menn frá öðr- um hátíðum sjá myndir á þessum stóru hátíðum.“ Enn sem komið er hefur myndin aðeins verið send til dómnefnda þessara tveggja hátíða. „Það sem er ánægjulegast fyrir mig er það að bara tveimur hátíðum hefur borist myndin og þær hafa báðar stokkið á hana.“ Kaldaljós hefur einnig verið vel tekið hérlendis. „Það hefur allt gengið upp enn sem komið er,“ segir Hilmar en vill ekki gera of miklar væntingar til framhaldsins. „Maður er þakklátur fyrir hvert skref.“ Kaldaljós Hilmars Oddssonar á Berlínarhátíðina Besta start sem ég hef upplifað Áslákur Ingvarsson leikur hinn næma Grím á unga aldri. ingarun@mbl.is Bretlandi. „Við erum minni þjóð og höfum alltaf miklu minni peninga,“ segir Alfreð. „Það er það sem mað- ur er alltaf að berjast við hér heima. En Bretarnir voru ánægðir með þetta og hafa sjálfsagt gert sér grein fyrir að við höfum ekki úr jafnmiklum peningum að spila og þeir sjálfir.“ Þá fannst Bretunum mikið til koma fjölda innhringinga við stiga- gjöf í keppninni. „Þeir sögðu að inn- hringingarnar væru margfalt fleiri hér miðað við höfðatölu en nokkurs staðar annars staðar í heiminum. 70 þúsund innhringingar er náttúrlega ótrúlega mikið,“ segir Alfreð. Lokaþáttur keppninnar er svo í kvöld og var Alfreð upptekinn við að stilla upp gosum og sprengjum í sviðsmyndinni í vikunni til að auka aðeins á skrautið í lokaþættinum. Að þættinum loknum verður ljósa- búnaðurinn síðan nýttur í önnur verkefni en pallurinn fer í geymslu enda stendur til að hleypa nýrri þáttaröð af stokkunum næsta haust að sögn Alfreðs. „Þá ætlum við að auka við leikmyndina,“ segir hann hlæjandi og er að heyra á honum að það vanti ekkert upp á hugmyndir að því hvernig bæta megi við glam- úrinn og ljósadýrðina. Áhorfendur mega því búast við kraftmiklum lokaþætti í kvöld og síðan glæsi- legri keppni næsta haust. Róbótar, plasmaskjáir og myndvörpur eru meðal þeirra 40 hreyfiljósa sem nýtt eru við sviðsmyndina í Idol-keppninni sem fram fer í Vetrargarðinum. Alfreð Sturla Böðvarsson, sem á heiðurinn af hönnun sviðsmyndar og ljósa, segir þennan fjölda vera met í íslensku sjónvarpi. ben@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.