Morgunblaðið - 15.02.2004, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2004 B 15
Skrifstofuhúsnæði til leigu
í hjarta borgarinnar. Samtals um 140 fm í bak-
húsi á Hverfisgötu 6.
Kristján G. Gíslason ehf.,
Hverfisgötu 6a,
sími 552 0000.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu við Laugaveg
Skrifstofuhúsnæði á 2. hæð á besta stað í mið-
borginni til leigu. Gott fundarherbergi
og kaffistofa. Sanngjörn leiga.
Upplýsingar í síma 562 0555 eða 896 2416.
Skrifstofuhúsnæði til leigu
Húsnæðið sem er nýstandsett er annars vegar
22 fm og hins vegar 50 fm að stærð á 2. hæð
í Súðavogi 7 í Reykjavík. Síma- og tölvulagnir
ásamt öryggiskerfi er til staðar. Húsnæðinu
fylgir sameiginlegt fundarherbergi og kaffi-
stofa. Næg bílastæði eru á baklóð og unnið
er að endurgerð hússins að utan. Í húsinu er
til staðar bókhaldsþjónusta, heildsölur,
markaðsfyrirtæki, tölvufyrirtæki og fleira.
Upplýsingar veitir Hlynur í síma 698 3030.
Skrifstofuherbergi/leiga
Til leigu rúmgóð, nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt
öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa.
Upplýsingar í síma 896 9629.
Hafnarfjörður atvinnuhúsn.
200 fm með innkeyrsludyrum, 3 m lofthæð.
Hentar fyrir lager, snyrtilegt verkstæði eða
framleiðslu. 250 fm snyrtilegt skrifstofurými,
tölvulagnir. Leigist saman eða sitt í hvoru lagi.
Upplýsingar í síma 588 7050.
Akralind 4 — Kópavogi
— leiga
Mjög glæsileg verslunar-, skrifstofu- og þjón-
ustubygging á þremur hæðum. Helstu hlutar
eignarinnar eru austurendi með suðurinn-
gangi, sem hentar vel fyrir verslun, þjónustu-
eða heildsölufyrirtæki, neðri hæð um 195 fm
og efri hæð um 156 fm. Á 2. hæð í vesturenda
hússins er um 500 fm stórt rými, sem hægt
er að skipta niður eins og hentar (og leigja)
allt niður í um 12 fm rými undir litla skrifstofu.
Í kjallara hússins er svo austurendinn að losna
sem er eitt bil með góðri innkeyrsluhurð. Sam-
eiginleg fullbúin og malbikuð lóð. Að utan er
húsið klætt með fallegri málmklæðningu.
Nánari uppl. hjá Hákoni eða Dan á skrifstofu.
260 fm iðnhúsnæði/leiga
Til leigu 260 fm iðnaðarhúsnæði við
Hyrjarhöfða, Mikil lofthæð. Stórar inn-
keyrsludyr. Malbikuð bílastæði.
Upplýsingar í síma 896 9629.
240 m² húsnæði
til leigu.
Flott húsnæði á annari hæð að Snorra-
braut 56 í nágrenni Domus Medica.
Húsnæðið er búið mjög öflugum net-
tengingum og fyrsta flokks loftræstingu.
Stórir gluggar og mikil lofthæð.
Skyggna ehf
s. 562 0300 og 898 8212
135 fm jarðhæð/leiga
Til leigu 135 fm jarðhæð við Dugguvog.
Tilvalið fyrir heildverslun eða léttan
iðnað. Vörumóttökudyr.
Upplýsingar í síma 896 9629.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Verslunarhúsnæði
á Seyðisfirði til sölu og leigu.
Þann 1. mars næstkomandi mun Skeljungur
flytja rekstur bensínsölu sinnar frá Ránar-
götu 1 að Hafnargötu 2a.
Hafnargata 2a,
leigutaki óskast
Skeljungur hf. óskar eftir leigutaka að húsnæði
félagsins við Hafnargötu. Í húsnæðinu, sem
er 216 fm, hefur um árabil verið rekinn sölu-
skáli og matsala, en húsnæðið hentar vel fyrir
greiðasölu, veitingarekstur eða almenna versl-
un. Ferjan Norröna kemur til Seyðisfjarðar einu
sinni í viku og leggur að bryggju rétt við versl-
unina. Húsnæðið er tilbúið til afhendingar
strax.
Ránargata 1,
atvinnuhúsnæði til sölu
Húsnæðið er 219 fm að stærð, en undir allri
verslunarhæðinni er steinsteyptur kjallari.
Í húsnæðinu er í dag rekinn söluskáli, en hús-
næðið hentar undir ýmsa greiðasölu, almenna
verslun, skrifstofur eða annað. Húsnæðið er
staðsett við tjaldstæðið í hjarta bæjarins.
Stór, malbikuð plön eru við húsið.
Húsnæðið er laust til afhendingar fljótlega.
Verslunarhúsnæði
á Reyðarfirði til leigu
Shellskálinn á Reyðarfirði er til leigu frá 1. mars
nk. Húsnæðið er 137,2 fm að stærð, auk 13,5
fm vörugeymslu, en í dag er rekinn söluskáli
í húsnæðinu. Húsnæðið hentar vel fyrir greiða-
sölu, veitingarekstur eða almenna verslun.
Skeljungur mun áfram reka bensínsölu á lóð-
inni. Húsnæðið er miðsvæðis á Reyðarfirði
og er allt útisvæði malbikað.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu Fasteigna- og skipasölu Austurlands.
www.austurland.is
Síðumúli—skrifstofur
Til leigu 230 fm húsnæði á annarri hæð.
Mjög bjart og þægilegt húsnæði. Möguleiki
að leigja í minni einingum.Öflugar tölvulagnir,
hagstæð leigukjör. Uppl. í síma 695 7722.
VINNUEFTIRLITIÐ á samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum að veita þjónustuaðilum, sem starfa á sviði ör-
yggis og heilbrigðis á vinnustöðum, viðurkenningu til starfa að upp-
fylltum tilteknum skilyrðum. Í frétt á vefsvæði Vinnueftirlitsins kemur
fram að félagsmálaráðherra muni setja reglugerð um það hvaða skil-
yrði þjónustuaðilar skuli uppfylla svo að þeir geti hafið starfsemi af
þessu tagi.
Með heilsuvernd á vinnustað er átt við forvarnarstarf innan fyr-
irtækja sem miðar að því að koma í veg fyrir vanlíðan og heilsutjón sem
stafa kann af vinnu eða vinnuskilyrðum. Vinna skal að forvörnunum
innan vinnustaðarins samhliða starfseminni og mikilvægt er að starfs-
menn og stjórnendur taki virkan þátt. Við sérstakar aðstæður eða sér-
stök verkefni getur þurft aðstoð utanaðkomandi sérfræðinga sem
vinna þá í umboði atvinnurekandans, í samstarfi við hann og starfs-
menn að heilsuvernd á vinnustað. Í frétt Vinnueftirlitsins segir að í
grófum dráttum felist starfið í því að greina áhættu, skipuleggja for-
varnir og forgangsraða framkvæmdum sem byggja á þeirri greiningu.
Heilsufarsskoðanir geta fallið undir starfsemina en eru ekki kjarni
hennar.
Þjónustuaðili sem veitir heildstæða þjónustu á sviði öryggis og heil-
brigðis á vinnustöðum skal hafa aðgang að sérfræðingum sem hafa
fullnægjandi þekkingu á heilbrigðissviði, í félagsvísindum, sálfræði, á
tæknisviði eða öðru sambærilegu sérsviði þannig að þeir séu færir um
að meta og bregðast við hættum eða hvers konar öðrum óþægindum
vegna eðlisfræðilegra, efnafræðilegra, líffræðilegra, vistfræðilegra og
sálfræðilegra þátta. Þjónustuaðili getur sótt um viðurkenningu innan
ákveðins sviðs eða atvinnugreinar og er honum heimilt að gera samn-
inga við aðra aðila um einstaka þætti vegna þjónustu á sviði öryggis og
heilbrigðis á vinnustöðum. Tryggja skal að þeir aðilar uppfylli skilyrði
sem sett eru fyrir viðurkenningu Vinnueftirlitsins.
Viðurkenning þjónustu-
aðila á sviði heilsuvernd-
ar á vinnustað
SAMKVÆMT nýjustu spá fjármálaráðuneytisins er gert
ráð fyrir að einkaneysla heimilanna aukist um tæp 3% í ár bor-
ið saman við rösklega 6% aukningu í fyrra. Samtök atvinnulífs-
ins segja að mikil aukning einkaneyslu í fyrra veki spurningar
um hvort heimilin hafi enn á ný spennt bogann of hátt og hvort
aðlögunar að lægra neyslu-
stigi verði þörf innan
skamms.
Fram kemur á fréttavef
Samtaka atvinnulífsins að
svarið við spurninginni velti
á því hvort einkaneysla á
mann hafi þróast á skjön við
kaupmáttarþróun og jafn-
framt hvort núverandi kaup-
máttarstig sé raunhæft mið-
að við greiðslugetu
atvinnulífsins. Sé litið til þró-
unarinnar frá árinu 1995
komi í ljós að einkaneysla
heimilanna jókst á hverju ári
umfram kaupmáttaraukn-
ingu allan síðari hluta síðasta
áratugar, þ.e. árin 1996–
2000. Þannig jókst kaup-
máttur launa, á mælikvarða
launavísitölu, um rúm 20% á
tímabilinu 1995–2000 en
einkaneysla á mann jókst um
tæp 30% á sama tíma. Í kjölfarið sigldi síðan snörp aðlögun
einkaneyslu heimilanna að tekjum þeirra og minnkaði einka-
neysla á mann bæði árið 2001 og 2002, samtals um 6%. Einka-
neysla jókst síðan verulega á ný á síðasta ári.
„Aukning neysluútgjalda heimila sem ekki á sér stoð í aukn-
um kaupmætti hlýtur óhjákvæmilega að vera fjármögnuð með
lántökum. Um auknar skuldir heimila bera opinber gögn órækt
vitni. Skuldir heimila hafa tvöfaldast á undanförnum áratug í
hlutfalli við ráðstöfunartekjur og námu um 180% í árslok 2003
samkvæmt gögnum Seðlabanka Íslands. Fyrir þessari skulda-
aukningu eru margar ástæður, m.a. verðhækkun íbúðarhús-
næðis, sem bæði kallar á auknar lántökur íbúðakaupenda og
veldur auðlegðaráhrifum hjá íbúðaeigendum, en einnig hlýtur
aukið framboð lánsfjár, gott atvinnuástand og væntingar um
betri tíð að vera meðal veigamestu skýringa,“ segir á fréttavef
Samtaka atvinnulífsins.
Einkaneysla
byggð á
skuldasöfnun