Morgunblaðið - 13.02.2004, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 55
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert kraftmikil/l, umburð-
arlynd/ur og hvatvís og lifir
oft óhefðbundnu lífi. Þú þarft
að taka mikilvæga ákvörðun
á þessu ári. Veldu vel.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert tilbúin/n til að leggja
hart að þér í vinnunni í dag.
Þú hefur líka þörf fyrir að
taka til hendinni á heimilinu
og innan fjölskyldunnar.
Drífðu í því.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur mikið úthald í því
sem þú tekur þér fyrir hendur
í dag. Notaðu tækifærið til að
ráðast í verkefni sem þú hefur
lengi slegið á frest.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ekki dæma sjálfa/n þig of hart
vegna hluta sem þú hefur ekki
komið í verk. Það er mannlegt
að komast ekki yfir að gera
allt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir fengið hjálp annarra
við eitthvað í dag. Hikaðu ekki
við að biðja vini þína um hjálp
við flutninga eða umbætur á
heimilinu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert tilbúin/n til að leggja
hart að þér til að ná mark-
miðum þínum í dag. Þú vilt
heldur ráðast í verkefni morg-
undagsins en hvíla þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert í skapi til að sinna smá-
atriðunum í dag. Þetta er því
tilvalinn dagur til að ganga frá
hvers konar skriffinnsku.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert óvenju nákvæm/ur og
þolinmóð/ur í dag og ættir því
að nota daginn til að ganga frá
smáatriðum varðandi fast-
eigna- og tryggingamál, erfðir
og sameiginlegar eignir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ættir að ræða skipulagn-
ingu morgundagsins við maka
þinn. Mundu að góð skipu-
lagning flýtir næstum hvaða
verki sem er.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert tilbúin/n til að leggja
hart að þér í dag og jafnvel til í
að takast á við verkefni sem
þú hefur lengi ýtt á undan þér.
Notaðu tækifærið og reyndu
að koma sem mestu í verk.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú lætur ekki annríki og
aukna ábyrgð slá þig út af lag-
inu í dag. Þú ert fær um að
sinna þeim kröfum sem til þín
eru gerðar. Það er eins og þú
hafir fjórar hendur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert tilbúin/n til að bretta
upp ermarnar og ráðast í
verkefni sem þú hefur verið að
ýta á undan þér. Þú lætur það
ekki aftra þér þó um erfið og
óþægileg verk sé að ræða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að nota daginn til að
sinna verkum sem krefjast
þolinmæði og skipulagningar.
Hvers konar nákvæmnisvinna
ætti að leika í höndunum á
þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STEFJAHREIMUR
Mitt verk er, þá ég fell og fer,
eitt fræ, mitt land, í duft þitt grafið,
mín söngvabrot, sem býð ég þér,
eitt blað í ljóðasveig þinn vafið.
En innsta hræring hugar míns,
hún hverfa skal til upphafs síns
sem báran, – endurheimt í hafið.
Einar Benediktsson.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. AlfreðÞorsteinsson, for-
maður borgarráðs og for-
maður stjórnar Orkuveitu
Reykjavíkur verður sextug-
ur 15. febrúar nk. Af því til-
efni hefur hann opið hús í
Perlunni á morgun, laug-
ardaginn 14. febrúar, kl.
17.00–19.00.
60 ÁRA afmæli. Á morgun, laugardaginn 14. febrúar, ersextug Þórdís Garðarsdóttir, Heiðarbraut 2, Garði.
Eiginmaður, Lúðvík Guðberg Björnsson, verður 60 ára 8.
maí nk. Af því tilefni efna þau hjónin til kraftaveislu laug-
ardaginn 14. febrúar kl. 19 í KK-húsinu, Vesturbraut 17–19 í
Keflavík.
SAGNIR eru ekki til eft-
irbreytni, svo við sleppum
þeim, enda lokasögnin fárán-
leg – sjö grönd, þar sem
vörnin er með ás. En sá sem
á út heldur ekki á ásnum og
hefur heldur ekki klætt sig í
skotskóna. Það er austur
sem er með ásinn og lesand-
inn er í skónum hans.
Þraut tíu:
Norður
♠ 6
♥ÁD103
♦D84
♣KD1043
Austur
♠Á109743
♥KG765
♦62
♣–
Suður hefur sýnt firna-
sterk spil með láglitina og
fyrir misskilning enda sagnir
í sjö gröndum. Lesandinn er
í austur og doblar, en því
miður spilar makker út
hjarta, en ekki spaða. Sagn-
hafi stingur upp ás og hendir
spaðagosa heima. Síðan tek-
ur hann sex slagi á tígul (og
hendir tveimur hjörtum og
spaða úr borði). Næst snýr
sagnhafi sér að laufinu, þar
sem hann á ÁG fimmta
heima, og tekur þar alla slag-
ina. Þegar eitt lauf er eftir er
þetta staðan:
Norður
♠–
♥D
♦–
♣3
Austur
♠Á
♥K
♦–
♣–
Blindur spilar út lauf-
þristi.
Hvort viltu henda spaðaás
eða hjartakóng?
– – –
Norður
♠6
♥ÁD103
♦D84
♣KD1043
Vestur Austur
♠D852 ♠Á109743
♥9842 ♥KG765
♦93 ♦65
♣875 ♣–
Suður
♠KG
♥–
♦ÁKG1075
♣ÁG962
Lausn: Þetta er spurning
um einbeitingu. Austur er í
sjokki yfir útspilinu og óttast
að spilið vinnist. En ef hann
nær að jafna sig og telja slagi
sagnhafa sér hann að enn er
von. En hefur hann tekið eft-
ir því hvernig suður fylgdi lit
í laufinu heima? Mun blindur
eiga síðasta slaginn á lauf-
þrist eða á sagnhafi hærra
spil yfir þristinum? Um það
snýst málið. Tilfinningalaus
tölva myndi leysa vandann á
einfaldan hátt, en menn af
holdi og blóði gætu tapað
einbeitingunni og gleymt að
fylgjast með laufum suðurs.
En lát ei hugfallast. Suður
er líka maður. Og sem slíkur
fyrirsjáanlegur. Hann sá fyrir
sér endastöðuna strax í byrjun
og ákvað að egna fyrir þig
gildru. Besti möguleiki hans er
að geyma tvistinn heima og
láta blindan eiga síðasta slag-
inn á næstlægsta spilið. Hann
veit sem er að þú rankar ekki
við þér fyrr en í lokastöðunni
og munt þá horfa á það hvað
þristurinn er lágt spil.
Stig: Ef þú sérð í gegnum
blekkingu sagnhafa og hend-
ir spaðaás færðu 10 stig, ann-
ars ekkert.
Þá er prófinu lokið. Þeir
sem náðu 50 stigum eða
meira hafa lokið áfanganum,
hinir reyna aftur í vor.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 13. febrúar, eiga 50
ára hjúskaparafmæli hjónin Sigríður Jóna Jónsdóttir og
Steindór Úlfarsson, Þangbakka 10, Reykjavík.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6
6. Bg5 e6 7. Dd2 Be7 8. O-
O-O O-O 9. Rb3 Db6 10. f3
a6 11. g4 Hd8 12. Be3 Dc7
13. g5 Rd7 14. h4 b5 15. g6
fxg6 16. h5 gxh5 17. Hxh5
Rf6 18. Hh1 b4 19. Ra4
Hb8 20. Df2 Hf8 21.
Dg1 Re5 22. Be2
Bd7 23. Rb6 Hf7 24.
f4 Rg6 25. Rxd7
Rxd7 26. Dh2 Rgf8
27. Rd4 Rc5 28. Bc4
Hf6 29. f5 Rxe4 30.
Bxe6+ Kh8 31.
Hdg1 Bd8 32. Bd5
Rc5 33. Bg5 Hc8 34.
Bxf6 Bxf6
Staðan kom upp í
alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu á
Gíbraltar. Sigurveg-
ari mótsins, Nigel
Short (2702), hafði
hvítt gegn Andrew Muir
(2303). 35. Dxh7+! Rxh7
36. Hxh7+ Kxh7 37. Hh1+
og svartur gafst upp enda
mát í næsta leik. Lokastaða
efstu manna varð þessi: 1.
Nigel Short (2702) 8 vinn-
inga af 10 mögulegum. 2.
Surya Ganguly (2541) 7½ v.
3.–5. Alexey Dreev (2682),
Pentala Harikrishna (2582)
og Peter Wells (2493) 7 v.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
SMUR- OG DEKKJAVERKSTÆÐI
Til sölu vel staðsett smur- og dekkjaverkstæði
í Reykjavík.
Langtímaleigusamningur í boði á húsnæði.
VIÐ SELJUM OG LEIGJUM FASTEIGNIR
FLJÓTT OG VEL.
SKRÁÐU EIGNINA ÞÍNA
Í SÍMA 533 4200
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Kringlan 8-12, sími 568 6211.
Skóhöllin, Firði, Hf., sími 555 4420.
Glerártorgi, Akureyri, sími 461 3322
ÚTSÖLULOK
Allra síðustu dagar
Enn meiri verðlækkun
Allt að
70%
afsláttur
Nýtt kortatímabil
ÁRLEGT alþjóðlegt dansmót í
Kaupmannahöfn, sem kallast „Co-
penhagen Open 2004“, hefst í dag
og stendur til 15. febrúar. Þar munu
mæta til leiks danspör víðs vegar að
úr heiminum. Frá Íslandi fara sjö
pör til þátttöku á mótinu. Keppt
verður í flokkum barna, unglinga og
fullorðinna í standarddönsum og s-
amerískum dönsum. Einnig mun
fara fram landakeppni þar sem
hvert land skipar lið. Í hverju liði
eru fjögur pör og eiga Íslendingar
fulltrúa í þessari keppni.
Morgunblaðið/ Jón Svavarsson
Þátttakendur sem fara á opna Kaupmannahafnarmótið.
Alþjóðlegt dansmót
í Kaupmannahöfn
FRÉTTIR