Morgunblaðið - 30.01.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.01.2004, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2004 27 Smáauglýsing með mynd á aðeins 995 kr.* Alla daga Sími 569 1111 eða augl@mbl.is *5 línur; tilboðið gildir til 1. mars 2004. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M O R 22 76 4 0 1/ 20 04 Í TILEFNI myndlistarsýningar norsku veflistarkonunnar Siri Gjes- dal í Norræna húsinu hélt Stav- anger Vocalensemble frá Rogalandi stutta hádegistónleika sl. laugar- dag á sama stað. Þar eð kórinn kom að sögn hingað með örskömmum fyrirvara, var engin prentuð tón- listarskrá tiltæk, heldur kynnti kórstjórinn dagskráratriðin. Munn- legum kynningum, ekki sízt á er- lendu máli, fylgja þeir alkunnu ókostir að ekki kemst allt jafnvel til skila, og verða því eftirfarandi höf- undanöfn og verkheiti að sæta fyr- irvara um mögulega misheyrn. Kammerkórinn var í upplýsinga- plaggi sagður 24 manna, og því ljóst að hann hafi mætt við hálfan liðstyrk, þar eð söngvarar voru að- eins 12 manns; raunar litlu færri en hlustendur. Á móti glöddu litríku rygsku þjóðbúningarnir óneitan- lega augað. Uppstillingin var að því leyti óvenjuleg að röddum var rað- að S-B-T-A frá vinstri til hægri með karla fyrir miðju. Fjarlægðin milli sóprans og alts gerði þannig að verkum að kvenraddir blönduð- ust verr en karlaraddir, og var það að því leyti bagalegra sem einn sópraninn var mun raddsterkari en hinir tveir, jafnvel þótt söngröddin væri í sjálfu sér bráðfalleg (að blæ ekki ólík Gondulu Janowitz upp á sitt bezta), eins og vel mátti heyra í 7. atriði þar sem konan söng ein- söng. Meðal þeirra viðfangsefna sem greindust í kynningu má nefna tvö þegar klassísk kórverk eftir Knut Nystedt, Laudate og Peace, I leave with you. Negrasálmurinn I will greatly rejoice var frísklegur og gæddur óvenjulegum taktskiptum. Norska þjóðlagið Pål sine høns (Palli var úti með hænsnum í haga) var kraftmikið og kryddað jojk- kenndu viðlagstralli. Hið alkunna Våren eftir Grieg var við hæfi dún- blítt, þó að heyrast hefði mátt meir í sópran 2 & 3. Síðast söng kórinn Finasta jenta eftir Johan Kvandal undir glaðlega skoppandi Halling- hrynjandi; þjóðlegt og tært í senn. Hljómur kórsins var stöku sinni ofurlítið hráslagalegur í karlrödd- um á forte, en að öðru leyti vel tón- hreinn, samtaka og jafn í styrk. Trúlega hefði hann getað hljómað enn samfelldar í hefðbundnari upp- stillingu – einkum miðað við nálægð litla salarins er hér um ræðir. Hins vegar skorti greinilega hvorki fág- un, kraft né sönggleði undir auð- særri fagmannlegri stjórn Ander- sens. Tveir miklir Rússar Tryggir hlustendur Kammer- músíkklúbbsins fylltu nærri því Bú- staðakirkju eina ferðina enn á sunnudagskvöld. Þó mun sá galli á gjöf Njarðar hvað líkamar áhuga- samra áheyrenda deyfa ómun húss- ins. Hljóta margir að hafa velt fyrir sér hvort ekki mætti draga úr þeim annmarka með því einfaldlega að fjarlægja teppi guðshússins, a.m.k. að hluta. Tvö rússnesk stórtónskáld voru á boðstólum á tónleikum Camerarct- icu þetta kvöld. Efstur á blaði var Dmitri Sjostakovitsj með Strengja- kvartett nr. 8 í c-moll frá 1960. Þetta er einn þekktasti hinna fimm- tán strokkvartetta sovézka meist- arans, sem auk Bela Bartóks (og hugsanlega Vagns Holmboes) lagði bitastæðast í sjóð drottningar kammertóngreina á 20. öld. Kvart- ettinn var að sögn tónleikaskrárrit- ara (sem að ósekju hefði mátt fjalla aðeins meir um sjálft verkið) sam- inn í listaborginni Dresden 1960, fórnarlambi einhverrar hörkuleg- ustu og tilgangslausustu loftárásar í allri seinni heimsstyrjöld rétt fyr- ir stríðslok, og því mótaður af skilj- anlegum viðbjóði á tæknivæddri grimmd mannskepnunnar. Til marks um persónulega af- stöðu höfundar er stefjaefni verks- ins frá byrjun til enda gegnsýrt tónrænu fangamarki hans D-Es- C-H (= D. Sch[ostakowitsch]). Fimmþætt verkið er að mörgu leyti sérkennilegt, m.a. fyrir þrjá largo- þætti, og hefur löngum þótt fyr- irmyndardæmi um magnaðan áhrifamátt innblásins einfaldleika. Camerarctica fjórmenningar léku þetta hnitmiðaða snilldarverk af músíkalskri innlifun, þótt flutn- ingurinn væri heldur í varfærnara lagi og með vaðið fyrir neðan sig í hraðavali II. og III. þáttar (Allegro molto og Allegretto). Hrynræn samstilling var þó víðast hvar snörp – nema í „þrí-stuðunum“ örlaga- þrungnu í III er náðu ekki öll sam- an. Líkt og með hinn fræga píanó- kvintett Dmitris er 8. kvartettinn af þeirri gæðagráðu að geta boðið upp á ólíkustu túlkanir, enda eft- irtektarvert hvað frekar lág- stemmd nálgun hópsins náði að skila miklu, miðað við blóði drifn- ustu útgáfur í framboði. Pjotr Iljitsj Tsjækovskíj samdi aðeins eitt píanótríó um ævina. Að sögn hafði hann litla trú á sam- hljómi píanós og strokhljóðfæra, og því einkennilegt að ráðast til atlögu við þessa líklega vandmeðförnustu grein slíks samspils, þar sem nútímaflygillinn á til að kaffæra fiðluna og þó einkum sellóið, í stað miklu jafnvægari áhafna píanó- kvartetts eða -kvintetts. Á hinn bóginn er Tríóið í a-moll frá 1882 (kostað af velgjörðarkonu Tjækovsíjs, járnbrautakóngsekkj- unni Nadesjdu von Meck) trúlega meðal þeirra lengstu úr hendi klassísk-rómantíska höfuðtón- skálda, þótt aðeins í tveim þáttum sé. Í hérumræddum flutningi stóð það fullar 57 mín., og rifjaðist ósjálfrátt upp þriggja kortéra lang- ur f-moll píanókvintett Césars Francks, sem fluttur var hér fyrir ári og ætlaði aldrei enda að taka. En ólíkt belgíska verkinu hélt maraþontríó Rússans athygli manns alla leið, jafnvel þótt Tjæskovskíj hafi sjálfur gefið vil- yrði um styttingar upp á drjúgar 10 mínútur. Eftir því að dæma virtist hann ekki allskostar sannfærður um ágæti verksins, frekar en marg- ir flytjendur fyrri ára er slepptu m.a. fúgunni (8. tilbrigði) úr II. þætti. Svo er þó ekki lengur, og þó að hópurinn ætti framan af í basli með að brúa tiltekið reynsluleysi tónskáldsins, ef marka má hvað slagharpan lét hart á akkorðum undir fingurgóma Arnar Magnús- sonar og yfirgnæfði oft frekar hníp- inn strengjaleik Hildigunnar og Sigurðar Halldórsbarna, náðist hins vegar áberandi betra jafnvægi þegar leið á seinni þáttinn, Tema con variazioni, um stef í þriggja takta hendingum er vel gæti verið rússneskt þjóðlag. Margt gat þar eftirminnilegt að heyra, t.d. kristalsklingjandi klukkuspilið í 5. tilbrigði ofan á kyrrlægum strengjabordúnum. Listrænu hámarki náði hópurinn þó í 9. tilbrigðinu, er einkennist af ítrekuðum hnígandi píanórunum á móti líðandi strengjastrokum con sordino, og því 10., nærri því Grieg- legum mazúrka með hjarðsælum unaðsblæ. 11. og síðasta tilbrigðið var afar úthaldskræft og kannski ekki nema von að fykju nokkrar finkur í leiðinni, enda með afbrigð- um þykkildislega skrifað. Hitt var þó ljóst að þremenningarnir höfðu unnið þrekvirki með þessum flutn- ingi og mikið lagt í sölurnar fyrir aðeins eina tónleika. Þótt varla sé það annars einsdæmi á dvergvöxn- um kammertónlistarmarkaði Frónbúans. Söngelskir Rygir á þjóðbúningum Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðmundur Kristmundsson, Örn Magnússon, Sigurður og Hildigunnur Halldórsbörn og Sigurlaug Eðvaldsdóttir. Ríkarður Ö. Pálsson TÓNLIST Norræna húsið KÓRTÓNLEIKAR Norsk kórlög eftir m.a. Nystedt, Grieg og Kvandal. Stavanger Vocalensemble u. stj. Jørns Snorre Andersen. Laugardag- inn 24. janúar kl. 13. Bústaðakirkja KAMMERTÓNLEIKAR Sjostakovitsj: Strengjakvartett nr. 8 í c Op. 110. Tsjækovskíj: Píanótríó í a Op. 50. Félagar úr kammerhópnum Camer- arctica: Hildigunnur Halldórsdóttir & Sig- urlaug Eðvaldsdóttir fiðlur, Guðmundur Kristmundsson víóla, Sigurður Hall- dórsson selló, Örn Magnússon píanó. Sunnudaginn 25. janúar kl. 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.