Morgunblaðið - 13.02.2004, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.02.2004, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ RÆSIR hf. mun ekki selja Mercedes Benz-bifreiðir beint frá verksmiðju eftir að viðræður við DaimlerChrysler AG um endur- nýjun sölusamninga sigldu í strand. Ræsir hf. mun hins vegar halda áfram viðgerða- og vara- hlutaþjónustu. Í fréttatilkynningu frá Ræsi hf. kemur fram að í framhaldi af BER (Block Exemption Regulation), reglugerð Evrópusambandsins þar sem samskipti og markaðsleikregl- ur bílaframleiðenda, umboðs- manna þeirra og neytenda eru skilgreindar, hafi DaimlerChrysler sett fram viðamikla og kostnaðar- sama staðla sem taka mið af mun stærri mörkuðum en hinum ís- lenska. Þrátt fyrir að eigendur Ræsis hafi verið tilbúnir að leggja fram aukið fé til fyrirtækisins hafi samningar strandað á umfangi og framkvæmdahraða fjárfestinga sem staðlarnir gera kröfu um. Ræsir hf. mun afgreiða þá bíla sem þegar hafa verið pantaðir og staðfestir, einnig þá lager- og sýn- ingarbíla sem til landsins eru komnir. Einnig segja talsmenn Ræsis að fyrirtækið muni áfram reka verk- stæðis- og varahlutaþjónustu fyrir Mercedes Benz og Chrysler og kappkosta að veita viðskiptavinum sínum enn betri þjónustu en áður. Engar breytingar eru fyrirsjá- anlegar hvað varðar Mazda-bif- reiðir, sem Ræsir hefur umboð fyr- ir. Hallgrímur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Ræsis hf., segir þær kröfur sem DaimlerChrysler gerir endurspegla viðleitni framleiðenda til að gera seljendum erfitt fyrir að opna ný útibú þegar markaðurinn verður frjáls í október 2005. „Hugsun þeirra er tvíþætt, annars vegar að halda betri stjórn á dreifikerfi sínu og hins vegar að aðstoða þá sem þegar eru í dreifi- kerfinu við að vernda fjárfestingu sína. Þetta gengur beint gegn ætl- un Evrópusambandsins sem vildi auka samkeppni með setningu nýju BER-reglugerðarinnar.“ seg- ir Hallgrímur og bætir við að Ræs- ir muni að sjálfsögðu reyna að uppfylla allar óskir viðskiptavina sinna, hvort sem þar er um að ræða bíla, viðgerðir eða varahluta- þjónustu. DaimlerChrysler mun upplýsa um framtíðarfyrirkomulag sölu- mála bifreiða hér á landi þegar fram líða stundir. Ræsir gefur frá sér Mercedes Benz-umboðið TVEIR menn á tvítugsaldri rændu Hótel Örk í Hveragerði og KB banka í bænum í gærmorgun. Þeir beittu hnífi við ránin og særðu hótelhald- arann á fingri, en voru handteknir skömmu eftir ránið í bankanum upp úr klukkan níu í gærmorgun. Kona sem einnig var leitað í tengslum við ránin gaf sig fram við lögreglu á Sel- fossi um klukkan eitt í gær. Meðan leit að fólkinu stóð yfir var nemend- um í skólanum í Hveragerði ekki hleypt út í einar eða tvennar frímín- útur og fylgst var með bílum sem fóru til og frá bænum. Forsaga málsins er sú að ungur maður innritaði sig á hótelið að kvöldi þriðjudags. Hann fór brott í gær, en kom svo aftur um hálfsexleytið í gær- morgun og voru þá karlmaður og kona á svipuðum aldri með í för. Þau innrituðu sig á hótelið og fóru síðan upp á herbergi. Nokkru síðar komu mennirnir tveir aftur niður í mót- tökuna og voru þá greinilega ölvaðir og ógnuðu hótelhaldaranum Ágústi Ólasyni, sem tók við rekstri hótelsins um síðustu mánaðamót ásamt bróður sínum, en þeir reka einnig hótelin í Ólafsvík og Stykkishólmi. Annar maðurinn stökk yfir mót- tökuborðið með hníf í hendinni, en hinn kom inn um dyrnar og byrjaði strax að brjóta upp skápa í leit að ein- hverju fémætu, að sögn Ágústs. Hann reyndi að halda manninum fjarri sér með því að hafa skrifborðs- stól á milli þeirra og kallaði á meðan á hjálp, en allt kom fyrir ekki þar sem enginn heyrði köll hans. Maðurinn hélt áfram að ota hnífnum að Ágústi sem endaði með því að hann fékk hnífslag í fingurinn svo fossblæddi úr honum. Þá ákvað Ágúst að reyna ekki að verjast frekar, enda kom eng- in hjálp. Stendur ekki á sama „Manni stendur ekki á sama þegar blindfullur maður er að veifa hníf framan í mann eða reyna að stinga mann með honum, en eftir að ég ákvað að sýna bara samstarfsvilja hafði ég svo sem ekki miklar áhyggj- ur af því að þeir myndu gera mér eitt- hvað meira. Ég hafði meiri áhyggjur af því að þeir myndu skemma meira,“ sagði Ágúst í samtali við Morgun- blaðið. Mennirnir leiddu hann í framhald- inu um hótelið og leituðu að ein- hverju fémætu og brutu meðal ann- ars upp og eyðilögðu peningaskúffur, en höfðu ekki upp úr krafsinu nema um það bil 60–70 þús. kr. Þeir leituðu einnig í litlu afdrepi sem Ágúst hefur til að halla sér í á nóttunni og tóku þar smámynt en láðist að taka upp- gjör með peningum til bankans. Loks lokuðu þeir hann inni í býtibúri sem er inn af eldhúsinu, en áttuðu sig ekki á því að hægt var að opna dyrnar inn- an frá. Ágúst fór út úr býtibúrinu strax og mennirnir voru farnir og hljóp yfir í starfsmannahús og mætir þá einum starfsmanni sem kvaddi þegar til lög- reglu. Mennirnir lögðu á flótta eftir þetta og reyndu innbrot í KB banka skömmu síðar eins og fyrr sagði eða um níuleytið. Þeir voru svo hand- teknir stundarfjórðungi síðar á flótta í þorpinu. Aðspurður hvort margir gestir hefðu verið á hótelinu sagði Ágúst svo ekki hafa verið. „Sem betur fer. Það er nú ekki oft sem maður er ánægður með það að sitja uppi með tómt hótel.“ Rændu Hótel Örk og KB banka í Hveragerði Ógnuðu og særðu hótel- haldarann með hnífi Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Eftir að mennirnir höfðu látið greipar sópa á Hótel Örk fóru þeir inn í KB-banka og stálu þar fjár- munum, en þó ekki miklum. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Ágúst Ólason, næturvörður á Hótel Örk, meiddist á fingri í átökum við mennina. Til vinstri á myndinni er bróðir hans Óli Ólason. RAFN Ragnarsson lýta- læknir, sem ætlaði að taka þátt í að breyta útliti söng- konunnar Ruth Reginalds, er kynntar hafa verið sem sjónvarpsefni á Ísland í bítið á Stöð 2 hefur að viðhöfðu samráði við landlækni og formann Læknafélags Ís- lands hætt við þau áform. Í sameiginlegri yfirlýsingu sem undirrituð er af Rafni, Sigurbirni Sveinssyni, formanni Læknafélags Íslands, og Matthíasi Halldórssyni aðstoðarlandlækni, segir að þeir hafi fundað vegna umtalaðrar læknismeð- ferðar sem til hafi staðið að kona und- irgengist og ráðgert hafi verið að gera að sjónvarpsefni á Stöð 2. Getur skaðað „Niðurstaða fundarins er sú að málið hafi í meðförum farið út yfir eðlileg mörk, vakið ótilhlýðilega at- hygli og geti skaðað þá, sem að því koma. Að fengnu áliti aðstoðarland- læknis og formanns Læknafélags Ís- lands hættir Rafn Ragnarsson lýta- læknir þátttöku sinni í gerð umrædds sjónvarpsefnis,“ segir í yfirlýsingunni. „Við funduðum og niður- staðan af því var að málið væri komið út fyrir öll eðli- leg mörk, bæði umræðan og hinar fyrirhuguðu aðgerð- ir,“ segir Matthías Hall- dórsson aðstoðarlandlækn- ir. „Hann [Rafn] var engum þrýstingi beittur en vildi hafa samráð við okkur og er hættur við.“ Skoða sprautur Matthías segir embættið vera ósátt með fleiri anga á málinu, þar á meðal sprautur hjúkrunarfræðings til útlits- breytinga á móður söngkonunnar í sjónvarpinu. „Þarna er verið að fara í verk sem ekki eru á verksviði hjúkr- unarfræðings. Hún er reyndar með lækni á bak við sig eins og það er kall- að. Sá er sérfræðingur í bæklunar- skurðlækningum og við teljum að þarna sé verið að fara á svig við lög. Það er ekki verk hjúkrunarfræðinga að sprauta fólk án verulegs samráðs við lækni eða fyrirmæla hans, auk þess sem starfsemin virðist auglýst á ósæmilegan hátt,“ segir Matthías. Hann upplýsti einnig að embættið hefði spurst fyrir um þjónustu þá sem viðkomandi hjúkrunarfræðingur aug- lýsti. Ekki hefði enn tekist að funda með honum en að því væri stefnt. Spurður um sjónvarpsþátttöku annarra lækna, eins og t.d. geðlækna eða sálfræðinga, sem mæta í spjall- þætti þar sem rætt er um geðræna kvilla og meðferð segist Matthías telja að menn verði að fara mjög varlega í þeim efnum. „Auðvitað er það alltaf matsatriði hvenær er farið út í hreina auglýsingamennsku eins og þetta var raunar farið út í á Stöð 2. Það hlýtur þó að vera matsatriði í hvert skipti. Það hefur líka verið fjallað um stærri aðgerðir, s.s. kransæðaaðgerðir og mjaðmaskiptaaðgerðir í sjónvarpi. Þar er um að ræða aðgerðir við erf- iðum sjúkdómum, sem menn eru ekki beinlínis að velja sér og enginn hefur beinan fjárhagslegan ávinning af. Þar gegnir því nokkuð öðru máli,“ segir Matthías. Landlæknir hefur afskipti af lýtaaðgerðum í sjónvarpi Gerir ekki aðgerð á Ruth í sjónvarpi Rafn Ragnarsson ÁFRAM verður fylgst með útlitsbreytingum á Ruth Reginalds í morgunþætti Stöðvar 2, Ísland í bítið þótt Rafn Ragnarsson lýta- læknir framkvæmi ekki að- gerðir í sjónvarpi. Páll Magnússon, fram- kvæmdastjóri dagskrár- sviðs Stöðvar 2, segir að í raun hafi ekkert annað breyst en það að þær aðgerðir eða aðgerð sem Rafn framkvæmir á Ruth Reginalds verði ekki mynd- aðar. „Að öðru leyti heldur þetta verkefni áfram,“ segir Páll. Gerir ráð fyrir að Rafn framkvæmi aðgerðina Páll segist fastlega reikna með að Rafn muni eftir sem áður fram- kvæma aðgerð á Ruth enda segi ekki annað í yfirlýsingu Rafns, að- stoðarlandlæknis og formanns Læknafélagsins en að Rafn sé hætt- ur þátttöku í sjónvarpshlutanum. „Þannig að ég geri ekki ráð fyrir öðru en það standi sem lagt var upp með að hann framkvæmi þessa aðgerð,“ segir Páll. Hann segir líklega rétt að taka fram að verkefnið sem slíkt sé ekki á vegum Stöðvar 2. „Þetta bar þannig að okkur að snyrti- fræðingur kom að máli við umsjónarfólk Íslands í bít- ið og greindi frá því að þessar víðtæku fegrunar- aðgerðir á Ruth Reginalds stæðu fyrir dyrum og spurði hvort við hefðum áhuga á að skýra frá þessu og mynda eftir því sem verkinu myndi vinda fram. Við sam- þykktum það enda þótti okkur þetta vera áhugavert og for- vitnilegt efni. Sá er okkar hlutur í málinu. Við höldum einfaldlega áfram að segja frá þessu eftir því sem efni og ástæður liggja til.“ Spurður um kostnað vegna að- gerðanna segir Páll að Stöð 2 greiði ekki neitt, það sé mál skipu- leggjandans, þ.e. snyrtifræðingsins og þeirra sem koma að aðgerð- unum. Áfram fylgst með Ruth í morgunsjón- varpi Stöðvar 2 Ruth Reginalds
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.