Morgunblaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
Vinnuvélasæti
Verð frá 12.9
60,-
Kópavogur | Skipulagsyfirvöld í
Kópavogi kynntu í gær hugmyndir að
nýrri íbúðarbyggð í Lundi. Gert er
ráð fyrir mun fjölbreyttara bygging-
arfyrirkomulagi en kom fram í fyrri
hugmyndum landeigenda, sem gerðu
ráð fyrir átta turnum á svæðinu með
rúmlega 450 íbúðum. Nýju hugmynd-
irnar gera ráð fyrir um 380 íbúðum
og er byggingarsvæðið minnkað um
35.000 fermetra. Tillögurnar voru
kynntar íbúum í Kópavogi á borgara-
fundi í Snælandsskóla í gærkvöldi.
Í kjölfar mikillar umræðu á síðasta
ári um skipulag svæðisins, alvarlegar
athugasemdir íbúa í nágrenninu og
harða gagnrýni var ákveðið að funda
með forsvarsmönnum íbúasamtak-
anna um Betri Lund. Eftir þann fund
var leitað til dönsku arkitektanna
3XNielsen (3XN) og þeir beðnir að
vinna hugmyndir að nýrri byggð í
Lundi. Meginástæður fyrir því að
leitað var til 3XN voru að sögn bæj-
aryfirvalda faglegur styrkur fyrir-
tækisins, mikil reynsla þeirra af gerð
frumtillagna, gott orðspor af lausn-
um í útfærslum þeirra, möguleiki til
að gefa hverfinu ferskan alþjóðlegan
blæ og þekking þeirra á viðfangsefn-
inu, en þeir unnu m.a. að hugmyndum
að þekkingarþorpi á Lundarsvæðinu
fyrir nokkrum árum. Markmiðið með
því að leita til erlendra arkitekta í
málinu var að fá hugmyndir frá
ótengdum fagaðila sem veitt gæti við-
fangsefninu nýjan og ferskan blæ.
Þess má geta að aðaleigandi 3XN,
Kim Nielsen, sem er höfundur hug-
myndanna, var nýlega aðlaður af
Margréti Þórhildi Danadrottningu
fyrir framlag sitt til dansks arkitekt-
úrs. Nærtækasta dæmið um hönnun
Kims Nielsens er væntanlega sendi-
ráð Norðurlandanna í Berlín.
Grænir fingur
niður í dalinn
Frumdrögum 3XN er ætlað að
vera skipulagsyfirvöldum í Kópavogi
viðmiðunargagn við frekari útfærslu
við skipulagsvinnslu Lundarsvæðis-
ins. Meginhugmyndin sem kemur
fram í tillögunum er að skapa fjöl-
breytta, lágreista og fjölskylduvæna
byggð sem myndar eðlilegt framhald
nálægrar byggðar. Áhersla er lögð á
samtengingu byggðs og óbyggðs
hluta hins nýja hverfis. Leitast er við
að hafa óbyggð svæði milli byggðra
svæða, sem teygjast eins og fingur
niður í útivistarsvæði dalsins. Þannig
eiga flestir íbúar hverfisins að geta
gengið óhindraðir af bílaumferð frá
heimili sínu niður í dalinn. Mikil
áhersla er lögð á útsýni frá hverfinu
og að áhrif þess á útsýni annarra
verði sem minnst. Þetta er m.a. gert
með því að byggja hæstu húsin næst
Nýbýlaveginum en síðan fari húsin
lækkandi þegar neðar dregur í hverf-
inu. Tvær meginhugmyndir að upp-
röðun bygginga koma fram í tillög-
unum, annars vegar svonefnt
fingraskipulag, þar sem byggt er í
þremur beinum línum niður í dalinn
og bílaumferð fer tiltölulega beina
leið. Hin hugmyndin er svokölluð
garðahugmynd, þar sem garðar
liggja milli húsanna og útivistar- og
tómstundamöguleikar skapast á
þeim svæðum.
Gunnsteinn Sigurðsson, bæjar-
fulltrúi og formaður skipulagsnefnd-
ar, lagði á það áherslu í máli sínu að
hér væri um að ræða hugmyndir, en
ekki deiluskipulag. Nokkur vinna
ætti eftir að eiga sér stað og umræð-
ur um hugmyndirnar áður en þær
yrðu samþykktar inn í deiliskipulag-
ið. Það væri þó mjög ánægjulegt að
sjá það nýstárlega útlit sem dönsku
arkitektarnir koma fram með. Þar
spili saman tréverk, ál og steinn á
skemmtilegan hátt.
Nýjar hugmyndir
lofa góðu
Gunnar Birgisson, formaður bæj-
arstjórnar Kópavogs, sagði að sér lit-
ist vel á nýju hugmyndirnar, þær
kæmu vel til móts við þær athuga-
semdir sem fram hefðu komið og
kæmu einnig með ánægjulega ný-
breytni. „Íbúar fá að sjálfsögðu að
skoða þessar hugmyndir og gera at-
hugasemdir. Ef allt gengur vel gæti
vinnu við deiliskipulag svæðisins ver-
ið lokið í júní eða júlí og þá geta verk-
takar farið að undirbúa framkvæmd-
ir og láta vinna fyrir sig úr
hugmyndunum,“ segir Gunnar og
bætir við að ánægjulegt hafi verið að
vinna svo náið með íbúunum varðandi
svæðið, þarna hefði verið á ferðinni
gott íbúalýðræði.
Sigurður Geirdal bæjarstjóri sagði
bæjaryfirvöld telja sig vera að koma
fram með ákveðna nýbreytni. „Hér
er um að ræða nýtt útlit, viðhorf og
aðferðafræði sem Danirnir eru að
koma með til okkar,“ segir Sigurður.
Aðspurður segir Flosi Eiríksson,
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í
Kópavogsbæ, að við fyrstu sýn sé
ekki hægt að fullyrða margt um til-
lögurnar þótt þær virðist lofa góðu.
„Það sem ég hef séð af þessu sýnist
mér þó vera til bóta. Bæði er tekið til-
lit til tillagna Samfylkingarinnar frá
því fyrir jól og athugasemda íbúanna.
Við verðum þó að sjá hvað kemur út
úr kynningarfundinum og þeim at-
hugasemdum sem íbúar gera við
þessar nýju hugmyndir. Mér sýnist
þó að þetta sé í heild sinni til bóta og
stefni í rétta átt,“ segir Flosi.
Kópavogsbær kynnir nýjar hugmyndir danskra arkitekta að byggð í Lundi
Komið til
móts við at-
hugasemdir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átta turnar: Í eldri tillögunum var ekki gert ráð fyrir smærri húsum.
Blandaðri byggð: Nýju tillögurnar gera ráð fyrir blandaðri byggingum.
Rýnt í skipulagið: Sigurður Geirdal bæjarstjóri og Gunnar Birgisson, forseti bæjarstjórnar, skoða skipulags-
hugmyndir 3XN grannt, enda telja þeir mikilvægt að sátt verði um nýja byggð í Lundi í Fossvogi.