Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 32

Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 32
UMRÆÐAN 32 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ AÐ undanförnu hefur verið fullyrt í fjölmiðlum, m.a. í fréttaviðtölum á Stöð 2 og í aðsendum greinum í Morgunblaðinu, að hlutdeild „fyr- irtækjasamstæðu Baugs Group hf.“ á íslenskum matvörumarkaði sé „yf- ir 60%“. Samkvæmt nýlegum mæl- ingum ACNielsen er markaðshlutdeild mat- vöruverslana Haga hf. rétt innan við 48% á landsvísu, en markaðs- rannsóknir þess fyr- irtækis njóta alþjóð- legrar viðurkenningar. Inn í mælingar fyr- irtækisins vantar sölu- tölur frá nokkrum að- ilum, t.d. Kaupfélagi Skagfirðinga, Europr- is og bensínstöðvum. Því er markaðs- hlutdeild verslana Haga hf. á íslenskum matvörumarkaði nokkru lægri en að framan greinir eða eitthvað innan við 45%. Baugur Group hf. er stærsti eigandi Haga hf. sem aftur á og rekur versl- anakeðjurnar Hagkaup, 10–11 og Bónus. Mikilvægt er að fara rétt með slík- ar tölur, ekki síst þegar markaðs- hlutdeild fyrirtækja á matvörumark- aði er nefnd sem ein forsenda hugsanlegrar lagasetningar til að sporna gegn hringamyndun og fá- keppni. Töluverður munur er á 60% og 45% markaðshlutdeild. Þá er uppbygging matvörumarkaðarins mjög áþekk því sem gerist annars staðar, t.d. í Danmörku, Noregi, Sví- þjóð, Finnlandi og víðar í Evrópu, þar sem tveir til þrír stærstu að- ilarnir í hverju landi hafa samtals um 70–80% markaðshlutdeild á mat- vörumarkaði (í Svíþjóð er hlutfall 3ja stærstu 95%). Sú þróun, sem hér hefur orðið, er þannig í samræmi við þróunina annars staðar. Hagræðið fyrir neytendur felst í nútímalegri verslunum, auknu vöruúrvali og meiri þjónustu. Engum dylst, sem kynna sér málið af sanngirni og yf- irvegun, að samkeppni er mikil á milli íslenskra matvörukeðja. Til- koma lágvöruverðsverslana á borð við Bónus hefur leitt til lækkaðs matvöruverðs, en aðeins í þeim vöru- flokkum þar sem samkeppni fær notið sín í framleiðslu og innflutn- ingi. Íslensk verslun er þar fyllilega samkeppnisfær við verslanir í sam- anburðarlöndum. Hátt matvöruverð á Íslandi er fylgifiskur einokunar á framleiðslustigi sem einkum stafar af landbúnaðar-, tolla- og vöru- gjaldastefnu stjórnvalda, svo ekki sé minnst á virðisaukaskatt á matvöru. Ýmsir hafa orðið til þess að full- yrða að „hvergi í veröldinni yrði leyft að fyrirtæki með yfir 60% markaðshlutdeild á matvörumarkaði fengi að kaupa 2/3 af dagblöðum og 50% af útvarps- og sjónvarps- fréttastöðvum landsins“. Þarna er staðreyndum hagrætt með villandi framsetningu. Í fyrsta lagi eru Hag- ar hf. í eigu fleiri aðila en Baugs Gro- up hf. sem fjárfestingarfélag og á hlutafé í mörgum fyrirtækjum. Hér er ekki um eitt og sama fyrirtækið að ræða og Hagar hf. hafa ekki keypt neinn hlut í fjölmiðli. Þá eru Norðurljós hf. í eigu fleiri aðila en Baugs Group hf. þó að fyrirtækið eigi þar stærstan hlut. Í öðru lagi er markaðshlutdeild Haga hf. ekki yfir 60% á landsvísu heldur líklega undir 45% líkt og að framan greinir. Þá er í þriðja lagi villandi að tala með þess- um hætti um „2/3“ af dagblöðum vegna þess að þar var staðan til langs tíma sú, að tvö veikburða blöð öttu kappi við mjög öflugt Morg- unblað. Fréttablaðið og DV römb- uðu á barmi gjaldþrots en með nýj- um eigendum og bættum rekstri hafa þau styrkt stöðu sína í sam- keppninni. Ef Baugur Group hf. hefði ekki séð viðskiptatækifæri í þessari stöðu væri myndin mun ein- faldari. Einn aðili réði þá í raun dag- blaðamarkaðnum. Svipað var uppi á teningnum þegar Baugur Group hf. hafði frumkvæði að því að forða Stöð 2 frá yfirvofandi gjaldþroti. Með sameiningu þriggja fjölmiðla undir merkjum Norðurljósa hf. og aðkomu nýrra fjárfesta undir forystu Baugs Group hf. er verið að styrkja stoðir frjálsrar fjölmiðlunar í landinu og tryggja fjölbreytni. Niðurstöður rann- sókna og fjölmiðlakann- ana t.d. frá Gallup í des- ember sl. sýna, að áhorf og hlustun á sjónvarps og útvarpsstöðvar RÚV er mun meiri en hjá einkareknu stöðvunum. Vitaskuld stefna nýir eigendur og stjórn- endur Norðurljósa hf. að því að auka áhorf og hlustun útvarps- og sjónvarpsstöðva sinna, en eins og staðan er þá er beinlínis villandi að setja hlutina fram með þeim hætti að „2/3“ dagblaða og „50%“ fréttastofa útvarps og sjónvarps sé nú á einni hendi og tala um það sem hættulegan hlut. Sterk staða Morgunblaðsins og fréttastöðva RÚV réttlæta engan veginn slíka framsetningu. Fremur mætti segja, að með aðkomu Baugs Group hf. hafi verið tryggt að hér yrðu áfram þrjú dagblöð, en ekki að- eins eitt, tvær sjónvarpsfréttastofur, en ekki aðeins ein, og tvær útvarps- fréttastofur, en ekki aðeins ein. Í samkeppnisfræðum Evrópurétt- arins er viðurkennt að heimilt sé að slaka á reglum til að koma í veg fyrir samruna eða náið samstarf fjölmiðla í löndum þar sem er öflugt rík- isútvarp. Á Íslandi er öflugt rík- isútvarp, hljóðvarp og sjónvarp, sem veikir mjög stöðu allra samkeppn- isaðila ekki síst á auglýsingamark- aði. Allir kaupendur útvarps- viðtækja eru lögbundnir áskrifendur að sjónvarps- og útvarpsdagskrá RÚV. Þeir hafa ekkert val og má segja, að RÚV hafi 100% markaðs- hlutdeild. Stofnunin hefur óheftan aðgang að auglýsingamarkaði og hefur þar gríðarlegt forskot vegna útbreiðslu sinnar, sem aftur hvílir á skylduáskriftinni. Forsenda áskrif- anda að Stöð 2 eða hlustanda að Bylgjunni er, að hann verði fyrst áskrifandi að útvarps- og sjónvarps- rekstri ríkisins áður en hann kaupir þjónustu einkafyrirtækisins. RÚV hefur því ægivald yfir öllum hugs- anlegum samkeppnisaðilum og stað- an er enn styrkari því ríkisvaldið ber ábyrgð á árlegum hallarekstri stofn- unarinnar. Til samanburðar má geta þess að í Bretlandi er ríkisfjöl- miðlum óheimilt að keppa við frjálsu stöðvarnar um auglýsingar. Nýlega var tveimur stórum sjónvarps- stöðvum þar í landi heimilað að sam- einast til að treysta grundvöll sam- keppni þeirra við BBC og byggir það á þeim sjónarmiðum, að slaka beri á reglum um samruna þegar ríkisfjöl- miðill hefur slíka yfirburðastöðu. Hér á landi eiga slík sjónarmið jafn- vel ennfrekar við í ljósi þess að RÚV hefur auk áskriftargjaldanna óheft- an aðgang að auglýsingamarkaði. Ástæða þess að Baugur Group hf. gerðist hluthafi í sameinuðu fjöl- miðlafyrirtæki undir merkjum Norðurljósa hf. er viðskiptalegs eðl- is. Baugur Group hf. er fjárfestinga- fyrirtæki sem m.a. sérhæfir sig í því að koma inn í rekstur með fjármagn og þekkingu, styrkja fyrirtækin og efla m.a. með aðhaldsaðgerðum. Þetta hefur fyrirtækið gert víðar og með góðum árangri. Eins og fram hefur komið opinberlega er ætlunin að koma Norðurljósum hf. á almenn- an markað á næsta ári þannig að það verði að almenningseign. Þetta framtak miðar þannig að því að treysta undirstöður frjálsra fjöl- miðla á Íslandi og skapa skilyrði raunverulegrar samkeppni við þá öflugu fjölmiðla sem fyrir eru. Rétt skal vera rétt Hreinn Loftsson skrifar um markaðshlutdeild Baugs Hreinn Loftsson ’ Töluverðurmunur er á 60% og 45% mark- aðshlutdeild. ‘ Höfundur er stjórnarformaður Baugs Group hf. Í GREIN um Háskóla Íslands í Morgunblaðinu s.l. laugardag gerir nýskipaður menntamálaráðherra fjárveitingar til háskóla að umtalsefni og býðst til í því sam- bandi að að láta fara fram „stjórnsýslu- og fjárhagsúttekt sem taki til allra deilda Háskóla Íslands“ til að meta stöðu hans og marka framtíðarstefnu. Þetta hugtak, „stjórnsýslu- og fjárhagsúttekt“, er orðið einhvers konar töfraformúla á sviði hvers konar opinberrar þjónustu, menntamála, heilbrigðismála, félags- mála. Þar með er hags- pekingum og endurskoðunarfyr- irtækjum gefið úrskurðarvald um fjölþætt og flókið starf sem þeir hafa engar forsendur til að skilja, hvað þá setja verðmiða á eins og til er ætlast. Undanfarinn áratug hafa reyndar all- ar fjárveitingar til æðri menntastofn- ana verið byggðar á framleiðnisú- treikningum eins og um hverjar aðrar verksmiðjur væri að ræða. Reiknilíkan sem lagt hefur verið til grundvallar byggist á „þreyttum ein- ingum“, þ.e.a.s. fjölda áfangaprófa sem nemendur þreyta og ná. Augljóst má vera að hér er lagt að jöfnu nám sem er afar ólíkt innbyrðis. Sumar námsgreinar eru betur til þess fallnar að útskrifa fjölda nemenda en aðrar, sem reyndar sést glöggt á því að inn- an nýju háskólanna er lögð áhersla á kennslu í þess háttar námsgreinum þannig að jaðrar við offramboð. Við þetta bætist að háskólar eru sam- kvæmt gamalli skilgreiningu ekki að- eins kennslu- heldur einnig rann- sóknarstofnanir. Framlag þingmanna, sem eru sjálfir nýútskrif- aðir, til deilna um fjárveitingar til há- skóla og um skiptingu rannsóknarfjár hefur verið svo frumstætt og illa upp- lýst að það ætti að vera gömlum kennurum þeirra sérstakt áhyggju- efni. Núverandi háskólar á Íslandi eru mjög ólíkir innbyrðis. Þar má hafa til glöggvunar þá aðgreiningu sem t.a.m. Þjóðverjar gera milli Universität og Hochschule. Annars vegar er stofnun sem skiptist í margar deildir ólíkra vísindagreina sem annast vísindalega menntun og rannsóknir, hins vegar stofnun á há- skólastigi sem annast starfsmenntun og rann- sóknir á því sviði. Há- skóli Íslands er eina há- skólastofnunin sem hefur burði til að falla undir fyrri skilgrein- inguna. Hann hefur hins vegar, á vissum sviðum, átt æ erfiðara upp- dráttar. Markaðshugsunarhátturinn sem ráðið hefur „menntasókn“ síð- ustu ára hefur valdið alvarlegum kyrkingi innan ýmissa þeirra greina sem teljast óarðbærar samkvæmt þröngum skilningi fjármálaspekinga. Því geri ég þetta að umræðuefni að þessi stefna er á góðri leið með að ganga af þeirri grein dauðri sem ætti að vera eitt helsta stolt íslensks há- skólasamfélags, kennslu og rann- sóknum í íslenskum bókmenntum. Á 5 árum, frá 1998 hefur það gerst að þrír prófessorar í íslenskum bók- menntum við Háskóla Íslands hafa látið af störfum. Allar þær stöður voru lagðar niður. Einn lektor var ráðinn í staðinn. Á þessu misseri munu einn prófessor og einn dósent hætta störfum, auk þess sem deildin varð nú fyrir því hörmulega áfalli að einn af þremur fastráðnum dósentum sem eftir voru andaðist nú um daginn langt fyrir aldur fram. Síðustu fréttir herma að einn lektor muni að lík- indum verða ráðinn til að fylla í þessi stóru skörð. Þess má líka geta að pró- fessor í íslenskri málfræði lét af störf- um á síðasta ári og um leið verður sú staða væntanlega lögð niður. Íslensk fræði, bókmenntir og mál- fræði voru meðal þeirra fáu greina sem kenndar voru þegar Háskóli Ís- lands var stofnaður. Þetta eru grund- vallarfræði þess þjóðararfs sem við ávöxtum. Margir erlendir háskólar leggja rækt við þessi fræði og lengi höfðu háskólamenn þann metnað að Íslendingar ættu að hafa þar mynd- arlega forystu, t.a.m. í kennslu og rannsóknum varðandi íslensk fornrit, enda ættum við að hafa alla burði til þess. Raunverulegur háskóli býður upp á kennslu í fjölbreyttustu grein- um. Til dæmis hlýtur Háskóli Íslands að telja það skyldu sína að annast kennslu í grísku og latínu vegna þess að hann er eini háskólinn sem það gerir, enda þótt aðeins örfáir nem- endur þreyti þar einingar og námið „borgi sig“ þannig engan veginn. Þessar óarðbæru greinar eru flestar innan heimspekideildar, og af sjálfu leiðir að ef fjárveitingarvaldið er blint á sérstöðu slíkra deilda, og þar með menningarlega skyldu ríkisháskóla, þá er einstökum greinum innan þeirra ógnað. Það er tími til kominn að hætt verði að alhæfa um háskólastigið og fjallað um vanda Háskóla Íslands út af fyrir sig. Og það er tími til kominn að rétta hlut þeirra greina sem markaðs- hyggjan er um það bil að færa í kaf. „Menntasókn“ og markaðshyggja Þorleifur Hauksson skrifar um vandamál háskólastigsins ’Það er tími til kominnað hætt verði að alhæfa um háskólastigið og fjallað um vanda Háskóla Íslands út af fyrir sig. ‘ Þorleifur Hauksson Höfundur er íslensku- og bókmenntafræðingur og fyrrverandi stjórnarmaður í Hollvinafélagi heimspekideildar. TVÆR fréttir frá síðasta ári eru mér hugstæðari en aðrar. Önnur var sá dómur Hæstaréttar sem fól m.a. í sér að læknum væri heimilt að vinna læknisverk á kostnað sjúklingsins sjálfs án þátttöku Tryggingastofn- unar ríkisins (TR) í kostnaði. Menn eru þó ekki á eitt sáttir um hvað fólst í þessum dómi í raun og veru. Hin var um viðbrögð stjórnar Landspítala – háskólasjúkrahúss við niðurstöðu fjárlaga um framlög til spítalans, en þar kom fram sú hugmynd að sjúklingar tækju þátt í kostnaði við legu á spítalanum. Þessar fréttir, og reyndar einnig fréttir af því uppnámi sem verið hefur um samn- inga sérfræðilækna við TR að undanförnu, hafa rifjað upp fyrir mér hugmynd sem mótaðist í huga mínum fyrir áratug eða svo. Mér virðist tímabært að koma þess- ari hugmynd á framfæri þótt mér sé ljóst að ég verði kallaður villu- trúarmaður af Jóni Ingihvati, þ.e. þrem síðustu heilbrigðisráðherrum, og öðrum þeim innan þings og utan sem játast undir trúarjátninguna: „Sjúklingar eiga ekki og mega ekki greiða fyrir læknisþjónustu.“ Svo var háttað hjá mér fyrir um áratug að ég þurfti mjög á þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda bæði innan og utan sjúkrahúsa. Umræða fór einnig á þeim tíma fram um þátt- töku sjúklinga í kostnaði við lækn- ishjálp og aðra heilbrigðisþjónustu. Þá eins og nú mátti skipta kostn- aðinum í þrjá þætti, kostnað við spít- alavist, kostnað vegna heimsókna til heimilislækna og sérfræðilækna og kostnað vegna lyfjakaupa. Mér tald- ist til að árlegur kostnaðarhluti minn í þessum þrem þáttum þegar hann var hvað mestur væri svona 50–60 þúsund krónur á ári. Mér var einnig ljóst að stóran hluta ævinnar hafði þessi greiðslu- byrði mín verið veru- lega mikið lægri en þetta. Hún náði til ör- fárra heimsókna til læknis á ári hverju og tilheyrandi lyfjakostn- aðar, og sum árin var kostnaður minn eng- inn. Í ljósi þessa varð til eftirfarandi hug- mynd eða tillaga sem nú fyrst lítur dagsins ljós af minni hálfu. „Litið verði á of- antalda þrjá þætti heil- brigðiskerfisins sem eina heild. Tryggingastofnun rík- isins verði breytt úr skömmt- unarskrifstofu fyrir læknishjálp í raunverulega tryggingastofnun. Hver einstaklingur greiði sjálfur alla heilbrigðisþjónustu allt að ákveðinni upphæð á ári, t.d. sextíu þúsund krónum. TR greiði veru- legan hluta, t.d. 80–90%, þess kostn- aðar sem umfram er. Heilbrigð- iskostnaður barna teljist hluti heilbrigðiskostnaðar framfærslufor- eldris. Sérstakar reglur verði settar um greiðsluhluta lífeyrisþega, lang- sjúkra og öryrkja.“ Ég tel að lækka megi kostnað rík- isins af heilbrigðisþjónustu verulega með reglum af þessu tagi. Hversu mikið fer eftir þeim upphæðum og hundraðstölum sem notaðar verða. Sparnaði má ráðstafa að hluta til að draga úr fátækt og að hluta til al- mennrar skattalækkunar. Auk þess mun þetta leiða til mun betri vit- undar almennings um hver raun- verulegur kostnaður vegna lyfja og læknishjálpar er. Mér er ljóst að tillögur af þessu tagi krefjast ýmissa breytinga á lög- um og reglugerðum um heilbrigð- ismál sem ekki verður farið nánar út í hér. Erfiðasti hjallinn við kerf- isbreytinguna yrði þó án efa sá að bæði veitendur heilbrigðisþjónust- unnar og neytendur yrðu að breyta að nokkru hugarfari sínu. Slíkt er ávallt erfitt, einkum þegar um trú- aratriði er að ræða eins og ég ýjaði að í upphafi. Trúarjátningar verða til við ákveðnar aðstæður. Eðli þeirra er að halda áfram að vera í gildi þótt nýjar aðstæður krefjist nýrrar hugs- unar. Trúarjátning sú sem ég nefndi hér að framan varð til þegar læknar voru færri en svo að þeir önnuðu eft- irspurn og fátækt var almennari en nú er. Nú er hins vegar svo komið að læknar virðast anna eftirspurn, flöskuhálsinn er greiðslukerfið. Þess vegna þarf nýja hugsun. Sjúkratryggingar Sigurbjörn Guðmundsson fjallar um tvær fréttir sem urðu honum hugstæðari en aðrar á sl. ári ’Nú er hins vegar svokomið að læknar virðast anna eftirspurn, flösku- hálsinn er greiðslukerf- ið.‘ Sigurbjörn Guðmundsson Höfundur er verkfræðingur og lífeyrisþegi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.