Morgunblaðið - 30.01.2004, Side 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2004 47
STJÓRNIR Sálfræðingafélags Ís-
lands og Stéttarfélags sálfræðinga á
Íslandi mótmæla eindregið skerð-
ingu á sálfræðiþjónustu á Landspít-
ala – háskólasjúkrahúsi:
„Samkvæmt upplýsingum frá
LSH mun vera um 12% niðurskurð á
stöðum sálfræðinga að ræða eða sem
nemur 4 stöðugildum. Þjónusta sál-
fræðinga, sem veitt er samkvæmt
lögum um heilbrigðisþjónustu, er
mikilvægur þáttur í þeirri heildar-
þjónustu sem almenningur sækir til
spítalans. Þjónustan snýr að mörg-
um þáttum, bæði greiningu, meðferð
og rannsóknum. Hún lýtur að mörg-
um hópum, börnum, unglingum og
fullorðnum. Starfsvettvangur sál-
fræðinga á LSH er umfangsmikill og
þeir starfa á flestum sviðum spítal-
ans.
Þróun heilbrigðisþjónustu hér á
landi hefur verið með sama hætti og í
nágrannalöndum okkar. Lögð er
áhersla á samvinnu fagstétta og gerð
er krafa um sérhæfða og hagkvæma
þjónustu. Slík þjónusta byggist með-
al annars á greiðum aðgangi fólks að
sálfræðiþjónustu á sjúkrahúsum, á
heilsugæslustöðvum og hjá sjálf-
stætt starfandi sálfræðingum.
Það skýtur skökku við að skera
niður störf sálfræðinga þegar vitað
er að sálfræðiþjónusta er fjárhags-
lega hagkvæm og getur dregið úr
kostnaði annars staðar í heilbrigð-
iskerfinu.“
Mótmæla
skertri sál-
fræðiþjónustu
ÁÆTLAÐ er að ferjan Norræna
muni hefja siglingar á ný 20. mars
næstkomandi, en nú er unnið að við-
gerðum á ferjunni eftir að hún rakst
á hafnargarðinn í Þórshöfn fyrr í
mánuðinum.
Tjónið á skipinu er metið á um 116
milljónir króna, segir Kári Durhuus,
fjölmiðlafulltrúi Smyril Line í Fær-
eyjum, auk tekjutaps fyrir Smyril
line vegna þess að fella þarf niður
siglingar. Fyrirtækið er tryggt fyrir
tapinu en þarf að bera nokkra eig-
ináhættu.
Var í fyrstu vetrarsiglingunni
Skipta þarf um blöðin á bakborðs-
skrúfunni og er áætlað að það taki
sjö til átta vikur, auk þess sem gera
þarf við skemmdir á skrokk skips-
ins. Gert var við göt á síðu skipsins
til bráðabirgða og var skipinu svo
siglt til Hamborgar. Skipið kom
þangað á mánudag og var það tekið í
slipp hjá skipasmíðastöðinni Blohm
og Voss.
Norræna rakst á röð skerja þegar
óvæntur vindstrengur lenti á skip-
inu þegar það var að leggja að
bryggju í Þórshöfn 15. janúar sl.,
þegar hún var að koma úr sinni
fyrstu vetrarsiglingu frá Seyðisfirði.
Þegar skipstjórinn reyndi að leggja
að bryggju öðru sinni rakst skipið á
hafnarbakkann og kom annað gat á
síðuna.
Áætlað hafði verið að Norræna
færi í viðhaldsskoðun síðustu vikuna
í apríl en það verður gert meðan á
biðinni stendur svo skipið þarf ekki
að fara í skoðun í apríl.
Kári segir að gamla ferjan verði
notuð áfram á meðan sú nýja er í
viðgerð, en útgerðin hafði hug á að
selja gömlu ferjuna áður en óhappið
varð.
Ljósmynd/Dimmalætting/Kalmar
Tjónið á
Norrænu yfir
100 milljónir
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Frakkastígur 12a, 0204, Reykjavík, þingl. eig. Arnar Sveinsson, gerð-
arbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður sjómanna, Tollstjóra-
embættið og Tryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 3. febrúar 2004
kl. 15:30.
Háaleitisbraut 24, 0401, Reykjavík, þingl. eig. Ólafur Ottó Erlendsson
og Lóa Edda Eggertsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 3. febrúar 2004 kl. 15:00.
Hringbraut 47, 0202, Reykjavík, þingl. eig. Ágúst Kárason, gerðarbeið-
endur Íbúðalánasjóður, Margrét Sigrún Þórólfsdóttir og Sparisjóður
Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 3. febrúar 2004 kl. 10:30.
Kringlan 8, 0126, Reykjavík, þingl. eig. Félag húseigenda Kringlunnar
8-12, gerðarbeiðandi Rekstrarfélag Kringlunnar, þriðjudaginn
3. febrúar 2004 kl. 13:30.
Skipholt 19, 010301, Reykjavík, þingl. eig. Rungnapa Channakorn,
gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður verslunarmanna, Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú og
Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 3. febrúar 2004 kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
29. janúar 2004.
Í kvöld kl. 20.30 vera þeir Jón L.
Arnalds og Birgir Bjarnason
með umræður í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Á morgun, laugardag, er opið
hús kl. 15-17 með fræðslu og
umræðum, kl. 15.30 í umsjá Páls
J. Einarssonar: „Gopi Krishna
og skammtafræðileg virkni
kundalini“.
Hugræktarnámskeið Guðspeki-
félagsins verður framhaldið
fimmtudaginn 5. febrúar kl.
20.30 í umsjá Önnu S. Bjarna-
dóttur: „Jóga og slökun”.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 1841307½ Þb
I.O.O.F. 1 1841308 8½.O
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Árgerði, eignarhl., L- Árskógssandi, Dalvíkurbyggð (215-6699), þingl.
eig. Guðmundur Már Sigurbjörnsson, gerðarbeiðendur Point Trans-
action Syst Ísl. ehf. og sýslumaðurinn á Akureyri, fimmtudaginn
5. febrúar 2004 kl. 10.30.
Glerá lóð nr. 1, íb. 01-0101, Akureyri (214-4483), þingl. eig. Einar
Arnarson, gerðarbeiðendur Greiðslumiðlun hf., Íbúðalánasjóður
og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 4. febrúar 2004
kl. 10.00.
Hafnarstræti 77, íb. 01-0301, Akureyri, þingl. eig. Rolf Jonny Ingvar
Svard, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 4. febrúar
2004 kl. 10.30.
Hinriksmýri, Dalvíkurbyggð (215-6708) , þingl. eig. Baldvin Pétursson,
gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Húsasmiðjan hf., fimmtudaginn
5. febrúar 2004 kl. 11.10.
Hjallalundur 11d, 030301, Akureyri, þingl. eig. Sólrún Helgadóttir,
gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Háteigsskóli, Íbúðalánasjóður
og Kaldbakur fjárfestingafélag hf., miðvikudaginn 4. febrúar 2004
kl. 11.45.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
29. janúar 2004.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
ATVINNA
mbl.is
Söluverðmæti hlutabréfa
Söluverðmæti hlutabréfa Mörthu
Stewart í líftæknifyrirtækinu Im-
Clone, sem sagt var frá í grein í
blaðinu í gær, var rangt upp reiknað.
Hið rétta verðmæti bréfanna sem
Martha seldi er samkvæmt FT.com
250.000 Bandaríkjadalir sem er að
andvirði um 17,4 milljónir króna.
Þá var ranglega sagt að hjartalyfi
frá ImClone hefði verið hafnað. Hið
rétta er að um var að ræða krabba-
meinslyf. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Afkoma versnar
Í frétt í viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í gær var rangt farið með
áætlanir Sparisjóðs Keflavíkur fyrir
árið 2004. Hið rétta er að áætlanir
fyrir árið 2004 gera ekki ráð fyrir
eins góðri afkomu og árið 2003 og
skýrist það einkum af þeim gengis-
hagnaði sem varð af annarri fjár-
málastarfsemi árið 2003.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
FERÐAMÁLARÁÐ Íslands, Ung-
mennafélag Íslands og Landmæl-
ingar Íslands undirrituðu á Grand
hóteli í gær samstarfssamning um
gerð og rekstur gagnagrunns um
gönguleiðir á Íslandi. Stefnt er að
því að opna gagnagrunninn 1. maí
og verður hann aðgengilegur á
vefnum www.ganga.is. Til að byrja
með er gert ráð fyrir upplýsingum
um að minnsta kosti 500 gönguleið-
ir og kort af um 150 leiðum á þessu
ári, en um safnvef verður að ræða
og efni stöðugt bætt við.
„Við bindum ákaflega miklar
vonir við þetta verkefni,“ sagði Ein-
ar K. Guðfinnsson, alþingismaður
og formaður Ferðamálaráðs, við
undirskrift samningsins, og vísaði
m.a. til þess að gott aðgengi hefði
mikið að segja í því að laða sem
flesta til ferða um landið. Hann
benti á að samkvæmt nýlegri könn-
un segðust tveir þriðju Íslendinga,
sem ferðuðust um landið, sækjast
eftir gönguleiðum og gönguferð-
um. „Forsenda fyrir öflugri ferða-
þjónustu er uppbygging göngu-
leiða, merking þeirra og það að
geta haft aðgang að slíku á einum
stað.“
Í verkefninu eru gönguleiðir skil-
greindar sem leiðir sem tekur að
minnsta kosti tvær stundir að
ganga. Markmið verkefnisins er að
stuðla enn frekar að uppbyggingu
gönguleiða á Íslandi og aðgengi að
þeim ásamt því að hvetja fólk til að
ganga um landið og kynnast því á
heilsusamlegan hátt.
Víða um land hefur verið unnið
að skráningu upplýsinga um
gönguleiðir og í þessu verkefni sér
Ferðamálaráð um að safna þessum
upplýsingum saman. UMFÍ sér um
gerð vefjarins og Landmælingar
útbúa kortin. Magnús Guðmunds-
son, forstjóri Landmælinga Íslands,
sagði ljóst að landsmenn hefðu sýnt
kortum aukinn áhuga og nefndi í
því sambandi að Landmælingar
hefðu selt meira en 20.000 diska
með upplýsingaefni um landið, en
þetta verkefni væri kjörin leið til að
auka enn samskiptin við fólkið.
Björn B. Jónsson, formaður
UMFÍ, tók í sama streng. Hann
sagði að átaki UMFÍ þess efnis að fá
fólk til að ganga reglulega hefði
verið mjög vel tekið og handbók-
inni Göngum um Ísland hefði verið
dreift í tugum þúsunda eintaka en
um 5.000 manns hefðu skráð sig í
gestabækur á toppi valdra fjalla.
Þetta verkefni væri framhald á
þessu starfi og um stóran dag væri
að ræða. „Við hugsum til umhverf-
isins,“ sagði hann og bætti við að
með þessu verkefni gæfist kjörið
tækifæri fyrir alla til að fara út að
ganga. Einnnig mætti líta á þetta
sem viðleitni til þess að halda niðri
kostnaði við heilbrigðisþjónustuna
á Íslandi, því lækka mætti kostn-
aðinn með því að gera Íslendinga
heilbrigðari.
Gagnagrunnur um gönguleiðir á Íslandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gagnagrunnur og vefur um gönguleiðir: Frá undirritun samstarfssamnings, frá vinstri: Elías B. Gíslason, for-
stöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálaráðs, Alda Þrastardóttir verkefnastjóri, Sæmundur Runólfs-
son, framkvæmdastjóri UMFÍ, Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga
Íslands, Einar K. Guðfinnsson, formaður Ferðamálaráðs, og Magnús Oddsson ferðamálastjóri.
Félag áhugafólks um heima-
fæðingar heldur fund mánudag-
inn 2. febrúar kl. 20. í Kvenna-
garði á 4. hæð í Kjörgarðshúsinu
við Laugaveg 59 (gengið inn úr
porti við Hverfisgötu).
Á fundinum verður rætt hvers
vegna fæðing í heimahúsum er
vænlegur kostur fyrir verðandi
mæður, konur miðla reynslu sinni
og sýnd verða myndbönd af ís-
lenskum heimafæðingum. Jafn-
framt verða umræður um stöðu
ljósmæðra sem taka á móti börn-
um í heimahúsum.
Íslenska fyrir útlendinga í THÍ
Frumgreinadeild Tækniháskóla
Ísland, THÍ býður nú upp á nám-
skeið í íslensku fyrir útlendinga, 1.
og 2. stig. Kennsla fer fram í
húsakynnum skólans að Höfða-
bakka 9 og hefst þriðjudaginn 3.
febrúar. Innritun stendur yfir á
skrifstofu skólans og lýkur 2. febr-
úar. Nánari upplýsingar um
kennslutilhögun og verð má fá í
síma eða á heimasíðu skólans
www.thi.is.
Á NÆSTUNNI