Morgunblaðið - 13.02.2004, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.02.2004, Qupperneq 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is 42 milljónir í tekjur | Lokið hefur verið við að vinna úr þeim upplýsingum sem skil- að var inn af veiðikortunum til hrein- dýraráðs Umhverf- isstofnunar á síðasta veiðitímabili. Veiðikvót- inn fyrir árið 2003 var samtals 800 dýr og var 741 dýr fellt, 328 tarfar og 413 kýr. Einnig náð- ust 127 kálfar. Heildar- tekjur af veiðileyfasöl- unni voru kr. 42.440.000. Arður af heildartekj- unum, til um 650 landeigenda á Austur- landi, var kr. 35.951.000, eða 85% af heildar- tekjum. Hlutur Umhverfisstofnunar vegna umsýslu var kr. 4.636.500 og Náttúrustofu Austurlands vegna vöktunar kr. 1.852.500. Karen Erla Erlingsdóttir hjá Umhverf- isstofu segir að krafa verði gerð um það á næsta veiðitímabili að allir leiðsögumenn verði með GPS-tæki og skili hniti af felldum dýrum. Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar hefur auglýst sölu veiðileyfi á hreindýr á komandi veiðitíma hreindýra, sem er á tímabilinu 1. ágúst til 15. september 2004. Umsóknum skal skila inn fyrir 15. febrúar, en ásókn hefur verið mikil í leyfin und- anfarin ár. Gjaldskrá fyrir veiðileyfi næsta sumar hefur verið gefin út og er gjaldið frá 30 til 90 þúsund krónum á dýr, mest fyrir tarf. Veiðileyfi fyrir kálfa kostar 15 þúsund krónur. Næsta sumar verða gefin út veiðileyfi á 800 hreindýr, en það er sami kvóti og í fyrra. Skiptist kvótinn í 339 tarfa og 461 kú. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Ófærð dró úr aðsókn | Björg- unarsveitin Núpur hélt árlegt þorrablót Öxfirðinga á laugardaginn var í Pakkhús- inu á Kópaskeri. Veislustjóri var Óli Björn Einarsson. Að venju voru heimatilbúin skemmtiatriði flutt undir borðhaldi, og að því loknu spilaði hljómsveitin LEGO, úr Öxarfirði fyrir dansi fram á rauða nótt. Um 200 manns hafa sótt skemmtunina og sumir komið langt að líkt og núna. Nokkuð dró þó úr þátttöku að þessu sinni, vegna vonskuveðurs á föstudagskvöldinu með til- heyrandi ófærð, en á laugardaginn fór veðrið að ganga niður og þeir allra hörð- ustu létu það ekki aftra sér þó að vegurinn um Tjörnes væri þungfær þar sem ekki er „mokstursdagur“ á þeirri leið á laug- ardögum. Arndís Ásta Gests-dóttir, leikskóla-kennari og hús- freyja í Mjólkárvirkjun við Bíldudal, hefur lagt spurningar fyrir bæj- arstjórn Ísafjarðarbæjar um rétt sinn til sam- gangna innan Ísafjarð- arbæjar, rétt til atvinnu- leysisbóta og hvort skattar séu jafnir á alla íbúa Ísafjarðarbæjar, án tillits til búsetu. Frá þessu segir á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði. Þar segir ennfremur: „Eins og kunnugt er, þá eru samgöngur strjálar á vetrum til Arnarfjarðar, þar sem tvær aðliggjandi heiðar eru lokaðar vegna snjóa stóran hluta árs- ins.“ Sama útsvar? Búðardalur | Þorrablót var haldið á Dvalarheimilinu Silfurtúni fyrir íbúa og gesti eldri en 67 ára. Mjög góð þátttaka var í þorra- blótinu sem Dalabyggð stóð fyrir. Gunnar Björns- son, matreiðslumaður í Dalakjöri, sá um veitingar og skemmtiatriði voru af ýmsu tagi. Leynigestur mætti á svæðið, sem reyndist vera Sigurður Gunnarsson læknir. Einn gestanna, Sveinn Björns- son, bóndi í Hvammi, flutti frumort kvæði og þakkaði fyrir ánægjulegt kvöld. Morgunblaðið/Helga Ágústsdóttir Ánægjulegt kvöld: Jón Hallsson, Hjalti Þórðarson og Jón Ingvarsson skemmtu sér á þorrablótinu. Þorrablót á Silfurtúni Eftirfarandi vísu, íorðastað for-sætisráðherra, hafði kötturinn párað á bréfsnifsi og falið bak við sófann hjá Pétri Þor- steinssyni. Og dagsett 1. febrúar 2004: Er ég Hannes augum ber óðar þá ég kenni í svipnum bragð af sjálfum mér - sönnu glæsimenni. Aðalsteinn L. Valdimars- son veltir fyrir sér þróun í bankamálum Íslendinga: Einn gengur inn í banka, ætlar að ræna þann, vill til sín seðlum sanka, svo hittir gjaldkerann: „Réttu mér strax ránsfenginn“. Rótar hinn sér ei baun: „Allur sá upp er genginn upp í forstjóralaun“. Út fer í þungum þanka, þar hittir löggumann. Járnar sá skjótt hans skanka og skundar í stein með hann. Bágt er úr bankáað stela, borgar sig ekki það. Auðjöfrar fé sitt fela frekar á betri stað. Af bankaránum pebl@mbl.is Aðaldalur | Leikdeild Ung- mennafélagsins Eflingar í Þingeyjarsveit frumsýnir í kvöld í félagsheimilinu Breiðu- mýri í Reykjadal nýtt íslenskt leikrit, Landsmótið, eftir þá Jóhannes Sigurjónsson og Hörð Þór Benónýsson. Leik- stjóri er bróðir Harðar, Arnór Benónýsson, og Jaan Alavera stýrir tónlistinni, sem er fyr- irferðarmikil í verkinu. Alls taka um 80 manns þátt í uppfærslunni þar af 56 á svið- inu. Þannig eru nemendur Framhaldsskólans á Laugum fjölmennir, en fjórir af hverj- um tíu nemendum skólans taka þátt. Eins og nafn leik- ritsins gefur til kynna sækja höfundarnir efniviðinn í lands- mót ungmennafélaganna sem hafa sett mikinn svip á ís- lenskt þjóðlíf um áratugaskeið. Segja Eflingarmenn að lífs- gleði, ástir og átök ráði ríkjum í leikritinu, ásamt góðum skammti af gríni og glensi. Uppselt er á tvær fyrstu sýn- ingarnar um helgina en eftir það eru fyrirhugaðar að minnsta kosti fimm sýningar fram í marsmánuð. Miðasala er í Breiðumýri en í samstarfi við veitingahúsið Laugasel, Ferðaþjónustuna Narfastöðum og Sel-Hótel Mývatn bjóðast leikhúsgestum sérstök tilboð. Einnig ná nálgast upplýsingar um leikverkið á vef Þingeyj- arsveitar, www.thingeyj- arsveit.is. Taktu svo á því! Jón Fr. Benónýsson sem „gamall kommúnisti“ hvetur hér keppanda í stangarstökki, sem leikinn er af Brynjari Mar Lárussyni. Stöngin á sér fræga fortíð, notuð á Landsmóti UMFÍ 1965. Landsmótið frumsýnt í kvöld Leiklist Ljósmynd/Jóhann Guðni TVEIR útvarpsmenn hafa verið dæmdir til að greiða manni 200.000 kr. í skaðabætur fyrir að hafa í október 2002 útvarpað síma- hrekk þar sem þeir sögðust vera að hringja frá myndbandaleigu vegna skuldar. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að mennirnir, sem störfuðu á útvarpsstöðinni Steríó, hafi í útvarpsþætti sínum, Með haus- verk á morgnana, hringt í mann um tvítugt í þeim tilgangi að hrekkja hann. Maðurinn reiddist og varð órótt, og sögðu útvarps- mennirnir honum þá að um væri að ræða út- varpshrekk. Samtalið var svo leikið nokkr- um sinnum í þætti mannanna næstu daga á eftir, en útvarpsmennirnir tilkynntu mann- inum ekki að verið væri að taka samtalið upp, eins og fjarskiptalög gera ráð fyrir. Maðurinn reyndi að ná sáttum, og stefndi því næst útvarpsmönnunum fyrir ólögmæta upptöku, brot á friðhelgi einka- lífsins, persónu hans og æru. Krafðist mað- urinn 500.000 kr. miskabóta. Útvarpsmennirnir sögðu að ekki gæti verið um brot á friðhelgi einkalífsins að ræða þar sem maðurinn hafi ekki verið nefndur nema með skírnarnafni og því ekki hægt að þekkja hann. Þeir mótmæltu því ekki að hafa tekið upp símtalið, og sögðu ómögulegt að framkvæma símahrekk ef láta ætti viðmælanda vita af upptökunni við upphaf símtals eins og lög kveða á um. Brutu gegn fjarskiptalögum Dóminum þykir sannað að útvarpsmenn- irnir hafi brotið gegn fjarskiptalögum með því að tilkynna viðmælanda sínum ekki að samtalið væri tekið upp. Í dómnum segir ennfremur: „Verður að ætla, að tilgangur með lagaákvæði þessu […] sé meðal annars að hlífa mönnum við aðgerðum eins og hrekk þeim, sem stefndu höfðu í frammi við stefn- anda.“ Í dóminum segir ennfremur að út- varpsmennirnir hafi með þessu gerst sekir um ólögmæta meingerð gegn æru og per- sónu stefnanda, enda verk þeirra fallið til þess að valda honum miskatjóni. Þótti því við hæfi að útvarpsmennirnir greiði stefnanda 200.000 kr. með dráttar- vöxtum í miskabætur, auk þess sem þeir greiði stefnanda 230.000 kr. í málskostnað. Dóminn kvað upp Logi Guðbrandsson héraðsdómari. Greiða bætur fyrir útvarpshrekk SPARISJÓÐUR Norðfjarðar hyggst styrkja Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup- stað um 400 þúsund krónur. Verða fjár- munirnir nýttir til kaupa á maga- og rist- ilspeglunartækjum. Styrkja sjúkrahúsið ♦♦♦    Keflavíkurflugvöllur | Þrjá- tíu og fimm brúðhjón verða gefin saman um borð í þotu Icelandair í há- loftunum milli Íslands og Bretlands á Valentínus- ardaginn, sem er á morg- un. Hópurinn kemur til landsins frá Bandaríkj- unum í dag og fer meðal annars í Bláa lónið. Icelandair Holidays í Baltimore í Bandaríkj- unum hafa skipulagt Val- entínusarferð til Íslands og Englands undanfarin ár. Í fyrstu ferðinni giftust fern brúðhjón en vinsældirnar hafa aukist ár frá ári. Að þessu sinni halda 35 pör upp á dag ástarinnar með því að gifta sig eða endurnýja heit sín, samkvæmt upplýsingum frá Kynnisferðum sem annast mót- töku gestanna hér á landi. Með í för eru blaðamenn, ljósmyndarar og myndatökumenn þannig að þetta er 86 manna hópur. Hópurinn nýtur veitinga og af- þreyingar í dag. Farið er í Bláa lónið, á hestbak og á veitingastaði. Í fyrramálið er móttaka í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, áður en Lund- únavélin heldur af stað. Búist er við að fólkið verði þá prúðbúið enda fram undan fjöldabrúðkaup í háloftunum. 35 pör gifta sig í háloftunum Fjölgun í Valentínusarferðum til Íslands Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.