Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 35

Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 35 únað og tæki verði hægt að laga ólíkra hópa og einstaklinga. Hið r um heimasíður sem verða æ eiri hluti upplýsingasamfélagsins em tímar líða fram.“ rnþór að innan Evrópusam- æri nú unnið að tillögum um eiga að tryggja aðgengi fatl- plýsingum. „Framleiðendur sig á því að allt að fjórðungi getur ekki nýtt sér nútímatækni s hvernig hún er úr garði gerð. fna ýmsa hópa fatlaðra svo sem sjónskerta, lesblinda, hreyfi- g þroskahefta. Samkvæmt drög- rslu sem Evrópusambandið hef- ur látið vinna um fjarskipti og upplýsingasamfélagið má gera ráð fyrir að þessi hópur fari jafnvel stækkandi á næstu árum. Þar er gengið út frá því að 10. hver maður sé fatlaður og með hærra hlutfalli aldraðra eykst þessi hluti á næstu árum.“ Arnþór sagði ennfremur í ávarpi sínu að hér á landi væri fólk að átta sig á því hversu miklu það skiptir að allir hafi greiðan aðgang að upplýsingum. „Það skiptir fatlaða og aldraða meira máli en flesta aðra að einangrun þeirra sé rofin. Stjórnvöldum ber að búa svo um hnútana að sú þjónusta sem veitt er og byggist á upplýsingatækninni, sé öllum að- gengileg.“ pplýsingasamfélaginu á Grand hóteli í gær nda þess að allir í samfélaginu Morgunblaðið/Þorkell ginu. Kynntar voru nýjungar í tækni, m.a. svokallaður talgervill. UNDANFARNA daga hafa fjár- framlög til Háskóla Íslands og annarra skóla á háskólastigi, einkum einkaskóla sem kostaðir eru að miklu leyti af al- mannafé, verið til um- ræðu í fjölmiðlum. Tals- menn einkaskólanna hafa borið þá saman við Háskóla Íslands líkt og væru þeir sambærilegir að öllu leyti og haldið því á lofti að fjárveitingar til Háskólans séu mun hærri miðað við fjölda stúdenta en til annarra skóla í landinu. Þessi málflutningur byggist hins vegar á mikilli ein- földun því ekki er horft til þess að hlutverk og verkefni skólanna eru ólík og saman- burður af þessu tagi af þeim sökum afar villandi. Í því efni má reyndar spyrja hvort skynsamlegt sé og æskilegt að ætla öllum íslenskum skólum á háskóla- stigi sama hlutverk og sömu verkefni. Spurningin á ekki síst erindi við þá sem taka ákvörðun um heildarhagsmuni samfélagsins – sem eru þeir hagsmunir sem ganga verður út frá þegar höndlað er með almannafé. Íslenskt samfélag er lítið samfélag í samfélagi þjóðanna og þjóðin er fámenn. Háskóli Íslands er lít- ill háskóli í hinu alþjóðlega samfélagi háskólanna. Þessar einföldu en um leið mikilvægu staðreyndir vilja stundum gleymast. Spurningin er á hvern veg er skynsamlegt – og æskilegt – að há- skólastigið á Íslandi þróist og hvernig almannafé verður best varið. Hugtök og notkun þeirra Hvarvetna í nágrannalöndum okkar er gerður greinarmunur á tegundum skóla á háskólastigi eftir hlutverkum. Þessi munur er ekki nýr af nálinni held- ur hefur hann mótast í aldanna rás og hefur orðið æ skýrari á síðustu árum. Í umfjöllun erlendis og alþjóðlegum samningum sem snerta málefni æðri menntunar, til dæmis hjá Evrópu- ráðinu, Menningarmálastofnun Sam- einuðu þjóðanna (UNESCO), Efna- hags- og framfarastofnuninni (OECD), Evrópusambandinu (ESB) og Samtök- um Evrópskra háskóla (EUA), eru not- uð hugtökin nám að loknum framhalds- skóla (tertiary education), æðri menntun (higher education), æðra menntakerfi (higher education system), æðri menntastofnun (higher education institution), nám á æðra skólastigi (hig- her education programme), háskóli (university), rannsóknir (research) og hugtakið æðri menntastofnun sem ekki er háskóli (non-university higher education institution). Þannig er einnig talað um háskóla (universities) og aðrar æðri menntastofnanir (other higher education institutions). Öll þessi hugtök bera tiltekna merkingu og eru nátengd hvert öðru eðli máls samkvæmt. Þau eru tilgreind hér á ensku í sviga eins og þau eru í opinberum textum og samn- ingum. Þýðing hugtakanna úr ensku á íslensku liggur beint við og er að vissu marki viðtekin, enda þótt orðið háskóli á íslensku sé ekki alls kostar viðeigandi um hugtakið „university“ og orðið há- skólastig sé oftar notað um það sem átt er við með „higher education“, en orðin æðri menntun. Að öllu samanlögðu er líklega einfaldast að nota orðið háskóli um university og skóli á háskólastigi um aðrar æðri menntastofnanir. Hvort tveggja er orðið munntamt og á sér ákveðna stoð í lögum um háskóla nr. 136/1997. Háskóli og rannsóknir Megineinkenni háskóla (university) er að þar er staðið fyrir kennslu og rann- sóknum á fjölmörgum fræðasviðum á mörgum stigum náms og veitt doktors- gráða. Aðrar æðri menntastofnanir hafa yfirleitt minni fjölbreytni í fram- boði náms sem miðast einkum að því að veita stúdentum tiltekna starfshæfni eða bjóða æðra nám eingöngu á einu eða takmörkuðum fjölda fræðasviða. Þeir eru því yfirleitt sérskólar á há- skólastigi. Þessi munur á skólum og hlutverkum þeirra er skilgreindur í lög- gjöf ríkja. Hér á landi kemur hann að nokkru fram í fyrrnefndum lögum um háskóla nr. 136/1997 og í nánari út- færslu í sérlögum, skipulagsskrám og reglum sem gilda um hvern skóla fyrir sig. Í lögunum um háskóla er notað samheitið háskóli um stofnanir sem rækt geta ólík hlutverk og skulu sumir skólar samkvæmt lögunum hafa rann- sóknahlutverk, en aðrir ekki. Í lögum um Há- skóla Íslands nr. 41/1999 er sérstaklega kveðið á um að Háskólinn skuli vera vísindaleg rann- sókna- og fræðslustofn- un. Vegna mismunandi hlutverka skóla á há- skólastigi er því mismun- andi hvernig fjárveiting- ar skiptast á milli þessara þátta, kennslu og rannsókna. Samningar um kennslu og rannsóknir Á grundvelli mismunandi hlutverka skólanna, sem öll eru mikilvæg, gera stjórnvöld samninga við skólana og veita fé til þeirra á fjárlögum. Þannig eru gerðir sérstakir samningar við ein- staka skóla um kennslu og sérstakir samningar um rannsóknir. Stjórnvöld hafa samið við alla skóla á háskólastigi um kennslu, hvort sem þeir eru í eigu ríkisins eða sjálfseignarstofn- ana. Þessir skólar eru, auk Háskóla Ís- lands; Kennaraháskóli Íslands, Háskól- inn á Akureyri, Tækniháskóli Íslands, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri, Háskólinn í Reykjavík, Listaháskóli Ís- lands og Viðskiptaháskólinn á Bifröst. Hólaskóli og Garðyrkjuskóli ríkisins hafa einnig fengið heimild til að bjóða nám í tilteknum greinum á háskólastigi. Samkvæmt reglum stjórnvalda um fjárframlög til kennslu í skólum á há- skólastigi eru kennslugreinar flokkaðar í nokkra reikniflokka eftir kostnaði við kennslu mismunandi greina. Skólarnir fá sömu framlög á hvern virkan nem- anda (þ.e. nemanda í fullu námi) fyrir kennslu í sambærilegum greinum. Þannig er veitt sama fjárhæð á virkan nemanda í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og t.d. er veitt á virkan nem- anda í rekstrarfræðinámi í Viðskiptahá- skólanum á Bifröst og í Háskólanum í Reykjavík. Háskóli Íslands er hins vegar eini skólinn sem stjórnvöld hafa jafnframt samið við um rannsóknir. Fjárveiting til rannsókna er ekki tengd við fjölda virkra nemenda, heldur er Háskólanum gert að ná árangri í rannsóknum fyrir þá fjárveitingu. Árangur og rannsókna- virkni eru mæld með sérstöku mats- kerfi, fjölda útskrifaðra meistara- og doktora og upphæð rannsóknastyrkja sem Háskólinn aflar úr innlendum og erlendum rannsóknasjóðum. Þessara styrkja er aflað í samkeppni við aðra háskóla og rannsóknastofnanir innan lands og utan. Auk þess aflar Háskólinn sértekna með ýmsum þjónusturann- sóknum. Menntamálaráðuneytið fylgist með því hvernig Háskólinn bætir og þróar aðferðir við mat á árangri rann- sókna. Fjárveiting til rannsókna samkvæmt samningnum er þannig algerlega óháð fjárveitingu til kennslu. Gerðar eru strangar kröfur um árangur og virkni í rannsóknum. Ekki nægir að segja að öflugar rannsóknir fari fram, gerð er krafa um að niðurstöður hafi birst á við- urkenndum vettvangi og árangur og virkni mæld með hlutlausum mæli- kvörðum sem viðteknir eru í hinu al- þjóðlega vísindasamfélagi. Rannsóknir Rannsóknir eru ekki samheiti yfir hvað sem er. Þær eru fyrst og fremst stund- aðar til þess að öðlast nýja þekkingu; beitt er vísindalegri aðferð sem byggir eingöngu á hlutlausum endurteknum tilraunum, orsaka- og röksamhengi og fræðilegri gagnrýni. Í hinu alþjóðlega samfélagi vísinda og fræða er gerður greinarmunur á tegundum rannsókna eftir því hvert markmið þeirra er og greint á milli grunnrannsókna (basic re- search), hagnýtra rannsókna (applied research) og tilraunaþróunar (experi- mental development). Markalínan á milli grunnrannsókna og hagnýtra rannsókna og þróunar er oft óljós, en ekki er rúm til að fara út í þá sálma hér. Auk hæfra starfsmanna á sem flest- um fræðasviðum, sem ráðnir eru til starfa að undangengnu hæfnismati dómnefndar, krefst rannsóknastarf í háskólum iðulega sérhæfðrar aðstöðu, tækja og búnaðar, aðgangs að bókum og tímaritum, alþjóðlegrar samvinnu og margvíslegrar þjónustu og stuðnings innan viðkomandi stofnunar. Og ekki má gleyma aðstöðu fyrir framhalds- nema í meistara- og doktorsnámi. Rannsóknahlutverk Háskóla Íslands Í Háskóla Íslands eru stundaðar rann- sóknir í þágu samfélagsins. Næstum í heila öld hefur verið unnið að uppbygg- ingu hans sem háskóla í þeirri merk- ingu sem viðtekin er um slíka starfsemi. Rannsóknatengt framhaldsnám, meist- ara- og doktorsnám, er nú helsti vaxt- arbroddurinn í starfinu og eitt mikil- vægasta stefnumál Háskólans. Þar er byggt ofan á grunn fjölbreytts náms til fyrsta háskólaprófs í ellefu háskóla- deildum sem samtals bjóða upp á nám á yfir fimmtíu mismunandi námsleiðum. Viðgangur framhaldsnámsins er mikil- væg viðleitni til að styrkja starf Háskól- ans og stöðu sem alþjóðlega viður- kennds rannsóknaháskóla. Fyrir okkar litlu þjóð er það vissu- lega afrek hversu vel hefur tekist til með uppbyggingu Háskólans. En verk- inu er ekki lokið og því lýkur í reynd aldrei. Höfundur Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins 8. febrúar sl. sýnir rannsóknastarfi Háskóla Íslands góðan skilning þar sem hann segir að mikil- vægt sé að standa vörð um rannsókna- hlutverk hans, ekki síst á þeim sviðum þar sem rannsóknir skila ekki við fyrstu sýn augljósum hagnaði þó í þeim felist mikil menningarverðmæti og þekking – og að Háskólinn skili með rannsóknum sínum bæði hugmyndafræðilegri um- ræðu og möguleikum til framþróunar og nýsköpunar til baka inn í samfélagið, auk þess að verða samkeppnisfærari við erlenda háskóla. Ekki þarf annað en að líta yfir íslenskt þjóðfélag og at- vinnulíf til að gera sér grein fyrir þessu. Bæði einn og í samvinnu við fjölmarga aðila innan lands og utan, stofnanir, há- skóla og fyrirtæki, hefur Háskólinn og stofnanir hans í gegnum tíðina unnið að margvíslegum rannsóknum á náttúru landsins, sögu, tungu, menningu, at- vinnulífi, fjármálum og efnahag, heilsu, sjúkdómum og samfélagi. Margvíslegar grunnrannsóknir hafa skilað sér í hag- nýtingu og nýsköpun í þágu þjóðfélags- ins. Kennslu- og rannsóknarstarf Há- skólans og stofnana hans er og hefur verið ein meginforsenda og stoð sjálf- stæðs íslensks samfélags. Miklu skiptir því að efla og styrkja rannsóknahlut- verk hans til að gera honum kleift að gegna hlutverki sínu sem æðsta menntastofnun þjóðarinnar. Öflugur rannsóknaháskóli er eitt frumskilyrði þess að efla samkeppnishæfni Íslands í vísindum, atvinnuþróun og menningu í þekkingarsamfélagi heimsins. Um hlutverk skóla á háskólastigi Þórður Kristinsson fjallar um æðri menntun og háskóla Þórður Kristinsson Höfundur er framkvæmdastjóri aka- demískrar stjórnsýslu Háskóla Íslands. ið ál s, s, n- pp n- ar á m a- í að í ða ti a- t- t- nn á ir að m an ð- di, ði ga á s- m n. rð m- m r- bil ka að r- til . MEGINEINKENNI háskóla (university) er að þar er staðið fyrir kennslu og rannsóknum á fjölmörg- um fræðasviðum á mörgum stigum náms og veitt doktorsgráða. Aðrar æðri menntastofnanir hafa yfirleitt minni fjölbreytni í framboði náms sem miðast einkum að því að veita stúdentum tiltekna starfshæfni eða bjóða æðra nám eingöngu á einu eða takmörkuðum fjölda fræðasviða. Þeir eru því yfirleitt sérskólar á há- skólastigi. Meginein- kenni háskóla ÖRYRKJABANDALAG Íslands veitti Morgunblaðinu viðurkenningu í gær fyrir margvíslegt frumkvæði og forystu um að gera íslenskt dagblað aðgengilegt öllum þjóðfélagshópum. Var það Björn Vignir Sigurpálsson, fréttaritstjóri Morgunblaðsins, sem tók við viðurkenningunni við setn- ingu ráðstefnu bandalagsins sem bar yfirskriftina Aðgengi að upplýs- ingasamfélaginu. Í ávarpi sínu sagði Arnþór Helgason, framkvæmda- stjóri Öryrkjabandalagsins, að Morgunblaðið væri eini miðillinn á Íslandi sem hefði gert sérstakar ráðstafanir til þess að bæta aðgengi allra hópa að efni sínu. „Morgunblaðið er sá fjölmiðill á Íslandi sem hefur um nokkurra ára skeið lagt sig fram um að auka aðgengi að efni blaðsins. Frá árinu 1995 til ársins 2000 var gefin út sérstök tölvutæk útgáfa fyrir blinda og sjón- skerta. Sú útgáfa lagðist af vegna hins svo kallaða 2000-vanda, en Morg- unblaðið hefur jafnan gætt þess að heimasíða með efni blaðsins væri að- gengileg þeim hópum sem nýta sér ekki venjulegt letur. Þá hefur blaðið einnig gefið út yfirlit frétta á léttlesnu máli fyrir þá sem þess þurfa,“ sagði Arnþór í ávarpi sínu. Morgunblaðið fær viðurkenningu Öryrkjabandalags Íslands fyrir aðgengi að upplýsingum Íslenskt dagblað sem er aðgengilegt öllum Morgunblaðið/Þorkell Björn Vignir Sigurpálsson, fréttaritstjóri Morgunblaðsins (t.h.) veitti við- urkenningunni viðtöku fyrir hönd Morgunblaðsins. Það var Arnþór Helga- son, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins, sem afhenti viðurkenninguna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.