Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 57
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 57
GRÍMUR Björn Grímsson, 15 ára
drengjalandsliðsmaður í knattspyrnu úr
KR, fer á sunnudaginn til reynslu hjá
dönsku bikarmeisturunum Bröndby og
verður þar við æfingar í næstu viku.
Grímur æfði einnig með Bröndby í haust
og var honum boðið aftur til félagsins
ásamt nokkrum af bestu leikmönnum
Danmerkur í sínum árgangi og nokkrum
drengjalandsliðsmönnum annars staðar
að af Norðurlöndum. Þeir æfa með úr-
valshópi efnilegra leikmanna hjá
Bröndby.
Grímur, sem verður 16 ára í næsta
mánuði, lék 6 leiki með drengjalandslið-
inu á síðasta ári og skoraði tvö mörk en
hann er áfram gjaldgengur með því í ár.
Hann hefur alla tíð leikið með Fram en
gekk til liðs við KR í vetur.
Grímur aftur
til Bröndby
RAGNAR Óskarsson skoraði 6 mörk og var
markahæstur hjá Dunkerque þegar lið hans
lagði toppliðið í franska handboltanum, Mont-
pellier, að velli, 26:24, í 1. deildinni þar í landi í
fyrrakvöld. Þetta var aðeins annar ósigur Mont-
pellier í 15 leikjum í vetur en liðið er efstir sem
áður með fjögurra stiga forystu í deildinni.
Dunkerque er í fimmta sætinu, átta stigum á
eftir Montpellier.
Ragnar er þriðji markahæsti leikmaður deild-
arinnar, hefur skorað 95 mörk í 15 leikjum, og
er jafnframt þriðji besti leikmaður hennar, sam-
kvæmt stigagjöf netmiðilsins Handzone. Þar eru
aðeins Stéphane Stoecklin, fyrrum heimsmeist-
ari með Frökkum sem nú leikur með Chambéry,
og tékkneski landsliðsmaðurinn David Juricek
hjá Istres með betri meðaleinkunn en Ragnar.
Hann er hins vegar með flest heildarstig en hef-
ur spilað fleiri leiki en hinir.
Ragnar með sex
gegn toppliðinu
ÍSLENSKA karlalandsliðið í badminton fagnaði í gær
stór sigri á Kýpur í undankeppni heimsmeistaramótsins,
sem fram fer í Slóvakíu, 5:0. Þeir Tryggvi Nielsen,
Sveinn Sölvason og Magnús Ingi Helgason unnu allir
leiki sína í einliðaleik – Tryggvi 15:5 og 15:6, Sveinn 15:4
og 15:6 og Magnús Ingi 15:13 og 15:9. Í tvíliðaleik unnu
Sveinn og Tryggvi sína mótherja 15:6 og 15:4. Helgi Jó-
hannesson og Njörður Lúðvígsson unnu sína andstæð-
inga 15:5 og 15:5.
Karlaliðið er úr leik eins og kvennaliðið, sem tapaði
fyrir Þjóðverjum í lokaumferð 5:0. Þjóðverjar unnu þar
með riðilinn og halda áfram keppni.
Sara og Ragna í 32. sæti
Sara Jónsdóttir og Ragna Ingólfsdóttir eru í 32. sæti á
heimslistanum í tvíliðaleik, sem gefinn var út í gær. Á
listanum í einliðaleik er Sara í 51. sæti og Ragna í 58.
sæti Tómas Viborg er stigahæstur íslenskra karla – er í
208. sæti í einliðaleik.
Stórsigur á Kýpur
í síðasta leiknum
ÓLAFUR Stefánsson skoraði tvö
mörk, annað þeirra úr vítakasti, þeg-
ar Ciudad Real vann Arrate, 28:19, á
útivelli í spænsku 1. deildinni í hand-
knattleik í fyrrakvöld. Talant Dujsh-
ebaev skoraði 7 mörk fyrir Ciudad
Real sem er með fimm stiga forystu í
deildinni, er með 32 stig en Barce-
lona og Portland 27 hvort.
GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Barnsley, styrkti leik-
mannahóp sinn í gær þegar hann
fékk tvo nýja til liðs við sig. Það voru
Michael Boulding frá Grimsby og
Arron Davies, sem Guðjón fékk að
láni frá Southampton.
JESPER Sörensen, danski körfu-
knattleiksmaðurinn, lék á ný með
KR-ingum í gær þegar þeir mættu
Grindavík í úrvalsdeildinni. Sören-
sen tábrotnaði fyrir skömmu og
reiknað var með 4–6 vikna fjarveru
en hann varð leikfær mun fyrr en bú-
ist var við.
HIÐ fræga yfirvararskegg Heiner
Brands, þjálfara Evrópumeistara
Þýskalands í handknattleik, virðist
hafa verið fjarlægt í heilu lagi. Að
minnsta kosti fór það ekki í vaskinn
því þýska sjónvarpsstöðin DSF og
netmiðillinn Sport1 gangast fyrir
uppboði á því og rennur andvirðið til
góðgerðarmála. Lágmarksboð er
120 evrur, um 10 þúsund krónur.
JONAS Ernelind, landsliðsmaður
Svía í handknattleik, er á heimleið
frá Þýskalandi og hefur samið við
Sävehof til tveggja ára, frá og með
næsta hausti. Ernelind leikur með
HSV Hamburg en spilaði áður með
Kiel og Bad Schwartau. Hann er 27
ára og á 90 landsleiki að baki.
LAURA Davies er fyrsta konan
sem tekur þátt í karlamóti á evr-
ópsku mótaröðinni í golfi, og lék hún
á þremur yfir pari á fyrsta keppnis-
degi ANZ-meistaramótsins sem
fram fer í Ástralíu. Á mótinu er leik-
ið með sérstöku Stableford-kerfi
sem verðlaunar kylfinga sem leggja
áherslu á sóknargolf. Davies er 81.
sæti og fékk -1 punkt fyrir skor sitt,
líkt og Frakkinn Jean van der Velde
sem var með henni í ráshóp.
ÞEIR sem eru í efstu sætum
keppninnar eru með 18 punkta og
segir Davies að hún þurfi að ná 10
punktum á öðrum keppnisdegi til
þess að komast áfram. Nick O’Hern
frá Ástralíu lék á átta höggum undir
pari og fékk 18 punkta að launum.
KÓLUMBÍSKI knattspyrnumað-
urinn Albeiro Usuriaga var skotinn
til bana á miðvikudag þegar ráðist
var inn á heimili hans í borginni Cali.
Hann var þekktastur fyrir að hafa
skorað markið sem tryggði Kólumb-
íu þátttökurétt í lokakeppni HM á
Ítalíu árið 1990 en var síðan ekki val-
inn í hópinn sem tók þátt í keppninni.
Usuriaga lék með mörgum liðum í
Suður-Ameríku og einnig um skeið
með Málaga á Spáni.
FÓLK
Björn nýtur engra styrkja frá Af-rekssjóði ÍSÍ, er ekki nógu öfl-
ugur á alþjóðlegan mælikvarða til
þess að vera styrk-
hæfur. Hann lætur
það ekki á sig fá,
hyggst upp á eigin
spýtur leggja allt í
sölurnar til að ná markmiði sínu, sem
er keppnisréttur í 1.500 m hlaupi á
Ólympíuleikunum í Aþenu í ágúst
nk. „Ég hef einbeitt mér að æfingum
og keppni í hlaupum frá því um mán-
aðamótin október/nóvember. Þá
sagði ég upp hálfsdagsstarfi sem ég
var í á Almennu verkfræðistofunni
og dreif mig í sex vikna æfingabúðir
til Athens í Georgíuríki í Bandaríkj-
unum,“ sagði Björn í samtali við
Morgunblaðið í vikunni – þá nýkom-
inn úr keppnisferð til Svíþjóðar.
Í fyrrgreindri æfingaferð til
Bandaríkjanna sló Björn Íslandsmet
Þorsteins Þorsteinssonar, KR, í 800
m hlaupi innanhúss, met sem hafði
staðið í 32 ár. Hann gerði síðan gott
betur í Malmö sl. sunndag og telur
sig eiga meira inni.
„Það er ljóst að ég hefði aldrei
komist í gegnum aðra eins æfinga-
törn og ég fór í gegnum í haust og í
vetur hefði ég stundað vinnu með.“
Æfirðu miklu meira en áður?
„Já, ég geri það, bæði hefur fjöl-
breytileiki æfinganna verið meiri og
eins hef ég hlaupið fleiri kílómetra, á
bilinu 80 til 100 á viku. Það hef ég
ekki þolað til lengdar fyrr en nú,
bæði vegna meiðsla og sökum al-
menns aumingjaskapar. Ég hef oft
átt við meiðsli að stríða, eins og þeir
vita sem þekkja mig.“
En hvað kom til að þú ákvaðst að
segja upp vinnunni til að hella þér af
fullum krafti út í æfingar?
„Draumurinn er að halda út fram
yfir Ólympíuleikana í Aþenu í sumar.
Ég ákvað að láta slag standa í fram-
haldi af miklum framförum sem ég
tók í fyrrasumar. Þá sá ég að með því
að einbeita mér að æfingum í ein-
hvern tíma gæti ég örugglega tekið
enn meiri framförum. Þetta er nokk-
uð djörf ákvörðun, en ég sé það núna
þegar ég lít á þær framfarir sem ég
hef tekið í vetur innanhúss að ég
gerði rétt. Tíminn minn í 1.500 metra
hlaupinu í Gautaborg um síðustu
helgi, 3.47,84 mínútur, samsvarar
um 3,44 mínútum utanhúss, það er
um 3 sekúndum betri tími en ég náði
í fyrrasumar. Ég get þar með alveg
fullyrt að nú um stundir er ég sterk-
ari hlaupari en í fyrra og þar af leið-
andi en nokkru sinni fyrr á ævinni.
Eigi að síður er langt í B-lágmark-
ið í 1.500 m hlaupi fyrir Ólympíu-
leikana, 3,38 mínútur. Ég átta mig á
því að það þarf mikið að gerast til
þess að ég nái því, en ég er hvergi af
baki dottinn við þann ásetning
minn,“ segir Björn og bætir við:
„Draumurinn um að keppa á Ólymp-
íuleikum fær menn eins og mig til
þess að verða svolítið geggjaðir og
leggja allt annað til hliðar.
Raunhæft markmið á næstu mán-
uðum er að bæta Íslandsmetin í 800
og 1.500 m hlaupi innanhúss og utan,
takist mér að ná lengra, til dæmis á
Ólympíuleika, þá lít ég á það sem
bónus. Ég er það jarðbundinn enn að
ég geng ekki út frá því sem vísu að
ég komist til Aþenu.“
Bræður á hlaupum
Björn lauk BS-námi í verkfræði
við Háskóla Íslands í vor og hyggur í
framtíðinni á frekara framhaldsnám.
Hann er 24 ára gamall, fæddur á
Blönduósi en uppalinn á Mælifellsá í
Skagafirði. Björn hóf átta ára gamall
að keppa í hlaupum á mótum í
heimabyggð sinni en segir að það
hafi ekki verið fyrr en um fjórtán ára
aldur sem hann sýndi að hann hefði
hæfileika til að verða hlaupari. Hann
er eitt sjö barna hjónanna Helgu
Þórðardóttur og Margeirs Björns-
sonar sem búa á Mælifellsá. Ljóst er
að rík hlaupagen eru í fjölskyldunni
því Sveinn bróðir Björns er Íslands-
methafi í 3.000 m hindrunarhlaupi og
hefur verið fremsti hlaupari landsins
í 3.000–10.000 km hlaupi undanfarin
ár. Sveinn er ári eldri en Björn og
leggur nú stund á framhaldsnám í
Kaupmannahöfn. Yngri bróðir
Björns, Ólafur, sem stendur á tví-
tugu, hefur einnig vakið athygli fyrir
árangur sinn á hlaupabrautinni.
Fleiri íþróttamenn eru í fjölskyld-
unni því Hrafn, hálfbróðir Björns,
var um tíma í landsliðinu í hand-
knattleik og stóð í marki ÍR-inga.
Þá eru fleiri hlauparar í fjölskyld-
unni því sambýliskona Björns er
Rakel Ingólfsdóttir, hlaupari í FH.
„Við skulum ekkert fara út í þá
sálma hvort okkar hljóp hitt uppi, ég
man það ekki lengur,“ sagði Björn
glettinn þegar talið berst að sam-
býliskonunni.
Eftir að hafa keppt árum saman
undir merkjum UMSS og Tindastóls
söðlaði Björn um fyrir rúmu ári og
gekk til liðs við Breiðablik en á dög-
unum tilkynnti hann á ný fé-
lagsskipti, að þessu sinni yfir í FH,
sennilega elti hann Rakel í það skipt-
ið. Félagsskipti Björns yfir til FH-
inga ollu nokkru fjaðrafoki, einkum í
herbúðum Blika, en Björn segist
vona að öldurnar hafi lægt.
Björn var frá keppni nærri því allt
árið 2001 og árið eftir var hann alveg
úr leik vegna meiðsla af ýmsum toga.
Segir hann að sá tími hafi verið afar
lærdómsríkur en viðurkennir að
hann hafi á tíðum verið að því kom-
inn að gefast upp og leggja hlaupas-
kóna á hilluna. Á þessum árum hafi
hann breytt ýmsu í æfingum sínum,
lyft meira en áður og hugað einnig
betur að teygjuæfingum og fleiri sto-
ðæfingum. Það hafi átt stóran hlut í
því að loks þegar meiðslin voru að
baki á síðasta ári hafi hann strax tek-
ið miklum framförum. „Að ýmsu
leyti þakka ég löngum meiðslalista
að nú er ég að ná árangri. Þegar ég
var meiddur velti ég því oft fyrir mér
hvort mig langaði til þess að halda
áfram eða ekki. Þá fann ég að mig
langaði til að ná árangri; úr því ég
komst í gegnum hver meiðslin á fæt-
ur öðrum var ég viss um að heill gæti
ég gengið í gegnum þá þrekraun að
æfa betur og meira, einbeita mér að
hlaupunum og taka stórstígum fram-
förum,“ segir Björn.
Hann hljóp 800 m á 1.51.50 mín. í
fyrra og hefur bætt sig verulega.
Farið er að hilla undir Íslandsmet
Erlings Jóhannessonar, 1.48,83, sem
er orðið rúmlega 15 ára gamalt. Alls
hljóp Björn fimm sinnum undir 1,55
mín. í 800 m hlaupi og tvisvar sinnum
undir 3,50 í 1.500 m hlaupi síðasta
sumar, en slíkt hefur íslenskur
hlaupari ekki gert í háa herrans tíð.
Þá hefur hann einnig bætt sig um
sex sekúndur í 1.500 m hlaupi og náð
fimmta besta árangri Íslendings í
greininni, 3.47,61, en vantar enn sex
sekúndur til að slá 22 ára gamalt Ís-
landsmet Jóns Diðrikssonar.
Er vanur á lifa spart
Björn er hvergi banginn, segist
vera sparsamur, hafi alltaf tekist að
halda vel á því sem hann hefur unnið
sér inn á sumrin og það komi sér vel
núna þegar lifa þurfi spart. „Það litla
sem ég eyði fer ég með í sportið,“
segir Björn sem tókst að fá nokkra
styrktaraðila til að styðja við bak sitt
vegna æfingaferðinnar til Banda-
ríkjanna í vetur og fékk að búa hjá
Guðrúnu Arnardóttur, Íslandsmet-
hafa í grindahlaupum, og eiginmanni
hennar í Athens meðan hann var í
æfingabúðunum.
„Það er hins vegar alveg ljóst að
ég safna ekki sjóðum um þessar
mundir, en það er ódýrara að lifa
þegar maður þarf lítið.“
Ertu með einhverja bakhjarla um
þessar mundir?
„Ég hef undanfarin sumur unnið á
Almennu verkfræðistofunni og þeg-
ar ég hætti þar í haust var ég leystur
út með góðum styrk. Síðan fékk ég
nokkur velviljuð fyrirtæki til viðbót-
ar til þess að styðja við bakið á mér
fyrir Bandaríkjaferðina, ekki mikið
en það munaði mikið um það.
Því er hins vegar ekki að leyna að
ég stæði betur að vígi ef ég kæmist á
B-styrk hjá Afrekssjóði ÍSÍ, en um
það þýðir ekki að fást á þessu stigi,
til þess að verð ég að bæta mig tals-
vert, hlaupa til dæmis 1.500 metrana
á 3,40 til 3,41 mínútu. Það er aldrei
að vita hvað gerist í vor, ég lifi í von-
inni, en fyrst og fremst um að ná
settu marki á hlaupabrautinni.“
Björn langar til þess að komast á
heimsmeistaramótið innanhúss sem
fram fer í Búdapest í næsta mánuði.
Til þess þarf hann að hlaupa 1.500 á
3,43 mínútum, bæta sig um nærri
fimm sekúndur. „Guðmundur
[Karlsson] landsliðsþjálfari ætlar að
reyna að koma mér inn á sterkt mót í
Birmingham næsta föstudag [20.
febrúar] þar sem ég gæti átt mögu-
leika á að fá það góða keppni að ég
eigi möguleika á HM-lágmarkinu.
Ég er hins vegar ekki alltof bjart-
sýnn á að komast á mótið í Birm-
ingham, sennilega þarf klíkuskap til
þess. Verði ég ekki í Birmingham
stefni ég á sænska meistaramótið,
sem er sömu helgi, þar legg ég þá allt
í sölurnar,“ segir hinn dugmikli
Skagfirðingur Björn Margeirsson og
er hvergi banginn.
Skagfirðingurinn Björn Margeirsson stefnir á Íslandsmet í
millivegahlaupum og á Ólympíuleika í Aþenu án styrkja frá ÍSÍ
Draumurinn um ÓL
gerir menn geggjaða
„VISSULEGA var það djarft að segja upp vinnunni og einbeita sér að
æfingum og keppni í nokkra mánuði, en ég er ungur, nokkuð spar-
samur og tel að láti ég ekki reyna á það núna hversu langt ég geti
náð þá geri ég það ekki eftir fjögur eða kannski tíu ár,“ segir Skag-
firðingurinn Björn Margeirsson sem vakið hefur verðskuldaða at-
hygli í vetur en hann hefur m.a. tvíbætt Íslandsmetið í 800 m hlaupi
innanhúss og saumaði að 24 ára gömlu Íslandsmeti Jóns Diðriks-
sonar í 1.500 m hlaupi innanhúss í Gautaborg síðasta laugardag.
Daginn eftir bætti hann eigið Íslandsmet í 800 m hlaupi, hljóp á
1.53.03 mín. í Malmö.
Eftir
Ívar
Benediktsson
ANDRI Steinn Birgisson, knatt-
spyrnumaður úr Fram, er til
reynslu hjá norska úrvalsdeildar-
félaginu Viking Stavanger þessa
dagana. Hann fór til Noregs á
mánudag og er væntanlegur aftur
um helgina, samkvæmt vef Fram-
ara. Andri er tvítugur miðjumaður
og kom til Fram frá Fylki í vetur
eftir eins árs dvöl hjá Árbæjarlið-
inu, en hann lék með Fjölni til þess
tíma.
Andri spilaði með Aftureldingu
sem lánsmaður í 1. deildinni í fyrra.
Hann er í úrtakshópi fyrir 21 árs
landsliðið sem var valinn fyrir
skömmu og á dögunum skoraði
hann tvívegis fyrir Fram í sigri á
Þrótti, 5:3, í Reykjavíkurmótinu.
Andri æfir
með Viking