Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 64
Morten á níunda áratugnum þegar a-ha naut hvað mestra vinsælda. Óhætt er aðsegja aðnorska popp-hljómsveitin a-ha hafi verið ein vin- sælasta hljómsveit ní- unda áratugarins. Mort- en Harket, Magne Furuholmen og Paul Waaktaar heilluðu með lögum eins og „Cry Wolf“, „Scoundrel Days“, „Touchy!“, „The Sun Always Shines on T.V.“ og síðast en ekki síst „Take on Me“. Morten hefur skemmti- lega rödd en líka útlitið með sér og skemmdi það ekki fyrir vinsæld- unum. Morten hefur útlitið enn með sér og er óhætt að segja að hann líti út fyrir að vera tíu árum yngri en hann er 44 ára. Hann er sérstaklega viðkunnanlegur og kemur á óvart með því að svara á allt annað en hefðbundinn hátt. – Þetta er ekki fyrsta sinn sem þú heimsækir landið? „Nei þetta er alls ekki fyrsta skiptið. Ég hef komið hérna nokkr- um sinnum af nokkrum mismun- andi ástæðum. Ég er hérna ásamt mjög góðum vini mínum, sem er ís- lenskur en býr í Noregi. Ég er bara forvitinn og hef alltaf verið forvit- inn að eðlisfari og forvitnin hefur fært mig hingað,“ segir Morten sem hefur ekki tölu á skiptunum, sem hann hefur komið til landsins. Minnisstæðast er án efa þegar a- ha kom hingað og hélt tvenna tón- leika í troðfullri Laugardalshöllinni í júlí 1987. Meðlimir sóttu einnig frumsýningu á James Bond-mynd- inni Logandi hræddur (The Living Daylights) en sveitin gerði titillag myndarinnar. – Hvað ertu að bralla um þessar mundir? „Núna eru fjögur ár að baki þar sem ég hef haft mikið að gera. Við (Morten, Paul og Magne) komum aftur saman og höfum gert tvær plötur og eina tónleikaplötu og far- ið í löng tónleikaferðalög. Núna þurfum við að taka okkur smáfrí hver frá öðrum og hugsanlega vinna eigin verkefni. Það er ein helsta ástæða þess að ég er hér núna og það er líklegt að ég komi hingað aftur innan tíðar,“ segir Morten en plöturnar sem a-ha hef- ur gert í seinni tíð, Minor Earth Major Sky og Lifelines, hafa hlotið góða dóma. Morgunblaðið hefur öruggar heimildir fyrir því að Morten sé í heimsókn hjá Gunnlaugi Briem trommuleikara, sem vinnur að sóló- plötu um þessar mundir og ekki óhugsandi að Morten eigi eftir að koma að gerð hennar. – Líkar þér vel að vera á Ís- landi? „Já, mér líkar vel að vera hér en ég fer ekki aðeins til staða sem mér líkar heldur fer til staða sem mér finnast áhugaverðir. Mér þarf ekk- ert endilega að líka þeir.“ – Ferðu þá til staða sem veita þér andagift? „Það er of mikil alhæfing. En ég er í skapi til að fylgjast með úr fjarlægð um þessar mundir og það hefur fært mig til Íslands.“ – Hlustarðu á íslenska tónlist? „Ég hlusta ekki á neina tónlist og hef í raun aldrei gert það. Ísland hefur eins og heimurinn hefur kynnst framleitt mjög áhugaverða tónlist og aðra list. En ég er ekki þannig, ég þrífst ekki á því að gleypa í mig list. Ég leita ekki að list heldur leita ég uppi líf. Ég hef áhuga á lífinu og legg mig ekki fram við að fylgjast með því nýj- asta í tónlistar-, lista- eða kvik- myndaheiminum. Það er ekki fyrir mig. Svona er ég bara,“ segir Mort- en, sem er sagður ekki hafa komist í tæri við popptónlist fyrr en hann varð 16 ára eða svo. Áður einbeitti hann sér að ástundun klassískrar tónlistar en hann lærði að spila á píanó fjögurra ára gamall og var al- inn upp við klassíska tónlist. „Það er ekkert slæmt við að fylgjast með og ég ber virðingu fyrir fólki sem gerir það. Ég verð bara að gera það sem ég þarf að gera og á eftir að komast að því innan tíðar í hvaða átt ég stefni.“ Morten Harket heimsótti Ísland Leita að lífi, ekki list Hljómsveitin a-ha var stofnuð árið 1982 í Noregi en hér eru Morten Harket, Magne Furuholmen og Paul Waaktaar á árinu 2000. Norska sveitin a-ha með Morten Harket í broddi fylkingar var ein vinsælasta popphljómsveit níunda áratugarins. Inga Rún Sigurðardóttir hitti hann á förnum vegi í Reykjavík. ingarun@mbl.is www.a-ha.com Morten á tónleikum árið 2002 en hann er heillandi sem endranær. 64 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ EPÓ Kvikmyndir.com Roger Ebert  AE. Dv  Skonrokk FM909 kl. 10.30. B.i. 16. Enskur texti Sýnd kl. 8. B.i. 16. Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna meðal annars besta mynd ársins Stórbrotin og mögnuð kvikmynd sem enginn Íslendingur má missa af. HJ. MBL Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5.45. Sýnd kl. 6 og 9. The Rolling Stone SV. Mbl „Fantavel leikin eðalmynd“ ÞÞ Fréttablaðið  ÓHT. Rás2 Magnþrungin erótísk spennumynd með Meg Ryan eins og þið hafið aldrei séð hana áður. Tónlist myndarinnar er eftir Hilmar Örn Hilmarsson Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Fráframleiðendum Four Weddings, Bridget Jones & Notting Hill Sjáið eina athyglisverðustu og mest sláandi mynd ársins. Kvikmyndir.isGH. Kvikmyndir.com  HJ.MBL Sýnd kl. 6 og 9. Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra dóma og viðtökur um allan heim. Tom Cruise hefur aldrei verið betri! Besti aðalleikari Tom Cruise Besti leikari í aukahlutverki Ken Watanabe Besta frumsamda tónlistin Hans Zimmer 3 Tilnefningar til Golden Globe verðlauna MEG RYAN MARK RUFFALO JENNIFER JASON LEIGH Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“ a film by JANE CAMPION  VG DV Hreyfir við áhorfandanum og skilur eitthvað eftir sig. Samleikur systkinanna er með ólíkindum. Hér leikur allt í höndunum á Hilmari, börn, fullorðnir, tónlist og myndmál” - ÞÞ Fréttablaðið 15.000 MANNS Á TVEIMUR VIKUM! Næstbesta opnun íslenskrar kvikmyndar frá upphafi! Magnþrungin erótísk spennumynd með Meg Ryan eins og þið hafið aldrei séð hana áður. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. KRINGLAN Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra dóma og viðtökur um allan heim. Tom Cruise hefur aldrei verið betri! Sjáið eina athyglisverðustu og mest sláandi mynd ársins. Besti aðalleikari Tom Cruise Besti leikari í aukahlutverki Ken Watanabe Besta frumsamda tónlistin Hans Zimmer 3 Tilnefningar til Golden Globe verðlauna EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.