Morgunblaðið - 13.02.2004, Side 11

Morgunblaðið - 13.02.2004, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 11 FULLYRÐINGAR formanns Skotveiðifélags Íslands (Skotvís) á vef samtakanna og í Morg- unblaðinu þess efnis að Náttúrfræðistofnun Íslands (NÍ) hafi ekki gert neina áætlun til að fylgja eftir áhrifum af rjúpnaveiðibanni eru al- gerlega tilhæfulausar. Þetta segir Ólafur K. Nielsen, fuglafræðingur á Náttúrufræðistofn- un. Náttúrufræðistofnun lagði fram í febrúar í fyrra skýrslu, Tillögur að rjúpnarannsóknum 2003–2007, þar sem einmitt er fjallað um það hvaða leið eigi að fara í rjúpnarannsóknum í tengslum við tillögur NÍ um takmarkanir á rjúpnaveiðum síðsumars 2002. Inntakið að styrkja vöktunarkerfið Ólafur, sem er höfundur skýrslunnar, segir inntak áætlunarinnar vera að styrkja vökt- unarkerfi rjúpunnar og nota það kerfi til að mæla árangur friðunar; vöktunarkerfið verði notað til að mæla hvort stofnvöxtur í næstu uppsveiflu verði meiri en hann hafi verið á síð- ustu tveimur uppsveifluskeiðum. „Tilgátan er að skotveiðar hamli vaxtargetu rjúpnastofns- ins og með því að draga úr veiðiafföllum nái stofninn hámarks vaxtarhraða, 50% á milli ára. Forsenda þessa er að það dragi úr heild- arafföllum í uppsveifluárum og aðrir af- fallaþættir vaxi ekki í takt við minni afföll vegna skotveiða,“ segir Ólafur. Hann segir þessar áætlanir NÍ eiga að vera formanninum, Sigmari B. Haukssyni, vel kunnar enda hafi hann að beiðni formannsins og að honum viðstöddum flutt fyrirlestur á vegum Skotvís í mars 2003 sem bar titillinn Rannsóknaráætlun fyrir rjúpu 2003–2007. Sama efni hafi verið til umfjöllunar á ársfundi Náttúrufræðistofnunar í október í fyrra og formaður Skotvís hafi einnig verið viðstaddur. „Á báðum þessum fundum var fjallað um þessa áætlun lið fyrir lið og hún rædd í lok fundanna. Gagnrýni Sigmars B. Haukssonar nú er því með öllu óskiljanleg og ósanngjörn og í stíl við þá dæmafáu fullyrðingu hans síð- astliðið sumar að Náttúrufræðistofnun hefði hagrætt gögnum í því skyni að fá umhverf- isráðherra til að fallast á tillögur stofnunar- innar um veiðibann á rjúpu. Í sem stystu máli þá eru og hafa verið í gangi rannsóknir til að meta áhrif friðunaraðgerða á rjúpnastofninn og formaður Skotvís hefur búið yfir vitneskju um markmið og framkvæmd þeirra rannsókna í næstum eitt ár,“ segir Ólafur. Unnið að gerð stofnlíkans í samvinnu við Reiknifræðistofnun Í dagbókarfærslu formanns Skotvís er minnst á fund rjúpnanefndar fyrr í þessum mánuði og sagt að greinargerð Ólafs hafi verið „athyglisverð þó svo að ekkert nýtt kæmi þar fram“. Ólafur segir að þetta verði að skoða sem upplifun formannsins á fundinum; staðreyndin hafi verið sú að á fundinum hafi verið greint frá nýútkominni áfangaskýrslu um líkan af rjúpnastofninum sem unnin sé í samvinnu við Reiknifræðistofnun Háskóla Íslands. „Á fyrr- nefndum fundi rjúpnanefndar var í fyrsta sinn skýrt frá niðurstöðum er varða stofnmódelið enda var gengið frá skýrslunni nokkrum dög- um fyrr. Það er því rangt sem fram kemur hjá Sigmari B. Haukssyni á heimasíðu Skotvís að ég hafi ekki kynnt neitt nýtt efni á fundi rjúpnanefndar. Umrætt líkan byggist á gögn- um frá Norðausturlandi 1981–2002 og getur hermt eftir stofnbreytingum eins og þær hafa mælst úti á mörkinni að því gefnu að innbyggð sé í líkanið um 4% fækkun rjúpna að jafnaði á ári. Einhverra hluta vegna telur formaður Skotvís enga ástæðu til að nefna þessar nið- urstöður þegar hann fjallar um fundinn í viku- legum dagbókarpistli sínum,“ segir Ólafur. Ólafur tekur fram að það hafi verið mat NÍ að skynsamlegra væri að nota það fé sem til umráða er til rannsókna til að styrkja vökt- unarkerfið en ekki t.d. til að mæla afföll rjúpna með sendimerktum rjúpum. Með vökt- un megi meta líklegan árangur af friðun og um leið auka skilning á stofnlíffræði rjúp- unnar og nytjum stofnsins, þ.e. með gerð stofnlíkans. Unnið að gerð stofnlíkans fyrir rjúpnastofninn Ljósmynd/Daníel Bergmann Ólafur K. Nielsen hafnar algerlega gagnrýni formanns Skotveiðifélags Íslands. Fullyrðingar formanns Skotvís tilhæfulausar, segir Ólafur K. Nielsen hjá Náttúrufræðistofnun HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra átti fund í Dyflinni í gær með Brian Cowen, utanríkisráð- herra Írlands, en Írar fara nú með formennsku í Evrópusambandinu. Samkvæmt upplýsingum frá utan- ríkisráðuneytið var megintilgangur fundarins að ræða þau mál sem efst séu á baugi í Evrópusamvinnunni og stækkun EES svæðisins frá og með 1. maí næstkomandi, auk tvíhliða málefna og alþjóðlegra öryggismála. Halldór tók upp ýmis mál er varða hagsmuni Íslands og innri markað Evrópska efnahagssvæðisins, m.a. ósk um aukinn kvóta á tollfrjálsan útflutning á lambakjöti og lifandi hrossum. Þá var og rætt um mik- ilvægi þess að Ísland og Evrópusam- bandið semdu samhliða um loftferða- samninga. Ennfremur lýsti Halldór yfir áhyggjum vegna beiðni Íra og Breta um að Evrópusambandið grípi til verndaraðgerða gegn innflutningi á eldislaxi, m.a. frá Íslandi. Fjölluðu um EES-samninginn Ráðherrarnir ræddu ítarlega breytingarnar sem nú standa fyrir dyrum á stofnskrá ESB eða svokall- aðri stjórnarskrá ESB og sagði Hall- dór afar mikilvægt að ESB ræddi við EFTA-ríkin um einstök atriði í því sambandi sem gætu haft bein áhrif á rekstur samningana um Evrópska efnahagssvæðið og Schengen. Einnig ræddu ráðherrarnir sam- starf Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins á sviði öryggis- mála og mikilvægi þess að þróun ör- yggismála innan ESB mætti ekki verða til þess að veikja bandalagið eða tengsl þess yfir Atlantshafið. Loks ræddu ráðherrarnir málefni Íraks, Afganistans og ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Utanríkisráðherra Ís- lands og Írlands funda Ræddu aukinn tollkvóta lambakjöts STEFNT er að því að bjóða upp á nám í upplýsingatækni á sviði heil- brigðisvísinda við Háskóla Íslands frá og með næsta hausti en um er að ræða þverfaglegt meistaranám þar sem áherslan verður á gæði heil- brigðisþjónustu með aðstoð tölvu- tækninnar. Að náminu standa aðilar úr hjúkrunarfræðideild, læknadeild, lyfjafræðideild, raunvísindadeild og félagsvísindadeild. Dr. Connie Delaney, prófessor við Háskólann í Iowa og gestaprófessor við HÍ, sem liðsinnt hefur forsvars- mönnum Háskólans við undirbúning námsins, segir upplýsingatækni á heilbrigðissviði vera tiltölulega nýtt svið innan heilbrigðisvísinda sem byrjað var að kenna í Bandaríkjun- um fyrir um 20 árum. Eitt af lyk- ilatriðunum í því sambandi sé öryggi sjúklingsins. „Við gefum mikið að lyfjum í heil- brigðiskerfinu og ólíkir aðilar innan heilbrigðiskerfisins koma þar að. Læknar sem ávísa lyfinu, hjúkrunar- fræðingar sem gefa það sjúklingum og lyfjafræðingar sem dreifa því. Í heimi upplýsingatækninnar snýst þetta um að þróa upplýsinga- kerfi og gagnagrunna sem bæta samskipti milli allra sem starfa á heilbrigðissviði. Þannig að við séum með sem öruggasta yfirstjórn og getum fylgst með áhrifum lyfjagjafa og skráð þær á þann hátt að það gagnist heilbrigðisstarfsmönnum.“ Framfarir hafa orðið miklar hvað snertir tækni í heilbrigðisvísindum á síðustu árum og segir Delaney að ný þekking fyrir tilstilli rannsókna sé þar ekki undanskilin. Mjög mikil- vægt sé að heilbrigðisstéttir og einn- ig sjúklingar fái bestu upplýsingar sem völ er á sem koma úr rannsókn- um hverju sinni. „Við vitum nú að flestar rannsóknir í dag skila sér ekki út í heilbrigiskerfið fyrr en að nokkrum árum liðnum og við vilj- um stytta þann tíma niður í nokkra mánuði ef mögulegt er.“ Þá sé mikil- vægt að sjúkra- skrár séu haldnar á rafrænu formi eins og víða sé farið að gera, m.a. í Bandaríkjunum. Unnt að lækka kostnað „Margir halda að gamlar sjúkra- skrár á pappírsformi séu öruggari en á tölvu. Í raun og veru er hægt að stýra aðgangi að heilbrigðisupplýs- ingum mun betur á rafrænu formi. Með pappírsskýrslu veistu í raun aldrei hverjir sáu skýrsluna, hvað þeir sáu í henni og hvenær.“ Þess ber að geta að sett hafa verið lög í Bandaríkjunum sem kveða á um hver hafi aðgang að sjúkraskrám, rétt sjúklinga til að kanna hver hefur séð skýrslur þeirra, o.s.frv. Delaney segir að rannsóknir hafi sýnt fram á að með aðstoð upplýs- ingatækni á heilbrigðissviði megi viðhalda og bæta þjónustu á heil- brigðissviði og jafnvel lækka kostn- aðinn. Upplýsingatækni snúist þann- ig um að ná í upplýsingar sem þurfi til að meta kostnaðinn hverju sinni með það fyrir augum að bjóða upp á skilvirkari þjónustu og betri. „Eitt af því besta við upplýsinga- tækni á heilbrigðissviði er að tæknin sem hún leiðir af sér nýtist ekki ein- göngu til að útbúa upplýsingakerfi til að safna saman upplýsingum heldur og til að finna út hvað virkar í með- ferð sjúklings og hvað megi betrum- bæta. Markmið tölvuvædds um- hverfis er að geta komið með fyrsta flokks tækni niður á það stig sem ákvarðanirnar eru teknar.“ Heilbrigðisstarfsmenn hafi aðgang að bestu upplýsingum Connie Delaney GUÐMUNDUR Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, segir að ekki sé tímabært að tjá sig nán- ar um hvernig stofnfé í sjóðnum verði selt á til- boðsmarkaði, en sá möguleiki var nefndur á fundi stofnfjáreigenda á þriðjudag. „Það liggur fyrir að það er heimilt að selja stofnfé á yfirverði, en það þarf auðvitað að vanda mjög vel til þess verks ef á að búa til aðgengilegan markað fyrir það. Það þarf að leggja slíkt fyrir Fjármálaeftirlit og þess vegna ekki tímabært að fara út í smáatriði í því fyrr en sá farvegur er fund- inn,“ sagði Guðmundur. Hann sagði aðspurður að farið hefðu fram við- skipti með stofnfé á yfirverði. Það væri ekkert sem bannaði það. Það væru sáralítil viðskipti, fyrst og fremst innan fjölskyldna hvað varðaði dánarbú og þess háttar. Fram kom að stofnfjárhlutir í SPRON væru 14.490 talsins og eru þeir í höndunum á 1.106 stofnfjáreigendum í sjóðnum. Að meðaltali er því hver stofnfjáreignadi með 13,1 hlut. Aðspurður hvort það hefði lengi verið þannig að stofnfjáreigendur mættu eiga marga hluti sagði Guðmundur að það hefði verið þannig að hver og einn mætti eiga 1 til 20 hluti og frá og með fundi sem haldinn hefði verið í ágúst árið 2002 væri ekki lengur hámark fyrir því hvað hver og einn mætti eiga. Það væru fáir sem ættu meira en tuttugu hluti og sá sem ætti mest ætti fjörutíu hluti. Það væri hins vegar mjög fáir sem ættu aðeins einn hlut, en mjög algengt væri að menn ættu þetta 5 eða 10 eða 20 bréf, en hver stofnfjárhlutur er að upphæð um 37 þús. kr. Guðmundur sagði aðspurður að það væru fyrst og fremst traustir viðskiptavinir sparisjóðsins sem væru í þessum hópi stofnfjáreigenda. Ekkert hefði verið fjölgað í hópi stofnfjáreigenda frá árinu 2000. Eftir að menn hefðu farið að velta fyrir sér þeim möguleika að breyta SPRON í hlutafélag hefði verið ákveðið að fjölga ekki frekar í bili, en árin þar á undan hefði fjölgað um 200-300 á árin nokkur árin þar á undan. Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri um tilboðsmarkað fyrir stofnfé Ekki tímabært að fara út í smá- atriði varðandi sölu á stofnfé

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.