Morgunblaðið - 13.02.2004, Side 26
AUSTURLAND
26 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Hólmavík | Síðastliðið mánudags-
kvöld boðaði sameiningarnefnd á
vegum félagsmálaráðuneytisins til
fundar með sveitarstjórnarmönnum
á Ströndum í Sævangi. Nefndin
starfar innan átaksverkefnis ráðu-
neytisins um eflingu sveitarstjórnar-
stigsins, en auk hennar starfa að
verkefninu tekjustofnanefnd og
verkefnanefnd. Verkefnisstjóri er
Róbert Ragnarsson og var hann
meðal framsögumanna á fundinum.
Fundurinn var vel sóttur af sveit-
arstjórnarmönnum í öllum hreppum
Strandasýslu, utan Árneshreppi en
samgöngur þangað takmarkast jafn-
an við flug til Reykjavíkur á þessum
árstíma. Framsögumenn auk Ró-
berts voru Guðjón Bragason, skrif-
stofustjóri í félagsmálaráðuneytinu,
og Aðalsteinn Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags
Vestfjarða, sem jafnframt er fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssambands
Vestfjarða. Magnús Stefánsson al-
þingismaður, sem á sæti í sameining-
arnefndinni, stýrði fundinum. Þá
ávarpaði Elín Líndal, sem einnig á
sæti í sameiningarnefndinni, fund-
inn.
Í máli framsögumanna kom fram
að tilgangur kynningarfunda sem
haldnir eru víða um land um þessar
mundir, sé að kynna verkefniðsveit-
arstjórnarmönnum og leita eftir áliti
þeirra á öllum þáttum verkefnisins.
Ekki sé endilega lagt upp með fast-
mótuð markmið til sameiningar, þó
heimamenn á hverjum stað séu
vissulega hvattir til að skoða ýmsa
möguleika til sameiningar með opn-
um huga.
Ótti við að tekjustofnar
verði ekki nægjanlegir
Í dag eru sveitarfélögin í landinu
104 og ríflega helmingur þeirra mjög
fámenn sveitarfélög. Í máli þeirra
sveitarstjórnarmanna sem tjáðu sig
á fundinum mátti heyra að það væri
miklu fremur ótti við ákvarðanir af
hálfu ríkisins en ótti við sameiningu
við nágrannasveitarfélögin sem
fældi menn frá sameiningu. Varð-
andi áframhaldandi tilfærslu verk-
efna frá ríki til sveitarfélaganna ótt-
ast menn greinilega að nægjanlegir
tekjustofnar muni ekki fylgja með.
Þá var harðlega gagnrýnd skerð-
ing á framlagi ríkisins til málaflokka
eins og refa- og minkaveiða og húsa-
leigubóta, en mörg sveitarfélög hafa
þegar sent frá sér harðorðar álykt-
anir um þau mál. Einnig nefndu
menn að ekki færi hjá því að störfum
fækkaði jafnhliða hagræðingu í þjón-
ustu sveitarfélaganna eftir samein-
ingu.
Auðheyrt var að samgöngumál
eru sem fyrr ofarlega á baugi í sýsl-
unni og telja flestir að verulega
bættar samgöngur séu í raun for-
senda sameiningar. Strandamenn
hafa mjög horft til vegar yfir Arn-
kötludal og aukins samstarf við
Reykhólasveit og Dali í því sam-
bandi. Þá er ekki síður þörf á sam-
göngubótum innan sýslunnar og
þykir til að mynda fáheyrt að þétt-
býliskjarnar eins og Hólmavík og
Drangsnes skuli ekki vera tengdir
bundnu slitlagi.
Óskað eftir tillögum
fyrir vorið
Þegar hefur verið óskað eftir til-
lögum frá sveitarfélögunum sjálfum
varðandi sameiningu og eiga þær að
berast í vor. Sumarið verður svo tek-
ið í að taka við breytingartillögum og
móta endanlegar tillögur út frá
þeim.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að
kjósa um sameiningu vorið 2005, en
þá er rétt um ár eftir af kjörtímabili
sveitarstjórnarmanna.
Sameining rædd á
fundi í Sævangi
UM 250–300 fjár verður fargað
vegna riðutilfellis sem kom upp á
bænum Vegatungu í Biskupstungum
á dögunum. Um er að ræða fé af
þeim bæ auk bæja í næsta nágrenni
sem hýst hafa fé frá Vegatungu.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um
frekari aðgerðir en Halldór Runólfs-
son yfirdýralæknir segir áhyggju-
efni að riða sé að breiðast út í Árnes-
sýslu. Hann segir að fundað verði
með fulltrúum sýslunnar á næstu
dögum til að ræða frekara framhald
aðgerða.
Almennir fundir voru haldnir með
bændum í Hrunamannahreppi og
Biskupstungum nýverið til að ræða
um ástandið og hvernig hægt sé að
efla samvinnu, eftirlit með fénaði og
bæta eftirfylgni, til að koma í veg
fyrir að riðan breiðist frekar út. Að
sögn Sigurðar Sigurðarsonar dýra-
læknis er mjög mikilvægt að bændur
hætti allri verslun með fé, efli merk-
ingar og hýsi ekki fé frá öðrum.
Sigurður segir að mikill vilji sé
meðal bænda að ná tökum á veik-
inni. Hann segir aðgerðir gegn riðu-
veiki hafa tekist vel hingað til en að
það sé mjög auðvelt að missa allt
niður og að veikin fari að breiðast út
á nýjan leik, gái menn ekki að sér.
„Þetta er viðkvæm staða,“ segir Sig-
urður.
Um 300 fjár verða
felld vegna riðuveiki
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Útbreiðsla riðunnar áhyggjuefni
Fáskrúðsfjörður | Gerð vegganga
milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðar-
fjarðar er nú ríflega hálfnuð.
Ásgeir Loftsson, verkfræðingur
og staðarstjóri Ístaks við Fá-
skrúðsfjarðargöng, sagði í samtali
við Morgunblaðið að lokið væri
52% af gangalengdinni. „Það er
búið að grafa nánast jafnlangt
Reyðarfjarðar- og Fáskrúðsfjarð-
armegin, 1.460 metra frá Fá-
skrúðsfirði og og 1.500 metra
Reyðarfjarðarmegin,“ sagði Ás-
geir.
„Vinnan hefur gengið mun betur
frá Fáskrúðsfirði, þar sem bergið
er betra. Þar var byrjað tveimur
mánuðum seinna en Reyðarfjarð-
armegin.“
Aðspurður hvort Ístaksmenn
séu búnir með versta kaflann í
berginu segir Ásgeir gangamenn
enn vera að lenda í erfiðleikum
með bergið. „Við vitum ekki al-
mennilega hvernig þetta verður.
Hönnunin hefur þó alveg haldið
sér og við höfum ekki þurft að
víkja af stefnu. Göngin liggja beint
í gegn, með halla að hábungu und-
ir miðju fjalli. Við erum með 70
manns í vinnu hjá okkur og und-
irverktakar eru með 15 manns.
Verkið er á ágætum tíma og við
gerum ráð fyrir því að göngin nái í
gegn í nóvember í ár, en við verð-
um eitthvað fyrr komnir í gegn en
það, sjálfsagt um mitt sumar. Það
breytir þó ekki tímasetningu á
verklokum, því við notum bara
meiri tíma í þá vinnu sem eftir er,“
sagði Ásgeir. Aðallega er unnið að
vegagerð Fáskrúðsfjarðarmegin
og efni úr göngunum notað í upp-
fyllingu.
Göngin verða 5,9 km löng og
munu í heild sinni ásamt nýjum
14,4 km löngum tengivegi kosta
3,8 milljarða króna.
Hittast í miðju fjalli í sumar ef svo fer fram sem horfir
Ljósmynd/Páll Björgólfsson
Borvagninn grefur sig að fjallsmiðju: Nú eru 52% ganganna boruð og stefnt er að því að ljúka borun í sumar.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Þeir taka ærlega til matar síns eftir snúna glímu við Fáskrúðsfjarðargöng:
Tölvumennirnir Steingrímur Gautur Pétursson og Ragnar Þorgeirsson,
ásamt Ólafi Páli Sölvasyni verkstæðisverkstjóra.
Hálfnaðir með Fáskrúðsfjarðargöng
„ÞAÐ hefur verið basl hérna
Reyðarfjarðarmegin,“ segir Páll
Björgólfsson jarðfræðingur, sem
vinnur við Fáskrúðsfjarðargöng.
„Það eru tveir slæmir kaflar af
setlögum sem við höfum þurft að
hafa okkur í gegnum. Einn þynnri
og annar þykkur, upp á sex
metra. Setlögin eru miklu mýkri
og þau halda ekki uppi eigin
þyngd og hrynja niður úr loftinu
ef ekkert er að gert. Þar að auki
fáum við svokallað kirkjuloft í set-
lögunum, þannig að göngin verða
óstöðugri en ella og verður að
verja miklum tíma í að styrkja
þau og gera öruggari. Við lentum
líka í misgengi hér nýlega og
hrundi mjög mikið úr því. Bergið
var kurlað í 10 til 20 cm lagi og
heldur sér ekki uppi. Ef slíkt er
fyrir ofan göng hrynur það niður.
Við þurftum einnig að fara í sér-
tækar aðgerðir til að styrkja það.
Þessi vandkvæði eru Reyð-
arfjarðarmegin, en Fáskrúðsfjarð-
armegin er nokkurn veginn ein-
tóm blíða. Við erum að langmestu
leyti búnir að elta sama jarðlagið
þar,“ segir Páll.
Basl vegna setlaga og mis-
gengja Reyðarfjarðarmegin
Neskaupstaður | Á miðvikudag var
Þorbergur Ingi Jónsson útnefndur
íþróttamaður Þróttar í Neskaupstað
árið 2003. Aðrir sem fengu tilnefn-
ingu voru Agnes Heiða Þorsteins-
dóttir fyrir sund, Arna Mekkín
Ragnarsdóttir fyrir skíði og knatt-
spyrnu, Ingi Steinn Freysteinsson
fyrir knattspyrnu og Miglena Apost-
olova fyrir blak.
Þorbergur var útnefndur íþrótta-
maður Þróttar fyrir knattspyrnu og
hlaup, en hann hefur verið lyk-
ilmaður í knattspyrnuliði Fjarða-
byggðar undanfarin ár. Einnig hefur
hann náð góðum árangri í milli-
hlaupum og fjallahlaupum und-
anfarin ár.
Hættur í fóboltanum
Að sögn Þorbergs Inga eru fjalla-
hlaupin eftirminnilegust á síðasta
ári, en þá tók hann m.a. þátt í Þor-
valdsdalshlaupi og Eiðahlaupi og
varð í fyrsta sæti.
„Það er fyrst núna sem ég er að
byrja að æfa hlaup. Ég er hættur í
fótboltanum, a.m.k. í bili, og farinn
að stunda hlaup,“ segir Þorbergur
Ingi, sem nú um áramótin gekk til
liðs við UMSS til geta stundað
hlaupaæfingar. Framundan er
spennandi ár hjá Þorbergi Inga og
m.a. fer hann í æfingabúðir til Or-
lando með UMSS um páskana.
Fjallahlaupin
skemmtilegust
Ljósmynd/J.V.J.
Hlauparinn og knattspyrnumað-
urinn knái: Þorbergur Ingi Jónsson
er íþróttamaður Þróttar í Neskaup-
stað árið 2003.