Morgunblaðið - 13.02.2004, Page 25

Morgunblaðið - 13.02.2004, Page 25
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 25 LANSINOH HJÁLPAR ÞURRAR OG SPRUNGNAR HENDUR 100% náttúruafurð, inniheldur engin rotvarnar- né aukaefni, vatnshreinsað. Sölustaðir: Apótek og lyfjaverslanir um land allt. www.ymus.is MS Fjallasúrmjólk – fjarska gó› og frískandi Fjallasúrmjólk er n‡ ger› af súrmjólk. Hún er flykk og mjúk og kitlar tunguna á frísklegan hátt eins og súrmjólkin ger›i í gamla daga. Grindavík | Nefnd sem bæjarstjórn Grindavíkur kaus til að fjalla um húsnæðis- mál tónlistarskóla, bókasafns og grunn- skóla leggur til að Tónlistarskóli Grinda- víkur verði fluttur í húsnæði grunnskólans og að ráðist verði í endurbætur á gamla íþróttahúsinu til að sameina þar bókasafn bæjarins og bókasafn grunnskólans. Kostnaður við þessar breytingar er áætl- aður 46 milljónir en talið er að hann muni skila sér til baka á tíu árum í lægri við- halds- og rekstrarkostnaði. Bókasafn Grindavíkur er á bæjarskrif- stofunum. Þröngt er orðið um safnið og hefur forstöðumaður þess óskað eftir stækkun. Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri segir að það hafi orðið til þess að einnig voru teknar upp umræður um húsnæðismál tónlistarskólans en komið er að kostnaðar- sömu viðhaldi á húsnæði hans. Komið að viðhaldi Nefndin leggur til að tónlistarskólinn verði fluttur í húsnæði í grunnskólanum sem er lítið nýtt. Hugmyndin er að sögn Ólafs að nýta betur húsnæði grunnskólans, meðal annars sal hans, en eftir einsetningu grunnskólans er þar lítil starfsemi síðdeg- is. Einnig er hugmyndin að samtvinna starfsemi tónlistarskólans og grunnskól- ans, meðal annars með því að gefa nem- endum kost á að stunda tónlistarnám í meiri tengslum við námið í grunnskólanum. Jafnframt leggur nefndin til að húsnæð- isvandræði bókasafnsins verði leyst með því að færa það í gamla íþróttahúsið sem er á lóð grunnskólans og sameina það bókasafni skólans. Jafnframt verði aukið við tölvukost safnsins og hann einnig nýtt- ur í þágu skólans. Ólafur segir að bóka- safnið fái yfir 300 fermetra til afnota í íþróttahúsinu en söfnin hafa nú 220 fer- metra pláss núna. Við flutning bókasafns grunnskólans mun losna pláss sem hægt verður að nota sem kennslustofu, ef á þarf að halda. Gamla íþróttahúsið er áfast grunnskól- anum og er sama og ekkert notað. Þarf að ráðast í miklar endurbætur á því til að koma því í not aftur. Raunar segir Ólafur listarskólinn fái nýtt húsnæði í skólanum. Nefndin sem skipuð var fulltrúum meiri- og minnihluta bæjarstjórnar var sammála um flutning tónlistarskólans en fulltrúi minnihlutans skilaði sérbókun varðandi endurnýjun gamla íþróttahússins. Taldi hann réttast að rífa húsið og byggja þar nýtt hús fyrir bókasafnið og grunnskólann. Ólafur Örn segir að búast megi við að slíkt hús myndi kosta 90 til 100 milljónir. Kveðst hann ánægður með vinnu nefnd- arinnar. Hún hafi lagt mikla vinnu í skýrslu sína og skoðað málið rækilega. Bæjarráð ákvað að vísa tillögum nefnd- arinnar til afgreiðslu bæjarstjórnar. Hún mun einnig fara til umfjöllunar í viðeigandi fagnefndum. Örn að komið hafi verið að miklu viðhaldi á húsinu sem hefði þurft að fara í hvort sem það hefði verið nýtt í þessum tilgangi eða ekki. „Með því að leggja í heldur meiri kostnað fæst viðunandi lausn á húsnæðis- málum bókasafnsins til langs tíma,“ segir Ólafur. Kostar 46 milljónir Kostnaður við flutningana er áætlaður 46 milljónir, að því er fram kemur. Á móti kemur að hægt verður að losa og selja hús tónlistarskólans og losa og selja eða leigja húsnæði bókasafnsins. Kostnaður mun því minnka til lengri tíma litið. Segir Ólafur áætlað að kostnaðurinn skili sér til baka á tíu árum. Bókasafnið verði öflugra og tón- Lagt til að tónlistarskólinn í Grindavík flytji í grunnskólann Gamla íþróttahúsið verði gert upp fyrir bókasöfnin Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Nýja bókasafnshúsið: Bókasafn Grindavíkur og bókasafn grunnskólans verða sameinuð í gamla íþróttahúsinu, sem er á skólalóðinni, samkvæmt tillögum sem nú liggja fyrir. Keflavík | Tónlistarfélag Reykjanesbæjar stend- ur fyrir nýárstónleikum með Tríói Reykjavíkur og gestasöngvurum í Listasafni Reykjanes- bæjar í Duushúsum í dag, föstudag, klukkan 20. Tríó Reykjavíkur skipa Guðný Guðmunds- dóttir fiðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari og Peter Máté píanóleikari. Sérstakir gestir verða söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) og Bergþór Pálsson. Tríó Reykjavíkur hefur í mörg ár haldið nýárstónleika í Hafn- arborg, síðast undir lok janúar sl. Diddú og Bergþór hafa verið gestasöngvarar með þeim síðustu þrjú árin. Boðið er upp á Vínartónlist, sígaunatónlist og tónlist úr þekktum söngleikjum, bæði evrópsk- um og amerískum og má þar meðal annars nefna syrpu úr Carousel eftir R. Rodgers. Moz- art mun bregða fyrir og hinir sívinsælu Strauss, Lehár og Kálmán verða á sínum stað. Af yngri höfundum má svo nefna Ravel, Piazzola og A. Lloyd Webber. Tekið er fram í fréttatilkynningu að ýmsar uppákomur geti orðið svo gestir þurfi að vera við öllu búnir. Tónlistarfélag Reykjanesbæjar var end- urvakið á síðasta ári og eru þetta fyrstu tón- leikar ársins á þess vegum. Verður sérstakur hátíðarbragur yfir tónleikunum í kvöld og boð- ið upp á léttar veitingar í hléi. Morgunblaðið/Ásdís Nýárstónleikar: Gunnar Kvaran sellóleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Peter Máté píanóleikari, sem skipa Tríó Reykjavíkur, koma ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Berg- þóri Pálssyni fram á tónleikum í Duushúsum. Tríó Reykja- víkur ásamt söngvurum Grindavík | Bæjarráð Grindavíkur hefur mótmælt breyttum afgreiðslu- tíma og aðgangi fólks að gámaplani í bænum. Sorpeyðingarstöð Suðurnesja hef- ur tekið við rekstri gámaplans sem Grindavíkurbær hefur rekið og mun reka það þar til nýtt gámaplan fyrir almenning verður tilbúið en búist er við því að það verði með vorinu. Sorpeyðingarstöðin er með starfs- mann sinn til aðstoðar á gámaplan- inu og hefur auglýst ákveðna af- greiðslutíma. Planið er opið síðdegis þrjá virka daga og eftir hádegi á laugardögum. Þá er planið nú ein- göngu ætlað almenningi og fyrir- tækjum ekki heimilað að losa þar úr- gang. Er þetta breyting frá því sem verið hefur því fólk og fyrirtæki hafa getað notað planið til að losa sig við úrgang allan sólarhringinn enda hef- ur engin gæsla verið á staðnum. Fram kemur í bókun bæjarráðs að fram hafi komið mikil óánægja bæjarbúa með skertan afgreiðslu- tíma. „Bæjarráð Grindavíkur getur ekki með nokkru móti fallist á þá skerðingu sem felst í breyttum af- greiðslutíma og aðgangi fólks að gámaplani í Grindvík og krefst þess að stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suð- urnesja veiti íbúum í Grindavík sömu þjónustu og veitt er íbúum annarra sveitarfélaga á Suðurnesj- um,“ segir í samþykkt ráðsins. Mótmæla breytt- um afgreiðslu- tíma gámaplans Ráðstefna um ferðamál | Ferða- málasamtök Suðurnesja efna í dag til ráðstefnu um ferðamál. Ráðstefn- an er haldin í Eldborg í Svartsengi og hefst klukkan 13.30. Á fundinum er fjallað um upp- byggingu ferðamála í einstökum sveitarfélögum og sagt frá tækifær- um sem svæðið býr yfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.