Morgunblaðið - 30.01.2004, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 2004 49
BRAGI Þorfinnsson (2.380) er
efstur á Skákþingi Reykjavíkur þeg-
ar átta umferðum af ellefu er lokið og
hefur eins vinnings forskot á næstu
menn. Mótið hefur verið mjög
spennandi. Eftir fimm umferðir
deildu sex skákmenn efsta sætinu,
en síðan hafa línur smám saman ver-
ið að skýrast, þótt enn berjist margir
um efsta sætið. Davíð Kjartansson
(2.267) náði forystunni í sjöttu um-
ferð, en Bragi var þá hálfum vinningi
á eftir honum. Þeir mættust síðan í
sjöundu umferð og Bragi náði for-
ystu á mótinu með sigri í þeirri skák.
Bragi sigraði síðan Björn Þorsteins-
son (2.224) í áttundu umferð sem
tefld var á miðvikudagskvöld. Staða
efstu manna:
1. Bragi Þorfinnsson 7 v.
2.–5. Jón Viktor Gunnarsson,
Sævar Bjarnason, Davíð Kjartans-
son, Júlíus Friðjónsson 6 v.
6.–7. Dagur Arngrímsson, Krist-
ján Eðvarðsson 5½ v.
8.–12. Björn Þorsteinsson, Helgi
E. Jónatansson, Heimir Ásgeirsson,
Guðmundur Kjartansson, Haraldur
Baldursson 5 v.
13.–15. Jónas Jónasson, Rúnar
Gunnarsson,
Helgi Brynjars-
son 4½ v.
16.–25. Hall-
dór Pálsson, Þór-
ir Benediktsson,
Magnús Magn-
ússon, Valgarð
Ingibergsson,
Kjartan Maack,
Gylfi Davíðsson,
Ingi Tandri Traustason, Sveinn Arn-
arsson, Helgi Jason Hafsteinsson,
Svanberg Már Pálsson 4 v.
o.s.frv. Nokkuð er um frestaðar
skákir sem haft geta áhrif á stöðuna.
Hvítt: Bragi Þorfinnsson
Svart: Davíð Kjartansson
Drottningarbragð
1. d4 e6 2. c4 Rf6 3. Rc3 d5 4. Rf3
Be7 5. cxd5 exd5 6. Bg5 c6 7. Dc2
0–0 8. e3 h6 9. Bf4 He8 10. Bd3 Rbd7
11. h3 Rf8 12. 0–0 Bd6 13. Bxd6 –
Eða 13. Re5 Re6 14. Bg3 c5 15.
Rb5 Bf8 16. dxc5 Rxc5 17. Rxf7 Kxf7
18. Bg6+ Kg8 19. Rc7 He6 20. Rxa8
Hc6 21. Hfc1 Bd7 22. Rc7 Rce4 23.
Bxe4 Hxc2 24. Bxc2 Bc6 25. Re6 De8
26. Rd4 og hvítur á betra tafl (Tal-
Adianto, Reykjavíkurskákmótinu
1986).
13. … Dxd6 14. Hab1 a5
Í skákinni, Browne-Tómas
Björnsson, Reykjavíkurskákmótinu
1990, varð framhaldið 14. … Be6 15.
b4 R8d7 16. Ra4 b5 17. Rc5 Rxc5 18.
dxc5 Dc7 19.Rd4 a5 20.a4 bxa4 21.b5
cxb5 22. Bxb5 Hec8 23. c6 og hvítur
stendur betur.
15. a3 –
Sjá stöðumynd 1
15. … De6?!
Það er nýtt að leika drottningunni
á e6, en þar stendur hún ekki vel.
Þekkt er að leika 15. … R8d7 16.
b4 axb4 17. axb4 b5 18. e4 dxe4 19.
Rxe4 Dd5 20. Rc3 Dd6 21. Hfd1 Rd5
22. Re4 De6 23. He1 og hvítur stend-
ur betur (Noren-Vukotic, Lansing
1989).
16. b4 –
Áætlun hvíts í þessari byrjun er
einföld. Hann leikur b5 og bxc6 og
sækir síðan að veiku peði svarts á c6.
Það er ekki auðvelt fyrir svart að
verjast þessu, nema honum takist að
skapa sér mótvægi á miðborðinu, eða
kóngsvæng, en Davíð tekst það ekki í
þessari skák.
16. – axb4 17. axb4 Re4 18. Rxe4 –
Einnig kemur til greina að leika
18. Ha1 Hxa1 19. Hxa1 Rg6 20. Ha8
Rxc3 21. Dxc3 Df6 22. Dc5, með
betra tafli fyrir hvít.
18. … dxe4 19. Bc4 De7
Eftir 19. … Dg6 20. Re5 Hxe5 21.
dxe5 Bxh3 22. f4! hefur svartur tæp-
lega nægar bætur fyrir skiptamunin,
sem hann er búinn að fórna.
20. Re5 Be6 21. b5 f6 22. Bxe6+ –
Önnur athyglisverð leið er 22.
bxc6!? fxe5 23. d5 Bf7 24. Hxb7 Dd6
25. Dxe4 o.s.frv.
22. … Dxe6 23. Rc4 cxb5?!
Eftir 23. … Rd7 eða 23. – g6 24.
bxc6 bxc6 situr svartur uppi með
veika peðið á c6. Það er þó skárra en
leiðin, sem hann velur í skákinni, því
að hvíta peðið á d4 á nú greiða leið
fram borðið.
24. Hxb5 Hec8 25. d5! Da6 26.
Db3 Hab8 27. Hb1 Rd7 28. Db4 –
Sjá stöðumynd 2
28. … Da2
Þessi tilraun til mótspils skilar
engu, en svartur á ekki betri leik, t.d.
28. … f5 29. Rd6 (29. De7 Hxc4 30.
Dxd7, ásamt 31. Hxb7) Hf8 30. Rxb7
o.s.frv.
29. Rd6 Hc2 30. Rxe4 Hbc8 31.
De7 H8c7
Eða 31. … Rf8 32. d6 Rg6 33.
Dxb7 Re5 34. Dd5+ Dxd5 35. Hxd5
og hvítur á vinningsstöðu.
32. d6 Hc1+ 33. Kh2 H7c2 34.
Hxc1!
og svartur gafst upp, því að hann
getur enga björg sér veitt, eftir 34.
… Hxc1 35. Hxb7 og riddarinn á d7
fellur.
Smáralindarskákmótið í dag
Í dag, laugardaginn 31. janúar,
efna Taflfélag Kópavogs og Tafl-
félagið Hellir í Reykjavík til fyrsta
„Smáralindarskákmótsins“ í Vetr-
argarðinum í Smáralind. Mótið
hefst kl.14. Heildarverðlaun nema
25.000 kr. og er mótið öllum opið.
Tefldar verða sjö umferðir eftir
Monrad-kerfi, með sjö mínútna um-
hugsunartíma.
Atkvöld á mánudag
Næsta atkvöld Taflfélagsins
Hellis fer fram mánudaginn 2. febr-
úar. Mótið hefst kl. 20. Fyrst eru
tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor
keppandi hefur 5 mínútur til að
ljúka skákinni og síðan þrjár at-
skákir, með tuttugu mínútna um-
hugsun. Sigurvegarinn fær verð-
laun, mat fyrir tvo frá Dominos
Pizza. Þá verður annar keppandi
dreginn út af handahófi og einnig
fær sams konar verðlaun. Þar eiga
allir jafna möguleika, án tillits til ár-
angurs á mótinu.
Þátttökugjald er 300 kr. fyrir fé-
lagsmenn (200 kr. fyrir 15 ára og
yngri) og kr. 500 fyrir aðra (300 kr.
fyrir 15 ára og yngri). Allir velkomn-
ir.
Bragi Þorfinnsson
efstur á Skákþingi
Reykjavíkur
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Stöðumynd 1 Stöðumynd 2SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
SKÁKÞING REYKJAVÍKUR
11. jan. – 4. feb. 2004
Bragi Þorfinnsson
Afmælismessa
Kvenfélags
Grensássóknar
Á SUNNUDAGINN kemur, 1. febr.,
verður þess minnst sérstaklega við
messu í Grensáskirkju að kvenfélag
safnaðarins á 40 ára afmæli um
þessar mundir.
Kvenfélagið er jafnaldri safn-
aðarins og hefur allt frá upphafi
verið öflugur bakhjarl safn-
aðarstarfsins, lagt því lið með
margvíslegu móti og gefið ýmsa
hluti og gripi til kirkjunnar, m.a.
glerlistaverkið sem prýðir alt-
arisgafl kirkjunnar. Nú er í ráði að
hanna lýsingu sem gerir kirkju-
gestum kleift að njóta myndarinnar
þótt rökkvað sé úti.
Þennan sunnudag eru jafnframt
80 ár frá fæðingu frú Kristínar
Halldórsdóttur sem um árabil var
formaður og leiðtogi kvenfélagsins
en hún lést haustið 2002. Til minn-
ingar um frú Kristínu gaf fjölskylda
hennar kirkjunni bænakertaaltari.
Í messunni munu kvenfélags-
konur lesa ritningarlestra og sam-
skot verða tekin til verkefna Hjálp-
arstarfs kirkjunnar, í anda
kvenfélagsins og svo sem hæfir
minningu frú Kristínar Halldórs-
dóttur.
Morgunblaðið/Arnaldur
Grensáskirkja.
Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf kl.
13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja. Eldriborgarastarf. Brids-
aðstoð kl. 13. Kaffi kl. 15.
Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kaffi og spjall.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri-
deildarstarf Lindakirkju og KFUM&K í
húsinu á Sléttunni, Uppsölum 3. Krakk-
ar á aldrinum 8–12 ára velkomnir.
Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar.
Kirkjukrakkar í Lágafellsskóla kl.
13.20–14.30.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíu-
fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun FM 105,5. Allir velkomnir.
Fríkirkjan Kefas. 10–12 ára starf kl.
19.30. Samvera, fræðsla og fjör. Allir
10–12 ára velkomnir. Nánari upplýsing-
ar á www.kefas.is.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.30
barnagospel fyrir krakka 4–12 ára. Kl.
10–18 okkar vinsæli flóamarkaður op-
inn.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið samveru
kirkjuskólans á morgun, laugardaginn
31. janúar, kl. 11.15–12 í Víkurskóla.
Rebbi refur heldur áfram að fræðast um
kristna trú í brúðuleikhúsinu. Söngur,
saga og litastund. Verið dugleg að
mæta. Sóknarprestur og starfsfólk
kirkjuskólans.
Safnaðarstarf
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
AÐALFUNDUR
Hvammi, Grand Hóteli,
föstudaginn 6. febrúar 2004, kl. 12:00
12:00 Hádegisverður í Setrinu, Grand Hóteli.
Ávarp: Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur:
Lífið hjá stjórnanda.
SKRÁNING
13:15 Skráning við Hvamm, Grand Hóteli.
FUNDARSETNING
13:30 Ræða formanns Samtaka verslunarinnar,
Péturs Björnssonar.
„Er verslun frjáls í fákeppni?“
RÆÐUMENN
13:50 Ávarp: Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra.
14:10 Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins:
Í hvers konar þjóðfélagi viljum við búa?
14:30 Tryggvi Þór Herbertsson, Hagfræðistofnun HÍ:
Fákeppni á Íslandi
15:30 Almenn aðalfundarstörf skv.
samþykktum samtakanna.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 588 8910
eða á netfang: lindabara@fis.is