Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 2

Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ FLUGVÉLARNAR FARNAR Engar kafbáta- og skipaeftirlits- flugvélar eru hér á landi á vegum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli nú, en í síðustu viku héldu P-3 Orion-eftirlitsflugvélar, sem flug- sveitir Bandaríkjaflota skiptast á um að leggja varnarliðinu til, af landi brott til bækistöðva sinna í Banda- ríkjunum að loknum venjubundnum sex mánaða starfstíma. Nýjar vélar hafa ekki verið sendar í stað þeirra sem fóru. Utanríkisráðuneytið frétti fyrst af þessu í gær og hefur óskað eftir skýringum frá Bandaríkjunum. Morðingja leitað Lögregla leitar enn morðingja manns sem fannst látinn í höfninni í Neskaupstað á miðvikudag. Enn er ekki vitað hver hinn látni er en lög- regla telur að um útlending sé að ræða. Lýst er eftir bíl, gráum Mitsu- bishi Lancer, sem vitni sá við bryggjuna í Neskaupstað aðfaranótt mánudags. Ljóst þykir að líkið hefur ekki legið lengur í sjónum en fjóra daga. Vilja kosningar í Írak Lakhdar Brahimi, sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna, er sammála þeirri skoðun helsta trúarleiðtoga sjía-múslíma í Írak, Ajatollah Ali al- Sistani, að halda beri kosningar í Írak. Hann greindi frá þessu í gær eftir að hafa átt fund með Sistani. Ekki er hins vegar ljóst hvort Brah- imi telur að hægt verði að halda kosningarnar áður en Bandaríkja- menn framselja völd sín í Írak í hendur heimamönnum 1. júlí nk. Raforkuverð gæti hækkað Raforkukostnaður til viðskipta- vina Orkuveitu Reykjavíkur á suðvesturhorninu gæti hækkað um allt að 20% með breyttu fyrir- komulagi raforkuflutnings. Þetta segir forstjóri OR, Guðmundur Þór- oddsson. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Þjónusta 37 Viðskipti 12 Viðhorf 38 Úr verinu 12 Minningar 38/48 Erlent 16/18 Kirkjustarf 47 Heima 20 Skák 48 Höfuðborgin 22 Bréf 52 Akureyri 24 Dagbók 54/55 Suðurnes 25 Staksteinar 54 Austurland 26 Sport 56/59 Landið 26 Leikhús 60 Daglegt líf 27 Fólk 60/65 Listir 28/30 Bíó 62/65 Umræðan 31/33 Ljósvakamiðlar 66 Forystugrein 34 Veður 67 * * * Kynningar – Blaðinu í dag fylgir aug- lýsingablað frá Príma. Einnig fylgir Dagskrá vikunnar en henni er dreift á landsbyggðinni. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport- @mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is OKKAR MENN Í ÍRAK TÍMARIT MORGUNBLAÐSINS FYLGIR MORGUNBLAÐINU Á SUNNUDAG BÓKASAFN Seltjarnarness opnar í dag sýning á fornmunum og öðrum gripum úr safni Harðar Páls Stef- ánssonar. Það væri kannski ekki í frásögu færandi ef Hörður væri ekki fimmtán ára nemandi í Val- húsaskóla á Seltjarnarnesi. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Hörður lengi haft mikinn áhuga á gömlum hlutum og fornminjum. Hörður bjó með foreldrum sínum í nokkur ár bæði í Rússlandi og Bandaríkjunum, en faðir hans starf- aði þá hjá Sameinuðu þjóðunum. Eftir að fjölskyldan flutti heim árið 2000 fór Hörður að kanna sögu- legar minjar á Nesinu. Gripirnir, sumir hverjir líklega frá liðnum öld- um, tengjast flestir sjávarútvegi og landbúnaði og eru úr grjóti. Marga munanna hefur hann fundið víðs- vegar um Nesið. Hörður hefur einn- ig varið miklum tíma í að kanna gamla ruslahauginn í Eiðisvík, sem hætt var að nota eftir síðari heims- styrjöld og á hann fjölda gripa úr honum. Herði þykir eftirtektarvert hversu mikið liggur eftir gengnar kynslóðir á Seltjarnarnesi, það eru grófgerðir og oft klunnalegir nytja- hlutir úr grjóti sem fáir hirða um í dag og hann hefur fundið á víða- vangi. Með sýningunni vill Hörður Páll sérstaklega vekja athygli á nauðsyn þess að bæjarbúar gleymi ekki sögu bæjarfélagsins þó að þessa sögu sé nú að mestu leyti að finna í grjóti. Menjar um heims- atburði svo sem fall Berlínarmúrs- ins og fall Sovétríkjanna megi einn- ig finna í grjóti og steypu eins og sjá megi á tveimur hnullungum frá Þýskalandi og Rússlandi. Las um Rómverja og Grikki Hörður Páll segir áhugann á sögu og sögulegum munum hafa kviknað snemma. „Ég fékk áhuga á þessu svona í kringum sex ára aldurinn. Ég var að lesa um Rómverja, Grikki og Víkinga og þeirra menningu og muni, en ég vissi ekki að það væri hægt að finna svona hluti. Þegar fjölskyldan átti heima í Bandaríkj- unum komum við einu sinni til Ís- lands í frí og þá gaf einn frændi minn mér danska örvarodda frá ný- steinöld sem eru taldir vera um 5.000 ára gamlir,“ segir Hörður, sem telur áhuga sinn á fornmunum hafa vaknað fyrir alvöru við þessa gjöf. „Þegar við fluttum til Íslands var ég að labba í fjörunni á Seltjarn- arnesi með vini mínum og þá kom ég auga á undarlegan kringlóttan stein sem var búið að höggva hell- ing af hringjum og línum í. Þessi steinn reyndist vera gamall myllu- steinn. Hann var allt of þungur fyrir mig þá, svo ég fór heim og tveimur dögum seinna eyðilagði ég næstum því bakið á pabba mínum þegar ég lét hann drösla honum upp í bílinn fyrir mig. Þá byrjaði ég virkilega að spá í svona hluti. Ég er líka mjög mikið á netupp- boðum að kaupa rómverskar minjar og slíkt. Ég er í rauninni að sanka að mér sögunni í munum,“ segir Hörður Páll, en hluti þeirra muna er til sýnis á sýningunni. Heldur sýningu á sögulegum munum af Seltjarnarnesi Áhuginn kviknaði með örvar- oddum Ljósmynd/Óskar J. Sandholt Hörður Páll hefur mikið yndi af fornum munum með sögulegt gildi. FRAMKVÆMDASTJÓRI Tetra Ísland, Jón Pálsson, segist ekki kannast við trúnaðarbrest í sam- skiptum við dómsmálaráðuneytið, líkt og dómsmálaráðherra hafi hald- ið fram í blaðinu í gær, þegar lokað var fyrir nokkra senda í fjarskipta- kerfinu sl. þriðjudag. Jón segir það ekki geta flokkast undir trúnaðarbrest að veita þá þjónustu sem fæst greitt fyrir sam- kvæmt samningi við ríkið og Reykjavíkurborg. Það hafi ekki vak- að fyrir fyrirtækinu ,,að vera í stríði“ við dómsmálaráðuneytið. Tetra Ísland hafi veitt umframþjón- ustu sem ekki hafi fengist greitt fyr- ir. Samkvæmt staðfestingu ráðu- neytisins frá árinu 2001 hafi samningurinn verið uppfylltur með 16–17 sendum, og í dag séu 18–20 sendar í gangi. ,,Okkur hefur alla tíð verið frjálst, bæði samkvæmt samningi og okkar rekstri, að reka eins marga senda og við viljum. En okkur ber ekki skylda til að veita meiri þjónustu en keypt er af okkur. Við teljum það óábyrgt af okkur að reka þjónustu sem við fáum ekki greitt fyrir. Við höfum sennilega ekki átt að gera það jafn- lengi og við gerðum, en við gerðum það í góðri trú,“ segir Jón. Eins og fram kom í blaðinu í gær hefur stjórn Tetra Ísland ákveðið að leita eftir formlegum nauðarsamn- ingum við lánardrottna. Jón segir lögfræðinga vera að undirbúa mál- skjöl og safna meðmælum til að leggja fyrir héraðsdóm. Þetta ferli geti tekið nokkra mánuði þar til nið- urstaða fáist. Ekki trúnaðarbrestur að loka sendunum ♦♦♦ KONAN sem lýsti því yfir í Héraðs- dómi Reykjavíkur á þriðjudag að hún hefði orðið manni að bana í íbúð við Hamraborg í Kópavogi í mars 2002 var látin laus úr haldi lögregl- unnar í gær. Friðrik Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir að frásögn hennar hafi engan veginn staðist. Lögreglan í Kópavogi handtók konuna í fyrrakvöld en ekki var hægt að yfirheyra hana strax þar sem hún var í annarlegu ástandi. Í gærkvöldi var tekin af henni skýrsla og henni sleppti að því loknu. Konan bjó með manninum sem hnepptur var í gæsluvarðhald grun- aður um aðild að málinu á sínum tíma. Hún þekkti því til helstu atriða þess. Málið er enn óupplýst. Ekki voru áverkar á líkinu sem bentu til þess að maðurinn hefði verið myrtur. Frásögn konunnar stóðst ekki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.