Morgunblaðið - 13.02.2004, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
HAFIN er vinna við að þróa rafræna aflaskrán-
ingu allra fiskiskipa Evrópusambandslandanna
auk Íslands, Noregs og Eystrasaltslandanna.
Sjávarútvegsstofnun Háskóla Íslands, Radíó-
miðun hf. og Fiskistofa leiða þann hluta verkefn-
isins sem snýr að skilgrein-
ingum á innihaldi rafrænna
afladagbóka, formi þeirra,
tíðni upplýsingagjafa, örygg-
iskröfum og notendaviðmóti.
Íslendingar munu í fram-
haldinu einnig koma að þró-
un og prófun hugbúnaðar
sem notast verður við.
„Um er að ræða verkefni
sem Evrópusambandið hef-
ur ákveðið að styðja og lýtur
að því að undirbúa reglugerð um rafræna afla-
dagbækur fyrir fiskiflota Evrópu,“ segir Guðrún
Pétursdóttir, forstöðumaður Sjávarútvegsstofn-
unar. Það yrði mikil breyting frá því sem nú er
enda sé afli víða skráður í bækur, sem oft skila
sér seint og illa til fiskistofa í löndunum sem um
ræði. Ekki hafi verið hægt að nota þessar upp-
lýsingar hingað til í vísindalegum tilgangi og
gangi þetta eftir geti fiskveiðistjórnendur kallað
fram fyllri gögn um það sem sé að gerast á mið-
unum í rauntíma.
Hagræði fyrir sjómenn
„Skráningin verður gerð einfaldari, þægilegri
og aðgengilegri fyrir skipstjórnendur og hægt
verður að senda upplýsingarnar með einu hand-
taki,“ segir Guðrún. Skilvirknin verður miklu
meiri og hægt er að byggja inn í kerfið villuleit
sem eykur áreiðanleika gagnanna sem fiskistof-
um eru send. Þetta sé ekki bara hugsað til að
auka eftirlit heldur ekki síst til hagræðis fyrir
skipstjórnendur. Í upplýsingakerfinu geti þeir
nálgast upplýsingar um veiðar sínar, staðsetn-
ingu á hverjum tíma, veiðarfæri, hitastig sjávar
og séð fylgni á milli margra ólíkra þátta.
Guðrún segir Íslendinga í fararbroddi í þróun
rafrænna afladagbóka og mikil þróunarvinna
hafi verið unnin á undanförum misserum með
þátttöku fyrirtækja og Fiskistofu. „Þetta er nán-
ast tilbúið og íslenskir sjómenn eru vel að sér,
þeir eru vel tæknivæddir og fyrir þá er þetta
ekki stórt skref.“
Styrkt af ESB
Spurð um hvernig til samstarfs við ESB kom
segir Guðrún sambandið hafa kallað eftir verk-
efnum um rafrænar afladagbækur. Sjávarút-
vegsstofnun, Radíómiðun og Fiskistofa hafi unn-
ið umsóknina saman. Rannsóknarmiðstöð á
vegum ESB á Ítalíu hafi líka sótt um en nálgast
viðfangsefnið á annan hátt. Þá var farið fram á
það að verkefnunum yrði steypt saman. „Við höf-
um unnið að því undanfarið og nú er því lokið.
Verkefnið hófst formlega með fundi í síðustu
viku í Mílanó og Íslendingar fara með mjög
veigamikinn þátt,“ segir Guðrún. Að verkefninu
komi fiskistofur landanna og hugbúnaðarfyrir-
tæki, sem vinni saman að því að finna lausnir og
prófa þær.
Styrkur ESB til verkefnisins nemur um 100
milljónum en Guðrún reiknar með að heildar-
kostnaðurinn sé á bilinu 200–300 milljónir króna.
Íslenskt hugvit styrkt af ESB
Unnið að
rafrænni
aflaskráningu
í Evrópu
Guðrún
Pétursdóttir
FORSTJÓRI Orkuveitu Reykjavíkur telur að
raforkukostnaður til viðskiptavina OR á suð-
vesturhorninu eigi eftir að hækka um allt að
20%, með breyttu fyrirkomulagi raforkuflutn-
ings.
Iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir,
hefur fengið í hendur niðurstöðu meirihluta
19 manna nefndarinnar svonefndu, sem var
falið að koma með tillögur að fyrirkomulagi
raforkuflutnings og hvernig jafna megi út
kostnað og dreifingu. Nefndin var skipuð
vegna raforkulaga, sem tóku gildi á síðasta
ári, og mun ráðherra leggja fram nýtt frum-
varp á næstunni í kjölfar tillagna frá nefnd-
inni. Samkvæmt því á nýtt fyrirtæki í flutn-
ingi og dreifingu raforku, stofnað sem
hlutafélag af orkuveitunum, að taka til starfa
um næstu áramót en samkeppni verður í
framleiðslu og sölu orkunnar.
En 19 manna nefndin var ekki sammála í
afstöðu sinni og eiga að minnsta kosti tveir
nefndarmenn eftir að skila sameiginlegu sér-
áliti skriflega, þeir Guðmundur Þóroddsson,
jaðri þéttbýlis. Kostnaður við flutninginn yrði
meiri í tilfelli OR og Hitaveitu Suðurnesja, þó
að í einhverjum landshlutum myndi raforku-
verðið lækka til neytenda. Bendir Guðmundur
á að kaupendur raforku á suðvesturhorninu
séu nærri 200 þúsund manns, um 70% þjóð-
arinnar.
Ekki í samræmi við veruleikann
Valgerður Sverrisdóttir sagðist ekki geta
tjáð sig um niðurstöðu meirihlutans, þar sem
ætti eftir að kynna málið í ríkisstjórn, en hún
sagði mat forstjóra OR um mögulega orku-
verðshækkun vera óraunhæft og órökstutt og
ekki í samræmi við veruleikann. Ýmislegt
væri ófrágengið, m.a. skipti miklu máli verð-
mat á flutningsmannvirkjum orkufyrirtækj-
anna. Sérstök eigendanefnd væri að fjalla um
það og eignamatið gæti haft áhrif á kostnað
við dreifingu og flutning orkunnar. Einnig
myndi Orkustofnun hafa eftirlit með gjald-
skrám orkuveitna og grípa í taumana ef fyr-
irtækin færu að okra á viðskiptavinum sínum.
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur (OR), og Júl-
íus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja.
Einnig bað ASÍ, sem átti fulltrúa í nefndinni,
um frest til að fara yfir málið. Ekki náðist í
Júlíus í gær en Guðmundur sagðist í samtali
við Morgunblaðið vera afar ósáttur við fyr-
irkomulag raforkuflutningsins. Telur hann
t.d. að raforkukostnaður til viðskiptavina OR
á suðvesturhorninu eigi eftir að hækka um allt
að 20%, úr 6 kr. á hverja kílóvattstund í rúm-
ar 7 kr.
Spurður nánar um þetta sagði Guðmundur
að verið væri að bæta við flutningskerfið lín-
um um allt land, um leið og t.d. Orkuveitan
héldi áfram að reka sitt dreifikerfi innan
borgarmarkanna, en flutningskerfið nær að-
eins frá virkjunum að fyrstu aðveitustöð í
Nefnd ráðherra um raforkuflutning er klofin í afstöðu sinni
Forstjóri OR telur raforku
geta hækkað um allt að 20%
Iðnaðarráðherra
segir þetta mat
vera óraunhæft
Gouda ostur
á tilboði
í næstu verslun
30% afsláttur
JÓNSI, söngvarinn í hljómsveitinni Í svörtum fötum, sópaði að sér
verðlaunum á afhendingu Hlustendaverðlauna sjónvarpsstöðvarinnar
PoppTíví sem fram fór í Vetrargarðinum í Smáralind í gærkvöld.
Jónsi tók sig vel út á skjánum, enda kannski eins gott þar sem hann
mun flytja framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
í vor í Tyrklandi.
Morgunblaðið/Golli
Í svörtum fötum sigursæl
TOLLVERÐIR tollstjóraembættis-
ins fundu á annan tug kílóa af hassi
falinn í almennri vörusendingu til
landsins í fyrradag. Komu fíkniefnin í
ljós við skoðun. Þeir sem grunaðir eru
um innflutninginn voru leiddir fyrir
dómara í gær.
Fínkniefnadeild lögreglunnar var
tilkynnt um fundinn og fer hún með
rannsókn málsins. Vildu yfirmenn
lögreglunnar ekkert láta hafa eftir
sér um málið og sögðu það viðkvæmt í
upphafi rannsóknar.
Hass fannst í flugstöðinni
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli
rannsakar einnig hassfund eftir að 3,5
kg af efninu fundust falin í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á mánudag. Lög-
reglan varðist frétta af málinu en
rannsóknin miðar m.a. að því hvort
einhverjir starfsmenn flugstöðvar-
innar séu tengdir málinu og hafi átt
þátt í að smygla efninu fram hjá toll-
vörðum.
Samkvæmt verðkönnun SÁÁ er
verð á hassi um 1.800 kr. grammið.
Nærri 20 kg af hassi fund-
ust í tveimur sendingum