Morgunblaðið - 30.01.2004, Side 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2004 27
Smáauglýsing
með mynd
á aðeins 995 kr.*
Alla daga
Sími 569 1111 eða augl@mbl.is
*5 línur; tilboðið gildir til 1. mars 2004.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
22
76
4
0
1/
20
04
Í TILEFNI myndlistarsýningar
norsku veflistarkonunnar Siri Gjes-
dal í Norræna húsinu hélt Stav-
anger Vocalensemble frá Rogalandi
stutta hádegistónleika sl. laugar-
dag á sama stað. Þar eð kórinn kom
að sögn hingað með örskömmum
fyrirvara, var engin prentuð tón-
listarskrá tiltæk, heldur kynnti
kórstjórinn dagskráratriðin. Munn-
legum kynningum, ekki sízt á er-
lendu máli, fylgja þeir alkunnu
ókostir að ekki kemst allt jafnvel til
skila, og verða því eftirfarandi höf-
undanöfn og verkheiti að sæta fyr-
irvara um mögulega misheyrn.
Kammerkórinn var í upplýsinga-
plaggi sagður 24 manna, og því
ljóst að hann hafi mætt við hálfan
liðstyrk, þar eð söngvarar voru að-
eins 12 manns; raunar litlu færri en
hlustendur. Á móti glöddu litríku
rygsku þjóðbúningarnir óneitan-
lega augað. Uppstillingin var að því
leyti óvenjuleg að röddum var rað-
að S-B-T-A frá vinstri til hægri
með karla fyrir miðju. Fjarlægðin
milli sóprans og alts gerði þannig
að verkum að kvenraddir blönduð-
ust verr en karlaraddir, og var það
að því leyti bagalegra sem einn
sópraninn var mun raddsterkari en
hinir tveir, jafnvel þótt söngröddin
væri í sjálfu sér bráðfalleg (að blæ
ekki ólík Gondulu Janowitz upp á
sitt bezta), eins og vel mátti heyra í
7. atriði þar sem konan söng ein-
söng.
Meðal þeirra viðfangsefna sem
greindust í kynningu má nefna tvö
þegar klassísk kórverk eftir Knut
Nystedt, Laudate og Peace, I leave
with you. Negrasálmurinn I will
greatly rejoice var frísklegur og
gæddur óvenjulegum taktskiptum.
Norska þjóðlagið Pål sine høns
(Palli var úti með hænsnum í haga)
var kraftmikið og kryddað jojk-
kenndu viðlagstralli. Hið alkunna
Våren eftir Grieg var við hæfi dún-
blítt, þó að heyrast hefði mátt meir
í sópran 2 & 3. Síðast söng kórinn
Finasta jenta eftir Johan Kvandal
undir glaðlega skoppandi Halling-
hrynjandi; þjóðlegt og tært í senn.
Hljómur kórsins var stöku sinni
ofurlítið hráslagalegur í karlrödd-
um á forte, en að öðru leyti vel tón-
hreinn, samtaka og jafn í styrk.
Trúlega hefði hann getað hljómað
enn samfelldar í hefðbundnari upp-
stillingu – einkum miðað við nálægð
litla salarins er hér um ræðir. Hins
vegar skorti greinilega hvorki fág-
un, kraft né sönggleði undir auð-
særri fagmannlegri stjórn Ander-
sens.
Tveir miklir Rússar
Tryggir hlustendur Kammer-
músíkklúbbsins fylltu nærri því Bú-
staðakirkju eina ferðina enn á
sunnudagskvöld. Þó mun sá galli á
gjöf Njarðar hvað líkamar áhuga-
samra áheyrenda deyfa ómun húss-
ins. Hljóta margir að hafa velt fyrir
sér hvort ekki mætti draga úr þeim
annmarka með því einfaldlega að
fjarlægja teppi guðshússins, a.m.k.
að hluta.
Tvö rússnesk stórtónskáld voru á
boðstólum á tónleikum Camerarct-
icu þetta kvöld. Efstur á blaði var
Dmitri Sjostakovitsj með Strengja-
kvartett nr. 8 í c-moll frá 1960.
Þetta er einn þekktasti hinna fimm-
tán strokkvartetta sovézka meist-
arans, sem auk Bela Bartóks (og
hugsanlega Vagns Holmboes) lagði
bitastæðast í sjóð drottningar
kammertóngreina á 20. öld. Kvart-
ettinn var að sögn tónleikaskrárrit-
ara (sem að ósekju hefði mátt fjalla
aðeins meir um sjálft verkið) sam-
inn í listaborginni Dresden 1960,
fórnarlambi einhverrar hörkuleg-
ustu og tilgangslausustu loftárásar
í allri seinni heimsstyrjöld rétt fyr-
ir stríðslok, og því mótaður af skilj-
anlegum viðbjóði á tæknivæddri
grimmd mannskepnunnar.
Til marks um persónulega af-
stöðu höfundar er stefjaefni verks-
ins frá byrjun til enda gegnsýrt
tónrænu fangamarki hans D-Es-
C-H (= D. Sch[ostakowitsch]).
Fimmþætt verkið er að mörgu leyti
sérkennilegt, m.a. fyrir þrjá largo-
þætti, og hefur löngum þótt fyr-
irmyndardæmi um magnaðan
áhrifamátt innblásins einfaldleika.
Camerarctica fjórmenningar
léku þetta hnitmiðaða snilldarverk
af músíkalskri innlifun, þótt flutn-
ingurinn væri heldur í varfærnara
lagi og með vaðið fyrir neðan sig í
hraðavali II. og III. þáttar (Allegro
molto og Allegretto). Hrynræn
samstilling var þó víðast hvar snörp
– nema í „þrí-stuðunum“ örlaga-
þrungnu í III er náðu ekki öll sam-
an. Líkt og með hinn fræga píanó-
kvintett Dmitris er 8. kvartettinn
af þeirri gæðagráðu að geta boðið
upp á ólíkustu túlkanir, enda eft-
irtektarvert hvað frekar lág-
stemmd nálgun hópsins náði að
skila miklu, miðað við blóði drifn-
ustu útgáfur í framboði.
Pjotr Iljitsj Tsjækovskíj samdi
aðeins eitt píanótríó um ævina. Að
sögn hafði hann litla trú á sam-
hljómi píanós og strokhljóðfæra, og
því einkennilegt að ráðast til atlögu
við þessa líklega vandmeðförnustu
grein slíks samspils, þar sem
nútímaflygillinn á til að kaffæra
fiðluna og þó einkum sellóið, í stað
miklu jafnvægari áhafna píanó-
kvartetts eða -kvintetts. Á hinn
bóginn er Tríóið í a-moll frá 1882
(kostað af velgjörðarkonu
Tjækovsíjs, járnbrautakóngsekkj-
unni Nadesjdu von Meck) trúlega
meðal þeirra lengstu úr hendi
klassísk-rómantíska höfuðtón-
skálda, þótt aðeins í tveim þáttum
sé. Í hérumræddum flutningi stóð
það fullar 57 mín., og rifjaðist
ósjálfrátt upp þriggja kortéra lang-
ur f-moll píanókvintett Césars
Francks, sem fluttur var hér fyrir
ári og ætlaði aldrei enda að taka.
En ólíkt belgíska verkinu hélt
maraþontríó Rússans athygli
manns alla leið, jafnvel þótt
Tjæskovskíj hafi sjálfur gefið vil-
yrði um styttingar upp á drjúgar 10
mínútur. Eftir því að dæma virtist
hann ekki allskostar sannfærður
um ágæti verksins, frekar en marg-
ir flytjendur fyrri ára er slepptu
m.a. fúgunni (8. tilbrigði) úr II.
þætti. Svo er þó ekki lengur, og þó
að hópurinn ætti framan af í basli
með að brúa tiltekið reynsluleysi
tónskáldsins, ef marka má hvað
slagharpan lét hart á akkorðum
undir fingurgóma Arnar Magnús-
sonar og yfirgnæfði oft frekar hníp-
inn strengjaleik Hildigunnar og
Sigurðar Halldórsbarna, náðist
hins vegar áberandi betra jafnvægi
þegar leið á seinni þáttinn, Tema
con variazioni, um stef í þriggja
takta hendingum er vel gæti verið
rússneskt þjóðlag.
Margt gat þar eftirminnilegt að
heyra, t.d. kristalsklingjandi
klukkuspilið í 5. tilbrigði ofan á
kyrrlægum strengjabordúnum.
Listrænu hámarki náði hópurinn þó
í 9. tilbrigðinu, er einkennist af
ítrekuðum hnígandi píanórunum á
móti líðandi strengjastrokum con
sordino, og því 10., nærri því Grieg-
legum mazúrka með hjarðsælum
unaðsblæ. 11. og síðasta tilbrigðið
var afar úthaldskræft og kannski
ekki nema von að fykju nokkrar
finkur í leiðinni, enda með afbrigð-
um þykkildislega skrifað. Hitt var
þó ljóst að þremenningarnir höfðu
unnið þrekvirki með þessum flutn-
ingi og mikið lagt í sölurnar fyrir
aðeins eina tónleika. Þótt varla sé
það annars einsdæmi á dvergvöxn-
um kammertónlistarmarkaði
Frónbúans.
Söngelskir Rygir á þjóðbúningum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðmundur Kristmundsson, Örn Magnússon, Sigurður og Hildigunnur Halldórsbörn og Sigurlaug Eðvaldsdóttir.
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Norræna húsið
KÓRTÓNLEIKAR
Norsk kórlög eftir m.a. Nystedt, Grieg og
Kvandal. Stavanger Vocalensemble u.
stj. Jørns Snorre Andersen. Laugardag-
inn 24. janúar kl. 13.
Bústaðakirkja
KAMMERTÓNLEIKAR
Sjostakovitsj: Strengjakvartett nr. 8 í c
Op. 110. Tsjækovskíj: Píanótríó í a Op.
50. Félagar úr kammerhópnum Camer-
arctica: Hildigunnur Halldórsdóttir & Sig-
urlaug Eðvaldsdóttir fiðlur, Guðmundur
Kristmundsson víóla, Sigurður Hall-
dórsson selló, Örn Magnússon píanó.
Sunnudaginn 25. janúar kl. 20.