Morgunblaðið - 15.02.2004, Síða 2
2 B SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NÝJAR tölur Hagstofunnar um
virðisaukaskattskylda veltu ein-
stakra greina fyrir tímabilið jan-
úar til október 2003 sýna að upp-
sveifla er hafin í iðnaði. Samtök
iðnaðarins áætla að innlend velta
iðnaðar hafi aukist um 8,2% að
raunvirði á síðasta ári. „Þetta eru
gleðileg tíðindi eftir mikla nið-
ursveiflu í iðnaði síðustu missiri,“
segir Þorsteinn Þorgeirsson, hag-
fræðingur Samtaka iðnaðarins, í
grein á heimasíðu samtakanna.
Fram kemur að innlend veltu-
aukning atvinnustarfseminnar í
heild varð þó minni eða um 0,4%
að raunvirði.
Það útskýrist af 1,9% sam-
drætti í öðrum greinum atvinnu-
starfseminnar, sérstaklega fisk-
veiðum og -vinnslu. Innlend velta
iðnaðar er áætluð hafa verið 324
milljarðar króna á síðasta ári,
sem eru 24,4% af heildarveltunni.
Ör vöxtur í iðnaði átti því stóran
þátt í því að veltuaukning at-
vinnustarfseminnar í heild varð
jákvæð.
Mikill vöxtur varð í veltu bygg-
ingar-, jarðefna- og matvælaiðn-
aðar (án fiskvinnslu) en þó sýnu
mestur í lyfjaiðnaði. Fjárfest-
ingar vegna virkjana- og stór-
iðjuframkvæmda komu fram sem
aukin velta í byggingar- og jarð-
efnaiðnaði. Greinar iðnaðar
tengdar sjávarútvegi, eins og
skipasmíði og -viðgerðir og veið-
arfæragerð, liðu fyrir samdrátt í
þeirri grein og hátt gengi krón-
unnar.
Áframhaldandi samdráttur
varð einnig í upplýsinga- og
tölvuiðnaði, aðallega í hugbún-
aðargerð og ráðgjöf, sem má
rekja til samdráttar í innlendri
eftirspurn. Þó eru vísbendingar
um að UT-iðnaðurinn muni brátt
taka við sér, t.d. fer velta vax-
andi í heildverslun með búnað og
vélar til nota í iðnaði og ráðgjöf
varðandi tölvuvélbúnað.
!"#$ %&
'
#("#$
)*"+$
),"+$
),",$
-".$
-"#$.".$."#$
Uppsveifla í iðnaði
LAUN sveitarstjóra og bæjar-
stjóra hafa nokkuð hækkað frá
árinu 2002. Einnig hafa greiðslur
til sveitarstjórnarmanna heldur
hækkað á sama tímabili, þá fyrst
og fremst vegna þess að þeim
sveitarfélögum hefur fækkað þar
sem greiðslur til sveitarstjórnar-
manna hafa verið mjög lágar.
Þessar niðurstöður koma fram í
nýrri könnun á kjörum sveitar-
stjórnarmanna og framkvæmda-
stjóra sveitarfélaga sem unnin var
af Sambandi ísl. sveitarfélaga.
Síðast var gerð sambærileg
könnun í sveitarfélögum sumarið
2002.
Meðal þess sem fram kemur í
könnuninni er að launagreiðslur
bæjarstjóra í tveimur sveitarfélög-
um með yfir 5.000 íbúa, og í einu
sveitarfélagi með 2.000 til 4.999
íbúa, eru yfir 800 þúsund kr. á
mánuði.
Sex sveitarfélög af níu sem eru
með yfir 5.000 íbúa skiluðu svörum
í könnuninni og kom í ljós að
launagreiðslur bæjarstjóra eru í
tveimur tilvikum á bilinu 600 og
699 þúsund kr. á mánuði, í tveimur
tilvikum milli 700 og 799 þúsund
kr.
Hlunnindi bæjarstjóra eru í einu
tilviki undir 50 þúsund kr. á mán-
uði, í fjórum tilvikum milli 50 og
99 þúsund kr. og hjá einu sveitar-
félagi eru greiddar milli 150 og
199 þúsund krónur á mánuði í
starfstengd hlunnindi.
Biðlaunatími 4 til 6 mánuðir
Biðlaunatími er fjórir mánuðir í
einu tilviki, fimm mánuðir í tveim-
ur tilvikum og sex mánuðir í þrem-
ur tilvikum. Greiðslur til forseta
bæjarstjórnar eru í fimm tilvikum
yfir 90 þúsund krónur á mánuði.
Hjá öllum sex sveitarfélögunum
er sveitarstjórnarmönnum greidd
föst upphæð á mánuði og hjá
tveimur er einnig greitt fyrir
hvern fund. Greiðslur fyrir funda-
setur eru alls staðar yfir 10 þús-
und kr. fyrir hvern fund. Þar sem
um mánaðarlegar greiðslur er að
ræða er greitt á bilinu 40–60 þús-
und kr. á mánuði hjá einu sveitar-
félagi og yfir 60 þúsund kr. á mán-
uði hjá fimm sveitarfélögum.
Fastar mánaðargreiðslur og
greiðslur fyrir hvern fund
Tíu sveitarfélög með 2.000 til 4.999
íbúa svöruðu í könnuninni og kom
m.a. í ljós að launagreiðslur til
bæjarstjóra eru í þremur tilvikum
á bilinu 500–599 þúsund kr., í
tveimur tilvikum á bilinu 600–699
þúsund kr., í fjórum tilvikum á
bilinu 700–799 þúsund krónur og í
einu tilviki yfir 800 þúsund krónur.
Hlunnindi bæjarstjóra eru í þrem-
ur tilvikum undir 50 þúsund kr. á
mánuði, í fimm tilvikum á bilinu
50–99 þúsund kr. á mánuði og í
tveimur tilvikum á bilinu 100–149
þúsund krónur á mánuði. Bið-
launaréttur bæjarstjóra er gefinn
upp þrír mánuðir í tveimur til-
vikum, fjórir mánuðir í einu tilviki
og sex mánuðir í sjö tilvikum.
Hjá öllum sveitarfélögum í þess-
um flokki er bæði greidd föst upp-
hæð mánaðarlega fyrir setu í bæj-
arstjórn og greitt fyrir hvern fund.
Tvö af 63 sveitarfélögum
greiða ekki fyrir nefnd-
arstörf
Í samantekt um könnunina kemur
fram að þeim sveitarfélögum hefur
fækkað sem greiða ekki fyrir
nefndarstörf. Af þeim 63 sveitar-
félögum sem sendu inn svör eru
t.d. einungis tvö sveitarfélög sem
gefa það upp að ekki sé greitt fyr-
ir nefndarstörf samanborið við að
ekki er greitt fyrir nefndarstörf
hjá átta sveitarfélögum á árinu
2002.
Alls bárust svör frá 63 sveit-
arfélögum í könnuninni og er svör-
un fyrir heildina um 67%.
Bæjarstjórar þriggja
sveitarfélaga með yfir
800 þúsund á mánuði
Laun sveitarstjóra og sveitarstjórnarmanna
hafa hækkað frá 2002 skv. nýrri könnun