Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 68

Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Fitulítil og freistandi Næring ekki refsing KVIKMYNDIN Kaldaljós hefur verið valin til þátttöku á Kvikmyndahátíðinni í Berlín í Panorama-flokki. Hátíðin er ein sú virtasta í kvikmyndaheiminum og fágætt að íslenskar myndir komist þarna að. „Það sem er svo frábært við þetta er tíma- setningin. Það er svo gott að fá vind í seglin í upphafi. Það uppörvar mann svo mikið,“ segir Hilmar Oddsson leikstjóri. /63 Ingvar E. Sigurðsson leikur hinn listræna Grím Hermundsson. Kaldaljós á Berlínarhátíðina OLÍUFÉLÖGIN Olís, Olíufélagið og Skelj- ungur, hafa öll hækkað eldsneytisverð á sjálfsafgreiðslustöðvum en félögin lækkuðu verðið í síðustu viku eftir að Atlantsolía hóf að selja bensín. Olís tók fyrsta skrefið að þessu sinni og hækkaði verðið á 95 oktana bensíni á svo- nefndum ÓB-stöðvum úr 92,50 krónum í 95,70 krónur og á dísilolíu úr 35 krónum í 40,60 krónur í fyrradag. Skeljungur og Esso hækkuðu eldsneyti síðan í dag. Kostar lítri af 95 oktana bensíni 96,9 krónur og lítrinn af dísilolíu kostar 41,8 krónur. Bensín á stöðvum Bensínorkunnar kostar áfram 92,40 krónur en bensínbirgðir Atlants- olíu eru þrotnar í bili. Bensínið hækkar GENGI hlutabréfa deCODE Genetics, móð- urfélags Íslenskrar erfðagreiningar, hækk- aði um rúm 14% á Nasdaq-hlutabréfamark- aðinum í New York í gær og endaði í 9,90 Bandaríkjadölum á hlut. Gengið hefur ekki verið hærra síðan í janúar 2002. Tæplega 1,4 milljónir hluta skiptu um hendur í viðskiptum gærdagsins, sem er töluvert meira en meðalviðskipti með hluta- bréf félagsins. Gengi deCODE hækkar um 14% Á VEFRITUM greiningardeildar KB-banka og Íslandsbanka í gær voru gagnrýnd kaup stjórnarmanna og annarra innherja í Eim- skipafélaginu á hlutabréfum í félaginu að und- anförnu. Í Hálffimmfréttum KB-banka sagði að í kjöl- far sölu Eimskipafélagsins á HB og ÚA á yf- irverði hefðu innherjar keypt töluvert magn hlutabréfa í félaginu í gær. „Þetta verður að teljast sérstaklega bagalegt í ljósi þess að fremur litlar upplýsingar hafa verið gefnar um söluna, t.d. vita markaðsaðilar ekki hversu mikið af skuldum félagsins fylgir hinum seldu una á HB og ÚA er tekið í sama streng og sagt að það sé miður hve takmarkaðar upplýsingar hluthafar og fjárfestar fá um viðskiptin. „Ekki liggur ljóst fyrir hvað var selt, hvernig greiðslum til Eimskipafélagsins verður háttað eða hvernig Eimskipafélagið hyggst verja af- rakstri sölunnar, t.d. til greiðslu skulda. Það er því ekki með góðu móti hægt að leggja mat á hvernig efnahagur félagsins mun líta út eftir viðskiptin,“ að því er sagði í Morgunkorni Ís- landsbanka. hlutum. Raunar verður að teljast undarlegt að félagið skuli ekki vera á athugunarlista Kaup- hallarinnar, þar sem ómögulegt er að átta sig á hvernig félag Eimskipafélagið verður í fram- tíðinni og hvort yfir höfuð það verður til, eftir umfjöllun undanfarinna daga,“ sagði í Hálf- fimmfréttum. Greiningardeild KB-banka segist ekki telja að viðskipti gærdagsins séu Eimskipafélaginu til framdráttar og að þau hljóti að vera því hvatning til að setja skýrari reglur um við- skipti innherja. Í Morgunkorni Íslandsbanka í gær um söl- Gagnrýna innherjavið- skipti í Eimskipafélaginu  Innherjaviðskipti/14 Verzlunarmannafélag Reykja- víkur ætlar að leggja fram svipaðar launakröfur og Flóa- bandalagið og Starfsgreina- sambandið í kjaraviðræðum sínum sem framundan eru. Það þýðir um 5% hækkun launa á ári fyrstu tvö árin og svo 4% hækkun á ári næstu tvö ár, en að lægstu mán- aðarlaun fari upp undir 130.000 krónur í lok fjögurra ára kjarasamnings, að sögn Gunnars Páls Pálssonar, for- manns VR. 40% töldu að fara ætti fram á hærri laun Í byrjun mánaðarins gerði Gallup könnun fyrir VR um áhersluatriði kjarasamninga og voru niðurstöðurnar kynntar í gærkvöldi. Gunnar Páll Pálsson, for- maður VR, segir að þeir áhersluþættir, sem lagðir hafi verið fram fyrir jól, hafi feng- ið víðtækan stuðning í könn- uninni. Einnig hafi komið fram að um 60% teldu að VR ætti að fara fram með sambærilegar kröfur og Flóabandalagið og Starfsgreinasambandið. Hins vegar væri athyglisvert að um 40% hefðu talið að VR hefði átt að fara fram með hærri kröfur. Gunnar Páll segir að könn- unin breyti engu um gang mála. „Við höldum okkar striki,“ segir hann. Lægstu laun verði um 130.000 krónur Formaður Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur HÆTTUÁSTANDI vegna snjóflóða var aflétt í gær á Siglufirði en nokkur hús voru rýmd þar í fyrra- kvöld vegna snjóflóðahættu. Að sögn snjóflóða- vaktar Veðurstofunnar ríkir enn viðbúnaðar- ástand á norðanverðum Vestfjörðum, Siglufirði og Ólafsfirði sem felur í sér að fylgst er með svæð- unum og var ráðgert að það ástand myndi vara a.m.k. í nótt. Dregið hefur úr vindi norðvestan- og vest- anlands en Veðurstofan gerir ráð fyrir áframhald- andi éljagangi norðan og austan til, einkum við ströndina en að létti til í innsveitum. Vindhraði á landinu verður á bilinu 8–13 m/s í dag en bætir í vind vestanlands síðdegis í dag, föstudag, og má reikna með að fari að snjóa síðdeg- is eða í kvöld. Í fyrrinótt sukku þrjár trillur í höfn- inni á Skagaströnd og hafa því fimm trillur sokkið í höfninni í illviðrinu frá því aðfaranótt þriðjudags. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er skafrenningur á fjallvegum á Snæfellsnesi, á Vest- fjörðum eru flestir vegir opnir og sama gildir um norðanverða Vestfirði. Hálka er á Holtavörðuheiði og Norðurlandi vestra. Flestar aðalleiðir eru opnar en víða er hált. Á Austfjörðum eru helstu leiðir færar nema Breiðdalsheiði sem var ófær en reikn- að er með að hún verði rudd í dag. Á Suðurlandi er hálka í uppsveitum en greiðfært með ströndinni og Hellisheiði er auð. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Bifreið grafin úr snjóskafli á Skagaströnd í gærdag. Spáð er áframhaldandi éljagangi norðan og austan til. Viðbúnaður á Vestfjörðum „EF þetta reynist ekki vera neitt er það mik- ill léttir,“ sagði Jónas Þorvaldsson, sprengju- sérfræðingur hjá Landhelgisgæslunni, þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gegnum gervihnattasíma í gærkvöld. Jónas starfar í Írak á vegum Íslensku friðargæslunnar og fann ásamt Adrian King verulegt magn af sprengjum fyrir viku sem var talið að inni- héldu sinnepsgas. Sprengjurnar hafa verið rannsakaðar og benda niðurstöðurnar til þess að ekki sé um efnavopn að ræða. „Þessar fyrstu niðurstöður sem við höfum fengið frá Ameríkönunum eru mikill léttir. Það er þorp þarna rétt hjá og það er svo óskapleg fátækt þarna að maður hefði eig- inlega ekki séð fram á hvernig þetta hefði orðið ef það hefði þurft að flytja alla í burtu þaðan.“ Jónas og Adrian starfa við hlið danskra hermanna og hafa nú verið í Írak í rúman mánuð. Alls eru sprengjusérfræðingarnir á svæðinu sex talsins og hafa 170 tonn af sprengjum verið hreinsuð þá þrjá mánuði sem danski herinn hefur verið í Írak. „Það er af nógu að taka, það er engin hætta á því að við verðum atvinnulausir hérna,“ segir Jónas. Jónas Þorvaldsson Sprengjusérfræðingum létt SÝNING Ólafs Elíassonar, Frost Activity, sem verður opnuð í Hafnarhúsinu 17. janúar, verður kostnaðarsamasta sýning sem Lista- safn Reykjavíkur hefur sett upp. Í gær var undirritaður samningur við Björgólf Thor Björgólfsson og Samson eignarhaldsfélag sem styrkja sýninguna. Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður safnsins, segir að um sé að ræða stærsta styrk einkaaðila til einstaks menningarverkefnis til þessa./4 Stærsti styrkur einkaaðila

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.