Morgunblaðið - 13.02.2004, Qupperneq 42
MINNINGAR
42 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Arnþór FlosiÞórðarson
fæddist í Gaulverja-
skóla í Árnessýslu
4. mars 1949. Hann
lést á heimili sínu
Selbraut 42 á Sel-
tjarnarnesi hinn 4.
febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Guð-
finna Jónasdóttir, f.
30. október 1916, d.
18. febrúar 2002,
frá Efri-Kvíhólma í
V-Eyjafjallahreppi,
og Þórður Gíslason,
f. 14. ágúst 1916, d. 14. júlí 1999,
frá Torfastöðum í Grafningi.
Systkini Arnþórs Flosa eru: 1)
Árný Elsa, f. 19. desember 1950,
er Elías Þ. Kristjánsson. 2) Atli,
f. 2. október 1979, sambýliskona
hans er Berglind Sigurðardóttir.
Barn Atla með Jónínu Ósk Ing-
ólfsdóttur er Hjördís Inga, f. 22.
febrúar 1997.
Arnþór Flosi lauk landsprófi
frá Skógaskóla árið 1965, stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Laugarvatni árið 1969 og kenn-
araprófi frá Kennaraskóla Ís-
lands árið 1971. Það haust hóf
Arnþór Flosi störf við Barna-
skólann í Vestmannaeyjum og
starfaði þar við kennslu með
hléum allt til ársins 1982 er hann
fluttist með fjölskyldu sinni til
Reykjavíkur. Þá settist Arnþór
Flosi í handavinnudeild Kenn-
araskólans og hóf síðan kennslu
við Seljaskóla og vann þar með-
an heilsa leyfði, utan einn vetur
er hann kenndi við Mýrarhúsa-
skóla.
Útför Arnþórs Flosa fer fram
frá Seltjarnarneskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
gift Leif Rasmussen.
2) Gísli Steindór, f. 1.
maí 1954. 3) Svan-
hildur Edda, f. 23.
febrúar 1956, gift
Helga Bjarnasyni.
Hinn 16. júlí 1977
kvæntist Arnþór
Flosi Inger E. And-
ersdóttur, f. 22. jan-
úar 1950. Foreldrar
hennar voru Sólveig
Ólafsdóttir, f. 23.
september 1913, d.
27. júní 2000, og
Anders Bergesen, f.
5. október 1908, d.
22. september 1975. Arnþór
Flosi og Inger eignuðust tvö
börn. Þau eru: 1) Hafrún, f. 22.
júní 1975, sambýlismaður hennar
Vangaveltur um tilgang lífsins
hafa verið ofarlega í huga okkar
systra undanfarin misseri. En
hversu mikið sem við veltum hverf-
ulleika lífsins fyrir okkur erum við
engu nær. Við fáum aldrei nein svör
nema þau að eitt sinn skal hver
deyja. Öll ævin er dauði, sögðu
gamlir menn og eru mikil sannindi í
þeim orðum. Ekkert er eins öruggt
og dauðinn en þegar dauðinn kallar
er ekkert eins dýrmætt og lífið.
Með sorg í hjarta skrifum við
systur fátækleg kveðjuorð um okk-
ar elskulega bróður, Arnþór Flosa.
Síðustu ár hafa verið erfiður tími í
fjölskyldunni. Foreldrar okkar lét-
ust með stuttu millibili, Flosi missti
tengdamóður sína og stærsta áfallið
var þegar hann greindist með ill-
kynja krabbamein fyrir tæpum
fimm árum. Hefur sá tími snúist um
að hafa sigur yfir þeim óvægna
sjúkdómi sem lagt hefur svo marga
að velli. Flosi var hetjan allan þenn-
an tíma, ætlaði sér að sigra en tap-
aði orustunni að lokum. Aldrei
kvartaði hann og með þvílíkum
viljastyrk, bjartsýni og æðruleysi
gaf hann okkur hinum styrk og von
þótt hann væri í rauninni miklu
veikari en við héldum. Hann hélt í
vonina en þegar halla tók undan
fæti trúði hann á kraftaverkið –
sem því miður aldrei kom. Innra
með sér vissi hann að hverju stefndi
en talaði samt alltaf á þeim nótum
að honum færi að batna og hann
kæmist yfir hverja þá hindrun sem
hann glímdi við eins og allar hinar
sem hann komst yfir. En því miður
gerðist það ekki og lést hann um
aldur fram á heimili sínu hinn 4.
febrúar sl. í faðmi fjölskyldu sinnar,
sem hann unni svo mjög. Hann bar
hag hennar fyrir brjósti framar öllu
öðru og gaf börnunum sínum tveim-
ur hið besta veganesti út í lífið sem
einn faðir getur gefið.
Flosi kynntist snemma lífinu í
sveitinni hjá ömmu okkar og móð-
urbróður undir Eyjafjöllunum.
Hann dvaldist hjá þeim mörg sum-
ur og þar komst hann í nána snert-
ingu við dýrin og náttúruna og
lærði að meta hljómfall hennar. Oft
sagði hann smellnar sögur af ýms-
um atvikum sem gerðust í sveitinni
og þar kynntist hann ýmsum störf-
um sem voru talin frekar forn að
háttum en ávallt hugsaði Flosi með
hlýhug til þessara ára og voru þau
vel geymd í reynslusjóði hans.
Flosi lauk landsprófi frá Skógum
og stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um að Laugarvatni. Á vetrum var
alltaf mikil tilhlökkun hjá okkur
systrum þegar von var á honum
heim í jóla- eða páskafrí. Við litum
nefnilega afskaplega mikið upp til
stóra bróður. Okkur fannst hann
fallegur, góður og skemmtilegur.
Hann taldi ekki eftir sér að sinna
okkur og leika við okkur systurnar
og bjó til nýja leiki ef honum fannst
við vera of „dúkkulegar“. Áhugi
hans á bílum kom nefnilega
snemma í ljós. Til dæmis fannst
honum tilvalið á stundum að hvolfa
stórri hrúgu af hveiti á borð og búa
til ófærur og snjóskafla sem enduðu
oftar en ekki niðri á gólfi, því slíkur
var stórbylurinn. Í þessum sköflum
reyndi hann ýmsar bílategundir og
oftast reyndust jepparnir hans best
en við systurnar sátum yfirleitt
fastar á drossíunum okkar, en á
endanum tókst honum að draga
okkur upp úr hveitisköflunum. Ekki
var nú móðir okkar eins hrifin af
þessum tiltækjum. Máttum við yf-
irleitt standa í hreingerningum eftir
slíka hveitisnjókomu. Og ekki var
Flosi síðri við karamellubaksturinn,
bjó hann til þær bestu karamellur
sem við höfum smakkað. Oft höfum
við hlegið að þessum og öðrum
uppátækjum æskuáranna og hafa
ótal minningar streymt gegnum
huga okkar systra því margs er að
minnast og margs er að sakna.
Flosi fetaði í fótspor föður okkar
og gerði kennslu að lífsstarfi sínu.
Vitum við að hann var vinsæll og
góður kennari, rólyndur og þeim
kostum gæddur að reyna að gera
gott úr öllu og mikill sáttasemjari.
Hann hafði fádæma góða kímnigáfu
og mörg hnyttin tilsvör hans hafa
rifjast upp síðustu daga. Hann sá
iðulega hinar spaugilegu hliðar á líf-
inu. En vissulega hafði hann sínar
skoðanir á mönnum og málefnum,
var rökfastur og gat hann verið
gagnrýninn á ýmislegt sem honum
líkaði ekki.
Flosi varð fyrir ýmsum áföllum í
lífinu og tók hann þeim með þvílíkri
rósemi að undrum sætti. Hann var
kletturinn sem aldrei bugaðist hvað
sem á gekk. Oft höfum við næsta
öfundað hann af þeirri rósemi og yf-
irvegun sem í fasi hans bjó. Líktist
hann föður okkar í þeim efnum.
Báðir voru þeir fremur hlédrægir
og hæverskir og sóttust ekki eftir
nafngiftum eða vegtyllum en unnu
störf sín af heilindum og heiðar-
leika.
Flosi var liðtækur og vandvirkur
í stóru sem smáu, hvort sem um var
að ræða smíðar eða matartilbúning
og allt þar á milli. Hann var lista-
kokkur og eldaði frábæran mat.
Síðasta máltíðin sem hann eldaði
sjálfur var fyrir Elsu systur sína,
sem býr í Danmörku, þegar hún
kom í heimsókn til Íslands í desem-
ber. Geymir hún það matarboð vel í
hjarta sínu.
Sem betur fer getur enginn tekið
minningarnar frá okkur og við þær
verður að ylja sér í framtíðinni. Sá
sem öllu ræður hefur líklega þurft á
öllum hinum góðu eiginleikum
Flosa að halda og því kallað hann
svo snemma burt úr þessu lífi, en
við hin sitjum eftir hnípin og sorg-
mædd.
Megi guð styrkja okkur öll í
þeirri miklu sorg sem dynur nú yf-
ir. Við kveðjum okkar elskulega
bróður með söknuði. Hvíli hann í
friði.
Árný Elsa Þórðardóttir,
Svanhildur Edda
Þórðardóttir.
Baráttu lífs og dauða míns kæra
mágs, Arnþórs Flosa Þórðarsonar,
er lokið. Þar hafði dauðinn sigur
eins og í öllum tilvikum okkar
mannlegu samvistar, enginn umflýr
hann, en öll vonuðum við, aðstand-
endur og vinir, að hann fengi að
njóta lengri lífdaga með okkur og
við hans í þessari jarðvist.
Flosi hefur síðustu misseri barist
hetjulegri baráttu við illvígt
krabbamein, sem lítil von var á að
lækning fengist við. Það þarf því
mikið æðruleysi og andlegan styrk
til að horfast í augu við þá sjúk-
dómsgreiningu er hann fékk fyrir
tæpum fimm árum. Þá byrði hefur
hann borið með mikilli reisn og um
leið sýnt ótrúlegan viljastyrk og
baráttuþrek við ofureflið þar til yfir
lauk.
Þeim sem þekktu Flosa kom
þetta ef til vill ekki á óvart. Hann
var afar vandaður og sterkur per-
sónuleiki að allri gerð eins og hann
átti kyn til, greindur vel, hógvær og
jafnvel hlédrægur á stundum, var-
færinn í orðum og dómum um aðra
en var kíminn og húmoristi góður.
Hann fór vel með fyndni, glettinn
og kíminn í samræðum. Hann var
fjölskyldumaður mikill, hógvær lífs-
nautnamaður sem kunni að lifa líf-
inu lifandi á þann hátt sem allir
eiga að gera og hann kunni öðrum
fremur að gleðjast á góðri stund í
vinahópi.
Flosi bjó alla tíð að góðu uppeldi
úr föðurhúsum. Heimili foreldra
hans í Gaulverjaskóla var menning-
arheimili í þess orðs bestu merk-
ingu. Hann var í sveit á sumrin hjá
móðurfólki sínu og bar ávallt mikla
virðingu fyrir lífsháttum og verk-
kunnáttu fyrri kynslóða..
Hann gekk í Menntaskólann að
Laugarvatni og lauk stúdentsprófi
þaðan 1969. Að því loknu lauk hann
kennaraprófi frá Kennaraskólanum
og nokkrum árum síðar einnig
handavinnukennaraprófi. Hann
stundaði lengst af smíðakennslu en
kenndi einnig bóklegar greinar,
enda var hann afar vel að sér á
mörgum sviðum. Hann vann við
smíðar í sumarleyfum um ára skeið,
enda dverghagur smiður eins og
Þórður faðir hans var einnig.
Flosi þótti góður kennari, enda
vandvirkur við allt það er hann tók
sér fyrir hendur. Hann hrapaði
aldrei að neinu, en gat verið fastur
fyrir á sinn hógværa hátt, jafnvel
þrjóskur og þrár en tók rökum.
Þetta eru vitaskuld eiginleikar
góðra kennara, sérstaklega fyrir
efra grunnskólastigið held ég að
flestir geti tekið undir.
Ræktunarmaður var hann mikill
eins og sjá má á landinu við sum-
arbústað fjölskyldu hans að Laug-
arvatni, en þar dvaldi hann löngum
í frístundum sínum síðasta áratug.
Þær stundir urðu síðustu árin æ
dýrmætari fyrir hann.
Flosi hafði góða nærveru, mönn-
um leið vel í návistum við hann.
Hann var hæverskur við fyrstu
kynni, en hann var fljótur að kynn-
ast fólki og hafði gaman af samræð-
um við það. Þar kom sér vel hin
fágaða kímnigáfa hans. Hann var
vel lesinn og fróður og átti því auð-
veldara en ella með að halda uppi
samræðum. Hann hafði ánægju af
hvers konar tónlist. Á unglingsár-
um og fram eftir aldri var hann
mikill kunnáttumaður um bítlatón-
list, en á síðari árum hafði hann un-
un af sígildari tónlist. Við áttum því
margar góðar stundir saman á
heimilum okkar, enda voru sameig-
inlegu áhugamálin mörg. Einnig
áttum við ánægjustundir á ferðalög-
um okkar hér innanlands undanfar-
in ár, sem mér finnst nú hafa verið
alltof fáar.
Í september sl. kom hann í heim-
sókn í sumarbústað okkar Eddu og
sýndi okkur þar sendiferðabíl er
hann hugðist byggja upp sem hús-
bíl í vetur. Aflaði hann sér helstu
upplýsinga og búnaðar um gerð
slíkra bíla áður en stöðug veikindi
ásóttu hann. Þannig trúði hann á að
hann myndi njóta lengri lífdaga en
raun varð á. Aðeins 14 dögum fyrir
andlát sitt óskaði hann sérstaklega
eftir því við mig að fá lánaða hjá
mér hina umtöluðu bók „Halldór“
um ævi Halldórs Kiljans Laxness.
Hann hafði fyrr á árum eins og
jafnaldrar hans lesið flestar skáld-
sögur Halldórs Laxness. Honum
auðnaðist nánast að ljúka fyrsta
hluta ævisögunnar, en hafði á orði
við systur sína undir lokin að verst
þætti honum að líklega myndi hann
ekki lifa það af að geta lesið hinar
tvær sem væntanlegar væru.
Mikill öðlingur og vinur er fallinn
frá. Öll trúðum við á kraftaverkið, á
lengra ferðalag lífsins í ferðabílnum
nýja og að hann fengi notið lengur
menningar þjóðarinnar. En við
verðum að lokum öll að beygja okk-
ur undir vilja almættisins, sem af-
markar okkar tíma og stund í þessu
jarðlífi.
Eiginkonu hans, börnum og nán-
ustu ástvinum votta ég mína dýpstu
samúð.
Guð blessi minningu Arnþórs
Flosa Þórðarsonar.
Helgi Bjarnason.
Það er erfitt að trúa því en nú er
hann genginn yfir móðuna miklu
minn gamli skólabróðir og vinur
Flosi. Þetta var löng og hetjuleg
barátta sem hann háði við illvígan
sjúkdóm. Þrátt fyrir að hann vissi
hvert stefndi lét hann aldrei hug-
fallast og mætti örlögum sínum af
kjarki og reisn. Maður trúði því
jafnvel fram á síðustu vikur að hann
myndi hafa betur í glímunni við
manninn með ljáinn.
Hugurinn reikar ósjálfrátt til-
baka til menntaskólaáranna á
Laugarvatni. Þar mættum við eitt
haustið um miðjan sjöunda áratug-
inn, óharðnaðir unglingar, og deild-
um sömu kjörum næstu fjögur árin.
Á Laugarvatni gerðist okkar
þroskasaga. Návígið á heimavistar-
skólanum gerði það að verkum að
menn kynntust yfirleitt vel hver
öðrum. Þar voru bundin bönd vin-
áttu er héldu alla tíð síðan.
Flosi var ekki sá sem tranaði sér
fram né sóttist eftir að verða mið-
depillinn í okkar félagsskap. Hann
lét frekar verkin tala. Var farsæll í
námi og hafði minna fyrir því en
flest okkar hinna að koma sér á
milli bekkja. Skáldagáfu hafði hann
líka fengið í vöggugjöf, en hann flík-
aði henni sjaldan. Í þá daga voru
ýmsir að reyna að koma saman vís-
um og árangurinn var ekki alltaf
gæfulegur. Eitt sinn var sá sem hér
skrifar að kveðast á við Flosa og
höfðu nokkrar ferskeytlur gengið á
milli. Var nú svo komið að eftir and-
vökur var Flosa skilað auðu blaði að
morgni. Svar hans barst um hæl:
Heillar nætur hugsun þín,
í hrolli og svitabaði.
Er nú komin inn til mín,
á óskrifuðu blaði.
Að loknu námi í menntaskóla var
haldið til höfuðborgarinnar. Flosi
settist í Kennaraháskólann en flest-
ir aðrir skólafélagar hans röðuðu
sér í flóru þeirra námsbrauta sem
var að finna í Háskóla Íslands á
þeim árum. Við héldum þó hópinn
og fórum flestar helgar á vit gleð-
innar í Glaumbæ sem var helsti
samkomustaðurinn á þeirri tíð. Oft-
ast var fyrst safnast saman hjá
Flosa. Þetta var áhyggjulaust líf hjá
okkur vormönnum Íslands.
Í ársbyrjun 1971 vorum við hins
vegar minnt illilega á fallvaltleika
lífsins. Á leið heim eftir dansleik í
Glaumbæ var ekið á Flosa og skóla-
bróður okkar og góðvin Rúnar Haf-
dal Halldórsson. Flosi slapp með
smáskrámur en Rúnar Hafdal lést
af völdum áverka skömmu síðar.
Þetta var mikið áfall fyrir okkur
alla en þó mest fyrir Flosa.
Þegar kennaranámi lauk réð
Flosi sig til kennslu í Vestmanna-
eyjum þar sem hann starfaði í u.þ.b.
áratug. En hann starfaði alla tíð við
kennslu. Í Vestmannaeyjum kynn-
ist hann konu sinni Inger Anders-
dóttur. Þau eignuðust tvö mann-
vænleg börn, Atla og Hafrúnu.
Af ýmsum ástæðum minnkuðu
tengslin við Flosa eftir að haldið
var út í fullorðinslífið. Það var þó
alltaf svo að þegar við hittumst þá
virtist sem tíminn hefði staðið í
stað, eins og við hefðum hist í gær.
Flosi var líka alltaf gestgjafi þegar
haldið var upp á stúdentsafmælin á
Laugarvatni. Á allra síðustu árum
fjölgaði endurfundum og höfðum
við mikla ánægju af því að umgang-
ast Flosa og Inger.
Flosi var alla ævi bundinn Laug-
arvatni. Hann lét sér ekki nægja að
stunda nám þar á vetrum, heldur
vann þar líka á sumrin á skóla-
árunum undir leiðsögn Benjamíns
Halldórssonar. Síðar þegar hann
flutti til lands frá Vestmannaeyjum
reistu Inger og Flosi sér sumarbú-
stað á Laugarvatni. „Hér eru okkar
utanlandsferðir,“ sagði hann ein-
hverju sinni þegar við komum í
heimsókn.
Þau Flosi og Inger voru mjög
samhent hjón og í veikindum Flosa
stóð hún að baki hans sem klettur.
Mikið hugrekki þarf til að horfast í
augu við það sem enginn fær breytt
og þau notuðu tímann vel. Fóru í
nokkrar utanlandsferðir og reyndu
að vera svo mikið saman sem unnt
var. En þar kom að kraftarnir
þrutu og síðustu vikurnar voru
þungar. Flosi lagðist nokkrum sinn-
um inn á spítala til þess að láta
stilla verkina en var von bráðar
kominn heim aftur og þar lést hann
í faðmi fjölskyldunnar 4. febrúar sl.
Við Stebba og fjölskyldan öll
sendum ykkur Inger, Hafrún og
Atli innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Arnþórs Flosa
Þórðarsonar.
Ingimar Einarsson.
Það er erftitt að sætta sig við það
að okkar lífsglaði og góði vinur sé
fallinn frá á besta aldri. Kynni okk-
ar ná allt aftur til þess tíma er Flosi
stundaði nám í Kennaraskólanum
og hann leigði herbergi hjá for-
eldrum Emils í Reykjavík og síðan
er hann fluttist til Eyja. Þar hafði
Flosi kosið að velja skóla til æfinga-
kennslu og það varð síðan til þess
að hann festi ráð sitt og ílentist.
Á þessum tíma kynntumst við
ýmsum skemmtilegum karakterum
og segja má að þarna hafi verið
skrifaður ákaflega skemmtilegur
kafli í lífssögu okkar. Enn þann dag
í dag er verið að rifja upp lífið í
Vestmannaeyjum eins og við upp-
lifðum það á þessum árum. Flosi
var alla tíð miðdepill í þessu sam-
félagi okkar gleðimanna. Alla tíð
var léttleikinn í fyrirrúmi þar sem
Flosi fór um og margt látið flakka.
Heldur sló á gleðskapinn þegar
Emil og Flosi féllu fyrir vestmanna-
eyskum blómarósum og tóku upp
lifnaðarhætti ráðsettra heimilis-
feðra.
Á þessum góðu árum varð meðal
annars til félagsskapurinn FÓSS,
nokkrir úr vinahópnum fóru í Flug-
skóla Bjarna Jónasar, árlegar
lundaveizlur voru haldnar og áfram
mætti telja. – Kvöld eitt eftir flug-
tíma komu flugnemarnir í Skýlið til
Ragga til að fá sér hressingu, og
sögðu honum að þeir hefðu verið að
lesa bókina „From the ground up“.
Þá sagði Raggi: „Ég held að þið
ættuð nú að leggja áherslu á „How
to get down again!“
Flosi og Ágúst tóku þá ákvörðun
ásamt eiginkonum að byggja sér
hús. Fengum við úthlutað tveimur
samliggjandi lóðum í Búhamrinum
og svo fórum við til Reykjavíkur að
skoða teikningar. Einnig keyptum
við saman timbur sem nota skyldi
við uppslátt á sökklum, og koma þá
upp í hugann minningar um að vera
að slá utan af í snjóhraglanda og
kulda. Er við höfðum steypt upp
sökklana gerðist það að Ágúst
skipti við frænda Flosa á upp-
steyptu húsi í Búhamrinum og
fullbúinni íbúð. Flosi hélt hins veg-
ARNÞÓR FLOSI
ÞÓRÐARSON