Morgunblaðið - 17.03.2004, Side 16
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
• www.heimsferdir.is
Síðustu sætin til Prag þann 22. mars.
Þú bókar tvö sæti, en greiðir bara fyrir eitt. Kynnstu þessari
yndisfögru borg á besta tíma ársins þegar vorið er að byrja. Þú
bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin og að auki getur þú valið
um úrval hótela, þriggja og fjögurra stjarna og að sjálfsögðu nýtur
þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.950
Fargjald kr. 32.600/2 = 16.300.
Skattar kr. 3.650. Alm. verð 5% hærra
Glæsileg hótel í hjarta Prag í boði.
2 fyrir 1 til
Prag
22. mars
frá kr. 19.950
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Staðardagskrá 21 | Bæjarstjórn Borg-
arbyggðar samþykkti fyrstu útgáfu Stað-
ardagskrár 21 fyrir sveitarfélagið á síðasta
fundi sínum. Þar með hafa 18 íslensk sveit-
arfélög náð þessum áfanga, en
í þessum 18 sveitarfélögum
búa um 80% þjóðarinnar.
Staðardagskrárstarfið í
Borgarbyggð hófst árið 2001.
Bæjarstjórn skipaði þá sér-
stakan vinnuhóp til að stýra
verkinu, og í byrjun nóvember sama ár tók
verkefnisstjóri til starfa. Fyrstu drög að
framkvæmdaáætlun lágu fyrir í september
2002. Í þessu ferli hefur mikil áhersla verið
lögð á samráð við íbúa, og um tíma störfuðu
um 50 manns í sérstökum tengslahópi sem
fundaði reglulega um einstaka málaflokka í
áætluninni.Borgarbyggð er ekki eina sveit-
arfélagið í Borgarfirði þar sem hreyfing er á
Staðardagskrármálum um þessar mundir.
Þannig er markvisst Staðardagskrárstarf að
hefjast í Skorradalshreppi undir merkjum
sérstaks átaks innan ramma byggðaáætl-
unar, til að styðja við Staðardagskrárstarf í
fámennum sveitarfélögum. Hreppsnefnd
Skorradalshrepps samþykkti Ólafsvíkuryf-
irlýsinguna á fundi sínum 10. mars sl. og
varð þar með 33. sveitarstjórnin sem skuld-
bindur sig formlega til að vinna að fram-
gangi sjálfbærrar þróunar.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Mjöltankar og bræðsla rifin | Vest-
urbyggð, sem nú á gömlu mjölverksmiðj-
una á Vatneyri hefur óskað eftir því við
Umhverfis-, skipulags- og byggingarnefnd
að fá leyfi til að rífa mjöltanka og fiskmjöls-
verksmiðjuna. Fram kemur á vefnum pat-
reksfjordur.is að nefndin hafi samþykkt
það að sinni hálfu og að haft verði samráð
við heilbrigðisfulltrúa Vestfjarða, vegna
þess. Nefndin leggur einnig til að sent verði
dreifibréf í öll hús í Vesturbyggð þar sem
sagt verði frá því hreinsunarstarfi sem nú
fer í gang með því að ráðist verður í að fjar-
lægja gömlu mjöltankana og að mjöl-
bræðslan sjálf verður einnig fjarlægð. Þar
verði fólki gefinn kostur á að setja sig í
samband við verkstjóra áhaldahúss á Pat-
reksfirði sem yrði þeim þá innan handar
varðandi hreinsunarstarf. Nefndin leggur á
það áherslu að í þessu starfi gleymist ekki
opnu svæðin og nefnir í því sambandi Vest-
urbotn ásamt svæðinu við gatnamót að
Rauðasandi og leiðarinnar að Hnjóti.
Fyrsta hnefa-leikamótið á Vest-fjörðum í marga
áratugi verður haldið í
íþróttahúsinu á Torfnesi á
Ísafirði 9. apríl næstkom-
andi. Á fréttavef BB er
haft eftir Lárusi Daníels-
syni sem æfir hnefaleika á
Ísafirði að von sé á að-
komnum keppendum og
fimm til sjö heimamenn
taki einnig þátt í mótinu.
Ekki er vitað fyrir víst
hversu margir keppendur
verða.
Fyrir skömmu var
stofnað Hnefaleikafélag
Ísafjarðar og er fyrsti for-
maður þess Kolbrún Fjóla
Arnarsdóttir. Skipulagðar
æfingar félagsins fara
fram í Studio-Dan og æfa
um 25 manns hnefaleika
hjá félaginu að staðaldri,
að sögn Lárusar.
Hnefaleikaíþróttin hef-
ur breiðst út um landið frá
því íþróttin var lögleyfð á
nýjan leik.
Hnefaleikamót
Njarðvík | Nemendur í fyrsta bekk H. M. í Njarðvík-
urskóla efndu á dögunum til fjáröflunar til styrktar
börnum Kristínar heitinnar Ólafsdóttur á Tálknafirði.
Þau komu saman í tvær dagsstundir og föndruðu kort
sem þau seldu. Með dugnaði og atorku tókst þeim að
selja kort fyrir rúmlega 28 þúsund krónur og þau hafa
lagt söfunarféð inn á reikning systkinanna. Myndin er
af bekknum duglega.
Morgunblaðið/Svanhildur
Góður árangur af
kortasölu
Baldur Garðarssonfann vísu í tölv-unni, sem hann
mundi ekki hvort hann
hefði ort. Baldur sendi
hana til séra Hjálmars
Jónssonar með skilaboð-
unum:
„Hvað heldur þú, er
þetta líkt mér að yrkja
svona?“
Lævi blandið loft er nú
ég latur er í trúnni,
séra Hjálmar, sæll vert þú,
ég sendi kveðju frúnni.
Jóni Ingvari Jónssyni
varð að orði: „Allt á sér-
ann að vita“ og orti:
Séra Hjálmar sómakær
segðu mér frá þessu:
Hvað var ég að gera í gær?
Gleymdi ég nokkuð messu?
Einar Kolbeinsson henti
gaman að:
Sennilegast svarið vel,
sendi kveðjur mínar,
einkennin ég ekki tel,
auka líkur þínar.
Hver orti?
pebl@mbl.is
Vogar | Börn af leikskólanum
Suðurvöllum í Vogum hafa ver-
ið að læra umferðarreglurnar
og gera ýmis verkefni í sér-
stakri umferðarviku. Í gær
fengu þau í fylgd starfsfólks
leikskólans og nemenda úr sjö-
unda bekk Stóru-Vogaskóla um
götur þorpsins til að æfa regl-
urnar. Skrúðgangan fór stóran
hring um þorpið. Alltaf var
stansað á gangstéttarbrún áður
en gengið var yfir götu, hlustað
eftir umferð og gáð vel til
beggja handa. Síðan var gengið
rakleitt yfir og að sjálfsögðu
eftir merktri gangstétt, ef hana
var að finna.
Grunnskólabörnin leiddu
yngri börnin og voru nokkuð
roggin með þetta ábyrgð-
armikla hlutverk.
Þau neituðu staðfastlega
öllum brotum á umferð-
arreglunum, að minnsta kosti
á meðan yngri börnin heyrðu.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Verkleg æfing í umferðinni
Öryggi
AKUREYRARBÆR, Borgarbyggð og
Hafnarfjarðarbær verða fyrstu sveitar-
félögin á Íslandi sem gefa fyrirtækjum á
sínu svæði kost á að fá umhverfisstarf sitt
vottað með
Umhverfis-
vitanum.
Umhverfis-
vitinn (Miljøfyrtårn) er umhverfisstjórn-
unarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
sem starfrækt hefur verið í Noregi und-
anfarin sex ár sem hluti af starfi þarlendra
sveitarfélaga að Staðardagskrá 21. Á liðnu
hausti hófst vinna við að taka þetta kerfi
upp á Íslandi og aðlaga það hérlendum að-
stæðum.
Undirbúningi fyrir upptöku Umhverfis-
vitans hér á landi miðar vel, að því er fram
kemur í frétt á vef Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Vinna við innleiðingu kerf-
isins á Íslandi hófst formlega í lok október
sl. Nokkrum sveitarfélögum var boðið að
gerast frumkvöðlasveitarfélög í þessu
verkefni, og hafa Akureyrarbær, Borgar-
byggð og Hafnarfjarðarbær lýst áhuga
sínum á þátttöku. Fyrsti fundurinn með
fulltrúum sveitarfélaganna var haldinn í
síðustu viku. Nú þegar hefur verkefnið
verið kynnt á Akureyri og kom þar fram
áhugi hjá nokkrum fyrirtækjum. Einnig er
stefnt að slíkum kynningarfundum í Borg-
arbyggð og Hafnarfirði.
Umhverfis-
vitinn í þrem-
ur sveitar-
félögum
FLESTAR ef ekki allar minni fiskvinnslu-
stöðvarnar vantar fólk í vinnu. Það segir
Guðný Óskarsdóttir, varaformaður Dríf-
anda stéttarfélags, í samtali við fréttavef
Frétta í Vestmannaeyjum. „Ég vil vekja
athygli á þessu, sérstaklega fyrir fólk sem
hefur tímabundna vinnu í loðnunni,“ sagði
Guðný. „Magga Gylfa í Lóndrangi vantar
fólk í heil og hálfsdagsstörf, Kinn vill ráða
fólk tímabundið, Viðar Ella bráðvantar
fólk og Víkingur vill bæta við sig fólki. Það
er sjálfsagt að koma þessu á framfæri og
gaman þegar ein jákvæð kemur,“ sagði
Guðný við Fréttir.
Vantar fólk
í vinnu
♦♦♦