Morgunblaðið - 13.02.2004, Side 43

Morgunblaðið - 13.02.2004, Side 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 43 ar sínu striki og lauk smíði húss þeirra og lofaði verkið sannarlega meistarann. Vorum við nágrannar í „nýja vesturbænum“ í Eyjum allt þar til þau Inger og börnin fluttu til Reykjavíkur. Ávallt hélst vináttan þó að við hittumst sjaldnar og heimsóknir yrðu stopular, en nokkrum sinnum var þó komið í sumarbústaðinn fal- lega á Laugarvatni. Ekki er hægt að minnast Flosa öðruvísi en minnast á allar gleði- stundirnar sem við áttum saman. Og þegar horft er til baka voru þessar stundir einungis gleðistund- ir, það bar aldrei skugga á. Flosi var einn af þeim mönnum, sem ekki var hægt annað en að líka vel við. Fullur af lífsgleði með skemmtileg- an húmor sem kom öllum í gott skap. Alveg fram á síðustu daga lífs hans var léttleikinn allsráðandi, og sem dæmi um það sagði hann við okkur þegar við heimsóttum hann ekki alls fyrir löngu: „Hvað er þetta, á að fara að jarða mann, lík- mennirnir bara mættir!“ Þessi sundurlausu og fátæklegu minningabrot er viðeigandi að enda með eftirfarandi vísu, en ein dellan sem við fengum á Vestmannaeyja- árunum var að velta okkur upp úr Hávamálum: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Kæri góði vinur, þegar við förum „From the ground up“ og hittumst síðar þá verður örugglega aftur voða, voða gaman. Elsku Inger, Hafrún og Atli. Guð veri með ykkur á þessum sorgar- tímum. Emil Theódór Guðjónsson, Ágúst Karlsson. Menntaskólaárin hafa löngum verið mærð sem afgerandi mótun- arskeið í ævi þeirra er við slíkar stofnanir nema. Mun og það sama raunar gilda um þetta aldursbil í lífi flestra einstaklinga. Þá er grunnur lagður að sjálfsmynd og fé- lagsþroska í senn og ævilöng vin- áttubönd eru hnýtt. Þetta á þó ekki hvað síst við þegar sóttur er menntaskóli „uppi í afdal“, þar sem nemendur búa saman í nokkra vet- ur. Slíkur „örheimur“ gerir harðar kröfur um félagslega færni því nún- ingstilefnin gefast mýmörg og í fá skjól er að venda. En um leið tengj- ast árgangar nemenda sterkari böndum, því kynni verða meiri og nánari en gerist og gengur. Við sem gegnum slíka reynslu höfum gengið skynjum þessi bönd þegar við hittumst, fleiri eða færri eftir atvikum, jafnvel þótt áratugir séu liðnir frá samvistinni. Sameig- inlegar minningar bregða þá birtu yfir öll okkar kynni og hugurinn leitar gjarnan inn á hinar eilífu æskulendur. Einnig skynjum við þessi sömu bönd þegar höggvið er skarð í vinahópinn. Árgangurinn sem útskrifaðist frá Menntaskólanum að Laugarvatni hinn 14. júní 1969 sér nú á bak þriðja bróðurnum, Arnþóri Flosa Þórðarsyni frá Gaulverjabæ í Flóa. Fráfall hans nú eftir nokkurra ára hetjulega baráttu við krabbamein minnir okkur óþyrmilega á að lífið er ekki eins sjálfsögð gjöf og hópn- um virtist fyrir þremur og hálfum áratug. Flosa varð þetta reyndar fyrr ljóst en okkur hinum, þegar hann tæpum tveimur árum eftir stúdentsprófið bjargaðist naumlega fyrir eitthvert kraftaverk í hörmu- legu umferðarslysi þar sem hans besti vinur og bekkjarbróðir okkar lét lífið. Þetta var honum erfið reynsla sem hann þó bar með því æðruleysi er einkenndi hann alla tíð. Flosi var góður félagi. Hann var félagslyndur, en þó enginn hávaða- maður. Honum var tamt að koma auga á hinar broslegri hliðar á til- verunni og lét ósjaldan falla þar um hnyttnar athugasemdir, en jafnan þó án græsku. Flosi var í stuttu máli sagt glaðlynt prúðmenni, sem flíkaði lítt sínum mörgu og góðu hæfileikum. Hann hafði gaman af kveðskap ýmiss konar og var sjálf- ur prýðilega hagmæltur, en fór samt dult með það. Hann var og hagur vel bæði á tré og járn. Þann eiginleika ræktaði hann með sér alla tíð og sá þess víða stað á vegi hans. Á menntaskólaárunum var Flosi á vissan hátt sjálfstæðari en aðrir í bekknum. Hann bjó utan heimavist- ar einn veturinn og var því ekki of- urseldur þeim aga sem þar var leit- ast við að halda uppi. Bifreið hafði hann og til umráða tvo síðustu vet- urna, sem þá var fátítt á Laug- arvatni. Þannig naut hann talsverðs frelsis, sem hann þó misnotaði ekki á nokkurn hátt. Sumarið eftir stúd- entsprófið eignaðist Flosi Volvó-bif- reið eða „Kryppu“ eins og sú gerð var jafnan kölluð. Þetta var mikil gersemi sem hann átti mjög lengi og sem bar fagurt vitni um snyrti- mennsku Flosa og handlagni. Hon- um var eðlislægt að hlúa vel að sínu. Flosi tengdist Laugarvatni sterk- um böndum, því hann starfaði þar í mörg sumur við smíðar, allt frá því er hann nam við menntaskólann. Nokkrum árum síðar reistu hann og Inger eiginkona hans sér bústað á Laugarvatni; sælureit hvar þau dvöldu löngum upp frá því með börnum sínum. Það var mjög í samræmi við per- sónugerð Flosa að hann skyldi leggja kennslu fyrir sig. Hann hafði flest það til að bera sem einkennir góðan kennara, enda var hann far- sæll í því starfi; fyrst í Vestmanna- eyjum og síðar í Reykjavík. Hann jók smíðakennaranámi við fyrri kennaramenntun sína og gat þannig sameinað marga af sínum góðu hæfileikum í einu og sama starfinu. Fyrir nokkrum árum knúði vá- gestur dyra hjá fjölskyldunni á Sel- braut. Við tók barátta sem þau hjón háðu af aðdáunarlegu æðruleysi. Flosa veitti misvel í glímunni við hinn óvægna sjúkdóm. Ítrekað var hann keyrður á kné, en tókst þó að rísa upp aftur og aftur, þar til núna er kraftana þraut skyndilega. Góður drengur er genginn. Ég þakka forsjóninni fyrir hin löngu kynni okkar. Við Sólveig sendum þeim Inger, Hafrúnu og Atla og ástvinum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum guð að styrkja þau í sorginni. Bjarni Frímann Karlsson. Haustið 1971 réð Flosi sig til kennslu við Barnaskólann í Vest- mannaeyjum. Sjálfur hafði ég kom- ið þangað haustið áður, en þetta var upphafið að okkar kynnum. Við vor- um ekki einungis samkennarar, því við borðuðum einnig saman í mötu- neyti á Hótel Hamri ásamt mörgum öðrum eftirminnilegum félögum, yngri og eldri. Þetta var samheld- inn hópur og þótt menn stöldruðu mislengi við tengdust margir sterk- um böndum sem í sumum tilfellum hafa haldið til þesa dags og þannig var það með okkur Flosa. En þótt við sæktum auðvitað út fyrir þenn- an mötuneytishóp varð hann ein- hvern veginn kjarninn í mörgu því sem við tókum okkur fyrir hendur á þessum tíma, einkum á sviði skemmtanalífsins. Flosi var á marg- an hátt sérstakur maður. Hann fór ekki um með hávaða eða látum, en þó lærðum við það flest sem um- gengumst hann að það borgaði sig að hlusta þegar hann tók til máls. Hann var nefnilega bæði úrræða- góður og laginn, auk þess að hið næma skopskyn hans kallaði oft fram einhverja sprenghlægilega at- hugasemd. Hann var stöðugt að koma manni á óvart. Í starfi var Flosi farsæll, honum lét vel að kenna og þó að maður undraðist oft þolinmæði hans og umburðarlyndi í umgengni við óprúttna ólátabelgi ávann hann sér traust þeirra og virðingu með tímanum. Flosi var mikill gæfumaður í einkalífi sínu. Í Eyjum kynntist hann lífsförunauti sínum Inger Elísu Andersdóttur sem alla tíð hefur staðið honum við hlið. Þau hafa vissulega þurft að takast á við ýmsa erfiðleika og sorgir og það hafa þau gert sameig- inlega enda samhugur þeirra og vinátta einstök. Börn þeirra Hafrún og Atli hafa bæði stofnað sín eigin heimili, en þau voru Flosa einnig ómetanlegur stuðningur í veikind- um hans. Dóttir Atla, Hjördís, veitti afa sínum margar ánægjustundir, sannkallaður sólargeisli. Flosi og Inger stofnuðu heimili sitt í Eyjum, fyrst á Brimhólabrautinni ásamt Sólveigu móður Ingerar, byggðu sér síðan hús að Búhamri 88 og bjuggu þar til ársins 1982 að þau fluttu til Reykjavíkur og þaðan lá leið á Seltjarnarnesið þar sem þau bjuggu síðan. Eftir að þau fluttu frá Eyjum lengdist tímabundið í þeim vinaböndum sem þar höfðu verið, en þó hittum við hjónin þau oft á ferðum okkar til Reykjavíkur og þá var ekki síður gaman að koma í bú- staðinn til þeirra á Laugarvatni. Eftir að við fluttum til Reykjavíkur má segja að við höfum tekið upp þráðinn að nýju, við skiptumst á heimsóknum, endurnýjuðum og styrktum vináttuna. Enda þótt það hafi verið hálfömurlegt að fylgjast með hinum miskunnarlausa sjúk- dómi herða sífellt tökin þá var það aðdáunarvert að fylgjast með bar- áttu Flosa. Hann beitti ýmsum óhefðbundnum baráttuaðferðum í stríði sínu og náði með einurð og seiglu að halda vágestinum í skefj- um svo lengi að athygli og aðdáun vakti. Lífslöngun hans var einnig sterk og hann horfði fram á veginn alveg til seinustu stundar, þakk- látur fyrir hvern þann dag sem hon- um auðnaðist að lifa. Þetta var öll- um lærdómsríkt sem urðu vitni að. Við hjónin sendum öllum aðstand- endum Arnþórs Flosa okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Guðmundur Jensson. Kveðja frá ML-stúdentum 1969 Það dregur skugga yfir þegar gamlir vinir og félagar kveðja þessa tilveru. Vinátta og félagsskapur sem mótast á unglingsárum í þröngu sambýli heimavistar úti í sveit skapar sterkari og nánari tengsl milli manna en flestar að- stæður. Þó dagleg umgengni strjál- ist og samverustundum fækki þarf ekki annað en að setjast niður og upp er tekinn þráður sem aldrei hefur slitnað líkt og kvaðst hafi ver- ið í gær. Þegar við vorum ung varð hóp- urinn fyrir tveimur þungum högg- um sem gengu nærri okkur og trú- lega er það hamingja að enginn hefur kvatt fyrr en nú er Arnþór Flosi Þórðarson lætur í minni pok- ann eftir hetjulega baráttu. Hann fékkst við kennslu barna og ung- linga alla sína starfsævi enda stak- ur ljúflingur í umgengni og hafði gott auga fyrir spaugilegum hliðum tilverunnar. Við sendum Inger, Hafrúnu, Atla og öðrum aðstandendum hjartan- legustu samúðarkveðjur okkar. Arnþór Flosi Þórðarson æsku- félagi minn og skólabróðir er látinn. Kynni urðu fyrst með okkur í Vest- ur-Eyjafjallasveit, átta ára gömlum, þar sem ég ólst upp á Sauðhúsvelli en Arnþór sem sumardrengur í Efri-Kvíhólma. Þar sem ekki var langt á milli bæja okkar, og báðir áttum við nokkuð flott reiðhjól, sameinuðumst við í áhugamálunum um reiðhjólin og sveitastörfin sem okkur voru ætluð miðað við getu. Þannig urðum við félagar í leik og stundum í starfi svo sem við smala- mennsku og fleira. Eins og gengur á lífsleiðinni fjarlægjast félagar um sinn, en mætast að nýju. Haustið 1964 gerðist Arnþór nemandi við Skógaskóla og útskrifuðumst við ár- ið 1965. Útskriftarnemar frá skól- anum það ár hafa ætíð haldið hóp- inn og hist nokkuð reglulega á skólamótum. Arnþór var einn þeirra sem ekki létu sig vanta og mættumst við hópurinn góði síðast fyrir rúmu ári. Þá var ljóst að hverju stefndi, en Arnþór hafði bar- ist hetjulega um nokkurra ára skeið við sjúkdóminn illvíga sem að lok- um leiddi hann til dauða. Eitt er víst, að á næsta skólamóti verður Arnþórs sárt saknað og minnst sem góðs félaga, sem gæddur var öllum þeim mannkostum sem einn mann kunna að prýða. Þakka samfylgd- ina, vinur. Aðstandendum votta ég samúð mína. Þorberg Ólafsson. Kveðja frá Seljaskóla Nýr skóladagur var runninn upp, nemendur á leið í skólann, starfs- menn að spjalla saman og fá sér kaffi fyrir fyrstu kennslustund og önnur þau verk sem liggja fyrir í stórum skóla. Þá komu fréttirnar. Flosi, samstarfsmaður okkar og kennari við skólann til margra ára, var látinn. Okkur setti hljóð og reyndum að styrkja hvert annað. Hann var búinn að berjast við krabbamein síðastliðin fimm ár, svo hetjulega og af svo miklu æðruleysi að aðdáunarvert var, en nú var komið að endalokum. Á kennara- stofunni kveiktum við á kertum, settum blóm í vasa og höfðum Biblí- una opna: „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta.“ Nemendum sögðum við harmafregnina. Söknuður okkar er mikill. Flosi var einstaklega traustur kennari og drengur góður. Hann var þolinmóður, jákvæður og það leið öllum vel í návist hans. Það var notalegt að eiga stund með Flosa í erli dagsins og spjalla við hann um daginn og veginn.Hann var gam- ansamur og laumaði oft glettnum athugasemdum inn í umræðurnar á sinn hógværa hátt. Smíði var hans aðalkennslugrein í mörg ár og jafn- hliða kenndi hann eðlisfræði í barnadeild um tíma. Síðar kenndi hann einnig nemendum með náms- erfiðleika, aðallega í unglingadeild- inni. Öll kennsla lék í höndunum á honum, hvort sem það var ungur nemandi í smíði, sem þurfti aðstoð við hlut sem hann var að búa til, eða unglingur í 10. bekk að glíma við erfitt stærðfræðidæmi. Alltaf var Flosi tilbúinn til hjálpar og var ákaflega nærgætinn við nemendur. Hann var í miklum metum meðal nemenda og samstarfsmanna og átti trausta vini í skólanum. Veikindin tóku mikið á, en hann bjó yfir einstaklega miklum styrk og baráttuþreki. Sárt þótti okkur vinum hans úr skólanum, sem heim- sóttum hann á sjúkrahús og síðan heima, að sjá hve farið var að draga af honum. Minninguna um síðustu samveru- stundirnar sem við áttum með hon- um og konu hans munum við ætíð geyma með okkur. Guð blessi og styrki Inger, börnin þeirra og barnabarn. Samstarfsfólkið í Selja- skóla sendir ykkur innilegar sam- úðarkveðjur. Minningin um góðan dreng lifir. Margrét Árný Sigursteinsdóttir, Ásta Ásdís Sæmundsdóttir. Kæri Flosi. Í hvert sinn sem ég lít heim að Lindarskógi við Laug- arvatn minnist ég samveru okkar þar á menntaskólaárunum. Það var ekki hægt að hugsa sér betri félaga en þig á þessum árum, síkátan og hressan, en einnig alltaf til í að spjalla um dýpstu rök tilverunnar. Nú hefur þú tekist á við þessi dýpstu rök af meiri hetjuskap en hægt er að gera sér í hugarlund. Ég kveð þig með þökk í huga. Guð geymi þig. Guðmundur Sæmundsson. Arnþór Flosi kom að kenna við Barnaskóla Vestmannaeyja haustið 1971 en þá um vorið hafði hann lok- ið námi við Kennaraskólann. Á þessum árum var mikið af ungu fólki við kennslustörf í skólanum og hélt það mikið saman og myndaði afar skemmtilegan og náinn vina- hóp. Flosi, sem dagsfarlega var mjög rólegur, hafði afar skemmti- lega kímnigáfu sem smitaði út í samstarfshópinn. Flosi gat alltaf séð eitthvað spaugilegt í hinu dag- lega amstri sem létti lífið hvort sem það var að finna orð sem byrjuðu á f til nota í lestrarkennslu eða finna skemmtileg gælunöfn á vini sína sem mörg hver hafa haldist síðan. Flosi náði skemmtilegum tengslum við nemendur sína, hvort sem um var að ræða yngri eða eldri, með ró- legheitum sínum og sanngirni. Við höfum fylgst úr fjarlægð með hetjulegri baráttu Flosa við illvígan sjúkdóm en það hefur verið ótrúlegt að sjá æðruleysið og baráttuandann þótt hann hafi fljótlega fengið þá vitneskju að á brattann væri að sækja. Flosi starfaði við Barnaskólann til ársins 1982 er hann flutti ásamt Inger sinni og börnum til Reykja- víkur. Síðustu árin sem hann kenndi við skólann var hann útibús- stjóri í nýja vesturbænum í Eyjum, en þar hafði risið nýtt hverfi eftir eldgosið og því þurfti að setja upp kennslustöð fyrir yngri börnin í hverfinu. Þetta var forveri Hamars- skóla sem tók svo til starfa haustið 1982. Við sendum Inger og fjölskyld- unni innilegar samúðarkveðjur. Ólöf Margrét og Hjálmfríður. Einhvers staðar stendur: Þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Á það sannarlega við um kæran vin sem nú hefur kvatt þessa tilvist hér á jörð. Í okkar huga er fæðing og dauði eitt og hið sama. Þú fæðist inn í þennan heim og þú fæðist út úr þessum heimi, „umbreyting“ efn- is og orku. Stundum og raunar nokkuð oft eru þessar fæðingar ótímabærar. Á það við í báðum til- fellum, fæðingu og dauða. Þar sem óæskilegir einstaklingar eru að fæðast inn í þennan heim og við kveðjum ungt fólk og fólk á besta aldri, langt um aldur fram. Við vinir og vandamenn Flosa horfum á eftir honum kveðja þetta líf ótímabært, þrátt fyrir að við séum búin að fylgjast með baráttu hans um ótrúlegan langan tíma. Hann sem var svo viljasterkur, at- hugull, nákvæmur og með afbrigð- um þrautseigur og virtist komast allt það sem hann ætlaði sér. Héld- um við lengi vel að honum tækist það líka með þennan illvíga sjúk- dóm. En hér skiljast leiðir í bili. Margs er að minnast öll þau ár sem við höfum þekkst, starfað, ferðast, spjallað, hlegið og verið saman. Við þökkum fyrir það. Elsku Inger mín, Hafrún og Atli, við sendum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar innilegustu samúðar- kveðju. Guð veri með ykkur í sorg- inni. Við endum þetta með ljóðabroti til hugleiðingar eftir Pál Guð- mundsson á Hjálmsstöðum: Við kvíðum ei þótt komi nótt – það kemur engin dauðans nótt. Við lifum þó að lúið hold að lokum gisti jarðarmold. Við svífum burt á sólnakrans á segulbrautum ljósvakans. Reynir og Eygló. Stórbrotin manneskja er horfin sjónum okkar um sinn. Flosa kynntist ég í gegnum Berglindi frænku mína og kann ég henni bestu þakkir fyrir. Við Flosi hitt- umst nokkuð oft og ræddum þá gjarnan eilífðarmálin. Um margt var spáð og spekúlerað á þessum stundum og ekki endilega komist að niðurstöðu. Flosi sagði þá iðulega: „Við sjáum nú til.“ Ég hlakka til að hitta hann aftur og þá getum við nú aldeilis „séð til“. Ég vil þakka höfundi lífsins fyrir að færa okkur þennan mæta mann, ég þakka innilega hetjunni, henni Inger konunni hans, fyrir að leyfa okkur að spjalla saman í ró og næði, og ég þakka einnig Hafrúnu og Atla innilega fyrir að taka mér ávallt vel. Síðast en ekki síst þakka ég henni skottu minni sem fagnaði mér ávallt vel. Kveðja. Þórunn.  Fleiri minningargreinar um Arnþór Flosa Þórðarson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.