Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 10

Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MÖRÐUR Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinnar, sagði á Alþingi í gær að launagreiðslur til höfunda, ritstjórnar og ritnefndar Sögu Stjórnarráðsins væru nokkuð rausnarlegar, en Davíð Oddsson forsætisráðherra skýrði frá því að þær væru samtals 37,5 milljónir króna. Þar af nema ritlaun til sex höfunda verksins alls 24 milljónum. „Ég sé ekki eftir skattpen- ingum til fræðimanna,“ sagði Mörður, „en 37,5 milljónir króna […] fyrir 1.200 síður af fræðilegu efni hlýtur að vera ein- hver misskilningur.“ Mörður sagði að gróf viðmiðun Hag- þenkis fyrir fræðilegan texta væri 5.900 krónur á síðuna. „Ef við erum rausnarleg og tvöföldum það fáum við rúmar 14 milljónir kr. út úr þessu dæmi, þessum þremur bindum, en þær eru sagðar 37,5 millj. króna.“ Hann sagði að svo virtist sem ekki hefði verið sýnd fyrirhyggja eða ráðdeild við útgáfu ritanna. Miðað við taxta háskólakennara Forsætisráðherra gerði grein fyrir samningunum við höfundana og rit- stjórnina. Hann sagði að þegar gengið hefði verið til samninga við höfundana hefði verið miðað við fræðimannataxta Félags háskólakennara til 1. janúar árið 2000 auk viðeigandi álags, þar sem um verktakasamninga hefði verið að ræða. „Viðmiðunargreiðsla var 250 þúsund krónur fyrir hvern mánuð,“ útskýrði hann. Höfundarnir fengu síðar leiðrétt- ingu á samningnum vegna taxtabreyt- inga og verðlagshækkana. Ráðherra sagði að þóknun til ritnefndar hefði verið í samræmi við úrskurð þóknunarnefndar og að laun til ritstjóra hefðu miðað við tæplega 300 þúsund kr. laun á mánuði að meðaltali. Mörður Árnason um Sögu Stjórnarráðsins Segir launa- greiðslur ríflegar Á NÆSTU þremur árum verða hreinar skuldir borgarstjóðs greiddar niður um einn milljarð króna og heildarskuldir borgar- sjóðs lækka um tæplega einn og hálfan milljarð sagði Árni Þór Sig- urðsson, forseti borgarstjórnar, við fyrri umræðu um fjárhagsáætl- un Reykjavíkurborgar næstu þrjú árin. Flutti hann framsögu með frumvarpinu í fjarveru borgar- stjóra, sem var veikur. Árni sagði að hreindar skuldir borgarsjóðs, sem væru heildar- skuldir að frádregnum peningaleg- um eignum, gæfu gleggsta mynd af skuldastöðunni. Hreinar skuldir á hvern borgarbúa lækkuðu um tæpan fimmtung næstu þrjú árin og færu úr 52 þúsund krónum nið- ur í 42 þúsund krónur á mann. Þegar borgarsjóður og fyrirtæki í meirihlutaeigu Reykjavíkurborg- ar eru tekin saman sagði Árni að heildarfjárfestingar árin 2005 til 2007 yrðu rúmir 39 milljarðir króna. Frá rekstri borgarsjóðs og fyrirtækjanna kæmu hins vegar 26 milljarðar upp í fjárfestinguna og skuldaaukning samstæðunnar yrði því samtals 13,2 milljarðar á þess- um þremur árum. Skuldaaukning- in væri mest hjá Orkuveitu Reykjavíkur, Fráveitunni og Bíla- stæðasjóði. Hins vegar lækkuðu skuldir Reykjavíkurhafnar og Fé- lagsbústaða talsvert en mest væri lækkun hreinna skulda borgar- sjóðs, tæpur milljarður eins og áð- ur segir. Eins og hvert annað grín Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti Sjálfstæðisflokksins í borgar- stjórn, sagði það auðvitað metnað allra borgarfulltrúa að veita borg- arbúum góða þjónustu, eins og Árni Þór taldi fyrst upp í ræðu sinni, þó deilt sé um leiðir að því marki. „Síðan þegar kom að ann- arri upptalningu sem þetta frum- varp endurspeglar, í öðru lagi ábyrgri fjármálastjórn og í þriðja lagi virðingu fyrir skattpeningum borgarbúa, þá hljómaði það eins og hvert annað grín,“ sagði Vil- hjálmur í byrjun sinnar ræðu. „Það er öllum ljóst að hér hefur ekki verið stunduð ábyrg fjármáls- tjórn – nema síður sé – og mjög auðvelt að færa sönnur á það. Það felur auðvitað í sér að þar með er ekki borin virðing fyrir skattpen- ingum borgarbúa.“ Vilhjálmur lagði í máli sínu áherslu á að reynslan af fjárhags- áætlunum R-listans á undanförn- um árum sé sú að þær standist engan veginn. Benti hann á að samkvæmt áætluninni sem nú lægi fyrir væri gert ráð fyrir að heild- arskuldir borgarsamstæðunnar yrðu rúmlega 81 milljarður í árs- lok 2005 eða 21 milljarði hærri en áætlað hafi verið fyrir aðeins tveimur árum. „Þarna skeikar 35% í verðbólgulitlu umhverfi,“ sagði Vilhjálmur og ástæðurnar væru fyrst og fremst útgjaldaþensla og framúrkeyrsla í framkvæmdum. Boðskapur þessarar þriggja ára áætlunar sé áframhaldandi skulda- aukning Niðurskurður boðaður Frumvarpið sýnir glöggt að mati borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að R-listinn ræður ekki við skuldaþróunina í Reykjavík. Hreinar skuldir á hvern íbúa án lífeyrisskuldbindinga muni fjórtán- faldast frá árinu 1993 til 2005. Samhliða þessari þróun sé stór- felldur niðurskurður boðaður sem muni bitna á þjónustu við borg- arbúa. Fresta eigi upbyggingu við grunnskóla í Úlfarsfelli og Norð- lingaholti og seinka framkvæmd- um við fjölda annarra skóla er nefnt sem dæmi. Hreinar skuldir borgar- sjóðs lækka um milljarð Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar næstu þrjú árin Marklaust segja sjálfstæðismenn ALÞINGI lagði ríkisstjórninni þær skyldur á herðar að hún mæti fyr- irsjáanlegan kostnað ríkissjóðs af framkvæmd stjórnarfrumvarpa sagði Árni Þór Sigurðsson á borg- arstjórnarfundi í gær. „Það verður að teljast merkilegt að ákvæðið er nú fallið á brott með nýjum lögum um fjárreiður ríkisins,“ bætti forseti borgarstjórnar við, en þó hljóti lög- gjafanum engu síður að vera akkur í því að slíkt mat á kostnaði sem félli á sveitarfélög við framkvæmd laga lægi fyrir. Árni eyddi þó nokkrum tíma í framsögu sinni með þriggja ára áætl- un um framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar árin 2005–2007 til að ræða fjárhagsleg samskipti rík- is og sveitarfélaga. „Það er mitt álit að þörf sé á að vinnubrögð í þeim efn- um verði tekin til gagngerrar endur- skoðunar,“ sagði hann. Árni sagði að ríkið ákvarði tekju- stofna sveitarfélaga með lögum og fjárfrekustu verkefnin séu lögboðin. „Setji ríkið lög um ákveðin réttindi íbúanna, og eigi það sjálft að uppfylla þær skyldur, ræðst það af fjárlögum hvers árs hvernig þessar skyldur eru upfylltar,“ sagði hann. „Setji þetta sama ríkisvald hins vegar lög um réttindi íbúanna sem sveitarfélög- unum er uppálagt að sinna ræður til- tækt fjármagn ekki því í hve miklum mæli skyldunum skal fullnægt. Ný- legt dæmi er um þetta, þar sem húsa- leigubæturnar eru.“ Frá yfirstand- andi ári út árið 2007 sé gert ráð fyrir að útgjöld Reykjavíkurborgar vegna almennra húsaleigubóta vaxi um 97 milljónir króna, en útgjöld ríkisins vaxi um þrjár milljónir. Nýta ekki tekjustofna Oddviti Sjálfstæðisflokksins, Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, sagði að oftar mætti ræða þessi samskipti rík- is og borgar á vettvangi borg- arstjórnar. Þau væru í sífelldri skoð- un og forseti borgarstjórnar sæti nú í nefnd sem væri að fjalla um endur- skoðun á tekjustofnum sveitarfélag- anna. „Það hefur verið venjan að fara djúpt í saumana á fjármálalegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga og ég tel það vera ágætis vinnubrögð. Þau vinnubrögð eru í réttum far- vegi,“ sagði Vilhjálmur. Hann tók undir að aukinn kostnaður sveitarfé- laga hafi orðið til á ýmsum sviðum og í fyrri samningum við ríkið hafi tekist að auka tekjur sveitarfélaga um fjóra til fimm milljarða. Þessi niðurstaða hafi fengist eftir mikla vinnu. „Hvað gerist svo? Það eru nokkur sveitarfélög sem telja sig ekki þurfa að nýta þá tekjustofna sem hafa verið sóttir með töluverðum dugnaði til ríkisins,“ sagði Vilhjálmur. Ákvæði um kostn- aðarmat frumvarpa fallið á brott ÞINGMENN Suðurkjördæmis gagnrýndu á Alþingi í gær að enn væri ekki búið að leysa húsnæðis- mál öldrunardeildar sjúkrahúss- ins á Ljósheimum á Selfossi, en þar hefur húsnæðið ítrekað fengið undanþágur frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, svo starfsemin geti haldið áfram, þrátt fyrir lélegan húsakost. Margrét Frímannsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, vakti máls á þessu í fyrirspurnartíma. Hún vitnaði í álit Heilbrigðisstofn- unar Suðurlands, frá desember opinberar framkvæmdir. „En það hefur enn ekki verið til lykta leitt. En ég vonast til að fá niðurstöðu í þetta mál hið fyrsta.“ Bætti hann því við að þetta væri forgangsmál. Stefnt væri að því að taka í notkun nýtt húsnæði hjúkrunardeildar eigi síðar en 2006. Margrét ítrekaði að hún hefði gengið á eftir þessu máli aftur og aftur og enn hefði ekkert gerst. „Það er okkur til háborinnar minnkunar að hafa ekki tekið á þessu fyrr,“ sagði hún. Aðrir þing- menn kjördæmisins hvöttu ráð- herra til að fylgja þessu vel eftir. um, flísar séu dottnar úr loftum, leki sé í gluggum, bleyta sé í teppi við útidyr og að dyr séu óþéttar. Margrét spurði heilbrigðisráð- herra, Jón Kristjánsson, hvenær vænta mætti þess að framkvæmd- ir hæfust við fyrirhugaða stækkun húsnæðis Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, en staðið hefur til að flytja þangað starfsemi öldrunar- deildarinnar. Niðurstaða hið fyrsta Ráðherra sagði að málið væri nú í höndum samstarfsnefndar um 2003, þar sem fram koma 36 at- hugasemdir við húsnæðið. Til dæmis segir þar að raki sé í veggj- Húsnæðismál öldrunardeild- ar á Ljósheimum verði leyst FORSVARSMENN heimasíð- unnar almenningur.is fluttu í gær formönnum allra þing- flokka áskorun þess efnis að endurskoða lög um eftirlaun al- þingismanna, forseta Íslands og ráðherra sem staðfest voru á Alþingi nýverið. Á þriðja þús- und kjósendur lýstu yfir stuðn- ingi við tilmælin á vefsíðunni en þar er því beint til þingmanna að við endurskoðun laganna verði haft að leiðarljósi að al- menningur og kjörnir fulltrúar almennings búi í grundvall- aratriðum við sömu eftirlauna- réttindi. „Forréttindi ganga gegn rétt- lætis- og lýðræðishugmyndum þorra landsmanna, sérstaklega forréttindi kjörinna fulltrúa. vilja ekki una við og telja ófull- nægjandi,“ segir í áskorun til al- þingismanna. sem umbjóðendur þeirra njóta né afmarka almenningi grund- vallarréttindi sem þeir sjálfir Þeir sem kjörnir eru til að setja lögin mega hvorki búa sjálfum sér almenn réttindi umfram þau Skorað á þingmenn að endurskoða lög um eftirlaun ráðamanna Búi sér ekki rétt- indi um- fram al- menning Morgunblaðið/Sverrir Hjörtur Hjartarson afhenti formönnum þingflokka mótmælin. Á myndinni eru Einar K. Guðfinnsson frá Sjálfstæðisflokknum, Ögmundur Jónasson frá VG og Margrét Frímannsdóttir frá Samfylkingunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.