Morgunblaðið - 02.03.2004, Qupperneq 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fást í verslunum um land allt
H. Blöndal ehf.
Sími 517 2121
www.hblondal.com
Purga-T sjálfvirku
slökkvitækin fyrir
sjónvörp
• Alltaf á vakt
• Slekkur eldinn strax
• Fullkomlega öruggt
Grafarvogur | Krakkarnir í 10.
bekk í Rimaskóla enduðu lestr-
arátak í skólanum með stæl og
héldu lestrarmaraþon um síðustu
helgi þar sem þau lásu upp úr
Hringadróttinssögu í heilan sólar-
hring.
Lesturinn hófst kl. 13 á laug-
ardegi og stóð til kl. 13. á sunnu-
dag, og skiptu um 45 unglingar
sér í nokkra hópa sem skiptust á
að lesa, læra, spila og stunda
íþróttir, segir Sigríður Þórð-
ardóttir, íslenskukennari í Rima-
skóla.
„Þetta gekk bara mjög vel fyrir
sig, allir voru áhugasamir og virt-
ust skemmta sér mjög vel,“ segir
Sigríður. Hún segir að krakkarnir
hafi sjálf ákveðið að lesa Hringa-
dróttinssögu, enda nýtur hún mik-
illa vinsælda, sér í lagi í tengslum
við kvikmyndirnar sem nú er ver-
ið að ljúka sýningum á í kvik-
myndahúsum.
„Ef ég hefði komið til þeirra og
stungið upp á því að þau læsu
Njálu held ég að þau hefðu ekki
tekið svona vel í það. Ekki það að
sú bók sé eitthvað leiðinleg, held-
ur höfðar Hringadróttinssaga sér-
staklega til þeirra,“ segir Sigríð-
ur.
Lásu úr
Hringa-
dróttins-
sögu í
sólarhring
Morgunblaðið/Þorkell
Hlustað á Hringadróttinssögu: Krakkarnir í 10. bekk í Rimaskóla skiptust
á að lesa og létu þess á milli fara vel um sig yfir lestri félaga sinna.
Maraþon: Hver nemandi las í um
20 mínútur í senn.
Vesturbær | Stígurinn við Eiðs-
granda er enn illa farinn eftir
óveður á aðfangadag á síðasta
ári, þó starfsmenn gatna-
málastjóra hafi grófhreinsað
hann. Ekki stendur til að laga
svæðið að fullu fyrr en vorar.
Ekki verður lokið við hreinsum
og malbikað aftur fyrr en í apríl í
fyrsta lagi, segir Guðbjartur Sig-
fússon, yfirverkfræðingur hjá
Gatnamálastofu. Hann segir að
það færi afar illa með þann gróð-
ur sem þarna er ef farið væri að
hreinsa á þessum árstíma og því
sé rétt að bíða.
„Gróðurinn þolir illa ánauð á
þessum tíma og svo er nú ekki
hægt að malbika mikið núna. Það
er vont að eiga við það og við
gerum það venjulega ekki um há-
vetur, þó það sé kannski óvenju-
legur vetur núna,“ segir Guð-
bjartur.
Ekki er búið að meta heild-
artjónið sem varð í óveðrinu, en
til stendur að taka það saman
fljótlega, segir Guðbjartur.
Morgunblaðið/Sverrir
Torfærur: Stígurinn við Eiðsgranda er illa farinn eftir áhlaup að morgni
aðfangadags á síðasta ári, en ekki verður gert við hann alveg á næstunni.
Stígurinn
ekki lag-
aður fyrr
en í apríl
Hattaballið sívinsælt hjá heldri borgurum
Grund | Heimilisfólk á Grund gerði sér glaðan
dag á öskudaginn og hélt Hattaball. Þar
mættu allir sem vildu og gátu með hatta og
mátti í hátíðarsal Grundar sjá allar mögulegar
og ómögulegar gerðir af höttum, kúrekahatta,
pípuhatta, kokkahúfur, lögreglukaskeiti og
auðvitað gamaldags herrahatta auk þess sem
frúrnar mættu með blómahatta, stráhatta, síg-
aunaslæður og fleira litríkt. Myndaðist mikil
stemning þegar starfsfólk og heimilisfólk
dansaði saman prúðbúið við leikandi harm-
ónikkuspil.
Allir með hatta: Starfsfólk og heimilisfólk á Grund dansaði kátt á Hattaballinu, enda ekki á hverjum degi sem svona gott tækifæri gefst til að lyfta sér upp og dansa við vini og kunningja.
Morgunblaðið/Ásdís
Mosfellsbær | Atvinnu- og ferðamálanefnd Mosfells-
bæjar veitti á dögunum fyrirtækjunum Mottó og Hlín
blómahúsi hvatningarverðlaun fyrir árið 2003. Þetta
er í fimmta sinn sem slík viðurkenning er veitt í Mos-
fellsbæ.
Markmið verðlaunanna er að hvetja atvinnurek-
endur til dáða og veita viðurkenningu fyrir vel unnin
störf. Ellefu fyrirtæki voru tilnefnd, en eftir vandlega
yfirferð yfir tilnefningar, þar sem nýjungar og nýsköp-
un, umsvif í bæjarfélaginu, fjölgun starfsmanna,
starfsmanna- og fjölskyldustefna, ímynd og sýnileiki
og umhverfi og aðbúnaður voru tekin til greina, urðu
þessi tvö fyrirtæki fyrir valinu.
Fyrirtækin eru að mörgu leyti ólík, starfa á mjög
ólíkum markaði og eru ólík að stærð. Þau eiga það þó
sameiginlegt að mati dómnefndarinnar að vera öðrum
fyrirtækjum á sínu sviði til fyrirmyndar, nýjungar og
nýsköpun hafa einkennt þau auk þess sem ímynd
þeirra og sýnileiki svo og umhverfið í kringum þau eru
talin til fyrirmyndar.
Ánægðir: Sigþór Hólm Þórarinsson frá Hlín blóma-
húsi og Ingimundur Magnússon frá Mottó voru að von-
um þakklátir fyrir viðurkenninguna frá Mosfellsbæ.
Fengu hvatn-
ingarverðlaun
Mosfellsbæjar