Morgunblaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 24
AKUREYRI
24 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Parket
Flísar
Furugólfborð
Kamínur
Njarðarnesi 1, Akureyri,
sími 462 2244.
Mjólkurþistill
Öflugt fyrir lifrina
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Til sölu er orlofshús nr. 2
að Illugastöðum í Fnjóskadal.
Húsið er ca 45 fm að stærð.
Orlofshús til sölu
Allar nánari upplýsingar veita:
Jón Óskarsson s. 462 6199
Hákon Hákonarson s. 462 6800
MIKILL vatnselgur var víða á
Akureyri í blíðunni í gær, enda
mikill snjór í bænum. Vatn flæddi
yfir veginn neðan við tjaldsvæðið
á Hömrum, og Lónsá, sem skilur
að Akureyri og Hörgárbyggð,
flæddi yfir bakka sína um tíma í
gær.
Ekki urðu skemmdir á veg-
unum af þessum sökum. Mikill
vatnsflaumur kom úr hlíðinni við
gróðrarstöðina á Krókeyri og
höfðu menn áhyggjur af því að
vatn flæddi í nýtt húsnæði Iðn-
aðarsafnsins. Gripið var til ráð-
stafana og grafa fengin til að
hreinsa framan við ræsi þar. Þá
voru óshólmar Eyjafjarðarár,
sunnan Akureyrarflugvallar, um-
flotnir vatni í gær.
Morgunblaðið/Kristján
Mikill vatnselgur var við gróðrastöðina á Krókeyri og þurfti að fá gröfu á
staðinn til að hreinsa frá ræsi.
Mikill vatns-
elgur í blíðunni
JÓHANNA Þóra Jónsdóttir er elst
Akureyringa, en hún varð 104 ára
gömul í gær og fagnaði tímamót-
unum í faðmi fjölskyldu og vina.
Hún hefur nú á annað ár verið á
Dvalarheimilinu Hlíð og kann því
ágætlega. Lengst af bjó hún í Að-
alstræti 32, í tæpa sjö áratugi.
„Heilsan er þokkaleg, en henni
hefur samt smáhrakað,“ sagði Jó-
hanna, en hún varð fyrir því
óhappi að mjaðmagrindarbrotna
fyrir nokkru og fór í stóra aðgerð
í kjölfar þess. „Það er vont að
verða fyrir byltum, en ég hef náð
mér eins og hægt er og við er að
búast. Ég get núorðið gengið með
grind,“ sagði hún.
Jóhanna fæddist á Illugastöðum
í Fnjóskadal 12. febrúar árið 1900.
Hún bjó í dalnum til sautján ára
aldurs en fór þá sem kaupakona
og vetrarstúlka í Eyjafjörð, var
lengst af á Þórustöðum, en árið
1934 flutti hún til Akureyrar. Var
þá með son sinn, Birgi Helgason,
þrettán vikna og fluttist til Krist-
ínar E. Ólafsdóttur og manns
hennar, Jóns Pálssonar trésmiðs.
Eftir lát hans bjuggu þær Kristín
saman í húsinu, alls í 67 ár eða
fram á vorið 2002. „Við fórum
burtu sama kvöldið,“ sagði Jó-
hanna. „Kristín fótbrotnaði og fór
á sjúkrahús, en ég dvaldi hjá syni
mínum þar til ég fékk pláss á
Hlíð.“ Örlögin höguðu því svo að
um skeið deildu þær Kristín her-
bergi á Hlíð. „Kristín dó þarna um
sumarið, við skildum ekki fyrr en
þá.“
Jóhanna starfaði lengi við
Menntaskólann á Akureyri, var
þar við ræstingar og í eldhúsi, en
hún lét af störfum árið 1979.
Jóhanna sagði óneitanlega mikla
breytingu að flytjast á Hlíð, eftir
að hafa búið svo lengi sjálf. „Það
er ágætt að vera hér, en mikil
breyting að flytja frá þeim stað
þar sem maður hefur lengi búið,“
sagði hún. „En það vill láta manni
líða vel.“ Hún sagði að sér liði
sæmilega, en öðru hvoru gripu sig
„leiðindaköst“ eins og hún kallaði
það. „En þú þarft nú ekki að
skrifa um það,“ bætti hún við.
„Maður verður svolítið óánægður
með sjálfan sig þegar ekki er
lengur hægt að gera hlutina sjálf-
ur, þarf að láta gera allt fyrir sig
eða með sér. Það eru mikil við-
brigði.“
Hún sagðist vera farin að tapa
sjón og heyrn, en vera andlega
hraust. „Það hafa það margir
verra en ég, en ég vildi ekki óska
neinum þess að verða svona gam-
all.“ Langlífið þakkaði hún þó
fyrst og fremst skaparanum og því
að hafa lifað reglusömu lífi, hvorki
notað áfengi né tóbak um sína
daga, og þá skipti eflaust ekki síst
máli að hafa létta lund.
Elsti Akureyringurinn, Jóhanna Þóra Jónsdóttir, 104 ára í gær
Margir hafa það
verra en ég
Morgunblaðið/Kristján
Ættingjar og vinir Jóhönnu heimsóttu hana á dvalarheimilið Hlíð á afmæl-
isdaginn, hér er hún með syni sínum Birgi Helgasyni.
OPIÐ hús verður í Háskólanum á
Akureyri á morgun, laugardaginn
14. febrúar, frá kl. 13 til 17. Starf-
semi háskólans, sem verið hefur
mjög öflug og er sífellt að styrkjast,
verður kynnt. Dagskráin hefst kl.
13.15 með ávörpum Þorsteins Gunn-
arssonar rektors og Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra, en hún er sérstakur
gestur Opins húss að þessu sinni.
Kennsludeildir háskólans og aðr-
ar starfseiningar kynna starfsemi
viðfangsefni sín með margvíslegum
hætti, m.a. verða tölvur settar sam-
an, málþing verður um hvalveiðar,
verknámsstofur verða opnar og fjar-
fundarbúnaður kynntur. Jafnframt
verður boðið upp á kvikmyndasýn-
ingar.
Opið hús í
háskólanum
SKÍÐAFÉLAG Akureyrar stendur fyrir kynn-
ingu á skíðagönguíþróttinni laugardaginn 14.
og sunnudaginn 15. febrúar ef veður leyfir.
Kynningin mun fara fram í göngubrautinni í
Hlíðarfjalli og við gönguhús félagsins og
standa frá kl. 13:00–16:00 báða daga.
Verður fólki leiðbeint um hvernig á að bera
sig að við göngu á skíðum og einnig umhirðu
þeirra. Fyrir þá sem hafa ekki skíði til umráða
verður hægt að fá lánuð skíði á staðnum.
Einnig er rétt að benda á að hægt er að leigja
gönguskíði í Skíðahótelinu.
Nánari upplýsingar veita: Jóhannes, s. 867-
0235, og Guðmundur, s. 822-4706.
Skíðagöngukynning
Aðalheiður sýnir | Í tilefni af opnu húsi Há-
skólans á Akureyri á laugardag, 14. febrúar,
verður opnuð sýning á verkum Aðalheiðar S. Ey-
steinsdóttur á bókasafni háskólans. Sýningin
samanstendur af verkum sem unnin voru á síð-
asta ári og ber yfirskriftina „innsetning – menn
og dýr“. Sýningin stendur til 7. mars og er opin á
sama tíma og bókasafnið, eða virka daga frá kl.
8–18 og á laugardögum frá kl. 12 til 15.
TALSVERÐRI fjárhæð var stolið
eftir innbrot í Glerárskóla í fyrri-
nótt. Gluggi var brotinn í starfs-
aðstöðu kennara og farið þar inn og
skápar starfsmanna, um það bil 60,
spenntir upp. Einungis voru teknir
peningaseðlar en mynt látin vera.
Einnig var stolið peningum sem
10. bekkingar höfðu safnað og
geymdir voru á sama stað, svo og
kaffisjóði starfsmanna.
„Þetta er tilfinningalegt tjón,
ekki síst fyrir krakkana,“ sagði einn
starfsmanna skólans í samtali við
Morgunblaðið í gær. Sá tók fram að
myndavél og skjávarpi hefðu verið
látin í friði, en slíkjum tækjum var
stolið þegar brotist var inn í skólann
í fyrra.
Að sögn Daníels Snorrasonar,
lögreglufulltrúa hjá rannsókn-
ardeild lögreglunnar á Akureyri, er
þetta þriðja innbrotið í grunnskóla í
bænum á tólf dögum.
Peningum
stolið í
Glerárskóla
RUT Sigurðardóttir var kjörin íþróttamaður Þórs
fyrir árið 2003 en útnefningin fór fram í hófi í
Hamri í vikunni. Rut var jafnframt valin taek-
wondomaður ársins. Árni Þór Sigtryggsson hafn-
aði í öðru sæti í kjörinu en hann var valinn hand-
knattleiksmaður ársins. Guðrún Soffía Viðarsdóttir
var valin knattspyrnumaður ársins og Guðmundur
Ævar Oddsson körfuknattleiksmaður ársins.
Rut átti mjög gott ár í fyrra í íþróttagrein sinni
en hún tók þátt í ýmsum mótum hér heima og er-
lendis með góðum árangri. Rut var valin í landsliðið
fyrir Norðurlandamótið í taekwondo í byrjun síð-
asta árs, þar sem hún sigraði í unglingaflokki, fyrst
íslenskra kvenna, og var að auki valin besti kepp-
andinn í unglingaflokki kvenna á mótinu.
Árni Þór, sem hafnaði í öðru sæti í kjörinu, er
burðarás í handknattleiksliði Þórs og þá varð hann
Evrópumeistari með landsliði Íslands leikmanna
18 ára og yngri sl. sumar.
Það er Ragnar Sverrisson, kaupmaður í JMJ, sem
gefur verðlaunin sem veitt eru bestu leikmönnum
einstakra deilda og hann gaf einnig á sínum tíma far-
andbikarinn sem afhentur er íþróttamanni Þórs.
Rut íþrótta-
maður Þórs
Morgunblaðið/Kristján
Rut Sigurðardóttir, íþróttamaður Þórs, með
viðurkenningar sínar.