Morgunblaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 18
ERLENT 18 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands Sparisjóður Hafnarfjarðar - 1. flokkur 2003 Nafnverð útgáfu og lánstími: Sparisjóðsbréfin eru kúlubréf. Nafnverð útgáfunnar er 3.000.000.000 kr. Bréfin í flokknum eru til 7 ára, útgefin þann 10. október 2003 með gjalddaga höfuðstóls þann 10. október 2010. Engin uppsagnarákvæði eru í bréfunum. Útgefandi: Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH), kt. 610269- 5599, Strandgötu 8-10, 220 Hafnarfirði. Sími 550-2000, bréfsími 550-2801, heimasíða www.sph.is. Skráningardagur í Kauphöll Íslands: Kauphöll Íslands hf. hefur samþykkt að skrá þegar útgefin og seld sparisjóðsbréf að nafnverði 3.000.000.000 kr. þann 17. febrúar 2004 enda uppfylli bréfin öll skilyrði skráningar. Skilmálar skuldabréfa: Auðkenni skuldabréfaflokksins: Umsjón með skráningu: Sparisjóðsbréfin bera enga vexti. Höfuðstóllinn er bundinn vísitölu neysluverðs með grunnvísitölu október mánaðar 2003,227,9 stig. Skuldin breytist í hlutfalli við breytingar á vísitölunni frá grunnvísitölu til þeirrar vísitölu sem er í gildi á gjalddaga. Auðkenni skuldabréfaflokksins í kerfi kauphallar íslands er SPH 03 Í. Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH), kt. 610269-5599. Kringlunni 6, 103. Sími 550-2000, bréfsími 550-2801, heimasíða www.sph.is Skráningarlýsing og önnur gögn varðandi ofangreind skuldabréf liggja frammi hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, Kringlan 6, 103 Reykjavík, sími: 550-2800, myndsendir: 550-2801. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, sagði í gær að ótti um að fugla- flensa hefði smitast manna á milli í Víetnam væri ástæðulaus. Grunur lék á að tvær systur, sem létust af völdum sjúkdómsins í landinu í jan- úar, hefðu smitast af bróður sínum, en WHO segir nú að fyrstu nið- urstöður rannsókna gefi til kynna að engir inflúensuerfðavísar úr mönnum séu til staðar. WHO hefur varað við því, að renni fuglaflensu- veirur og inflúensuveirur úr mönn- um saman geti orðið stökkbreyting og ný veirutegund myndist sem kynni að valda heimsfaraldri. Konurnar tvær létust 23. janúar en skömmu áður hafði bróðir þeirra og eiginkona veikst. Bróð- irinn lést en kona hans náði sér aft- ur. WHO sagði fyrr í mánuðinum að hugsanlega hefði sjúkdómurinn borist milli manna í þessu tilviki, en sennilega yrði aldrei hægt að stað- festa það. Pascale Brudon, fulltrúi WHO í Hanoi, höfuðborg Víetnams, sagði í dag að rannsóknaniðurstöðurnar útilokuðu þó ekki að veiran hefði borist milli manna með mjög tak- mörkuðum hætti. Veiran hefur fundist í tíu Asíu- ríkjum á þessu ári og einnig á tveimur búgörðum í Bandaríkj- unum. Vægt afbrigði af fuglaflensu hef- ur fundist í Noregi en gerðar voru rannsóknir á villtum fuglum og ali- fuglum þar í fyrra. Sjúkdómurinn greindist í villtum öndum en hefur ekki greinst í norskum alifuglum, að sögn dýralæknastofnunar Nor- egs. Í yfirlýsingu frá stofnuninni seg- ir, að veiruafbrigðið, sem fannst í Noregi, valdi mjög vægum sjúk- dómseinkennum og sé nokkuð al- gengt. Yfirlýsing frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni AP Kjúklingar brenndir í stórri gröf, sem tekin var í grafreit í Hanoi, höfuðborg Víetnams. Hefur flensan kostað 19 manns lífið í Asíu og áætlað er, að um 50 milljónum kjúklinga hafi verið slátrað til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Fuglaflensa ekki milli manna Hanoi, Ósló. AFP. BANDARÍKJAMENN hafa ákveðið að leyfa fyrirtækjum í öllum ríkjum heims að bjóða í verk í Írak er nema alls um sex milljörðum dollara, um 400 milljörðum króna. Áður höfðu þeir lýst því yfir að ríki sem ekki studdu innrásina í mars í fyrra myndu verða útilokuð. Eftir sem áður munu þó verk er nema alls um fimm milljörðum dollara verða bundin við ríki er studdu innrásina með einum eða öðrum hætti. Umrædd verkefni, sem einkum snúa að uppbyggingu innviða í Írak, eru kostuð af Bandaríkjunum. Svínafita gegn hryðju- verkum HJÁ lögreglunni í Ísrael hafa komið fram hugmyndir um að setja poka með svínafitu í strætisvagna til að reyna að koma í veg fyrir að herskáir Palestínumenn geri sjálfs- morðsárásir á vagnana. Að sögn blaðsins Maariv er talið að þetta muni letja Palest- ínumenn til slíkra árása þar sem þeir líta á svín sem óhrein dýr og telji, að það muni draga úr líkum á að þeir fari til Para- dísar eftir dauðann ef líkams- partar þeirra lendi á svínafitu. Blaðið segir, að ísraelskir rabbínar hafi lagt blessun sína yfir þessar ráðagerðir, þótt gyðingar líti einnig á svín sem óhreinar skepnur. Mótmæltu lettnesku ALLT að 8.000 rússneskumæl- andi Lettar efndu á miðvikudag til mótmæla við forsetahöllina í Riga vegna umdeildra laga um að auka notkun lettnesku í 159 skólum rússneskumælandi fólks. „Látið rússnesku skólana í friði!“ var hrópað. Meira en þriðjungur Letta er rússnesku- mælandi en ef Vaira Vike-Frei- berga forseti staðfestir lögin munu um 60% kennslunnar fara fram á lettnesku. „Ég vil ekki læra algebru á lettnesku. Ég á nógu erfitt með að skilja hana á rússnesku,“ sagði 13 ára gamall grunn- skólanemi. Móðir annars nema benti á að rússneskumælandi Lettar greiddu skatta eins og aðrir landsmenn og ættu kröfu á að fá kennslu á sínu móður- máli. Fara ekki til Haag ÍSRAELAR hafa ákveðið að senda ekki fulltrúa sína til Al- þjóðadómtólsins í Haag þegar málaferli hefjast fyrir dóm- stólnum 23. febrúar, en þau eiga að skera úr um lögmæti múrsins sem Ísraelar eru að reisa á Vesturbakkanum. Ísr- aelar segja, að þar sem þeir við- urkenni ekki lögmæti dóm- stólsins í Haag, sjái þeir ekki ástæðu til þess að senda full- trúa sína þangað. Ariel Sharon, forsætisráð- herra Ísraels, og fimm ráð- herrar í ríkisstjórn hans, tóku þessa ákvörðun að því er fram kemur í yfirlýsingu stjórn- valda. STUTT Leyft að bjóða í verk SUÐUR-kóreskir vísindamenn hafa orðið fyrstir til að einrækta manns- fósturvísi og taka úr honum stofn- frumur, og markar þetta þáttaskil í þróun nýrra leiða til að meðhöndla ýmsa kvilla, að því er bandarískir vísindamenn greindu frá í gær. En einnig er líklegt að niðurstöður s- kóresku vísindamannanna veki á ný deilur um meinta möguleika á ein- ræktun manna. Haft er eftir vísindamönnum sem ekki tóku þátt í tilrauninni í S-Kóreu að allt bendi til að S-Kóreumönnun- um hafi tekist að búa til fjölnota stofnfrumur, sem hægt er að rækta og gera að hvernig líkamsvef sem vera skal. Þar sem frumurnar eru einræktaðar má ætla að hægt sé að græða vef, sem gerður er úr þeim, í einstaklinginn sem þær voru ein- ræktaðar frá, og þar með ætti ekki að vera hætta á að líkami hans hafni ígrædda vefnum þar sem erfðaefnið í vefnum er það sama og í sjúklingn- um. Vísindamenn vonast til að með þessum hætti verði unnt að með- höndla alvarlega sjúkdóma á borð við sykursýki, parkinsonveiki, mænuskaða og jafnvel krabbamein. En þótt vísindamenn hafi lengi rætt um þennan möguleika kom tilkynn- ing S-Kóreumannanna mörgum í opna skjöldu. „Maður bókstaflega tekur andann á lofti, bæði af hrifn- ingu og ótta,“ hefur The Chronicle of Higher Education eftir Laurie Zol- oth, prófessor í læknishugvísindum og lífsiðfræði við Northwestern-há- skóla í Chicago. Enn langt í hagnýtingu í lækningaskyni Dr. Woo Suk Hwang, við S-Kór- eska háskólann í Seoul, stjórnaði til- rauninni. Hann gerði grein fyrir nið- urstöðunum í gær, á fyrsta degi ráðstefnu bandarísku vísindasam- takanna American Association for the Advancement of Science í Seattle. Einnig verða þær birtar í tímaritinu Science nú í vikunni. „Sumir hafa sagt að í þessu sé framtíð læknavísindanna fólgin,“ hefur The Chronicle eftir Jose B. Cibelli, prófessor í dýralíftækni við Michigan State-háskólann í Banda- ríkjunum, sem tók þátt í tilraun s-kóresku vísindamannanna. En Cibelli lagði áherslu á, að langur veg- ur væri í að þessi tækni myndi nýtast í lækningaskyni. „Við verðum að vera varkár,“ sagði hann, „vegna þess að við eigum eftir að sjá, að þetta sé örugg og skilvirk tækni, og það mun taka mörg ár og kosta mikla fjármuni.“ Stofnfrumur einræktaðar í fyrsta sinn BANDARÍSKI tónlistarmað- urinn Michael Jackson er að verða gjaldþrota, á ekki leng- ur fyrir skuldunum, og hafa lánardrottnar hans neitað honum um frekari fyrir- greiðslu. Var þessu haldið fram í New York Times í gær. Blaðið hafði það eft- ir fjármála- ráðgjöfum Jacksons, að næstkomandi þriðjudag félli á hann 70 millj. dollara, tæp- lega 4,8 milljarða ísl. kr., lán og ætti hann enga peninga til að greiða það. Kom þar einnig fram, að ásakanir á Jackson um ofbeldi gagnvart barni og fréttir um tengsl hans við múslímasamtökin Þjóð íslams ættu sinn átt í að lánastofn- anir og fjárfestar vildu ekki hjálpa honum lengur. Verðmætasta eign Jack- sons er útgáfurétturinn á bítlalögunum en hann á hann í félagi við Sony Music Ent- ertainment. Er hann metinn alls á 900 millj. dollara, rúm- lega 62 milljarð ísl. kr. Hlutur Jacksons er hins vegar veð- settur fyrir 200 millj. dollara, 13,7 milljarða ísl. kr., láni hjá Bank of America. Blaðið hefur það eftir ráð- gjöfunum, að þrátt fyrir þessi vandræði hafi eyðsla Jack- sons að jafnaði verið um 137 millj. króna á mánuði. Jackson á gjald- þrots- brúninni New York. AFP. Jackson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.