Morgunblaðið - 17.03.2004, Blaðsíða 42
ÍÞRÓTTIR
42 MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LEYFISRÁÐ Knattspyrnusambands Íslands sam-
þykkti á fundi sínum á mánudag að öll tíu félögin
í úrvalsdeild karla fengju leyfi til þátttöku í deild-
inni á komandi keppnistímabili. Þau reyndust öll
uppfylla þær kröfur sem settar eru fram í leyf-
ishandbók KSÍ og eru byggðar á sambærilegri
handbók Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA.
Félögin eru: FH, Fram, Fylkir, Grindavík, ÍA,
ÍBV, KA, Keflavík, KR og Víkingur R.
Kröfurnar eru í fimm liðum og eru að grunni til
eftirtaldar:
Samþykkt áætlun um uppeldisstarf frá 9 ára
aldri.
Fagmennska í stjórnun félags og þjálfun leik-
manna.
Aðild að KSÍ.
Fullbúinn leikvangur með stúku fyrir áhorf-
endur.
Traust skipulag fjármála.
Öll félögin fengu
leyfi til þátttöku
KRISTJÁN Finnbogason, markvörður KR, er í landsliðs-
hópnum í knattspyrnu í fyrsta skipti í sex ár. Hann er í
18 manna hópnum sem Ásgeir Sigurvinsson og Logi
Ólafsson tilkynntu fyrir vináttuleikinn sem fram fer í
Albaníu hinn 31. mars. Kristján verður elsti leikmað-
urinn í hópnum, 32 ára gamall, en er þó sjö árum yngri
en sá sem hann leysir af, Birkir Kristinsson, sem hefur
verið varamarkvörður landsliðsins síðustu árin.
„Þetta voru óvæntar en ánægjulegar fréttir. Það er
orðið langt síðan ég var í liðinu síðast og ég hef aldrei
velt þessu mikið fyrir mér, en hef að sjálfsögðu alltaf
verið tilbúinn ef kallið kæmi. Það verður mjög gaman að
vera hluti af þessum hópi á ný, ég þekki alla, hef spilað
með flestum þeirra, og hlakka mikið til,“ sagði Kristján
við Morgunblaðið í gær. Þetta verður fjórða ferðin hans
til Albaníu en hann lék þar með 21 árs landsliðinu 1991,
ÍA 1993 og KR 2001.
Kristján á 19 A-landsleiki að baki en hann lék fyrst
gegn Túnis 1993 og síðast gegn Slóveníu á Kýpur 1998.
„Óvæntar en
ánægjulegar fréttir“
ÁTTA leikmenn sem leika með liðum á
Englandi eru í landsliðshópnum í
knattspyrnu sem leikur vináttuleik
gegn Albaníu í Tirana 31. mars. Það
eru þeir Árni Gautur Arason, Man.
City, Hermann Hreiðarsson, Charlton,
Brynjar B. Gunnarsson, Nott. Forest,
Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea,
Heiðar Helguson, Watford, Jóhannes
K.Guðjónsson, Wolves, Bjarni Guð-
jónsson, Coventry, og Ívar Ingimars-
son, Reading.
Þrír leikmenn koma frá Belgíu –
Arnar Þór Viðarsson og Marel Bald-
vinsson, Lokeren og Indriði Sigurðs-
son, Genk. Frá Svíþjóð koma Pétur
Hafliði Marteinsson, Hammarby, og
Hjálmar Jónsson, IFK Gautaborg, og
frá Noregi Ólafur Örn Bjarnason,
Brann og Veigar Páll Gunnarsson,
Stabæk.. Þórður Guðjónsson kemur
frá Bochum í Þýskalandi og mun vænt-
anlega leika sinn 50. landsleik í Tirana.
Tveir KR-ingar eru í hópnum –
Kristján Örn Sigurðsson og Kristján
Finnbogason markvörður.
Fimm leikmenn sem voru í hópnum
gegn Þýskalandi í Hamborg í október
eru ekki með að þessu sinni. Arnar
Grétarsson og Helgi Sigurðsson eru
meiddir, Rúnar Kristinsson gefur ekki
kost á sér í leikina í vor, og Ríkharður
Daðason og Birkir Kristinsson voru
ekki valdir. Í staðinn koma Pétur, sem
meiddist á æfingu fyrir leikinn í Ham-
borg, Jóhannes Karl, Heiðar, Marel og
Kristján Finnbogason, sem ekki voru í
18 manna hópnum í Hamborg.
Átta frá liðum í Englandi
mæta Albönum í Tirana
FÓLK
HALLDÓR Gunnar Jónsson og
Jason Harden voru í liði Fjölnis
sem tryggði sér sæti í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik með sigri á
Val í fyrrakvöld. Þetta er annað ár-
ið í röð sem þeir vinna sig upp í úr-
valsdeildina því þeir voru báðir í
liði Þórs frá Þorlákshöfn sem lék
sama leik á síðasta tímabili.
HALLDÓR Gunnar hóf jafn-
framt þetta tímabil sem leikmaður
með Selfossi, sem síðan féll úr 1.
deildinni á dögunum. Hann fór því
bæði upp og niður úr 1. deild á
sama tímabilinu.
JALIESKY Garcia, landsliðs-
maður í handknattleik og leikmað-
ur þýska 1. deildarliðsins Göpping-
en er í liðið vikunnar hjá þýska
handknattleikstímaritinu Handball
Woche sem kom úr í gær. Þetta er í
annað sinn á leiktíðinni sem Garcia
er valinn í lið vikunnar hjá blaðinu.
FRODE Hagen, norski hand-
knattleiksmaðurinn sem hefur leik-
ið með Barcelona undanfarin tvö
ár, hefur skrifað undir eins árs
samning við Kiel í Þýskalandi.
BARCELONA hefur samið við
Lars-Krogh Jeppesen, danska
landsliðsmanninn frá Flensburg,
og Hagen átti því ekki mikla fram-
tíð fyrir sér hjá Barcelona sem hef-
ur barist við Jeromé Fernandez,
Iker Romero og Enric Masip um
stöðu í spænska liðinu.
HANS Óttar Lindberg, hinn
hálf-íslenski handknattleiksmaður
sem bjó fyrstu æviár sín í Hafn-
arfirði áður en hann flutti til Dan-
merkur þar sem hann leikur nú
með Team Helsinge, var á meðal
þeirra 17 leikmanna sem valdir
voru í danska landsliðið í gær. Lík-
legt er að Lindberg leiki sína
fyrstu A-leiki fyrir Dani um mán-
aðamótin þegar þeir mæta Svíum í
tveimur vináttulandsleikjum, þeim
fyrri í Farum og hinum síðari í
Stokkhólmi.
MICKEY Adams, knattspyrnu-
stjóri Leicester, segist sannfærður
um að leikmenn sínir, Paul Dickov,
Frank Sinclair og Keith Gillespie,
séu saklausir af ákærum um kyn-
ferðislegt ofbeldi gagnvart þremur
konum á La Manga á Spáni. Hann
segir að tilviljun ein ráði því að
þessir þrír hafi verið kærðir og
hann hefði sjálfur getað verið í
þeirra sporum.
ADAMS segir að konurnar hafi
bent á þremenningana eftir að hafa
skoðað vegabréf allra leikmanna
Leicester, 21 að tölu. „Ef vegabréf
mín og þjálfaranna okkar hefðu
verið líka verið til sýnis, hefði ég
eða einhver þeirra alveg eins getað
orðið fyrir valinu,“ segir Adams og
kveðst vonast eftir því að málinu
verði vísað frá innan skamms. „Það
eina sem þessir þrír eru sekir um
er að hafa setið að drykkju of lengi
um kvöldið.“
Hvorki Tyrkir né allir þeir tæp-lega 500 áhorfendur sem fjöl-
menntu á pallana í Skautahöllinni í
Laugardal voru bún-
ir að koma sér fyrir
þegar Ingvar Jóns-
son og Sigurður Sig-
urðsson höfðu komið
Íslandi í 2:0, en það varð áður en
fimm mínútur voru liðnar. Íslenska
liðið var sannarlega á tánum en síð-
an kom spennufall, svo að Tyrkir
gengu á lagið og jöfnuðu með mörk-
um á 11. og 12. mínútu. Það tók Ís-
lendingana nokkra stund að jafna
sig en síðan náðu þeir undirtökum
með yfirveguðum leik, sterkri vörn
og snaggaralegum sóknum, sem
skiluðu þremur mörkum áður en
fyrsta leikhluta lauk án þess að
Tyrkir gætu svarað fyrir sig. Annar
leikhluti byrjaði með marki og Ís-
lendingar höfðu undirtökin en tókst
illa upp við skotin. Undir lok annars
leikhluta fór að slakna á einbeiting-
unni og Tyrkir minnkuðu muninn í
6:3. Enn syrti í álinn í þriðja leik-
hluta því Íslendingar voru ótt og títt
reknir út af, stundum fyrir algerlega
óþörf brot – voru út af í nærri 17
mínútur samfleytt. Þá kom vörnin til
bjargar, kapp hljóp í íslenska liðið
sem bætti varnarleikinn enn og hélt
haus þó svo að Tyrkjum tækist að-
eins á saxa á forskotið.
Íslendingar geta verið stoltir af
strákunum sínum. Þeir börðust af
krafti og slógu hvergi af; þegar í
harðbakkann sló tókst þeim bæta
sig enn frekar. Árangurinn vilja ís-
hokkímenn þakka miklum æfingum
og hve vel er haldið utan um lands-
liðið. Þá skiptir einnig miklu máli að
aukning í íþróttinni er að skila sér
enda fleiri svell til æfinga í boði.
Fyrir þetta mót voru um 40 kandí-
datar í landsliðshópnum, þar af
margir góðir og reyndir íshokkí-
menn sem þurftu að sætta sig við
komast ekki í lið þegar fækkað var í
hópnum í 23, en þeir sátu þá á meðal
áhorfenda og studdu sína menn.
Munurinn á liðunum lá að mestu í
að íslenska liðið var kraftmeira og
betra á skautunum en Tyrkir aftur á
móti betri með kylfuna og í skotum.
Gunnlaugur Björnsson sýndi góða
takta í markinu og fyrirliðinn Ingvar
Þór Jónsson var mjög traustur í
vörninni. Jónas Breki Magnússon
var sprækur í sókninni enda skoraði
hann þrjú mörk.
Þungu fargi var létt af þjálfara Ís-
lands, Peter Bolin, eftir leikinn. „Við
urðum að vinna þennan leik því nú
vitum við að við getum staðið okkur,
meira segja betur en í kvöld, en
þetta var erfiður leikur og líklega
erfiðustu mótherjar okkar,“ sagði
Bolin og sagði brottrekstra Íslend-
inga of marga. „Við vorum reknir of
mikið út af undir lokin og það er erf-
itt að spila til lengdar einum færri.
Við hægðum aðeins á okkur því það
tók sinn toll og hentar okkur illa. Við
þurfum að vera með fullt lið inná og
þá erum við betra liðið.“
Fyrri leikurinn í gærkvöldi var
milli Mexíkó og Írlands, sem Mexík-
anar unnu örugglega 8:3, en þeir eru
einnig taldir verðugir andstæðingar.
Það er samt ekki hægt að ganga að
neinum stigum vísum og nú reynir
ekki bara á kraft og þor heldur þarf
að vinna leikinn með kollinum. Tvö
efstu af þessum fimm liðum komast
upp í 2. deild og þangað ætla ís-
hokkímenn sér.
Næsti leikur Íslands er við Arme-
níu á fimmtudaginn en það er eina
landið sem er óskrifað blað. Menn
hafa þó kíkt á æfingar Armena og
þótt lítið til koma svo að ef, og þá ef,
þeir verða frekar auðveld bráð nýt-
ist sú viðureign eflaust til að slípa
liðið betur saman.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ingvar Þór Jónsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í íshokkíi, sækir að tyrkneska leikmanninum
Coskun í sigurleik Íslands á HM í Skautahöllinni í gær þar sem fjöldi áhorfenda fylgdist með.
Ísland braut ísinn
gegn Tyrkjum
ÍSLENDINGAR mættu vígreifir á ísinn í Laugardalnum í gærkvöldi
þegar þeir tóku á móti Tyrkjum í sínum fyrsta leik í 3. deild heims-
meistaramótsins í íshokkíi. Sá baráttuhugur fleytti þeim langt inn í
leikinn og færði mörk, sem dugðu til að vinna 7:5, en undir lokin var
tvísýnt um sigur vegna stöðugra brottrekstra. Fyrirfram voru Tyrkir
taldir helstu keppinautar Íslands um efsta sæti deildarinnar svo að
segja má að ísinn sé brotinn.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Eyjastúlkur skoruðu fyrsta markleiksins en eftir það komst ÍBV
aldrei yfir í leiknum. Afspyrnuslakur
varnarleikur í fyrri hálfleik varð til
þess að gestirnir skoruðu tuttugu
mörk í hálfleiknum en Eyjastúlkum
tókst aðeins að finna netmöskvann
sautján sinnum. Í síðari hálfleik var
meira jafnræði með liðunum, ÍBV
tókst að jafna þegar fimmtán mín-
útur voru eftir og eftir það var nán-
ast jafnt á öllum tölum. Þegar yfir
lauk var hungrið þó meira í Stjörnu-
stelpum sem eiga hrós skilið fyrir
endalausa baráttu og að gefa Eyja-
stúlkum ekkert eftir. Í stöðunni
33:33 tók Jóna Margrét Ragnars-
dóttir af skarið og skoraði tvö mörk í
röð þegar mínúta var eftir.
Eyjastúlkum tókst að minnka
muninn í eitt mark en lengra komust
þær ekki og Stjörnustúlkur fögnuðu.
Stjarnan
lagði ÍBV
STJARNAN gerði aldeilis góða
ferð til Eyja í gær þegar þær
lögðu ÍBV í 1. deild kvenna og
urðu fyrsta liðið í deildinni í ár til
þess. Það má segja að frábær
barátta hafi fyrst og fremst skil-
að liðinu þessum sigri og
Stjarnan því enn í bullandi bar-
áttu um annað sæti deild-
arinnar. Lokatölur, 34:35.