Morgunblaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 13.02.2004, Blaðsíða 60
KVIKMYNDIR 60 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ GÁRUNGAR fleygja því nú að nýjasta tískan hjá leikkonum í Hollywood sé að taka að sér hlut- verk sem felur í sér þá áskorun að vera illa til höfð og ómáluð fyrir framan tökuvélina, enda sé slík dirfska gjarnan verðlaunuð með Óskarstilnefningu, jafnvel sjálfri styttunni. Þó svo að þetta hljómi fá- ránlega er e.t.v. fólgið í því sann- leikskorn sem ber vitni um hversu mikið afrek það þykir að gæða Hollywood-kvikmyndir lágmarks trúverðugleika, með því að láta sögupersónur líkjast venjulegu fólki, nokkuð sem er fremur viðmið en frávik í kvikmyndagerð víða um heim. Charlize Theron, sem einmitt hlaut Óskarstilnefningu í ár, gengur talsvert lengra en svo að sleppa farðanum í túlkun sinni á aðalper- sónu kvikmyndarinnar Ófreskju, er fjallar um sannsögulega persónu, Aileen Wuornos, ógæfukonu sem starfaði sem vændiskona frá þrett- án ára aldri, en tók síðar að myrða viðskiptavini sína. Wuornos naut þess vafasama heiðurs að vera köll- uð fyrsti kvenkyns raðmorðingi Bandaríkjanna, en hún var tekin af lífi í Flórída-ríki í október 2002 fyrir morð á sjö karlmönnum. Wuornos fæddist inn í umhverfi fátæktar og splundraðra fjölskyldna, móðir hennar mun hafa yfirgefið hana, faðirinn sömuleiðis, en afinn er tal- inn hafa misnotað Wuornos er hún var barn. Wuornos var útskúfuð úr heimahúsum eftir að hún eignaðist barn 13 ára og lifði götulífi æ síðan, og hafði tekjur af því að selja sig ferðalöngum þjóðvegarins. Í túlkun sinni á Wuornos gerir Theron meira heldur en að leika, hún hreinlega umbreytir sér úr glæsipíunni sem hún hefur birt áhorfendum hingað til, yfir í mann- eskju sem lifað hefur og hrærst svo lengi í ómennskri veröld að hún hef- ur tekið á sig yfirbragð ófreskju. Holdafar Theron er gjörbreytt og gervameistarinn hefur útmáð hið meitlaða andlitsfall leikkonunnar og gefið því grófa og veðraða ásýnd (hin raunverulega Wuornos hafði ör í andliti eftir að hafa brennst illa sem barn). Theron gæðir persónuna síðan einhverju óræðu samblandi tómleika og innibyrgðs sársauka, en á bak við grímuna skín í örvænting- arfulla og viðkvæma sál. Titill myndarinnar, Ófreskja, kjarnar á einfaldan hátt meginverk- efni myndarinnar og nálgunarleið aðstandenda við umfjöllunarefnið, sem leikur einhvers staðar á mörk- um sannsögulegrar og skáldlegrar útleggingar. Talsvert hefur verið fjallað um mál Wuornos í fjölmiðl- um og sjónvarpi, en í lokaáfrýjun- inni breytti hún eigin framburði um að morðin hafi verið framin í sjálfs- vörn, og telja sumir að með því hafi hún viljað flýta fyrir endalokunum eftir rúmlega áratug á dauðadeild- inni. Nick Broomfield gerði jafn- framt tvær heimildarmyndir um Wuornos, þar sem m.a. kemur fram hversu lélega lögfræðiaðstoð hún hlaut, hvernig móðir hennar og að- ilar í lögreglunni reyndu að hagnast á sölu kvikmyndaréttar að sögu hennar, og að deila má um hvort Wuornos var yfirleitt heil á geðs- munum, og því sakhæf á þann hátt sem raunin varð. Í kvikmyndinni er leitast við að draga upp trúverðuga mynd af ferli og aðstæðum Wuornos, og margt er byggt á hennar eigin frásögnum og persónueinkennum, og eru morðin t.d. túlkuð sem þróun frá hreinni sjálfsvörn, til hatursglæpa eða til- rauna til að flýja vændislífernið. En raunsæisleg endurspeglun virðist þó ekki vera aðalatriðið í Ófreskju, athyglin er þess í stað fest við ein- stakling sem samfélagið hefur af- greitt sem skrímsli og reynt er að finna hið mennska í henni. Mið- punkturinn í þeirri sögu er ástar- samband sem Wuornos átti við unga konu árið sem hún framdi morðin, og er það ekki síst í gegn- um þá tragísku sögu sem mann- eskjuleg einkenni persónunnar eru dregin fram. Christina Ricci túlkar þessa dálítið óræðu persónu, sem endaði á því í veruleikanum að verða lykilvitnið í réttarhöldunum yfir Wuornos. Leikstjórinn dregur jafnframt fram bakgrunn Wuornos á smekklegan hátt, án þess að reyna að afsaka gjörðir hennar, en áhorfendur fá engu að síður tæki- færi til að setja sig í hennar spor og ímynda sér hvers konar hugarheim- ur verður til við slíkar aðstæður. Í fótspor morðingja MONSTER / ÓFRESKJA Laugarásbíó Leikstjórn og handrit: Patty Jenkins. Kvikmyndataka: Steven Bernstein. Aðal- hlutverk: Charlize Theron, Christina Ricci, Bruce Dern, Lee Tergensen, Annie Corley, Scott Wilson. Lengd: 111 mín. Bandaríkin / Þýskaland. Newmarket Films, 2003.  Heiða Jóhannsdóttir Stóra svið Nýja svið og Litla svið CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse Í kvöld kl 20 - UPPSELT, Lau 14/2 kl 20 - UPPSELT, Su 15/2 kl 20 - UPPSELT, Fö 20/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 21/2 kl 20 - UPPSELT, Su 22/2 kl 20 - UPPSELT, Lau 28/2 kl 20 - UPPSELT, Su 29/2 kl 20, - UPPSELT, Mi 3/3 kl 20 - UPPSELT, Fö 5/3 kl 20 - UPPSELT, Lau 6/3 kl 20 - UPPSELT, Su 7/3 kl 20 - UPPSELT, Fö 19/3 kl 20 - UPPSELT, Lau 20/3 kl 20 - UPPSELT, Fi 25/3 kl 20 - UPPSELT Fö 26/3 kl 20 - UPPSELT, Lau 27/3 kl 20 - UPPSELT Fi 1/4 kl 20 - AUKASÝNING Fö 2/4 kl 20 - UPPSELT Lau 3/4 kl 15 - AUKASÝNING Lau 3/4 kl 20 - UPPSELT, Fö 16/4 kl 20 Lau 17/4 kl 20 - UPPSELT, Su 18/4 kl 20 Fi 22/4 kl 20, Fö 23/4 kl 20, Lau 24/4 kl 20 - UPPSELT, Ósóttar pantanir seldar daglega Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 Meira (en) leikhús! SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams Í kvöld kl 20, Lau 14/2 kl 20, Fö 20/2 kl 20, Su 22/2 kl 20 Lau 28/2 kl 20, Su 29/2 kl 20 ERLING eftir Hellstenius/Ambjörnssen su 15/2 kl 20. Lau 21/2 kl 20 Aðeins þessar sýningar IN TRANSIT e. THALAMUS Fi 19/2 kl 20 Lau 21/2 kl 14:30 - Á Reykjavíkurflugvelli! Su 22/2 kl 14, Fi 26/2 kl 20, Fö 27/2 kl 20 Sýningin er á ensku - Aðeins þessar sýningar ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Lau 13/3 kl 20 Síðasta sýning LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 14/2 kl 14 - UPPSELT, Su 15/2 kl 14, - UPPSELT, Su 22/2 kl 14 - UPPSELT, Lau 28/2 kl 14 - UPPSELT, Su 7/3 kl 14, Lau 13/3 kl 14, Su 14/3 kl 14, Su 21/3 kl 14, Su 28/3 kl 14 GLEÐISTUND FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU **************************************************************** VIÐ MINNUM KORTAGESTI Á VALSÝNINGAR Ath:. Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst DRAUGALEST e. Jón Atla Jónasson FRUMSÝNING mi 18/2 kl 20 - UPPSELT Fi 19/2 kl 20, Fi 26/2 kl 20, Fö 27/2 kl 20 loftkastalinn@simnet.is Fös. 13. feb. kl. 20 örfá sæti laus Fös. 20. feb. kl. 20 laus sæti Lau. 21. feb. kl. 20 örfá sæti laus Fös. 27. feb. kl. 20 laus sæti Lau. 6. mars kl. 20 laus sæti - Ekki við hæfi barna - „Frábært-drepfyndin-átakanlegt“ Opið virka daga kl. 13-18 Miðasalan er opin kl. 14-18 alla daga nema sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu: 511 4200 www.opera.is Brúðkaup Fígarós eftir Mozart Frumsýning sun. 29. feb. kl. 19 2. sýning fim. 4. mars kl. 20 3. sýning lau. 6. mars kl. 19 Sýningar hefjast kl. 20 Miðasala alla daga í síma 555-2222 Miðsala opin mið til lau, kl. 16 - 19 Fös. 13. feb. örfá sæti laus Lau. 14. feb. nokkur sæti Fös. 20. feb. nokkur sæti Lau. 21. feb. nokkur sæti Fös. 27. feb. laus sæti Lau. 28. feb. laus sæti „Hrein snilld í Hafnarfjarðarleikhúsinu“ Valur Gunnarsson DV 7. jan. „...töfrar Hafnarfjarðarleikhússins losna fyrir alvöru úr læðingi“ „stórviðburður“ Þorgeir Tryggvason Mbl. 9. jan. „Sýningin er skemmtileg, litrík, fjölbreytileg, full af glæsilegum og skínandi hugmyndum“ Páll Baldvin DV 10. jan Vinsælasta sýning leikársins heldur áfram Yfir 30 þúsund gestir! Mið. 25. feb. kl. 19.00 laus sæti Sun. 29. feb. kl. 15.00 Uppselt Selma Björnsdóttir fer í hlutverk Krissu. Birgitta Haukdal heldur áfram sem Sandy Jónsi heldur áfram sem DanniMiðasala í síma 562 9700 www.idno.is Opið frá kl. 18 fim. - sunnudagskvöld. Edda Björgvinsdóttir tekur á móti gestum og losar um hömlur í hádeginu Lokasýning 13. febrúar. k l . 1 1 . 4 5 . Tenórinn Fim. 19. feb. k l . 20:00 AUKASÝNING Fös. 27. feb. k l . 20:00 örfá sæti Sellófon Gríman 2003: „Besta leiksýningin“ að mati áhorfenda Fös. 13. feb. k l . 20:00 örfá sæti Lau.14. feb. k l . 19:00 nokkur sæti Lau.21.feb. k l .19:00 nokkur sæti Fim.26. feb. k l .21 :00 nokkur sætI WWW.sellofon.is og sellofon@mmedia.is Vegna fjölda áskoranna verða örfáar aukasýningar LIPURTRÉ 10 STUTT DANSVERK (sem þig hefur alltaf langað að sjá) Danssýning fyrir hláturmilda Sýnd í Tjarnarbíó í kvöld, fös. 13.2 kl. 20.30 lau. 14.2 kl. 20.30 Miðasala í Kramhúsinu, s. 551 5103 og í Tjarnarbíói.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.