Morgunblaðið - 13.02.2004, Page 45

Morgunblaðið - 13.02.2004, Page 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 45 Þegar ég hugsa til Matthíasar frænda míns þá fyllist ég þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast hon- um. Þegar við bræðurnir vorum yngri fannst okkur hann vera mjög leynd- ardómsfullur og athyglisverður maður, og þegar við fréttum af skrif- um hans um galdra þá fannst okkur alveg eins líklegt að hann byggi yfir töframætti sjálfur. Mér fannst frændi minn vera sannkölluð hetja meðan á veikindum hans stóð. Mér er það minnisstætt þegar hann sagði að hann kysi frekar orr- ustuna en höggstokkinn. Hann barðist svo sannarlega vasklega þar til yfir lauk. Alltaf þegar við komum í heim- sókn til Matta og Steinunnar tóku þau á móti okkur bjartsýn og sterk. Mér finnst Matthías hafa verið merkilegur maður, ekki eingöngu fyrir það sem hann kom í verk, held- ur einnig fyrir það sem hann var. Við erum stoltir af því að hafa átt hann sem frænda og biðjum Guð að blessa minningu hans. Arngrímur Jón og Matthías Rúnar Sigurðssynir. Látinn er eftir baráttu við krabbamein ástkær frændi og vinur Matthías Viðar Sæmundsson. Margs er að minnast þegar horft er yfir farinn veg. Við Matthías er- um alin upp í sama umhverfi á Sel- fossi. Í huganum minnist ég hans sem bróður. Sem börn lékum við okkur saman. Það var margt brallað ásamt Gísla bróður mínum. Við stofnuðum okkar eigið íþróttafélag, til þess að við gætum keppt hvert við annað í sömu íþróttagreinum. Í þá gömlu góðu daga fórum við saman í berjamó, það voru miklar ferðir því þá fengum við að fara út yfir á og upp í kletta. Leið Matthíasar lá til Reykjavík- ur í nám. Við hittumst sjaldnar eftir það en héldum góðu sambandi í gegnum mömmu hans og pabba á Birkivöllunum. Matthías var sólar- geislinn í lífi þeirra. Hann kom oft heim á Birkivelli, til að læra, skrifa og njóta hvíldar um lengri og skemmri tíma. Stundum kom hann niður úr griðastað sínum á efri hæð- inni og spjallaði um stund, en ef hann var niðursokkinn í pælingar sínar gat ekkert raskað einbeitingu hans. Ég varð þeirrar ánægju aðnjót- andi að fá að ferðast með Jóhönnu fósturmóður Matthíasar í heimsókn- ir til hans þegar hann var við fræði- störf erlendis. Það er ómetanlegt að eiga þær minningar. Þá var margt skrafað og mikið hlegið. Meðal ann- ars fórum við í heimsókn til Matth- íasar í Jónshús í Kaupmannahöfn þegar hann dvaldist þar. Sú ferð er ógleymanleg fyrir margra hluta sak- ir. Síðasta ferðin sem við Jóhanna fórum saman á erlenda grund var til að heimsækja Matthías, Steinunni og dætur þeirra í Edinborg í októ- ber 2002. Haustið síðasta var Matth- íasi erfitt, fárveikur fylgdi hann Jó- hönnu móður sinni til grafar. Við áttum saman góða stund rétt fyrir jólin þar sem við gátum rætt sorgina og söknuðinn en jafnframt glaðst yf- ir því að eiga saman minningar um yndislega móður og frænku. Ekki æðraðist Matthías yfir sínum veik- indum, heldur tók þeim með mestu rósemi. Það var mikið gæfuspor fyr- ir Matthías þegar Steinunn kom inn í líf hans. Það var yndislegt að fylgjast með sambandi þeirra og þeim ríkulega ávexti sem það bar. Góðu sambandi Matthíasar og Steinunnar bera þær vitni Nanna Elísa og Jóhanna Steina. Megi algóður Guð styðja þær og styrkja í sorg þeirra og söknuði. Sigríður Jónsdóttir. Mig langar að helga nokkrar línur minningu Matthíasar Viðars Sæ- mundssonar. Mig skortir orð, ég átti einhvernveginn von á að hann sigr- aðist á sjúkdómi sínum, að minnsta kosti um hríð. Matthías Viðar var stór maður með stóra sál, tilfinningaríkur og fluggáfaður, yfir honum alltaf glæsi- leiki, tign, stolt. Ég kynntist Matth- íasi þegar ég var við nám í háskól- anum, það var eitthvað við fyrirlestrana hans sem kveikti al- gerlega í manni, vitræn ástríða og ákafi, skörp greining og andóf. Ég skrifaði BA-ritgerð hjá honum þótt ég hefði raunar ekki íslensku að að- alfagi; hann hafði afburðagott vald á flóknum hugmyndum og íslensku máli og stíl og það var gott að vera undir handleiðslu hans. Matthías reyndist mér alla tíð ákaflega vel, hann var heill maður, maður orða sinna og stóð við það sem hann sagði; hann var ekki sérlega form- legur, lítið gefinn fyrir strangar etí- kettur, algerlega laus við sjálfhælni og hræsni var ekki til í honum en aftur mikill eldmóður sem smitaði út frá sér og karlmennska, sönn karl- mennska sem felur í sér ákveðna tegund af viðkvæmni. Leiðir okkar lágu síðan saman þegar hann gerð- ist frumkvöðull á sviði netmiðlunar á Íslandi, hann opnaði heimasíðu sem síðan varð að vefriti um hugvísindi, síðan fór það vefrit, Kistan, á al- mennari vettvang og eftir það kom ég að því með beinum hætti og rit- stýrði um nokkurt skeið. Í þessu sem og öðru sem Matthías tók sér fyrir hendur var sama óeigingirnin og sama eljan og örlætið, hann gerði ekkert fyrir eigin hag, stundum fannst mér að fólk næði hreinlega allsekki upp í hann, botnaði ekki í honum, fyrir utan að ég er ekki viss um að allir átti sig á hvað hann var frábær rithöfundur og hugsuður. Matthías var grand, vinur vina sinna, hann var stór en hann átti líka til hvassan tón, mjög beittan, sem sveið undan, margir voru held ég dá- lítið smeykir við hann. En hann var í raun einstaklega víðsýnn og í lengstu lög tilbúinn að taka viljann fyrir verkið, sýna skilning fremur en að fordæma. Sem menntamaður náði hann mikilli yfirsýn án þess að glata ákafanum og ástríðunni eða ofsanum, hlutirnir voru mikilvægir í augum Matthíasar, bókmenntir þar á meðal; margir fyrirlestrar hans eru mér ógleymanlegir og sumir urðu að greinum og bókum sem eru slétt sagt með því langbesta sem hefur verið skrifað um íslenskar bókmenntir og menningu. Sem rit- höfundur hafði hann alveg sérstak- an stíl sem engu líkist en er blanda af fornu og nýju, í skrifum hans er hnífsbit, alvara, ef þetta skortir eru skrifin tómt glundur. Enginn skrif- aði um bókmenntir og menningu með sama hætti og Matthías Viðar, það hafði enginn sama næmi og inn- sýn í tímann sem við lifum, enginn náði jafn vel að tengja íslenska hefð og nýjar hugmyndir. Það er skarð fyrir skildi, við erum fátækari, við erum miklu fátækari. Matthías varð gæfumaður og eignaðist fjölskyldu. Fyrir þremur vikum kom Matth- ías með konu sinni og dóttur í mat á heimili mitt, það var í síðasta skipti sem ég sá hann, hann leit vel út og alltaf sami baráttuandinn í honum. Sonur minn og dóttir Matthíasar náðu vel saman þetta kvöld, Matti var búinn að panta sér tengdason og sá ráðahagur virkaði vel á Jóhönnu Steinu og Stefán. Rétt þar áður hafði húmoristinn Matti leikið mig grátt í símtali, gabbað mig upp úr skónum, það var gott á mig. Við föðmuðumst að skilnaði en ég hélt ekki að ég væri að kveðja hann fyrir fullt og allt. Í dauðanum eru menn fullnaðir, skrifaði hann einhvers- staðar, ég sakna Matthíasar, fjöl- skyldu hans votta ég mína dýpstu samúð. Hermann Stefánsson. Þegar mælt er eftir Matthías Við- ar Sæmundsson er sízt við hæfi að fara krókaleiðir í kringum hlutina, tala af einhverri sérstakri varúð um eitt og annað, læðast í launkofum. Slíkt væri óvirðing við persónugerð af hans tagi. Matthías var enginn felumaður í framgöngu eða viðhorf- um, þótt hann kynni reyndar vel að meta myrkar líkingar og vísanir í forna feiknstafi. Á slíkan leik mætti að sjálfsögðu bregða – og þá í nafni ótal eftirminnilegra samræðna. Um þær mundir sem leiðir okkar skárust í fyrstu, háði hann tíðum harða glímu við skuggavættir, hið ytra sem innra. Að hætti sígildra ör- lagavalda í ævintýrum og goðsögum lögðu tröllin fyrir hann þrautirnar þrjár – og vafalaust vel það, því und- ir öllu saman reri kappsamlega sá gamalkunni guð sem ekki er ætíð bendlaður við meðalhófið. Það sóp- aði að Matthíasi í sálarstyrjöldum hverskonar, hann lifði geyst, virtist hvergi deigur og þótti á stundum hvass, ögrandi og vægðarlaus í tali. Hann kom þó ætíð fram sem örlátur félagsbróðir og jafningi, hver sem í hlut átti; fáum duldist sú hlýja og vinfesta sem honum var innst inni eiginleg, og þeir sem höllum fæti stóðu í mannfélaginu áttu í honum öruggan málsvara. Annað veifið var því líkast sem hann kappkostaði vit- andi vits að sýna sjálfum sér, sam- ferðamönnum sínum og umhverfi öllu í tvo heimana, bókstaflega talað: opinbera allt, varpa kyndlinum án miskunnar inn í þau ljósfælnu skúmaskot sem dyljast í hverri mannssál, hversu vammlaus sem hún læzt vera. Skeggræður hans við slík tækifæri, á stundum blandaðar nokkurri ertni, var auðvelt að mis- skilja og mistúlka, og man ég slíks dæmi af sjálfum mér og öðrum. Fólki, sem ekki þekkti Matthías þeim mun betur, var naumast láandi þótt því litist ekki ætíð á blikuna; en þeir, sem nær honum stóðu, gengu þess ekki duldir að í sömu svipan gekk hann svo nærri sjálfum sér að það var með hríðum áhyggjuefni. Undrum sætti að vinnuþreki hans og afköstum virtust nálega engin takmörk sett, hvað sem á dagana dreif. Þær dýrmætu heillastundir gengu síðan í garð fyrir allmörgum árum, að líf Matthíasar leitaði styrks og jafnvægis, hann vann bug á bragðvísi og þrautum trölla og sté fram úr Skuggabjörgum heill á húfi, hverjum manni vaskari, enda kom nú æ skýrar í ljós hvern öðling hann hafði að geyma. Menn vissu reyndar fyrir, hvílík hamhleypa hann var á vettvangi menntanna, orðlagður og með afbrigðum vinsæll fræðari, frjór boðberi nýmæla, en þar að auki bar nú hátt æðrulaust karlmenni, sem jafnframt var viðkvæmur fag- urkeri, fordómalaus og skilningsrík- ur, ljúfur og nærgætinn heimilisfað- ir, prúðmenni í háttum og umfram allt drengur góður. Stundum er sagt um suma menn að þeir láti sér ekkert mannlegt óviðkomandi. Matthías Viðar Sæ- mundsson tók sér manninn beinlínis nærri, þjáningar hans, þverstæður og duttlunga, og sá eiginleiki skýrir að nokkru öll blæbrigði lífs hans, bæði fyrr og síðar. Öll afskipti Matthíasar af bókmenntum og heimspeki voru skýrt mörkuð þeirri íhygli sagnfræðings og sálkönnuðar sem hugar grannt að kenndum mannsins og kjörum, kvöl hans og gleði á hinum ýmsu tímaskeiðum sögunnar, sjálfu því frumafli sem er undirrót listanna. Á þessu sviði var hann síspyrjandi, síleitandi og að sama skapi gjöfull á það sem hann frétti og fann. Óvenju rík athyglis- gáfa, atorka og forvitni um alla mannlega háttsemi og hugmyndir, settu ævinlega persónulegt kenni- mark á fræði hans, hvort sem hann skyggndist til hærri sviða eða kann- aði hin torræðu og myrku djúp mannssálarinnar. Ekkert var sjálf- gefið, allt þurfti nánari rannsóknar við. Mikil hamingja, mannheill og far- sæld ríkti í ranni þegar dauðameinið kvaddi skyndilega dyra fyrir tæpu ári. Þegar sýnt var hvílík átök kynnu að vera í vændum, varð Matthíasi að orði að alténd væri skárra að heyja tvísýna orrustu en að ganga vísvitandi til aftöku. Í þeim þungbæru veikindum, sem í hönd fóru, hélt hann lengst af ótrúlegu vinnuþreki, var gefandi, glaður og reifur, og mælti aldrei æðru; einna næst því mun hann kannski hafa komizt í símtali við mig eitt sinn, með orðalagi frá Örlygsstöðum, þegar augljóst var að til hins verra hlaut að horfa um líðan hans: Þetta ætlar að verða langur kjölur að klífa. Margs er að sakna og margt að þakka, og hrökkva skammt orðin ein. Nú ríkir um sinn harmur í húsi, en frjó návist mikils anda mun þegar frá líður verða þeim Steinunni, Nönnu og Jóhönnu Steinu sá styrk- ur sem góð minning getur beztan veitt. Þorsteinn frá Hamri. Ég man vel eftir þeim skiptum sem ég fór með mömmu í heimsókn, lítil hnáta í kjallaraíbúð í Hlíðunum. Þar bjó Matthías Viðar, vinur henn- ar úr Háskólanum, en þau deildu alla tíð ástríðunni á íslenskri tungu, bókmenntum og straumum og stefnum þeim tengdum. Þegar mamma mín, Jóhanna Sveinsdóttir, lést sviplega fyrir níu árum var hún einmitt að vinna að mastersritgerð um súrrealisma í ís- lenskum bókmenntum undir leið- sögn vinar síns Matthíasar. Ég fann og vissi alla tíð hvað vinátta þeirra var sterk og þegar mamma talaði um Matthías fannst mér ætíð nánast eins og hún væri að tala um litla bróður sinn því í talinu fólst mikil væntumþykja og virðing í bland við móðurlegar tilfinningar. Þegar þau hittust síðast árið 1994, er mamma kom í stutta heimsókn frá Frakk- landi þar sem hún bjó síðustu árin, voru þau einmitt eins og tvö prakk- araleg systkin sem gátu varla beðið eftir að segja hvort öðru frá prakk- arastrikum hins. Ég á mynd af þeim þar sem þau sitja á gólfinu hjá Ragnheiði vinkonu sinni í Sögu- félaginu og gleðin og kátínan ljómar úr andlitum beggja. Nokkrum mánuðum síðar bar Matthías kæru vinkonu sína til graf- ar og önnur Jóhanna, móðir hans, lést einungis nokkrum mánuðum á undan honum sjálfum úr sama sjúk- dómi. Matthías skilur hins vegar eftir hér hjá okkur sólargeislann Jó- hönnu Steinu sem fæddist sumarið 2001 og fyrir hana og fjölskyldu sína háði hann hetjulega baráttu fyrir lífi sínu en á endanum hafði sjúkdóm- urinn betur. Elsku Steinunn, ég sendi þér, Jó- hönnu og Nönnu mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið góðan Guð að blessa ykkur og styrkja í hinni miklu sorg. Það er þó einhver huggun harmi gegn að vita til þess að mömmurnar tvær, mín og hans, bíða elsku Matth- íasar með útbreiddan faðminn á himnum og það verða fagrir endur- fundir. Matthías lifir áfram í verkum sín- um, í litlu Jóhönnu og öllum þeim góðu minningum sem við eigum um hann. Þín Hanna. Í dag kveðjum við Matthías Viðar Sæmundsson, mikinn öðling sem var stór í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Fyrir hugskotssjónum renna myndirnar. Fyrst af feimna skóla- drengnum austur á Selfossi sem gjarnan hélt sér til hlés þegar ærslin voru mest í öðrum krökkum. Seinna myndin af hlýja og notalega sam- kvæmismanninum, geðríkum en glaðlyndum, leiftrandi í samræðum og skemmtilega stríðnum. Enn liðu árin þar til fyrir einum sjö árum að sameiginlegt hugðarefni varð til þess að leiðir lágu saman að nýju. Litlu síðar komumst við á snoðir um að ástir hefðu tekist með Matthíasi og okkar traustu vinkonu Steinunni, og hann í þann veginn að verða stjúpfaðir Nönnu, æskuvinkonu af Kaplaskjólsveginum. Eftir á að hyggja er eins og þetta hafi allt átt að gerast eins og það gerðist, að sá sem öllu ræður hafi verið búinn að ákveða að láta Matth- ías finna hamingjuna með Steinunni og skila okkur öllum í örugga höfn vestur í Landakoti. Fyrir þau tíma- mót á liðnu hausti á séra Jakob Rol- land miklar þakkir skilið, svo og fyr- ir allar þær jákvæðu hugleiðingar sem milduðu eins og mögulegt var tilhugsun okkar um þá skilnaðar- stund sem kynni að vera fram und- an. Löngunin til að þroskast og taka framförum, bæta sjálfan sig og gera öðrum lífið innihaldsríkara, markaði lífshlaup Matthíasar. Fyrir þann ásetning uppskar hann ríkulega. Um leið og það tók hann sárt að sjá á bak því lífi sem farið var að leika við hann á öllum sviðum, huggum við okkur við að það skuli einnig hafa skipt hann máli að fá að kveðja í faðmi sinnar eigin fjölskyldu, um- vafinn kærleika og hlýju, sáttur við Guð og menn. Við kveðjum góðan dreng með þakklæti fyrir þá fallegu minningu sem hann skilur eftir í hjarta okkar. Garðar, Kristín og Þorgerður Guðrún. Aldrei hafa tíðindi slegið mig jafn illa og þegar ég spurði veikindi Matthíasar Viðars síðastliðið sumar. Það var ljóst frá upphafi að um líf og dauða var að tefla, svo alvarlegt var ástand hans þá þegar orðið. Matth- ías Viðar hafði dvalist erlendis ásamt konu sinni mánuðina á undan og við því ekki hist augliti til auglitis í nokkurn tíma en þó verið í reglu- legu sambandi. Við Matthías Viðar kynntumst fyrir einhverjum áratugum síðan og fundum strax til mikils skyldleika enda lifðum við báðir á ystu brún á þeim árum eins og hver dagur væri okkar síðasti. Kunningsskapur okk- ar var góður en það var ekki fyrr en síðar þegar líf okkar beggja hafði tekið nýja stefnu og virkilegur lífs- vilji hafði vaknað hjá okkur báðum að kunningsskapur okkar þróaðist út í nána vináttu. Það var ótrúlegt að kynnast Matthíasi nánar eftir þessi hvörf í lífi okkar beggja. Hann hafði ævin- lega verið mjög dulur á tilfinningar sínar og varið þær með kaldhæðn- islegu viðmóti. Mig rak nánast í rogastans að fylgjast með innilegri og fölskvalausri ást hans á Steinunni Ólafsdóttur sem sannarlega varð Konan í lífi hans. Hann fór aldrei dult með ást sína og mátti hver sjá sem vildi. Hjartasárið sem mér fannst Matthías alltaf bera sást ekki lengur og hann var fullur lífsgleði og starfsorku. Þótt vinátta okkar væri bundin sterkum böndum þegar veikindin uppgötvuðust einkenndust sam- skipti okkar oft af léttúð og glettni sem virtist okkur báðum eiginleg. Það var ómetanlegt að eiga þess kost að eiga enn dýpri og einlægari samræður við Matthías áður en hann kvaddi okkur öll. Matthías Við- ar barðist allt til enda af mikilli reisn en gerði sér ljósa grein fyrir alvar- legum veikindum sínum og við ræddum mikið um líf og dauða og þá glímu sem hann átti í. Vissulega var hann miður sín að þetta skyldi henda hann loks þegar hann var orð- inn hamingjusamur með yndislegri konu og hafði eignast sitt fyrsta barn og stjúpdóttur. Það var aðdá- unarvert að fylgjast með hvernig honum tókst að beina þessum erf- iðleikum í jákvæðan farveg og játa þakklæti sitt fyrir að hafa fengið þennan tíma í hamingjusömu sam- bandi við konuna sem hann elskaði svo heitt og dætur sínar sem hann unni af öllum hug. Það verða aðrir til að fjalla um störf hans en Matthías Viðar var merkur fræðimaður, víðsýnn og for- dómalaus og umfram allt ákaflega leitandi og lokaðist aldrei inni í fíla- beinsturni fræða sinna. Áhugi hans á lífinu og örlögum annars fólks var hans driffjöður. Allir sem til verka hans þekkja vita um greind hans og innsæi og umfram allt frumlega og frjóa hugsun. Það má hiklaust segja að Matth- ías hafi kvatt á hátindi lífs síns og með mikilli reisn en eftirsjáin er mikil. Aldrei hef ég þurft að kveðja jafn kæran vin. Þar fór góður dreng- ur. Við hjónin og fjölskylda okkar vottum Steinunni, Nönnu og Jó- hönnu Steinu, vandamönnum og vin- um innilegustu samúð. Jóhann Páll Valdimarsson. Kveðja frá heimspekideild Síðastliðið sumar bárust þær fréttir til landsins að Matthías Viðar Sæmundsson, sem var í rannsókn- arleyfi erlendis, hefði greinst með krabbamein. Hann kom ásamt fjöl- skyldu sinni fljótlega heim til að- SJÁ SÍÐU 46

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.