Morgunblaðið - 02.03.2004, Síða 24

Morgunblaðið - 02.03.2004, Síða 24
LISTIR 24 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÁTíbrár-tónleikum í Saln-um í kvöld kl. 20 leikaKolbeinn Bjarnasonflautuleikari og ástralski píanóleikarinn Geoffrey Douglas Madge verk eftir Rudolf Escher, Edison Denisov, Johann Sebastian Bach, Ferruccio Busoni og Pierre Boulez. Aðspurðir segja þeir hug- myndina að tónleikunum hafa kviknað í upptökuhléi í Salnum fyrir rúmu ári þegar Madge var staddur hér á landi til að taka upp píanó- konsert eftir gríska tónskáldið Nik- os Skalkottas ásamt CAPUT, sem sænska útgáfufyrirtækið BIS gefur út síðar í þessum mánuði. „Geoffrey spurði mig hvort ég hefði leikið Sónatínu Boulez frá 1946 og þar með var hugmyndin að tón- leikum kvöldsins fædd. Sjálfur hafði ég í rúma tvo áratugi árangurslaust leitað að píanóleikara sem hefði áhuga og getu til að flytja þetta verk, því það er hreint ekki á færi allra þar sem það er sérlega krefj- andi tæknilega séð,“ segir Kolbeinn. Madge tekur undir þetta og segist sjálfur hafa átt í erfiðleikum með að finna flautuleikara sem treysti sér til að leika verkið, en hann flutti það fyrst á áttunda áratugnum. „En þótt verkið sé tæknilega krefjandi er einstaklega skemmti- legt að spila það og að mínu mati er þetta eitt mest spennandi verk tón- bókmenntanna,“ segir Madge. „Þess má geta að Boulez var ekki nema 21 árs þegar hann samdi verkið og það er með ólíkindum hversu þroskaður hann þá þegar var orðinn sem tón- skáld. Að sumu leyti má segja að hann hafi verið ótrúlega ófyrirleit- inn að skrifa verk sem gerði meiri kröfur til hljóðfæraleikara en áður hafði þekkst,“ segir Kolbeinn. Hvað hin verkin á efnisskránni varðar segir Kolbeinn að legið hafi beint við að flytja h-moll-sónötu Bachs þar sem hún sé algjörlega einstæð í tónbókmenntum fyrri hluta 18. aldar og teljist ásamt verki Boulez til hornsteina flautu- bókmenntanna. „Þessi tvö verk eru eins og andstæðir pólar í tónlistar- sögunni, en eiga samt ýmislegt sam- eiginlegt,“ segir Kolbeinn. „Þú get- ur rétt ímyndað þér hvað verk Bachs hefur þótt erfitt til hlustunar og skilnings á sínum tíma. En það er svo mikla dýpt og tilfinningar að finna í þessu verki, ekki síst í notk- un Bachs á krómatíkinni,“ segir Madge. Auk fyrrnefndra verka mun Madge leika Chopin-tilbrigði fyrir píanó eftir Busoni og saman munu Kolbeinn og Madge leika sónötur eftir annars vegar Escher og hins vegar Denisov, sem hafa að sögn Kolbeins líklega aldrei heyrst hér á landi áður. „Busoni var einn af fyrstu nútímapíanistum 20. ald- arinnar og eitt mikilvægasta tón- skáld síðustu aldar. Verkið sem ég leik í kvöld samdi hann frekar seint á ferli sínum, þ.e. 1921. Þetta er magnað verk sem sýnir glögglega stíl hans og hinn sérstaka hljóm- aheim hans sem er nokkuð impress- jónískur. Hvað Escher varðar þá eru verk hans því miður lítið þekkt utan heimalands hans, þ.e. Hol- lands,“ segir Madge. „Denisov var einn af forsvarsmönnum rússnesku framúrstefnunnar, en verkið sem við leikum í kvöld ber þess þó ekki glöggt merki,“ segir Kolbeinn. „Það er í raun fremur rómantískt og lýr- ískt með mörgum fallegum hend- ingum,“ bætir Madge við. Að sögn Madge er þetta í fjórða sinn sem hann leggur leið sína hing- að til lands, en hann kom fyrst fram hérlendis á Norrænum tónlist- ardögum á áttunda áratugnum. Madge lætur vel af upptökunum í Salnum í fyrra. „Ég verð að nota tækifærið og hrósa starfsfólki Sal- arins fyrir einstaka fagmennsku og sveigjanleika í rekstri. Öll aðstaðan hér er til fyrirmyndar, sem skiptir sköpum þegar verið er að taka upp jafn erfitt og krefjandi verk eins og þetta verk Skalkottas,“ segir Madge og bendir á að verkið hafi verið leik- ið af þremur píanóleikurum þegar það var frumflutt á sínum tíma sök- um þess hve erfitt það þótti. „Skalk- ottas minnir nokkuð á samtíma- mann sinn, Jón Leifs, að því leyti að þótt hann hafi verið ötull við að semja var nánast ekkert flutt eftir hann meðan hann var á lífi. Hvað tónlist þeirra varðar eru þeir samt mjög ólíkir. Samt held ég að í heild eigi Grikkland og Ísland ýmislegt sameiginlegt, t.d. einkennist tónlist beggja landa af ákveðnum ákafa og brjálsemi,“ segir Kolbeinn. „Ég hef í gegnum tíðina unnið mikið í Grikk- landi og því kynnst þessari grísku brjálsemi afar vel, svo nú bíð ég spenntur eftir að kynnast íslensku brjálseminni betur,“ segir Madge og brosir. Þess má geta að Madge hef- ur á síðustu árum kynnt sér íslensk- ar tónsmíðar. „Eitt þeirra verkefna sem bíða mín í framtíðinni er að setja saman efnisskrá helgaða ís- lenskri tónlist, enda eiga mörg tón- skáld hér það skilið að heyrast víðar í heiminum.“ Ótrúleg ófyrirleitni Morgunblaðið/Þorkell Geoffrey Douglas Madge og Kolbeinn Bjarnason leika á Tíbrár-tónleikum í Salnum í kvöld. HLAUPÁRSDAGURINN bauð sannarlega upp á „brúðhlaup“ af fót- fráustu sort þegar vinsælasta ópera Mozarts var frumflutt fyrir upp- seldu húsi. Þessi lengsta og e.t.v. bezta gamanópera hans frá 1785/86 sýnir öll merki fullþroska stórmeist- ara í greininni þótt samin sé aðeins fjórum árum eftir Brottnámið úr kvennabúrinu. Því miður greindi annars vegleg óperuskrá Íslenzku óperunnar hvergi frá fyrri Figaro- uppfærslum hér á landi, en eftir krókaleiðum tókst að grafa upp að Kgl. sænska óperan hefði frumflutt verkið á Íslandi í Þjóðleikhúsinu 1950. Næst var hún færð upp 1969 við óskipta athygli fjölmiðla, en síð- ast í ÍÓ 1989 undir stjórn Anthonys Hose. M.ö.o. fyrir heilum fimmtán árum, og því vissulega kominn tími til að dusta rykið af drottningu klassískra gamanópera. Að öðru leyti má segja að upp- færslan hafi verið rökrétt framhald af sýningu ÍÓ á Rakaranum í Sevilla í fyrra. Því þó að ópera Rossinis sé 30 árum yngri en ópera Mozarts eru báðar byggðar á sama þríleik franska leikritahöfundarins Beaum- archais, og Le Nozze di Figaro tekur við af því sem gerist í Rakaranum, þ.e.a.s. eftir að Rosina giftist Alma- viva greifa. Höfuðpersónur eru áfram þær sömu – og m.a.s. gengu nú aftur tveir sömu söngvarar í sömu hlutverkum og í fyrra, nefni- lega Ólafur Kjartan Sigurðarson sem Figaro rakari (nú orðinn einka- þjónn greifans) og Davíð Ólafsson sem Dr. Bartolo. Sesselja Kristjáns- dóttir fór einnig með stórt hlutverk í báðum óperum; Rosinu í fyrra, en nú ástsjúka skutilsveinsins Cherubinos; buxnarullu sem jafnan er sungin af mezzosópran. Hafi úrelt miðaldaforréttindi léns- herra til að sænga með brúðum þegna sinna á brúðkaupsnóttu (jus primae noctis) myndað „píkantasta“ söguþráðarkryddið í Brúðkaupi Fig- aros hefur margt fleira verið bolla- lagt um þjóðfélagsádeiluna í leikriti Beaumarchais La folle journée, er bannað var í heimalandinu strax eft- ir frumuppfærslu þess 1784, aðeins fimm árum fyrir frönsku byltinguna. Sama gildir um óperu Mozarts, þó að da Ponte tækist að grisja svæsn- ari púðurskotin úr munni Figaros svo verkið fengist flutt í austurríska keisaradæminu. En þó ekki gefist rúm til að fara frekar út þá sálma hér mætti kannski minna á að Jos- eph II keisari sat beggja vegna borðs í menningarmálum sem upp- lýstur einvaldur og frímúrari, og reglubróðir hans Mozart hugsaði án efa aðalstéttinni þegjandi þörfina, þó ekki væri nema eftir kveðjusparkið sem Arco greifi greiddi honum í óæðri endann er starfsvistinni hjá Colloredo Salzburgarerkibiskupi lauk með látum 9.6. 1781. En hvað sem því líður stendur í dag fyrst og fremst eftir stórkostleg tónlist, er leynir á sér undir ærsla- fullu afþreyingaryfirborði. Raunar svo mikið, að auðveldara er að mis- þyrma henni en grínþolnari tónlist Rossinis við Rakarann, sem enn er í nægilega fersku minni til saman- burðar. Enda gáfu sumar senur, ekki sízt hópsöngsatriðin sem mynda kontrapunktískan „tour de force“ Brúðkaupsins, stundum til- efni til að spyrja hvort ekki hefði að- eins mátt dempa ærsl og tempó til ágóða fyrir meiri fágun og styrk- rænt jafnvægi. Að vísu var úr afar vöndu að ráða í vonlitlu húsi, þar sem hálfgert pappabragð er af inni- lokuðu hljómsveitinni (a.m.k. fram- arlega úr gólfsætum) og að sama skapi fátt er hvetur söngvara til fín- gerðari tilþrifa. Hefur því ugglaust verið freistandi að láta sjónleikinn fleyta stykkinu yfir hljómburðar- hjallann, enda var frá þeim bæjar- dyrum séð lítið út á framvinduna að setja, er streymdi áreynslulaust fram með „góðu flæði“ eins og kallað er. Leikstjórn og búningar voru líkt og í fyrra í beztu höndum. Ekki síður sviðsmynd og lýsing, er tókst jafnvel að skáka þeirri annars frábæru upp- setningu með klassískt innblásnu út- liti. Burtséð frá fáeinum tilkeyrslu- örðum í samstillingu, er hurfu eftir hlé, var hljómsveitarleikurinn sóp- andi ferskur en ávallt nettur undir agaðri stjórn Christophers Fifields, og í svo látlausu jafnægi við sönginn að víða hefði raddfólkið á sviðinu getað leyft sér að taka minna á. Sama átti við perlandi lipran semba- lundirleik Guðrúnar Óskarsdóttur í secco-sönglesum. Kórinn axlaði hlut- fallslega litla byrði í þessu verki en stóð sig með lýtalausri prýði. Einsöngvaraáhöfnin var einhver sú jafnasta að gæðum sem heyrzt hefur í óperuhúsinu við Ingólfs- stræti. Ólafur Kjartan Sigurðarson gat byggt á haldgóðri reynslu sinni af sömu persónu í Rossini í fyrra, enda kom hann fyrir sem nánast hinn fæddi Figaro, buffomaður par excellence bæði í leik og söng. Berg- þór Pálsson var í mörgu ljómandi greifi, þó að tónmyndunin verkaði stundum full groddaleg og roku- gjörn miðað við þjóðfélagsstöðu og ætti stöku sinni til að verða hvell, líkt og hjá Fischer-Dieskau á efri ár- um. Auður Gunnarsdóttir var hins vegar sárt leikin greifynjan fram í fingurgóma og söng af gífurlegu ör- yggi og hljómfegurð. Litbrigðaskal- inn hefði samt mátt vera aðeins víð- ari, t.a.m. þegar kænskan og leynimakkið tók við. Súsanna Huldu Bjarkar Garðars- dóttur, hin ráðagóða þerna greifynj- unnar og tilvonandi ektakvinna Fig- aros, stóð lítt kærasta sínum á sporði í líflegum buffoleik með sér- lega þokkafullri sviðsnærveru og söng krefjandi súbrettuhlutverkið af aðlaðandi lipurð. Sesselja Kristjánsdóttir brilleraði að vonum sem Cherubino með ein- stakri eðalmálmklingjandi mezzo- rödd sinni, nema hvað persónusköp- unin virtist í krúttlegasta lagi fyrir stálpaðan táning á herskyldualdri. Valinn maður var í hverju rúmi í smærri hlutverkum. Davíð Ólafsson var óborganlegur Dr. Bartolo og kom víst fáum á óvart, þó að hlut- verk hans hér væri mun fyrirferð- arminna en í Rossini og gæfi tak- markaðra svigrúm til tilþrifa. Marcellina ráðskona hans var frekar vanþakklát persóna en engu að síður óaðfinnanlega sungin af Sigríði Að- alsteinsdóttur. Kímnin átti greini- lega ekki illa við Snorra Wium í hlut- verkum Don Basilios söngkennara og Don Curzios dómara; báðar rull- ur bráðfyndnar og pottþétt sungnar. Antonio garðyrkjumaður átti ein- hver fæstu einsöngstækifærin, en fór vel með þau og sýndi líka skemmtilegan gamanleik. Barbarina Antoniosdóttir var í æskusprækum höndum Valgerðar Guðnadóttur, er söng litlu kavatínuna sína í hallar- garðinum það ómótstæðilega að ástæða er til að óska henni viða- meira tækifæris sem allra fyrst. Hópsöngvarnir voru, með fyrr- nefndum fyrirvara, flestir smellandi glæsilegir. Mest þó í tíu manna loka- atriðinu, er skýrir vel hversu nauð- synlegt er að vanda til vals í jafnvel smæstu hlutverk þessarar úrvals- óperu. Að öllu meðtöldu má því með góðri samvizku óska Íslenzku óper- unni til hamingju með afbragðsvel heppnað Brúðkaup, er með réttu ætti að geta gengið fyrir troðfullu húsi fram á sumar. Og jafnvel þótt helmingi stærra væri. Drottning gam- anóperanna Morgunblaðið/Eggert „Að öllu meðtöldu má því með góðri samvizku óska Íslenzku óperunni til hamingju með afbragðsvel heppnað Brúðkaup,“ segir m.a. í umsögninni. TÓNLIST Íslenzka óperan Mozart: Brúðkaup Fígarós K492. Söng- rit: Lorenzo da Ponte. Bergþór Pálsson (Almaviva greifi), Auður Gunnarsdóttir (greifynjan), Hulda Björk Garðarsdóttir (Susanna), Ólafur Kjartan Sigurðarson (Figaro), Sesselja Kristjánsdótir (Cher- ubino), Sigríður Aðalsteinsdóttir (Marc- ellina), Davíð Ólafsson (Dr. Bartolo), Snorri Wium (Don Basilio/Don Curzio), Sigurður Skagfjörð Steingrímsson (Ant- onio), Valgerður Guðnadóttir (Bar- barina). Aðstoðarhljómsveitar- og æfing- arstjórn: Kurt Kopecky. Stjórnandi Kórs ÍÓ: Garðar Cortes. Leikstjórn: Ingólfur Níels Árnason. Leikmynd: Geir Óttarr Geirsson og Þorvaldur Böðvar Jónsson. Búningar: Hildur Hinriksdóttir. Lýsing: Egill Ingibergsson. Hljómsveit og kór Ís- lenzku óperunnar u. stj. Christophers Fifield. Sunnudaginn 29. febrúar kl. 17. ÓPERA Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.