Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 56
ÍÞRÓTTIR
56 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur
Fram FFR
verður haldinn í Framhöllinni föstudaginn
20. febrúar kl. 17:00
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning stjórnar
Stjórn Fram FFR
FYRIR áratug skráði Kúbumaður-
inn Javier Sotomayor nafn sitt á
spjöld sögunnar er hann vippaði sér
fyrstur allra yfir 2,45 metra í há-
stökki karla og frá þeim tíma hefur
met hans vart verið í mikilli hættu.
En Kúbumaðurinn hefur nú hasl-
að sér völl á nýjum vettvangi eftir
að hástökksferill hans var á enda og
nú er hann aðalmaðurinn í 12
manna stórhljómsveit sem leikur
salsatónlist. Hljómsveitin heitir
Salsa Mayor og leikur einu sinni í
viku á virtasta skemmtistað Ha-
vana.
Sotomayor segir við Reuters-
fréttastofuna að hann sé guðfaðir
hljómsveitarinnar og að hann hafi
notað fjármuni sína til þess að
kaupa hljóðfæri handa hljómsveit-
armeðlimum. Sotomayor hyggur
ekki á frama sem tónlistarmaður, en
hann lítur á tónlistina sem áhuga-
mál en samningur við hljómplötu-
útgáfu sé ekki í seilingarfjarlægð.
Sotomayor er 36 ára gamall og
hætti keppni árið 2001 en tveimur
árum þar á undan hafði hann fallið á
lyfjaprófi á Ameríkuleikunum sem
fram fóru það ár í Winnipeg í Kan-
ada. Þar reyndist Sotomayor hafa
notað kókaín en leiðtogi Kúbu, Fidel
Castro, hefur alla tíð staðið þétt við
bakið á Sotomayor.
Þess má geta að ólympíumetið í
hástökki karla er í eigu Bandaríkja-
mannsins Charles Austin, 2,39 metr-
ar, sett í Atlanta árið 1996.
Javier Sotomayor í nýrri
salsasveiflu á Kúbu
KRISTJÁN Uni Óskarsson frá
Ólafsfirði varð í 49. sæti í risasvigi á
heimsmeistaramóti unglinga í alpa-
greinum sem fram fór í Maribor í
Slóveníu í gær. Hann kom í mark
3,14 sekúndum á eftir sigurvegaran-
um – Hans Olsson frá Svíþjóð. Krist-
inn Ingi Valsson frá Dalvík lauk
ekki keppni.
ALFREÐ Gíslason og lærisveinar
hans hjá Magdeburg drógust gegn
HSV Hamburg í undanúrslitum
þýsku bikarkeppninnar í handknatt-
leik og nágrannaliðin Flensburg og
Kiel mætast. Undanúrslitaleikirnir
verða í Hamborg laugardaginn 1.
maí og úrslitaleikurinn fer fram þar í
borg daginn eftir. Flensburg vann
bikarkeppnina í fyrra.
BJARNI Skúlason, júdómaður úr
Ármanni, er á leið til Ungverjalands
ásamt þjálfara sínum, Sævari Sigur-
steinssyni. Hann tekur þátt í stiga-
móti, sem er liður í A-mótaröð evr-
ópska júdósambandsins – eitt af
stigamótunum fyrir Ólympíuleikana
í Aþenu. Bjarni keppti í Frakklandi
um sl. helgi þar sem hann lagði
Bandaríkjamann í fyrstu umferð, en
tapaði fyrir Pólverja í annarri og
datt út. Hann hefur svo verið í æf-
ingabúðum í Frakklandi.
JOE Kinnear, nýráðinn knatt-
spyrnustjóri Nottingham Forest,
hefur fengið Alan Rogers og And-
rew Impey að láni frá Leicester.
FÓLK
FRAMHERJI NBA-liðsins Boston
Celtics, Vin Baker, mun að öllum lík-
indum verða leystur undan samningi
sínum við félagið vegna áfengis-
vandamála hans. Baker fór í áfeng-
ismeðferð sl. sumar og byrjaði tíma-
bilið gríðarlega vel en undanfarnar
vikur hefur hallað undan fæti hjá
Baker á ný.
FORRÁÐAMENN Celtics hafa lít-
ið sagt um málið en vonast til þess að
Baker nái sér á strik á ný. Í samningi
hans eru ákvæði um að missi hann af
10 leikjum eða meira í vetur vegna
áfengisvandamála verði hann leystur
undan samningi. Þess má geta að
Baker fær um 900 millj. kr. á ári í
laun frá Celtics.
GRÍÐARSTÓR stytta af Ervin
„Magic“ Johnson, fyrrum leikmanni
NBA-liðsins Los Angeles Lakers,
var afhjúpuð í gær af honum sjálfum
en styttan er fyrir utan heimavöll
liðsins, Staple Center. Meðal gesta
voru fyrrum samherjar Johnson hjá
Lakers, Kareem Abdul-Jabbar,
James Worthy, borgarstjóri Los
Angeles, Jim Hahn, og fram-
kvæmdastjóri NBA-deildarinnar
David Stern. Styttan er 3,66 metrar
á hæð og gerð af listamanni frá Ísr-
ael, Rotblatt Amrany, en sá hinn
sami gerði styttu sem er af Michael
Jordan, fyrir utan United Center í
Chicago.
FÓLK
JACQUES Santini,
þjálfari franska lands-
liðsins í knattspyrnu,
valdi ekki Nicolas
Anelka í leikmannahóp
sinn sem leikur gegn
Belgum í vináttuleik
hinn 18. febrúar. Fram-
herjar liðsins verða þeir
Louis Saha, Manchester
United, Thierry Henry,
Arsenal, David Trezeg-
uet, Juventus, Sidney
Govou og Peguy
Luyindula frá Lyon.
Það bendir því flest til þess að
Santini muni ekki velja Anelka í leik-
mannahópinn fyrir úrslitakeppni
EM í Portúgal í sumar. Anelka hefur
ekki leikið með franska landsliðinu
frá því í apríl árið 2002 en hann hefur
skorað 6 mörk í 28 landsleikjum.
Franska liðið er þannig skipað:
Markverðir: Fabien
Barthez (Marseille),
Gregory Coupet (Lyon)
Varnarmenn: Jean-Alain
Boumsong (Auxerre),
Marcel Desailly
(Chelsea), Mikael Silv-
estre (Man. Utd.), Will-
iam Gallas (Chelsea),
Bixente Lizarazu
(Bayern), Lilian Thuram
(Juventus), Willy Sagnol
(Bayern). Miðjumenn:
Claude Makelele
(Chelsea), Olivier Dacourt (Roma),
Patrick Vieira (Arsenal), Robert Pir-
es (Arsenal), Zinedine Zidane (Real
Madrid), Jerome Rothen (Mónakó).
Framherjar: Thierry Henry (Arsen-
al), David Trezeguet (Juventus ),
Sidney Govou (Lyon), Louis Saha
(Man. Utd.), Peguy Luyindula
(Lyon).
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Björn Margeirsson fagnar sigri í 1.500 metra hlaupi á Smáþjóðaleikunum á Möltu fyrir rúmu ári.
MIKLOS Feher, ungverski
knattspyrnumaðurinn sem
lést sviplega í leik með Ben-
fica í Portúgal fyrir skömmu,
reyndist vera með meðfæddan
hjartagalla. Portúgalska dag-
blaðið Jornal de Noticias hef-
ur þetta eftir læknum sem
stjórnuðu krufningu á líki
Ungverjans.
Læknarnir segja að fyrstu
niðurstöður krufningarinnar
leiði þetta í ljós en eftir sé að
staðfesta þær og það muni líða
nokkrar vikur þangað til það
verði gert. Hjartagallinn kom
ekki fram í þeim læknisrann-
sóknum sem Feher hafði
gengist undir á sínum ferli.
Læknar Benfica segja að hann
hafi gengist undir ítarlega
læknisskoðun hjá félaginu
mánuði áður en hann lést og
þá hafi ekkert óeðlilegt komið
í ljós.
Feher, sem var aðeins 24
ára, hneig niður á lokamín-
útum leiks Benfica og Guim-
araes 25. janúar en leikurinn
var sýndur í beinni sjónvarps-
útsendingu. Í kjölfarið á dauða
Fehers hefur verið talsverð
umræða um að knattspyrnu-
menn í efstu deildum séu und-
ir of miklu álagi.
Miklos
Feher
var með
hjartagalla
Anelka er
enn úti í
kuldanum
Nicolas Anelka